1.
kafli
Það
er upphaf að þessari sögu að Haraldur kóngur hinn hárfagri réð
fyrir Noregi. Í þann tíma hafði sá maður forræði fyrir
Naumudölum er Þorgnýr hét. Hann átti tvo sonu og hét Þórólfur
hinn eldri en Þorsteinn hinn yngri. Þeir uxu upp með föður
sínum þar til er þeir voru frumvaxta. Þeir voru ólíkir í
skaplyndi. Þórólfur var mjög við alþýðuskap, vitur maður og
forsjáll, vinsæll og gerðist kaupmaður og fór landa í milli og
þótti hinn besti drengur. Hann var ekki mikill maður og vel á
sig kominn, vænn að áliti. Þorsteinn var óvær við alþýðu,
mikill vexti. Hann byggði eldahús og fékk mikið ástleysi af
föður og móður og öllum frændum sínum en Þórólfur fékk því
meiri virðing sem hann flutti meira heim. Þorsteinn var því
leiðari föður sínum sem hann fágaði þá iðn lengur og ei vildi
Þorgnýr láta hann sinn son kalla.
Fór
nú svo þar til sem þeir voru rosknir menn. Þá var Þorsteinn
svo mikill að hann lá milli setstokka sem hann var langur til.
Öskuhaugur var á aðra hönd honum en eldur á aðra hönd og féllu
menn um fætur honum.
2. kafli
Þessu
næst er það sagt að Þórólfur kom heim í land til föður síns
með mikinn fjárhlut og margar gersemar og gerði faðir hans
veislu í móti honum með svo marga menn sem honum þótti sinn
sómi meiri en áður. Nú fór Þórólfur heim með föður sínum.
Það
var síð um kvöld. Gekk hann inn einn saman því honum voru göng
kunnig. En leið hans lá um eldhúsið þar Þorsteinn bróðir hans
lá í. Í þann tíma dags var Þorsteinn vanur að leggjast til
svefns. Þórólfur
gengur nú um eldahús. Þorsteinn lá í milli
setstokkanna. Þórólfur gekk að og ætlaði trédrumb vera.
En
þar barst svo að að hann lá fallinn um Þorstein og hraut á
öskuhauginn öðrumegin en Þorsteinn skellti upp, hló og þá
mælti Þórólfur: "Til ills höfum vér þig upp dregið er þú hlærð
að óförum vorum."
"Djarfur
ertu," sagði Þorsteinn, "að þú krytur um þó að þú hafir fallið
um fót mér þar sem eg get ei þótt þú farir með eign okkra alla
og hafir sem þú eigir. Skaltu það vita að mér þykir þú einn
eyða því sem við eigum báðir og kaupir þér með því orðlof og
vinsæld."
Þórólfur
sagði: "Vittu það fyrir víst að eg vildi gefa minn eyri til og
risir þú upp úr fletinu og færir á brott úr þessu húsi."
Þorsteinn
sagði: "Seint ætla eg mig fyrirláta húsið fyrir því að ekki fæ
eg mér æðri athöfn en liggja hér í fletinu."
Þórólfur
sagði: "Það vildi eg að þú gerðir fyrir mín orð og skal eg þér
því meiri vera sem eg á meira kosti en aðrir frændur þínir ef
þú lætur að orðum mínum."
Þorsteinn
sagði: "Engi þökk get eg að föður þínum sé á fleipri þessu en
mér lítil því mér er meiri von að hann gjaldi þér fjandskap
fyrir því að hann vill mig ei sinn frænda láta kalla fyrir
ástleysis sakir við mig."
Þórólfur
sagði: "Engu þykir mér varða hvort honum þykir vel eða illa
fyrir því að mér þykir ekki undir hvort eg er hér lengur eða
skemur. Hinu mun eg heita sem eg skal efna að við þig mun eg
aldrei skilja meðan við lifum báðir."
Þorsteinn
sagði: "Von þykir mér bróðir að þú munir það efna er þú heitir
fyrir því að þú ert reyndur að drengskap. En þó vil eg fyrir
skilja um það mál ef við kaupum saman."
"Hvað
er það?" segir Þórólfur. "Eg mun til vinna flest það er þú
beiðir ef þú gerir nú minn vilja."
Þorsteinn
sagði: "Kynlegt mun þér þykja hvers eg beiði. Vil eg einn ráða
ef okkur skilur á jafnan."
Þórólfur
sagði: "Kynlegs hlutar beiðist þú frændi og þykir mér það
meiri vandi en virðing. En þó vil eg það gjarna til vinna að
þú mættir sæmdarmaður verða."
"Svo
er þó," segir Þorsteinn, "að eg hygg mig það mæla meir í þína
þörf en mína og munum við nú þessu kaupa ef þú vilt þessu
játa. En grunur er mér á að þú munir þetta ei efna þá mér
þykir mestu máli skipta."
Þórólfur
sagði: "Ei ætla eg að vanvirða svo orð mín því það hefi eg
aldrei gert áður."
"Hversu
sem það fer," segir Þorsteinn, "þá munum við nú þessu kaupa."
Hann
tekur þá upp hnakk sinn og gengur út með og brýtur í sundur,
segir að ei skal konum gagn að verða. Þórólfur gekk til móður
sinnar og bað hana kerlaug gera. Hún spurði hvað skyldi.
Þórólfur
sagði: "Þorsteinn son þinn rís nú upp úr fletinu og vill hafa
kerlaugina."
"Góðu
heilli," sagði hún.
Og
nú færir hún Þorstein af klæðum, vararvoðarstakki og
hökulbrókum þeim er hann var vanur í að vera. Var honum nú
þvegið og kembt hár hans og skorið. Kom Þórólfur nú með klæði
og bað hann í fara. Klæddist Þorsteinn nú skjótt. Eftir það
tók Þórólfur af sér seilamöttul, það var skarlatsmöttull og
undir gráskinn, og lagði yfir Þorstein. En er hann stóð upp
tók hann honum ei meir en á bróklinda. Tók hann þá af sér
skikkjuna og bað hann sjálfan með fara en bað hann fá sér aðra
yfirhöfn þó hún væri ei jafngóð. Þórólfur fékk honum þá eina
loðkápu og bað hann í fara. Hann steypir yfir sig kápunni og
var hún hvorki síð né of stutt. Þá tók Þórólfur af sér sverð
og gaf honum. Það var góður gripur og vel búið. Þorsteinn tók
við sverðinu og brá þegar, tók blóðrefilinn og dró saman milli
handa sér svo uppi lá blóðrefillinn við hjöltin. Þá lét hann
aftur hlaupa og var þá úr allur staðurinn.
Seldi
hann þá Þórólfi aftur sverðið og bað hann fá sér annað vopn
sterkara "og skal mér ekki sneis þessi."
Þórólfur
tók við sverðinu og þótti spillt, bað hann þá ganga til
vopnakistu sinnar um morguninn og kjósa þar af það vopn er
honum þætti vænlegast. Eftir það gengu þeir til borðs og
settist Þórólfur næst föður sínum en Þorsteinn á aðra hönd
honum. Þorgnýr sér þá bræður og lætur síga brún á nef og
kvaddi Þorstein engu en Þórólfur orti orða á hvern mann og var
hinn kátasti.
En
um morguninn gengu þeir bræður til vopnakistu Þórólfs og fann
Þorsteinn þar bolöxi þá er honum þótti við sitt skap vera og
færir hana á breiðöxarskaft, gekk síðan til lækjar og hvatti
hana. Þessa öxi bar hann síðan að vopni.
3. kafli
Nú
eftir þetta sátu þeir með föður sínum um veturinn.
En
um vorið spurði Þórólfur Þorstein hvað hann vildi ráða sinna
en hann bað Þórólf ráða: "Þykir mér vel að þú sjáir fyrir hið
fyrsta sinn er við förum báðir saman."
Bjó
Þórólfur þá skip sitt og réð til háseta. Síðan héldu þeir
skipi sínu til kaupstaða. Er það ei sagt í hverja þeir héldu
en hitt er greint að þeir komu heim að hausti. Tók Þorgnýr við
Þórólfi eftir vana virktavel en hann lét sem hann sæi ei
Þorstein og ekki höfðu þeir viðmæli á hinum fyrrum misserum
síðan hann reis úr fletinu. Þar voru þeir þann vetur og var
samt með þeim feðgum, Þorgný og Þorsteini, svo fátt að aldrei
mæltust þeir við. Nú lagðist engi mannvirðing á Þorstein meðan
svo búið var.
Þá
spurði Þórólfur Þorstein bróður sinn hvað hann vildi að hafast
um sumarið: "Mér virðist svo sem þér þyki lítið gaman að
kaupferðum."
"Rétt
getur þú," sagði Þorsteinn, "þykja mér kaupferðir vera manni
meir til prýði og ágætis en til hreysti."
Þá
sagði Þórólfur: "Hvað skulum við þá fyrir okkur leggja?"
Þorsteinn
sagði: "Hugsað hef eg nokkuð til þess. Eg vildi að þú keyptir
okkur langskip tvö en þú héldir knerri okkrum í kaupstaði sem
þú ert vanur."
"Annað
ætla eg fyrri," sagði Þórólfur, "því það skal eg enda sem eg
hefi heitið að við þig mun eg aldrei skilja meðan við lifum
báðir."
Þorsteinn
sagði: "Þetta gerir þú illa því faðir þinn mun svo virða ef þú
kemur ei aftur sem eg hafi setið um líf þitt og er það mikill
skaði ef þér verður nokkuð en alls engi um mig. En þetta er
mikil háskaferð."
Eigi
að síður keypti Þórólfur tvö langskip og seldi knörrinn. Héldu
þeir þeim í hernað og varð gott til fjár um sumarið, héldu
heim um haustið og höfðu fimm skip. Ekki er getið hvar þeir
herjuðu. Svo fór fram þrjá vetur og höfðu þeir þá tólf skip og
auð fjár.
4. kafli
Svo
er sagt að hið þriðja haust gekk Þorgnýr í móti Þorsteini og
heilsaði honum fyrri. Hann tók vel föður sínum og voru þeir
þar um veturinn bræður en hásetar vistuðust annarstaðar.
Þorgnýr
bauð þeim bræðrum að þeir tækju við búi og fjárforráðum en
þeir bræður sögðu báðir sem einum munni og kváðust ekki vilja
fylgja nema hans ráðum meðan hann væri til "enda höfum við enn
ekki reynt okkur," sagði Þorsteinn, "í einvígum eða víkingu og
munum enn freista lengur. Vildi eg faðir þú vísaðir okkur til
víkings nokkurs þess er mér væri nokkur frægð í og biði eg
annaðhvort bót eða bana og væri mín síðan getið að nokkru."
"Það
er líkast og," segir Þorgnýr, "að það fáir þú þegar þú beiðist
ef þér þykir allmikið undir að deyja skjótt. Nú mun eg vísa
þér til þess manns að uppi mun vera meðan heimurinn stendur ef
þú sigrar hann."
"Lúk
heill munni í sundur," segir Þorsteinn, "og vísa mér til hans
sem skjótast."
"Svo
skal vera," segir Þorgnýr. "Ljótur hinn bleiki heitir maður.
Hann er austur í Svíaskerjum við Gautland og hefir fimmtán
skip og dreka þann er járni er varður allur ofan. Hann siglir
í gegnum hvert skip, kallar hann drekann Járnbarða. Ljótur er
mikill maður vexti, vænn að áliti en segja sumir menn að hann
bíti ei vopn."
"Nú
hefur þú vel sagt," sagði Þorsteinn, "og skal eg annaðhvort
bíða hel eða hafa felldan Ljót að hausti."
Bjó
Þorsteinn þegar skip sitt úr landi en keypti knörr einn svo
Þórólfur vissi ei.
Að
sumri bjuggust þeir til ferðar og er þeir komu til skips sagði
Þorsteinn Þórólfi fyrirætlan sína: "Knörr þennan er eg hefi
keypt ætla eg að þú skulir halda í kaupferðir í sumar en eg
mun fara í hernað."
Þórólfur
segir: "Hví viltu bróðir að við skiljum þar sem eg hefi því
heitið að við skyldum aldrei skilja?"
Þorsteinn
segir: "Nú er þar komið frændi að eg vil ráða eftir því sem eg
hefi skilið fyrir því að mörgum mun þykja mikill skaði um þig
ef þér verður nokkuð til meins en alls engi um mig þó eg komi
ei aftur."
Þórólfur
segir: "Ekki þarftu að mælast undan þessu. Mér þykir verra líf
en hel ef eg skil við þig."
Þorsteinn
segir: "Fór sem mig varði að þú mundir ei efna það er þú hést.
En þó mun eg ei láta letjast ferðarinnar og segir mér svo
hugur að við munum ei báðir aftur koma og ei örvænt að hvorgi
komi."
Þórólfur
segir: "Engi má komast yfir sitt skapadægur. Þykir mér meiri
sæmd að deyja með þér en lifa við skömm og hneisu eftir."
"Þú
munt nú ráða," sagði Þorsteinn.
Og
héldu síðan skipunum til Gautelfar og gáfu nú engan gaum að
víkingum. Þeir sigldu að skerjunum og sáu þar kastala einn.
Þorsteinn bað þá þar að leggja. Þetta var síð um kveld er þeir
lögðu undir skerin þar sem kastalinn var uppi á. Þorsteinn bað
þá hljóða vera og tjalda yfir sér. Þorsteinn bað menn sína
nokkura fara um þvert skerið og vita ef þeir sæju tíðindi
nokkur. En er þeir komu upp á skerið sáu þeir hvar
drekahöfuðið kom upp. Var sem á gull eitt sæi. Þar töldu þeir
fimmtán skip hjá drekanum og var tjaldað yfir svörtu. Ljós var
undir tjöldunum. Þar sátu menn við drykkju. Síðan fóru þeir
aftur og létu ekki verða vart við sig. Sögðu þeir Þorsteini
slíkt er þeir höfðu séð.
"Þá
skulum vér í starfi í nátt og færa varnað allan af skipi og
grafa niður nokkuð en flytja út grjót í staðinn fyrir því að
eg ann þeim einskis eyris að njóta og þegar skulum vér leggja
að þeim er vígljóst er."
5. kafli
Þá
er ljóst var um morguninn lagði Þorsteinn farm sinn og lét
greiða atróður og sagðist vilja tala með víkinga. En er þeir
komu að þeim stóð upp maður á drekanum og gekk út á borðið. Sá
var í rauðum skarlatskyrtli og heklu blá yfir sér, hlaðbúna
húfu á höfði. Sá kallaði á drekanum og spurði hver þar gerði
svo gildan atróður.
Þorsteinn
sagði til sín "eða hver spyr að?"
"Sjá
heitir Ljótur," sagði hann.
"Það
er vel," segir Þorsteinn, "að við höfum hér fundist því að þín
hefi eg lengi leitað."
Ljótur
mælti: "Hvað hefur þú mér nú hugað? Hefi eg þig eigi séð fyrri
en heyrt hefi eg þín getið."
Þorsteinn
sagði: "Skjót eru erindi við þig. Eg vil gera við þig félag."
Ljótur
spurði: "Hversu er félagsgerð sú?"
"Skjótur
er kostur," sagði Þorsteinn. "Þú skalt ganga á land upp og
hafa vopn þín og klæði en menn þínir í skyrtu og línbrókum."
Ljótur
sagði: "Ójafnlegur kostur líst mér þessi eða hver er annar?"
"Sá
er annar," sagði Þorsteinn, "að við skulum berjast."
Ljótur
sagði: "Hvar er liðskostur sá er þú hefir til þess að þú megir
mér slíka afarkosti gera?"
"Hér
er liðskostur sá er eg hefi," sagði Þorsteinn, "þessi tíu
skip."
Þá
brosti Ljótur og mælti: "Allólíklegt þykir mér þetta og vil eg
miklu heldur eiga bardaga við þig en láta fé mitt svo
skammsamlega."
"Þá
leggi fram skip öll," sagði Þorsteinn", móti mínum skipum."
Ljótur
sagði: "Ei uni eg við þann kost að láta fleiri skip til en þú
því það hef eg aldrei fyrr gert heldur hef eg jafnan haft
færri skip og hefi eg þó sigur haft."
Þorsteinn
sagði: "Eigi þarftu að spara mig til þess."
Ljótur
sagði: "Ei mun eg þó fleiri fram leggja en jafnmörg en ef þú
vilt berjast við liðsmun þá mun eg láta annað til þá annað er
hroðið meðan til eru."
"Svo
skal vera," sagði Þorsteinn.
Brugðu
þeir nú tjöldum og leggja saman skipum sínum tíu hvorir. Tóku
þeir til bardaga. Gekk fyrst grjóthríð mikil af skipum
Þorsteins en hver steinn er Þorsteinn sendi gekk annaðhvort í
gegnum skipin eða hafði mann. Börðust þeir nú þann dag allan
en frá lyktum er það að segja að þá hafði Þorsteinn hroðið
fjórtán skip af Ljóti en Ljótur fimm af Þorsteini og margir
mjög sárir en sumir drepnir. Voru þá sett grið í millum þeirra
til morguns.
Ljótur
bað Þorstein burtu færa öll þau skip sem hann hafði fengið um
daginn af honum "og ertu svo frækinn maður að engi hefur mér
svo á bug ekið sem þú og mun engi þér þetta til ámælis
leggja."
Þorsteinn
sagði: "Eftir munu þó enn gripir góðir nokkurir á drekanum og
ætla eg annaðhvort að eignast allt eða liggja hér eftir."
Ljótur
mælti: "Dulinn ertu að þér að þú hyggur að vinna drekann með
fimm skipum þar sem mér þætti mitt vænna þó að þú legðir að
með tíu skip og fýsi eg þig frá að leggja."
Þorsteinn
sagði: "Sé eg að þú þorir ei að berjast við mig og far þú leið
þína og ber níðingsorð hvar sem þú ferð."
Ljótur
sagði: "Verra beiðist þú en þú átt kosti enda skaltu það hafa
að þú liggir hér eftir áður annað kvöld komi ef eg má ráða."
Fór
Þorsteinn nú til lands með skip sín og tjalda yfir sér og
bundu sár sín, gengu síðan til borðs eftir það.
Þá
mælti Þorsteinn: "Ei munum vér í kyrrðum mega sitja í nátt ef
vér skulum geta unnið drekann á morgun. Skulum vér leggja að
eyju þeirri sem hér er nær oss. Hún er skógi vaxin. Vér skulum
höggva stór tré og fella á annað borð drekanum. Get eg að hann
hallist við og má vera að vér komumst þá upp á drekann."
Og
nú gera þeir svo og leggja að drekanum og veita harða atsókn.
En er þeir höfðu fellt viðuna á drekann þá hallaðist hann
eftir en þeir á drekanum skutu skjaldborg. Nú fór sem að
Þorsteinn gat að þeir gengu á annað borð drekans, þeim megin
sem sóknarinnar var að von. Lét þá skipið eftir. Var nú ei of
hátt að vega.
Það
er sagt að Þorsteinn komst fyrst upp á drekann og Þórólfur
bróðir hans. Tókst nú harður bardagi af hvorumtveggjum. Þá
kastaði Þorsteinn öxi sinni og þótti hún of seinfeng til vopns
en liðsmunur mikill. Greip hann þá ásstubba einn og barðist
með. Þórólfur bróðir hans gekk fram á aðra hönd honum og
hlífði þeim báðum því Þorsteinn sá fyrir engu öðru en drepa
allt sem fyrir verður. Þeir börðust allt til kvölds. Var
Þorsteinn nú kominn aftur að lyftingu. Ljótur sér nú hvar
komið var og fleygir frá sér sverðinu til þeirra bræðra en
ætlar að steypa sér útbyrðis og sér þá ei undanbragð annað. En
Þorsteinn lýstur hann niður við skipborðinu með ásstubbanum
svo hart að höfuð og herðar féll útbyrðis en fótahluturinn inn
í skipið. Þá var svo myrkt af nótt að hvorki mátti ryðja
skipið blóði né búkum. Þá svipaðist Þorsteinn um og sá ei
fleiri menn upp standa af liði sínu en tólf og eftir það reru
þeir til lands og ætluðu til herbúða sinna.
En
er þeir voru skammt frá ströndu komnir þá tók Þórólfur til
orða: "Nú mun eg gera lykkju á leiðinni og nenni eg ei að
ganga lengra."
Þorsteinn sagði:
"Ertu sár bróðir?"
"Ekki dyl eg þess,"
sagði Þórólfur, "því að þá er Ljótur kastaði sverðinu
stefndi hann á þig meir og brá eg við skildinum og var eg þá
ber fyrir og bar sverðið að kviðnum fyrir neðan bringspölu
og hljóp á hol svo út féllu iðurin. Sveipaði eg þá að mér
klæðunum og svo hef eg gengið síðan. Mun nú og lokið
minni göngu."
Þá
sagði Þorsteinn: "Þá hefir farið sem eg gat að annar hvor
okkar mundi eigi aftur koma og vildi eg hafa gefið til mikið
að við hefðum för þessa aldrei farið."
Þórólfur
sagði: "Ekki má nú sakast um það fyrir því að engi getur
komist yfir sitt skapadægur og þykir mér betra að deyja við
góðan orðstír en lifa við þá skömm að hafa ei fylgt þér,"
sagði hann, "en þó vil eg biðja þig bænar ef þú vildir veita
og kennir það metnaðar."
"Hvað
er það frændi?" sagði Þorsteinn.
Þórólfur
sagði: "Það mun eg segja þér. Mér þykir nafn mitt ei til lengi
hafa uppi verið og mun það falla niður sem sina og mun mín að
engu getið þegar þú ert liðinn. En eg sé að þú munt auka ætt
vora og lifa langan aldur. Muntu verða hinn mesti heillamaður.
Vildi eg ef þér yrði sonar auðið að þú létir Þórólf heita en
allar þær heillir sem eg hefi haft vil eg honum gefa fyrir því
þá vænti eg að mitt nafn muni uppi meðan heimur er byggður."
Þorsteinn
sagði: "Þetta vil eg veita þér gjarna því eg vænti að það sé
vor sæmd og góð heill mun fylgja nafni þínu meðan í vorri ætt
er."
Þórólfur
mælti: "Nú þykist eg hafa beitt þess sem mér þykir á liggja."
6. kafli
Eftir
þetta andast Þórólfur. Binda þeir nú sár sín og sofa af
náttina. En um daginn eftir fóru þeir til drekans og ruddu
hann búkum og blóði en fluttu fjárhlut í kastalann. Þar voru
þeir viku og græddu sár sín. Þeir gerðu kistu að líki Þórólfs.
Kvað Þorsteinn hann þar ei jarða skulu.
Þá
er þeir þóttust færir tóku þeir eina róðrarskútu og höfðu af
fé það er honum þótti best, héldu síðan til Svíþjóðar og höfðu
lík Þórólfs með sér en allur þorri fjárins var eftir í
kastalanum. Þeir komu þar við land í Svíþjóð er jarl einn réð
fyrir sá Herrauður er nefndur. Hann var skammt á land upp.
Þorsteinn
gekk á land upp og til hallar jarls með ellefta mann og kom
þar að dagverðardrykkju. Dyrverðir sögðu það engan vana að
ókunnir menn gengju þar inn með vopnum í drykkjustofu jarls.
Þorsteinn
kvaðst ekki það hirða "og högg eg þar hvern sem kominn er ef
þið farið ei frá."
Þeir
fóru skjótt frá dyrunum því þeim sýndist maðurinn ógurlegur og
þorðu ei fyrir að standa. Síðan gekk Þorsteinn inn með alvæpni
fyrir jarl og þeir ellefu saman. Þorsteinn kvaddi jarl. Hann
tók vel kveðju hans og spurði hver hann væri. Hann kvaðst
Þorsteinn heita og vera Þorgnýsson norðan úr Naumudölum.
Jarl
sagði: "Heyrt hefi eg þín getið að þú sért ágætur maður og mun
tíðindum gegna um þínar ferðir og gakk til sætis og drekkum
báðir saman í dag og seg mér tíðindi og sit gegnt mér í
öndvegi."
Þorsteinn
gerir nú svo og drekka nú um hríð. Jarl spurði hvar Þorsteinn
hafði herjað um sumarið.
Þorsteinn
sagði: "Ekki hefi eg víða herjað í sumar en við Ljót hinn
bleika hefi eg nú barist fyrir skemmstu og látið fyrir honum
alla mína menn utan þessa ellefu og þar með Þórólf bróður minn
er eg mun aldrei bætur bíða."
"Slíks
var von," sagði jarl, "og er það mikil gæfa að þú komst undan
heill því engan veit eg þann verið hafa annan en þig."
Þorsteinn
sagði: "Eg bið að þér ljáið mér höll yðar og mínum mönnum. Vil
eg drekka erfi eftir bróður minn og heygja hann hér með yðru
lofi. Skal eg kosta fé til svo yður skaði ekki í því."
Jarl
kvaðst það gjarnan vilja "af því að eg hygg mína höll ei betur
skipaða en þó þú skipir eða þínir menn."
7. kafli
Þorsteinn
tekur nú til haugsgerðar og hans menn. Gekk það skjótt. Var
Þórólfur í haug lagður og nokkurt fé honum til sæmdar. Síðan
bjó Þorsteinn veislu og bauð til jarli og mörgum öðrum dýrum
mönnum. Sátu menn að henni þrjár nætur sem siður var til.
Leysti Þorsteinn menn á burt með góðum gjöfum og aflaði sér
svo vinsælda.
Jarl
spurði nú Þorstein hvað hann vildi ráða sinna "því nú er mjög
sumar liðið en þú átt farveg langan."
Þorsteinn
sagði: "Eg veit ei hvers eg á kost."
Jarl
segir: "Til reiðu er yður hér veturvist ef þér viljið og kann
eg yður þökk fyrir."
Þorsteinn
sagði: "Þetta er vel boðið herra og skal gjarnan þiggja."
Er
Þorsteinn þar um veturinn og hans menn í góðu yfirlæti. Virðir
jarlinn hann fram yfir hvern mann og svo gerðu aðrir eftir.
Nú
leið að jólum og gerðist skipan á lund manna. Þar hafði verið
glaumur og gleði mikil en nú tókst það af og gerist hljóðlæti
mikið í höllinni. Var það af því að jarl gerði svo fyrir.
Það
var einn dag að Þorsteinn spurði hirðmann einn hvað til bæri
um ógleði manna.
Hirðmaðurinn
sagði: "Vorkunn mun þér á þykja ef þú veist en þó þykir mér þú
héraðsdaufur maður er veist ei hvað til ber."
"Ekki
hefi eg að því hugað," sagði Þorsteinn, "en stórtíðindum þætti
mér eiga að gegna er tignir menn láta sér svo mikils fá."
Hirðmaður
sagði: "Gesta eigum vér von að jólum, þeirra sem oss er mikil
óþurft í."
"Hverjir
eru þeir?" sagði Þorsteinn.
Hirðmaðurinn
sagði: "Maður heitir Moldi. Hann er víkingur eða hálfberserkur
ef svo vill kalla. Þeir eru tólf saman og hafa komið hér
tvisvar áður. Molda bíta ei járn. Þeir vaða eld og bíta í
skjaldarrendur."
Þorsteinn
sagði: "Hverja kosti gera þeir jarli?"
Hirðmaður
sagði: "Moldi vill mæla til mægða við jarl en til samfara við
dóttur hans, Ingibjörgu, ellegar býður hann honum á hólm þrem
náttum eftir jól en skal ráðast hvað jarl vill. Mundi hann
skjótt kjósa ef hann væri ungur maður en nú er hann úr
bardögum fyrir aldurs sakir."
Þorsteinn
sagði: "Engin vorkunn þykir mér á að honum fái slíkt svo
mikils."
Þessu
var svo snúið að Þorsteinn hefði boðist til að ganga á hólm
fyrir jarl. Og litlu síðar fundust þeir jarl og Þorsteinn og
spyr jarl hvort það gegndi nokkuru að hann hafði boðist til að
leysa hann undan og ganga á hólm við Molda.
Þorsteinn
sagði: "Við því geng eg ei en það sagði eg að mér þætti
líklegt að maður mundi til verða að leysa þig undan hólmgöngu
ef þú leggur nokkur gæði til við hann."
"Það
hefi eg talað," segir jarl, "að þeim manni mundi eg gifta
dóttur mína er þenna mann gæti af ráðið."
Þorsteinn
sagði: "Ekki spurði eg þessa af því að eg ætli mér þetta
heldur fyrir það eg veit fleiri munu til verða svo sem fleiri
vita."
Hætta
þeir nú þessu tali og líður að jólum. Gladdist jarl nú heldur
við orð Þorsteins. Lét jarl búast við veislu fjölmennri og
bauð þangað frændum sínum og vinum og öllum hinum bestu mönnum
í hans ríki.
Aðfangadag
jóla drífa flokkarnir að bænum. Jarl lét autt tólf manna rúm
utar frá öndvegi. Gleði var mikil í höllinni. En þá eldarnir
voru sem bjartastir var jarli sagt að Moldi riði að höllinni
og menn hans. En er þeir komu stigu þeir af baki, gengu síðan
inn í höllina tólf saman og óðu þegar eldana og bitu í
skjaldarrendur. Moldi gekk fyrir jarl og kvaddi hann vel og
virðuglega. Jarl tók vel kveðju hans og bað hann ganga til
sætis.
Hann
kvaðst ekki mundu þiggja veislu að honum "og er mér jafnt í
hug við þig sem fyrr."
Jarl
sagði: "Eg mun nú og segja þér. Eg vil að þú drekkir með mér
um jólin en eg leita við menn mína hvort nokkur vill mig undan
leysa þessu vankvæði."
Moldi
sagði: "Eg vil þá að þú leyfir mér að ganga um höllina fyrir
hvern mann og spyrja hvort nokkur þykist mér jafnsnjallur og
er það mikil gleði að skemmta sér með því en eigi mun eg það
til þín tala jarl því eg vil ekki það mæla er þér þyki
metnaðarskarð í vera."
Jarl
kvaðst ei mundu banna honum það að mæla slíkt er hann vildi og
honum þætti gaman að. Síðan gengur hann utar frá öndvegi fyrir
hvern mann og spurði hvort nokkur teldist honum jafnsnjallur
þar til er hann kom fyrir öndvegismann. Sá lét dragast fætur
af stokki og hafði breiddan feld yfir höfuð sér. Moldi spurði
hver sá herkinn væri er þar lægi en sæti ei upp sem aðrir menn
í öndvegi. Þorsteinn kvað hann engu skipta.
Moldi
sagði: "Þú ert drjúglátur eða telst þú jafnsnjallur mér?"
Þorsteinn
sagði: "Ei nenni eg því að kallast jafnsnjallur þér því eg
kalla þig þess kvikindis læti hafa sem gengur á fjórum fótum
og vér köllum meri."
Moldi
sagði: "Þá skora eg á þig til hólmgöngu þrem nóttum eftir
jól."
Þorsteinn
sagði: "Að heldur eftir jól að mér þykir því betur sem við
berjumst fyrr og þó þú viljir þegar í stað."
Moldi
sagði: "Ekki vil eg spilla goðahelginni og er mér ekki ótt um
þetta."
Síðan
gekk hann í brott og þeir allir úr höllinni og stigu á hesta
sína og riðu í braut.
8. kafli
Nú
þakka menn Þorsteini fyrir er hann tókst þessa hólmgöngu á
hendur og urðu menn fegnir, drukku nú glaðir og kátir um
jólin.
Eftir
jólin fjölmennti jarl mjög til hólmstefnunnar og komu þeir
Þorsteinn fyrr til hólms og settust niður á völlinn. Þá spurði
jarl Þorstein hvar sverð það væri er Þorsteinn ætlaði að
berjast með.
Þá
brá Þorsteinn undan skikkju sinni einu sverði og sýndi jarli
og mælti: "Hér er sverð það er eg mun hafa."
Jarl
brá sverðinu og leit á og mælti: "Hversu komstu að sverði
Ljóts hins bleika?"
Þorsteinn
sagði: "Hann gaf mér það á deyjanda degi með öðru góssi sínu."
Jarl
sagði: "Segir þú mér hann dauðan?"
Þorsteinn sagði: "Dó
hann um sinn."
Jarl mælti: "Þessa
varði mig eigi og seg mér hversu fóru ykkur skiptin."
Þorsteinn sagði sem
farið hafði.
Jarl mælti:
"Frægðarmaður ertu mikill Þorsteinn en sverð þetta dugir þér
ei við Molda. Mun eg sýna þér hvað það dugir," tók í
blóðrefilinn og dró svo oddurinn lá í hjöltunum, lét síðan
hlaupa aftur. Var þá úr staðurinn.
Jarl
mælti þá: "Hér er sverð Þorsteinn er eg vil gefa þér. Þetta
skaltu bera í móti Molda og taka eigi fyrr upp en þú ert búinn
að höggva en haf hitt til sýnis er þú berð áður."
Þorsteinn
tók við og brá sverðinu og sýndist ryðfrakki einn vera. Jarl
bað hann fá sér. Hann
gerði svo. Jarl laust niður hjöltunum á stein og féll af ryð
allt. Var þá bjart sverðið sem silfur.
"Þetta
sverð mun bíta Molda," sagði jarl, "en hann deyfir hvert vopn
er hann sér. Fyrir því skaltu gæta að eigi verði hann var við
fyrr en þú höggur til hans."
9. kafli
Þorsteinn
tekur nú við sverðinu og reið Moldi þá að með flokk sinn og
mælti: "Eigi hefir svo tekist fyrr að eg hafi orðið seinni á
þetta leikmót en aðrir heldur hefir hitt verið að eg hefi
orðið nokkrum mönnum skjótari."
Þorsteinn
sagði: "Því seinna skaltu í burtu komast sem þú komst síðar"
og sprettur upp eftir það.
Jarl
bauð að halda skildi fyrir Þorstein en hann sagði að enginn
mann skyldi sig í hættu hafa fyrir hann: "Mun eg sjálfur bera
skjöld minn."
Síðan
gengu þeir þar til sem þeir skyldu berjast og kveðst Moldi
mundi segja upp hólmgöngulög "því eg hefi á þig skorað. Sínum
feldi skal hvor okkar kasta undir fætur sér. Skal hvor standa
á sínum feldi og hopa ei um þveran fingur. En sá sem hopar
beri níðingsnafn en sá sem fram gengur skal heita vaskur maður
hvar sem hann fer. Þrem mörkum silfurs skal sig af hólmi leysa
sá er sár verður eða óvígur."
Þorsteinn
sagði: "Þó þar liggi við sex merkur heldur en þrjár þá þykir
mér því betur sem eg tek meira."
"Ekki
er þér því heitið," sagði Moldi, "fyrir því að eg hefi það
oftar átt að taka en gjalda."
Þorsteinn
sagði: "Eigi mun nú svo þó."
Nú
kasta þeir feldum undir fætur sér og ganga þar á.
"Það
er vandi vor," segir Moldi, "að þrjá skjöldu skal taka hvor og
hlífa sér með ef höggnir verða eða hversu er sverð það er þú
ætlar að vega með?"
Þorsteinn
seldi honum sverðið en hann tók við og brá því.
Hann
mælti: "Hversu komstu að sverði Ljóts hins bleika bróður
míns?"
Þorsteinn
sagði: "Ljótur sendi þér kveðju á deyjanda degi og það með að
honum þótti þú líkastur til að hefna hans."
Moldi
sagði: "Segir þú mér líflát Ljóts bróður míns og að þú hafir
verið hans skaðamaður?"
"Ekki
má þess dylja," sagði Þorsteinn, "og muntu nú vilja hefna hans
og fresta eigi lengur."
Moldi
sagði: "Mér þykir mikill skaði að drepa svo vaskan mann."
Þorsteinn
sagði: "Það er þó satt að segja að eigi má geta til. Það var
sagt að þú kynnir ekki að hræðast, hver ógn sem þér væri
boðin. Nú skil eg að þú vilt bera bleyðiorð fyrir mér hvar sem
þú ferð."
"Ei
skaltu þess bíða," sagði Moldi, "og högg nú þegar því mér er
annt að drepa þig síðan þú vilt ekki annað en deyja."
Þorsteinn
hjó til hans með sverði og klauf skjöld hans allan niður í
mundriða. Moldi hjó í móti til Þorsteins og klauf skjöld hans
...
(Eyður eru í söguna og hafa afritarar fyllt í þær á ýmsa vegu.
Hér eru tvær fyllingar í þessa eyðu, hin fyrri er í handritinu
Ny kgl. sml. 1714 4to.)
... og
svo gekk lengi dags að ei sá fyrir hvors hlutur lægri yrði.
En þó um síðir varð sá endir á þeirra einvígi að Moldi féll
með öngvum góðum orðstír en Þorsteinn gekk til hallar og
þakkar jarl honum þennan sigur með mörgum fögrum orðum og
virti hann nú miklu framar en áður og var Þorsteinn þar um
hríð í miklu eftirlæti hjá jarli.
(Elsta handrit hinnar síðari er AM 402 fol.)
Taka
þeir nú aðra skildi. Höggur þá Þorsteinn með sverðinu
jarlsnaut en Moldi ætlar að slá við flötum skildinum.
Þorsteinn sér það, lætur því hendur síga svo höggið kemur á
utanverðan fótinn og tekur af kálfann, ökklann og jarkann.
Hopar nú Moldi út á feldarskautið svo hann hallast við. Í
því slamrar Þorsteinn á háls Molda svo að hausinn fauk af.
Varð þá óp mikið af jarli og hans mönnum en þegar fylgjarar
Molda sjá fall hans vilja þeir undan halda en jarl biður
menn að láta þá ekki ná undanhlaupi. Voru þeir þar allir
drepnir nema einn sem Þorsteinn kúgaði til sagna hvar fólgið
væri fé Molda. Var það heilmikill auður því Moldi hafði
verið mikill hólmgöngumaður og hinn mesti ræningi. Féll
þetta fé undir Þorstein því jarl vildi ekkert af hafa.
Þakkaði hann Þorsteini sigur þenna og frelsi sem unnið hafði
sér og dóttur sinni. Varð nú Þorsteinn mjög frægur af þessu
öllu. Halda síðan heim til hallar. Lætur jarl stofna til
ágætrar veislu og drekka hana glaðir.
10. kafli
Það
var einn tíma er þeir voru tveir á tali, jarl og Þorsteinn, og
spurði jarl hver laun Þorsteinn vildi hafa fyrir það mikla
þrekvirki er hann hafði unnið "og er oss orðin mikil sæmd að
þér í öllu."
Þorsteinn
sagði: "Það viljum vér af yður þiggja sem þér viljið frammi
láta en varla er von að vér fáum það sem hugurinn stendur til
fyrir mannvirðingar sakir," sagði hann.
Jarl
mælti: "Raunmjög mun undir þér vera hvers þú beiðist því það
skal til reiðu af mér sem þú beiðir."
Þorsteinn
sagði: "Auðkveðin eru þá launin ef eg skal ráða. Það er
Ingibjörg dóttir yðar með þvílíkri heimanfylgju sem henni
sómir og yður úti að láta."
Jarl
sagði: "Fyrir löngu vissi eg það og hefur lengur frestast en
eg hugði. Skal eg allt efna við þig það eg hefi heitið en þó
vil eg mæla nokkuð mínu máli þar um og þínu. Mun eg auka þína
sæmd í því og að þú ráðir ríki þessu eftir minn dag og komir
aldrei til Noregs."
Þorsteinn
sagði: "Því vil eg heita að vera hér þrjá vetur en eftir það
vil eg kjósa hvort eg vil hafa jarldóm fyrir því þá mun eg sjá
hvort eg þá þykist mega halda ríkið eða eigi."
"Viturlega
er kjörið," sagði jarl, "og mun eg því samþykkur verða ef
Ingibjörg vill sem eg."
Þorsteinn
kvaðst ei mundu bekkjast til þess ef henni væri eigi ljúft.
Þeir gengu nú til tals með hana og sögðu henni sína fyrirætlan
og spurðu hversu henni væri um gefið en hún sagði að faðir
hennar skyldi fyrir ráða, kvað sér það vel mundu gegna. Var
þetta nú að ráði gert og var búin til sæmileg veisla og mörgum
mönnum til boðið. Sátu menn að veislu til þess að lokið var.
Leiddi Þorsteinn menn í burt með góðum gjöfum og varð hann af
því vinsæll og víðfrægur.
Nú
situr Þorsteinn þar um veturinn og gátu þau sér barn þegar það
mátti verða. Og er að þeirri stundu kom sem hún skyldi léttari
verða ól hún sveinbarn og var hann vatni ausinn og kallaður
Þórólfur. Hann óx þar upp og var allbráðger og líkur hinum
fyrra Þórólfi.
En
er Þorsteinn hafði þar verið þrjá vetur sagði hann jarli: "Nú
hefi eg hér verið alla þá stund sem eg hef heitið og mér er
hugur á."
Jarl
sagði: "Ekki megum vér halda á þér ef þú vilt burtu fara og
far þú hvert er þú vilt."
Þá
lét jarl búa skip með þeim farmi sem Þorsteinn hafa vildi til
Noregs og leiddi dóttur sína út með sæmdum miklum.
Þorsteinn
mælti: "Þess beiði eg yður herra ef svo ber við að yðvar missi
við að mínir erfingjar af dóttur yðvarri til komnir taki lönd
og lausa aura eftir yður ef eg sendi þá til."
Jarl
segir það skuli svo vera sem hann vildi að væri...
(Erfitt er að ráða í hvað staðið hafi í stórri eyðu sem hér er
í söguna. Í skýringum Björns á Skarðsá við fornyrði lögbókar
er tvisvar vitnað til Svarfdælu og kann það að vera sótt í
þennan hluta sögunnar. Þær skýringar eru á þessa leið samkvæmt
eiginhandarriti Björns, AM 216cß 4to.)
Hérað:
Item Svarfdæla: Þér hafið ókænlega haldið hér að óbyggðum
því mitt hérað er inn frá (það var Svarfaðardalur).
Kaldakol: Hann hafði nú farið eldi
og arni um lendur sínar.
Les Svarfdælu:
Þegar þessir allir eldar eru
slökktir þá er kaldakol, etc.
(Hér fylgir eyðufylling úr handritinu Rask 37. Kaflatal
er eins og þar.)
Eftir
það bjóst Þorsteinn til brottferðar og fylgdi jarl honum til
strandar.
Hann mælti þá við Þorstein: "Svo
kveð eg að orði sem þú hafir hér mestur maður komið á
Gautland síðan eg til vissi. Get eg að við munum ei oftar
sjást og er það mikill harmur að missa þín af ættjörðu vorri
en alls staðar muntu mesti maður þykja hvar sem þú ferð og
uppi mun nafn þitt meðan heimurinn er byggður og far þú
heill og vel."
Eftir það skildu þeir og hélt
Þorsteinn skipi sínu norður til Noregs og kom að hausti í
Naumudal. Og sem Þorgnýr vissi komu sonar síns fór hann á
móti honum og varð þar hinn mesti fagnaðarfundur. Bauð
Þorgnýr syni sínum heim með konu hans og alla fylgdarmenn.
Var þar ger hin besta veisla og að henni var mest til
skemmtunar haft að Þorsteinn sagði frá ferðum sínum og
hreystiverkum. Mátti þar heyra mörg afreksverk hans. Þorgnýr
frétti mjög að um Þórúlf son sinn, hversu hann hefði varist
mót Ljóti.
En Þorsteinn sagði allt sem farið
hafði: "Þótti mér sem eg mundi verða yfirbugaður af Ljóti,"
sagði hann, "þá hann hafði fellda alla menn mína utan tólf
en eg var sár og hlífarlaus fyrir honum."
Þorgnýr mælti: "Mjög var þá sem eg
gat til að þú mundir fá þig fullreyndan fyrir Ljóti bleika
og hefur mjög að svorfið fyrir ykkur báðum. Mun eg nú auka
við nafn þitt sem siður er til við stórmenni og mun eg kalla
þig Þorstein svarfað og gefa þér að nafnfesti bæ þenna og bú
og þar með umráð þau er eg hefi haft yfir Naumudölum. Er eg
nú mjög að elli kominn og ei fær til umsýslu en þú virðist
mér vel til þess fallinn fyrir hvervetna sakir."
Þorsteinn þakkaði föður sínum með
mörgum fögrum orðum og var með honum um vetrin.
En að vori komanda tók hann við búi
og umsýslu og gerðist brátt vinsæll og góður forstjóri. Hann
átti annan son við konu sinni en Þórúlf og var sá nefndur
Karl og sem hann eltist gaf faðir hans honum auknafn og
kallaði hann Karl hinn rauða. Dóttur áttu þau er Guðrún hét
(eða Þórarna). Öll voru börn þeirra efnileg.
13. kafli
Tveim vetrum síðar en Þorsteinn tók
við búi tók Þorgnýr sótt og andaðist. Þorsteinn lét efla
haug og lagði þar í föður sinn og mikið fé hjá honum. Síðan
drakk hann erfi eftir föður sinn og bauð til mörgu stórmenni
og að henni liðinni leysti hann alla menn út með gjöfum því
hann var hinn mesti rausnarmaður. Átti hann og gnótt fjár
síðan er hann felldi Ljót hinn bleika og eignaðist allt hans
góss.
Þar eftir bjó Þorsteinn nokkur ár
að föðurleifð sinni og óx æ meir og meir virðing hans. En er
hann hafði lengi búið þá tók Ingibjörg kona Þorsteins þunga
sótt og lá ei lengi áður hún andaðist. Þótti Þorsteini það
hinn mesti skaði sem von var að. Lét hann leggja hana í haug
hjá föður sínum. Harmaði Þorsteinn hana mjög og bar þar ei
yndi síðan og fýstist brott þaðan fyrir þessa skuld. Höfðu
þá margir tignir menn í Noregi flúið óðul sín undan ofríki
Haralds konungs hárfagra og fóru sumir vestur um haf til
Hetlands og Orkneyja og byggðu þar en margir fóru til
Íslands og tók það nú að verða mjög albyggt. Og fyrir því
Þorsteinn þóttist ei verða varhluta skuldalúkningar og
hlýðni að Haraldi konungi, þess og annars að hann undi ei
eftir dauða konu sinnar, þá bjó hann skip sitt til
Íslandsferðar. Börn hans voru þá fullþroskuð. Réðst Karl
hinn rauði til ferðar með föður sínum en menn segja hann
sendi Þórúlf son sinn til Gautlands og að hann hafi tekið
þar ríki litlu eftir dauða Herrauðs móðurföður síns og aukið
þar kyn sitt.
Ljótur hinn bleiki hafði áttan son
þann er Hafþór (Snækollur) hét. Hann var víkingur og er
Þorsteinn svarfaður var búinn til Íslandsferðar og var að
ráðstafa eignum sínum kom hann til bæjar Þorsteins og hertók
þaðan Þórörnu dóttur hans og rændi fé miklu. En er Þorsteinn
kom heim þá vissi hann ekki hvert Snækollur hafði haldið og
varð ei af neinni eftirför. Hélt Snækollur síðan við Þórörnu
og átti við henni tvö börn. Verður frá þeim sagt síðar í
sögunni.
Þorsteinn lét í haf eftir þetta.
Byrjaði honum seint og bar norður fyrir Ísland og tóku land
vestanvert við Eyjafjörð og réðu skipi sínu til hlunns.
14. kafli
Helgi hinn magri son Eyvindar
austmanns Bjarnarsonar Hrólfssonar frá Ánu bjó þá að
Kristnesi í Eyjafirði. Hann var höfðingi yfir öllu því
héraði og mikils virður. Hann hafði komið út hingað vestan
um haf. Var hann uppalinn í Suðureyjum og síðan á Írlandi af
móðurföður sínum Kjarvali Írakonungi. En þá hann var í
Suðureyjum að fóstri var hann sveltur og sá ei á honum hold
og sem faðir hans og móðir komu þar kölluðu þau hann Helga
hinn magra. Helgi var prímsigndur og trúði á Krist og kenndi
við hann bæ sinn en þó hét hann á Þór til allra stórræða.
Helgi átti tvo sonu, Hrólf og Ingjald, og eina dóttur er hét
Ingunn. Hana átti Hámundur heljarskinn.
En er Helgi frá útkomu Þorsteins
reið hann til skips með marga menn og bauð Þorsteini til
sín. Var þá mjög komið að vetri. Þorsteinn tók þessu boði
með þökkum og fór heim til Helga og voru þeir Þorsteinn og
Karl með honum um veturinn í góðu yfirlæti en hásetar
vistuðust þar nærri um fjörðinn.
15. kafli
Um vorið bað Þorsteinn Helga vísa
sér bústað.
Helgi mælti: "Mjög er nú albyggt um
hérað og veit eg ei annarstaðar ónumið en í dal þeim er
liggur upp í land fyrir utan Hrísey. Er það mikið hérað. En
þar hefur tekið sér bústað Ljótúlfur goði er út kom austur í
Sandvík með Hróðgeiri hvíta Hrappssyni frænda sínum" - en
svo voru þeir skyldir að Hróðgeir var bróðir Alreks föður
Ljótúlfs - "og það ætla eg hann muni vilja helga sér dalinn
og verja hann fyrir búsetu stórmenna."
"Ei munum vér að því fara," segir
Þorsteinn.
Og eftir þetta fara þeir Þorsteinn
og Karl með sínum mönnum út til dalsins og tóku menn að efna
sér til bæja. Byggði Þorsteinn sér þar bæ sem hann kallaði
að Grund en Karl hinn rauði tók sér bústað að Karlsá. Fór
hann síðan landa á milli hvert sumar en hélt þó ávallt bú.
Þetta var þeim megin ár er Ljótúlfur átti ei byggð en það
hét að Hofi er hann bjó. Honum líkaði stórilla aðgerðir
þeirra Þorsteins og Karls og amaðist við þeim. Gerðist hér
af óvinskapur þeirra á millum.
Það var einn tíma er Þorsteinn
hafði farið að sækja varnað sinn en Karl son hans og
fylgdarmenn þeirra nokkrir voru að skógarhöggi í dalverpi
einu litlu. Voru þá menn gervir af hendi Ljótúlfs að ráða að
þeim. Hét sá Björn digri er að þeim fór með marga menn en
þar voru ei hjá þeim utan bolaxir þeirra og höfðu menn ekki
vopn nema lurka og börðust með þeim.
(Styttri eyðufylling er í handritinu Lbs. 266 fol.)
Þorsteinn
svörfuður, son Rauðs ruggu, átti Hildi Þráinsdóttur, þeirra
son Karl rauði. Þeir feðgar fóru til Íslands, námu
Svarfaðardal og bjuggu á Grund. Ljótólfur goði bjó að Hofi.
Amaðist hann við Þorsteini og börðust þeir sem hér segir.
Karl gerði bú að Karlsá.
11. kafli
...
og höfðu menn engi vopn nema lurka og börðust þeir þar. Voru
sumir drepnir en sumir lamdir. Þar féllu sautján menn. Þar
heitir Stafsholt síðan en dalurinn Deildardalur. Uni hélt til
liðveislu þar sem Ljótólfur var en þeir bræður þar sem þeir
Karl og Þorsteinn eru, því Uni er jafnskyldur Ljótólfi sem
þeir bræður Þorsteini og er þess síðar getið í sögunni.
Nú
er að segja hverjir til liðs snerust með Þorsteini: Ólafur úr
Ólafsfirði, Héðinn úr Héðinsfirði, þeir voru bræður og
Svarthöfði ... er drukknaði og heita þar Svarthöfðasteinar er
hann drukknaði, því Siglunes að þar rak seglið, því
Siglufjörður að þar rak siglutréð. Héðinn átti son er
Svarthöfði hét. Ólafur átti tvo sonu, Þórð og Vémund. Þessir
hnigu allir til liðs við Karl hinn rauða og margir aðrir
göfugir menn.
Sá
maður bjó í dalnum er Höskuldur hét. Hann var lögmaður. Þar
voru jafnan þing og má enn sjá þar merki. Hann átti þann son
er Ögmundur hét. Þessir hníga enn til með Þorsteini og Karli
og slíkir bægja þeim Ljótólfi og leggja undir sig allan dalinn
öðrumegin því þá var dauður B. digri, afi Ljótólfs.
Þorsteinn
garpur fór nú millum fjalls og fjöru og lagði undir sig allan
dalinn öðrumegin ár. Hann fer til fjalls og gerir þar
kennimark sem hann kom framast og braut þar í sundur kamb sinn
og kastaði niður kambsbrotunum og lætur eftir silfur í þremur
stöðum, hálfa mörk í hverjum stað, og er sá rimi kallaður að
Kambi. Og nefnir Þorsteinn sér votta og fyllir hann með því
dalinn sér til vistar og gaf af sér nafn og kallaði
Svarfaðardal.
En
þó fátt hefði verið með þeim Þorsteini og Ljótólfi þá var nú í
dátt efni komið svo að þeir leggja félag með sér, einn
Þorsteinn, Ljótólfur, Nefglita og Bárður greypur frá Hrauni og
Þorkell Skeggjason af Skeggjastöðum og Ögmundur Höskuldsson.
Það var félagsgerð þeirra að þeir gera skip og hafa í ánni og
veiða fyrir hvers manns landi fiska. Þetta var kært fyrir
Höskuldi lögmanni hversu þeir ætluðu að fara. Hann sagði að
land skal taka fjórðung veiðar þar sem þeir veiddu, og sögðu
engum til og tóku það hrafnar. En menn höfðu þá ei heldur en
áður og þóttust þeir þá gjalda mundu álits sem Höskuldur hafði
dæmt.
Þá
tóku þeir upp leika í dalnum og vildu reyna knáleik sinn og
var Karl knástur. Óx nú sundurlyndi í dalnum af nýju.
12. kafli
Í
þenna tíma kom sá maður í dalinn er Grís hét og fyrr var
getið. Hann var nýkominn út og fer hann til vistar með
Ljótólfi frænda sínum og var þar um veturinn. Um vorið fór
hann til Steindyra og setti þar bú saman og hafði mjög skapast
um byggðir síðan meðan hann hafði burtu verið. Urðu flestir að
leita til vináttu þar sem voru aðrir hvorir, Þorsteinn eða
Ljótólfur.
Nú
leitar Grís þar til sem Þorsteinn er en hann tekur honum ekki
fljótt en sagði þó ef Grís kynni hóf sitt að hann mundi ekki
amast við byggð hans "en þó er mér lítið um byggð frænda
Ljótólfs þessu megin ár."
(Hér er eyða, líklega ekki stór.)
Grís var vel til Ásgeirs rauðfelds.
Ásgeir
hafði selför það sumar ... hafði kona hans þar umsýslu bús og
smalaferðar.
Sá
atburður varð að hún varð léttari í smalaferðinni og fæddi
sveina tvo í Vatnsdalshólmum þeim er Víðihólmar hétu. Heim kom
hún með sveinana um kvöldið og tók Ingvildur dóttir hennar með
þeim og vann sveinunum og fann að öðrum blæddi og hafði þar
komið við króklykill er hún hafði haft á sér.
Það
varð henni á munni er hún sá þetta: "Sjá ben markar spjóti
spor."
Þessir
sveinar vaxa þar upp og hét sá Þorleifur er benina hafði
fengið en hinn Ólafur.
Eftir
þetta fer Grís af landi burt og var um veturinn í Þrándheimi.
En eftir um vorið bjó hann skip sitt til Íslands og gekk honum
ei lengra en út til Niðaróss og lá þar um stund. Kona kom til
fundar við Grís og hafði tvö börn meðferðar og beiddi Grís að
hann mundi flytja börnin til Íslands.
Hann
sagði: "Hvað eiga börnin þar?" segir hann.
Hún
kvað móðurbróður barnanna í því héraði sem hann átti bú "og
heitir Þorsteinn svörfuður."
Grís
mælti: "Hvað heitir þú?"
"Eg
heiti Þórarna."
"Ei
mun eg það gera vitnalaust," sagði Grís.
Hún
vatt þá undan yfirhöfn sinni kefli og seldi honum. Voru þar á
mörg þau orð er kennd voru Þorsteini svörfuði.
"Frekur
mun þér eg þykja til fjár," sagði Grís.
"Mæl
og slíkt er þú vilt," sagði hún.
"Fjögur
hundruð silfurs," sagði hann, "af allgóðu silfri og skaltu þó
sjálf fylgja börnunum."
"Þess
er ekki að leita að eg fylgi þeim en greiða mun eg fé það sem
þú beiddir."
Og
þá sagði hún honum nöfn barnanna og hét sveinninn Klaufi en
mærin Sigríður.
Grís
mælti: "Því ertu svo dáleg orðin af svo góðum ættum?"
Hún
sagði: "Eg var hertekin af Snækolli Ljótssyni og hann á börn
þessi við mér. Síðan rak hann mig frá sér nauðga."
Þegar
gaf Grísi byr er hann hafði börn þessi í skip tekið og sigldi
til Íslands í sama ós sem hann var vanur. Og þegar hann var
landfastur færði hann af hendi bæði börnin svo engvir vissu
fyrir hans komu. Á því kvöldi kom hann á Grund til Þorsteins
og tók hann forkunnar vel við honum og kom það mest til að
Karl son hans hafði utan farið á því méli er Grís hafði utan
verið og vildi hann spyrja að ferðum hans. Grís var fár
heldur. Þorsteinn spurði hvort hann hefði þyngd nokkra.
Grís
sagði að honum kvaðst ei þykja örvænt að honum þætti nokkuð að
um tiltekjur hans "því eg hefi flutt hingað systurbörn þín
tvö."
"Hversu
má það vera?" sagði Þorsteinn, "og geng eg ekki við frændsemi
þeirra vitnalaust."
Þá
sýnir Grís honum keflið og kennir Þorsteinn þar orð sín þó
langt hafi verið síðan.
Hann
sagði þá: "Lítið mun eg að þessu gera kvöldlangt en við mun eg
ganga frændsemi barna þessara."
Um
morguninn er þeir sátu undir borðum bað Þorsteinn færa sér
börnin og gerði hann meyjunni þann þykk að hún grét þegar en
sveininn lék hann miklu harðara og þagði hann.
Grís
mælti: "Nú þykir mér sem þú hafir við gengið frændsemi
barnanna."
Þorsteinn
mælti: "Þér ætla eg börn að annast og fulla fúlgu með. Eg mun
láta fylgja meyjunni tuttugu hundraða en með sveininum fjóra
tigi hundraða."
Grís
sagði: "Því gerir þú svo mikinn mun barnanna?"
Þorsteinn
sagði: "Kjós við þig og annast hvort þú vilt."
Þá
steypti Þorsteinn silfri úr sjóði en Grís taldi sér fjóra tigi
hundraða. Þorsteinn lýsir kaupi með þeim undir votta og bað
Grís ábyrgjast fyrir Klaufa orð og verk. Grís kvaðst vildu
þrælka Klaufa. Þorsteinn kvað það vel vera ef hann kæmi því
við. Fer Klaufi heim með Grís. Var hann þá tvævetur en
Sigríður fjögurra.
13. kafli
Nú
verður þess að geta hversu Ljótólfur lét laust skipið fyrir
Karli það sem þeir áttu báðir saman. En skip það hafði gert
verið uppi í Tungunni og var þar höggvinn viðurinn því þar var
skógur þykkur. En til kjalarins var höfð eik sú er stóð niðri
í Eikibrekku fyrir ofan Blakksgerði, og færðu eikina í síki
það sem suður er og ofan frá Grund og lá hún þar þá vetur og
er það kallað Eikisík síðan en skip það var kallað
Íslendingur. En er skipið var algert var það fært ofan eftir
ísum um veturinn gegnt Hofi og létu þar standa skipið og
skorðuðu. Heitir þar Skorðumýr síðan og á því skipi hefir Karl
utan farið.
Sá
maður var á vist með Ljótólfi er Þórður fangari hét.
Ekki
hefir gerst til tíðinda í dalnum síðan Klaufi kom og til þess
nú er komið sögunni og er Klaufi nú á ellefta vetur.
Það
varð til nýlundu að Þórður fangari bauð Klaufa til glímu með
ragmæli og var sá maður sendur til Klaufa með rúnakefli er
Heklu-Skeggi hét en Skeggi var vinur Klaufa. Hann tók við
keflinu og varðveitti. En um morguninn kallar Klaufi til öxar
við Grís og fékk ei fyrr en hann ógnaði honum til. Þá fer hann
á Grund og réðst um við Þorstein frænda sinn hvort hann skyldi
glíma við Þórð.
Þorsteinn
sagði: "Það vil eg að þú ráðir sjálfur. Er þér kunnigra afl
þitt en mér."
Klaufi
sagði: "Þó eg sé ungur aldri þá er mér þó leitt að liggja
undir ragmæli þræls þess og vil eg að þú farir með mér og
prófum hversu gengur."
Þorsteinn
sagðist það mundu veita honum og eftir það stefna þeir
fjölmennan fund að Hofi því Þórður vill hvergi glíma nema þar
og fylgja þeir Klaufa, Grís og Þorsteinn. Þeir takast
fangbrögðum og glíma lengi þar til ambátt ein kom í
stofudyrnar og kallar þetta ambáttafang er hvorgi féll og bað
þá kyssast og hætta síðan. Klaufi reiddist við þetta og tekur
Þórð upp á bringu sér og keyrir niður fall mikið svo allir
ætluðu hann meiddan. Eftir það gyrðir Klaufi hann svo fast að
hélt við meiðsl. Kerling ein sat í stofuhorni og lét allvel
yfir þessu verki.
Grís
mælti: "Nafn mun eg gefa þér Klaufi og kalla þig böggvi og
skaltu hafa glófa að nafnfesti."
Þórður
komst til bekkjar með fulltingi annarra manna.
Þá
drífa menn út og er Klaufi kom út mælti hann: "Illa kann sá
feginn að verða er hann lætur eftir handagervi sína þó hann
þiggi aðra."
Gekk
hann þá inn í stofu og sá hvar Þórður sat. Hann færði þá öxina
í höfuð honum og fékk hann bana. Klaufi gekk út þegar.
Þorsteinn spurði því öxin væri blóðug.
Klaufi
mælti: "Eg bannaði Þórði að bjóða fleirum mönnum fang."
Þá
urðu menn þegar vísir vígsins og leituðust um hver svara ætti
sökinni en Grísi bárust bæturnar og galt hann sex hundruð
silfurs. Fóru menn nú heim og var kyrrt það sem eftir var
vetrarins.
14. kafli
Þessa
menn nefnum vér til sögunnar: Hávarð í Þorvaldsdal og sonu
hans Vigfús og Þorvald. Sá maður var undir hans vernd er Hrani
hét. Hann bjó í Birnunesi. Hann var bróðir Birnu er Birnunes
er við kennt en Þorkatla hin gamla var móðir Hrana er
Kötlufjall er við kennt því Helgi hinn magri deyddi hana þar
og kól hana í hel svo hann sat henni þar mat þar til hún dó.
Sá
hinn sami Hrani bauð ójafnað mikinn bónda þeim er bjó á Hellu
og Þórarinn hét. Hann beitti upp engjar hans og akra. En fyrir
því að Þórarinn var skyldur mjög Klaufa þá sendi hann honum
orð og fer Klaufi þegar inn þangað og fundu þeir Hrana á akri
Þórarins með féð sitt og sat hann á hesti sínum með alvæpni.
En er Klaufi fann hann sækir Klaufi þegar að Hrana vopnum svo
hann hefur ekki að gera nema hefjast undan þar til er hann
fékk bana. Þar heitir síðan að Hranaríki er hann var veginn.
Heim
fara þeir Þórarinn og Klaufi því þeir vilja gera fúlguföll
Grísi í brautvistinni. En er Klaufi fór heim þá fann hann mann
og reið sá hrossi Gríss og drap Klaufi hann. Sá maður hét Örn
og var húskarl Höskuldar lögmanns, náfrændi hans. Nú fór hann
og mætti Grís honum og spurði því öx hans væri blóðug og
klæði.
"Mat
minn vil eg," sagði Klaufi, "en ekki hirði eg um þetta."
Að
liðnu matmáli Klaufa ríða tólf menn að garði. Kenndu þeir þar
Þorstein svörfuð og með honum Hávarð úr Þorvaldsdal og mæla
eftir Hrana. Grís var þá til andsvara og galt hann tólf
hundruð fyrir vígið hans Hrana. Í þann tíma kom Höskuldur
lögmaður og heimti fyrir víg frænda síns og varð Grís að
gjalda sex hundruð fyrir víg Arnar.
Síðan
fóru hvorirtveggju heim. En Klaufi var nú miklu verri
viðureignar en áður og hélt þá Grís hræddum en ei að síður
kvaddi Grís hann til fiskiveiðar í ána og fer Heklu-Skeggi með
honum. Hrólfur átti hálfa ána og veiðina við Grís. En er
Klaufi kom til og Björn húskarl Hrólfs þá greindi þá þegar á,
því Klaufi vildi hafa alla ána til veiðarinnar. Björn hleypur
á Klaufa þveran og ætlar að fella hann út á ána því hann var
bæði mikill og sterkur. En Klaufi leitar nú eftir en Björn
undan og finnast með því að Klaufi drepur Björn og fer síðan
heim. Og brátt kom Hrólfur nefglita og beiddi bóta fyrir Björn
og varð Grís enn að gjalda sex hundruð silfurs.
15. kafli
Á
þessu sumri bjó Grís skip sitt til utanferðar.
Klaufi
spurði: "Hver skal hér fyrir búi sjá meðan?
Grís
mælti: "Þér hef eg það ætlað," sagði hann.
"Ei
ætla eg það þó," segir Klaufi, "því eg vil utan með þér."
Grís
fer nú og hittir Þorstein svörfuð og spyr hversu með slíku
skal fara.
Þorsteinn
segir: "Það legg eg til að þú flytjir hann því hann á alla
kynslóð austur þar. Þætti mér af því líklegt að hann mundi
ekki fýsast út hingað."
Grís
tók þessu vel og varð Klaufi í ferð með honum.
Þorsteinn
bað þá frétta af Karli syni hans "því langan tíma hefur ekki
frést til hans."
Nú
héldu þeir skipi til hafs og komu til Þrándheims. Var Grís þar
um veturinn en um sumarið bjó hann skip sitt til Íslands og
gekk ei lengra en til Niðaróss, lögðu síðan út undir Sólskel
og gaf næst byr af útnorðri og mælti Klaufi með allillu skapi
að þeir mundu sigla suður með landi.
Grís
sagði að afglapi sá skal ekki því ráða "að eg sigli svo langt
afleiðis."
Klaufi
svaraði: "Svo skal sigla sem eg vil eða siglir þú aldrei héðan
lífs."
Og
Klaufi varð að ráða og sigla nú suður með landi þar til þeir
koma að einum hólmi. Þar lágu tvö skip og voru öngvir menn á.
Þeir hlupu upp á annað skipið.
Klaufi
mælti: "Segðu Grís hver skipi þessu hefur stýrt því hér eru
rúnir þær er segja."
Grís
kvaðst ei vita það.
"Þú
veist það," sagði Klaufi, "og skaltu verða að segja."
Nú
verður Grís að segja hvort hann vill eða ei en svo segja
rúnir: "Karl réð þá skipi að rúnar voru ristnar."
Hljóp
Klaufi þegar í bát og reri að landi. Svo var hann þá reiður að
hann rak öxi sína í jörð niður svo stóð á hamri. Þá reif hann
upp mikla kylfu svo að öngvum sýndist hún vopnhæf nema honum
einum. Þeir heyrðu þá mannamál mikið og komu þar að að tólf
menn voru bundnir en fjöldi manns var þar hjá og leystu menn
úr böndum og var hver höggvinn sem leystur var. Þeir menn sem
í böndum voru var Karl hinn rauði og hans félagar. Einn maður
gekk mest að berbrynjaður að höggva fólkið. Hann reiddi sverð
um öxl, alleigulegt. Þar sneri Klaufi að þeim manni og spurði
hver hann væri. Sá maður svaraði allstórmannlega og kvað hann
það engu skipta. Klaufi sneri að honum og barði á báðar hendur
... allvel að hlaupa. Fer Atli nokkura hríð. Svo hét víkingur
sjá er barist hafði við Karl.
En
þá er Klaufi náði til hans þá hlífði hann honum ei heldur en
öðrum og gekk af honum dauðum, tók síðan sverðið og hjó á tvær
hendur allt til þess er Grís kallaði hátt og mælti: "Klaufi,
Klaufi, kunn þú hóf þitt."
Þá
gerðist Klaufi svo óknár að hann gat ei valdið klumbu þeirri
er áður barði hann með. Þeir Karl voru nú leystir. Varð þar
mikill fagnafundur.
Um
vorið eftir fara þeir Grís og Klaufi í hernað og eru í víkingu
þrjú sumur og fengu jafnan sigur. Og þá er þeir leggja af
hernaðinn halda þeir til Noregs og sigla í Þrándheimsmynni og
eru þar svo um veturinn.
En
um vorið búa þeir Klaufi skip sitt til Íslands og fóru á því
skipi Karl og Ögmundur. Koma þeir í þær stöðvar sem þeir Grís
áttu vanda til og lögðu skipið undir Melshöfða og fóru allir
heim á Grund og fengu þar góðar viðtökur.
Þá
mælti Grís til Þorsteins: "Misjafnt verða farir til manna."
Klaufi
mælti: "Kenn þú þér það ekki skræfan er þú veldur engu um en
Karl má þar nokkuð af segja með hverjum atburðum hann er heim
kominn."
Karl
sagði sem farið hafði. Þorsteinn þakkaði Klaufa frænda sínum.
Vel
samir að segja frá yfirlitum Klaufa. Hann var þverrar handar
og fimm alna hár. Armleggi hafði hann bæði langa og digra,
kinnur miklar og þreklegar greipur. Hann var úteygður og
ennisbrattur, mjög munnljótur og neflítill, hálslangur og
hökumikill, skolbrúnn og skarpleitur, lágu hátt kinnarbeinin.
Manna var hann svartastur, bæði á brýn og hár. Hann var
opinmynntur og skögðu tvær tennur fram úr höfðinu og allt var
hann að áliti sem hann væri krepptur og knýttur.
Nú
fara þeir heim Grís og Klaufi og er hann nú átján vetra.
Þenna
vetur bar ekki til tíðinda nema það að maður kom til Hofs eitt
kvöld sá er Skíði var nefndur. Hann hafði stokkið undan annars
manns ánauð, þess er Þorgrímur hinn grái hét. Hann bjó á
Óslandi í Skagafirði. Skíði bað Ljótólf veita sér traust
nokkurt. Ljótólfur kvaðst mundu veita honum fyrir sakir Una
frænda síns. Skíði bar þræls nafn. Ei bar hann það nafn af því
að hann hefði til þess ætt eða eðli. Hann var manna mestur og
fríðastur. Ljótólfur skipaði hann fyrir verkstjóra og
mannaforræði.
Um
vorið eftir kom Þorgrímur vestan með þrjá tigi manna að vitja
þessa manns og sömdu þeir Ljótólfur svo og Þorgrímur að
Ljótólfur galt fé fyrir það hann hafði haldið Skíða um
veturinn og kölluðust sáttir og hafði Þorgrímur með sér
þrælinn að sinni því að Ljótólfur hafði fámennur heima verið.
Þá koma sex tigir manna til móts við Ljótólf og snýr hann þá
málinu öllu til heimsóknar. Þetta voru ráð Hrólfs nefglitu og
krepptu þeir svo að Þorgrími að hann varð að selja Ljótólfi
sjálfdæmi og lét laust bæði féð og þrælinn og fór heim við
það.
16. kafli
Að
liðnum vetri þá er menn voru á vorþingi á Höskuldsstöðum varð
mönnum viðrætt mjög um komu Karls.
Þá
gekk Grís til tals við Ljótólf frænda sinn og mælti: "Vel
samir nú að tala um launin skipsins við Karl hinn rauða því nú
eru margir góðir menn við."
Skíði
var þar viðstaddur og mælti: "Hygg að því Grís að þú leggir
það eina til með mönnum að þá sé ei verr með mönnum eftir en
áður."
Og
eftir það spyr Ljótólfur Karl eftir hvað hann vill leggja að
launum fyrir skipið það þeir létu gera báðir saman.
Karl
mælti: "Eg hygg að þú megir þar engvar heimtur fyrir hafa því
þú baðst mig ráða verðinu."
Grís
mælti: "Gott þætti oss hér að gera Ljótólf þér að vin og
leggja fram fé nokkuð."
Karl
mælti: "Ekki mun fram koma fyrir þín orð og einskis annars að
þessu sinni."
Og
svo varð. En þeir frændur, Karl og Klaufi, heimtu að Grís
fjögurra vetra forgift og þá greiddi hann fúlgu hans og fengu
þeir honum land til ábúðar og ekki skildu þeir um ábyrgð verka
hans þaðan í frá og fór hann byggðum til Mela og sat þar um
sumarið.
Þá
voru lögréttir út í Tungunni og ráku féið til réttarinnar
feðgar tveir úr Teigsfjalli. Hét annar Björn en annar Sigurður
og mislíkaði Klaufa fjárreksturinn því hann átti á eina með og
líkaði honum illa er hún var elt afvega. Og er þeir komu gegnt
honum hljóp Klaufi til í allillu skapi og drap þar hvorn sem
kominn var og fór með það til réttanna og mætti þar Karli
frænda sínum og hlupu þeir á réttargarðinn. Ljótólfur spyr
hvað hann sæi til þeirra manna er féð ráku.
Klaufi
sagði: "Sá eg um stund hvar þeir ráku féið en nú far þú og vit
hvar hvor hefir staðar numið."
Þá
varð víst að Klaufi hafði drepið þá báða. Eftir þetta varð
Klaufi laust að láta Melaland og fékk Karl honum nú aftur aðra
jörð og tuttugu húskarla og reistu þar bæ fyrir norðan ána upp
í dalnum þar sem nú heitir á Klaufabrekkum er þá hét fyrst í
Klaufanesi því það stóð fyrst niður við ána og þótti þar
kominn illa því mjög bar á hann stórum, sem síðar bar raun á.
Og eftir þetta gerðist fullur fjandskapur með mönnum í dalnum.
Á
þeim vetri vænti hvorutveggi sér liðs norðan úr dalnum af
sínum frændum, Kolbeinn og Uni, því að sundurþykki þeirra var
þá sem mest en fyrir fórst það þó þau misseri og var þá kyrrt
að kalla í dalnum.
En
að liðnu sumri bað Grís konu til handa sér, Sigríðar
Klaufasystur. Þorsteinn svörfuður var þar til andsvara og veik
hann öllu til Klaufa. Þá fór Grís að finna Klaufa og bað hann
konunnar.
Klaufi
svaraði skjótt: "Mun þá ei hraust kona illum manni gefin en þó
læt eg það mitt ráð sem frændur hennar vilja fyrir sjá."
Grís
mælti: "Koma muntu til boðs míns ef þeim sýnist að gifta
hana."
"Koma
mun eg víst," sagði Klaufi.
Og
síðan var þessu keypt og var Ljótólfur ekki við þessa
ráðagerð. Nú var boðið búið á Grund og kom ekki margt manna en
þá var sem mest vinfengi þeirra Ljótólfs og Ásgeirs rauðfelds
því að Ingvildur fagurkinn var frilla Ljótólfs og var öngum
boðið frá Brekku. Varð mönnum skipað í sæti á Grund. Sátu
allir hinir eldri menn á annan bekk en Þorsteinn svörfuður og
Karl son hans og Klaufi frændi þeirra á annan.
Grís
tók þá til orða: "Vel samir það í svo góðu samsæti að tala
mest það eftir megi hafa og strengja heit eða taka sér
jafnaðarmenn."
Þorsteinn
sagði það óviturlega til lagið "og mun þaðan jafnan margt koma
sem Grís er."
Ei
að síður halda þeir á þessu tali og hóf Karl hinn rauði það
fyrst og tók sér jafnaðarmann Ljótólf goða og strengdi þess
heit að hann skyldi hafa heimilað ragmæli á hendur honum á
þriggja vetra fresti. Grís tók sér jafnaðarmann og nefndi til
þess Skíða og strengdi þess heit að hæfa þá höfn sem hann
vildi hvert sinn er hann sigldi landa í milli. Ögmundur
sagðist eigi mundu þá sigla lengra en um þveran hroftann.
Klaufi tók sér jafnaðarmann Ólaf Ásgeirsson og strengdi þess
heit að koma í sömu rekkju Ingvildi fagurkinn án vilja
Ljótólfs goða.
Grís
mælti: "Ekki vita slík orð lítils og ekki mundu þreklausir
menn slíkt tala og látum þetta nú ei að engu verða og förum
þegar út í Brekku eftir Ingvildi fagurkinn og setjum hana á
brúðbekk hjá Sigríði."
Þeir
gera svo, standa upp átján saman og ganga út til Brekku. Grís
settist á tal við Ingvildi og Þórhildi móður hennar en þeir
Karl tala við Ásgeir bónda og báðu þau öll samt koma suður
síðar dagsins og fóru þeir heim fyrir og mættu þeim manni
fyrir heima er Þórður gapa hét.
Grís
gekk að honum og mælti í eyra hljótt: "Allillt er það að hann
Karl er svo matspar að hann býður ei slíkum mönnum sem þú ert.
Far nú til Hofs og svo muntu ei hafa þar verri viðtöku ef þú
segir hvað hér er í ráðagerð."
Þórður
hljóp þegar. Karl þekkti þegar að maðurinn hljóp frá veislunni
og bað hlaupa eftir honum og elta hann en hann hljóp á ána
undan og létti ei fyrri en hann kom til Hofs og sagði hvað í
leikum var. Ljótólfur brá þegar við og safnaði að sér mönnum
og reið vestur yfir ána til Brekku.
Maður
sá var úti á Grund er hjó eldivið. Hann hljóp inn og sagði að
tuttugu menn riðu yfir ána og til Brekku. Þá standa þeir upp
átján saman og fóru út til Brekku og urðu við það varir að
margir menn voru í húsunum en byrgðar dyr. Þá kom Karl og
beiddi Ljótólf út ganga. Þá heyrðu þeir hlátur mikinn inn í
bæinn er þau hlógu Ingvildur og Hrólfur nefglita. Ingvildur
fagurkinn gekk þá fyrir dyrnar.
Þá
gekk Klaufi upp að dyrunum og kvað vísu:
Hygg
eg að heiti
Hrólfur
nefglita,
sá
býður Klaufa
kvon
að verja.
Munattu
Böggvir
brúðar
njóta
nema
Nefglitu
næmir
lífi.
Og
enn kvað hann:
Hlær
mest að því
Hrólfur
nefglita,
nærgi
er greppi
gjöldum
þetta.
Þá
gekk Karl hinn rauði að dyrunum og kvað vísu:
Veit
eg að seggir sátu,
slíkt
er minnilegt, inni.
Ræðir
sá er lof leiðir
Ljótólfur
fyrir óskjóta.
Brims
get eg enn að ýmsir
eldskerðandar
verði,
hlátur
skal herðinjótum
hegna,
brögðum fegnir.
17. kafli
Karl
brá þá sverði og setti í dyrustafinn og nefndi sér votta og
heimilaði ragmæli á Ljótólf goða er hann vildi ei út ganga og
fyllti svo orð sín er hann hafði talað á Grund.
Hann
bauð Ljótólfi enn útgöngu "og munum vér ganga frá dyrunum,"
sagði Karl.
Ljótólfur
vill ei út hætta mönnum sínum og fór Karl heim og sátu þeir að
boðinu. Eftir það fór hver til sinna heimkynna. Var þá kyrrt í
dalnum þann vetur.
En
um vorið eftir ætluðu hvorutveggju til liðs við þá Una og
Kolbein sem þeir höfðu hið fyrra vorið. Ljótólfur varð fyrri
búinn en Karl og fóru synir Ásgeirs með Ljótólfi. Þá spurði
Þorsteinn svörfuður Karl son sinn því hann léti svo seint við
um ferðina. Karl kvaðst ei hirða þó þeir brytu snjó fyrir
honum um heiðina. Í þann tíma hafði Ásgeir farið upp í dalinn
að rýja gemlinga. Og nú fer Karl til heiðarinnar og kemst ei
lengra en upp í heiðina. Þá varð það til tíðinda að Klaufi
féll af baki. Þá drápu þeir hross eitt er laust hljóp með þeim
og flógu af skinn og þöndu um Klaufa og bundu hann um þvert
bak á hrossi og snúa við það ofan eftir dalnum og fundu Ásgeir
fyrir neðan Vatnsdalsá. Ásgeir spurði því þeir færu svo
hverft.
"Sjá
máttu," sagði Karl, "að vér förum hér með Klaufa veginn."
"Ei
er það illa," sagði Ásgeir, "því hann hefir mörgum manni
mikinn ójafnað sýnt meðan hann lifði."
Karl
sagði: "Ei þarftu að hrósa því svo mjög því að nú skaltu láta
líf þitt eða fastna Ingvildi dóttur þína Klaufa vegnum."
Það
kjöri Ásgeir að rétta fram höndina og nú sprettir Karl til
handar Klaufa og verður Ásgeir þar í að taka og fara festar
fram.
Þá
kom kveðlingur úr húðinni:
Mál
er í meyjar hvílu,
mjög
emk snögglega höggvinn,
flýgur
í faðm mér eigi
fögur
drós, gala mögrum.
Munat
oss um þrá þessa,
það
kváðu hjú, batna.
Rétt,
þann er reisa áttu,
rauðkinn,
hana inni.
Þá
mælti Ásgeir: "Segir þú Klaufa dauðan?"
Karl
svaraði: "Það segi eg ei. En það sagði eg að hann væri
veginn."
Ásgeir
sagði: "Við því átti eg ekki gert að þú færir með prettum eða
ráðkrókum eða lygi."
"Eigi
laug eg," sagði Karl, "þótt eg segði hann veginn því það er
sagt vegið sem reitt er."
Og
nú fara þeir ofan til Brekku og færir Karl þau í eina sæng,
Klaufa og Ingvildi fagurkinn, en Ásgeir hafðist við upp í
dalnum á meðan þetta fór fram.
18. kafli
Nú
halda þeir vestan eftir þingið Ljótólfur og hans menn og hafði
Þorgrímur hinn grái mjög verið í mót þeim Ljótólfi og Una. Og
nú koma þeir í dalinn í þann tíma er þeir Karl og Klaufi fara
neðan með konuna. Ásgeir var þá kominn í för með Ljótólfi og
hafði sagt honum það sem í hafði gerst á meðan þeir voru
vestur. Nú fara þeir Ljótólfur yfir ána hjá Teigarhöfða en
þeir Karl og Klaufi neðan eftir eyrunum að Urðarhúsum. Var
Ljótólfur við þrítugasta mann en Karl við fimmtánda mann.
Karl
hrópaði mikið á Ljótólf og bað hann heyra til þess er hann
talaði: "Hér er Ingvildur frilla þín í för með mér."
Ljótólfur
lætur ei sem hann heyri og fer heim við svo búið. Var Karl með
Klaufa svo að voru um það almæli um dalinn að Karl bæri
ægishjálm yfir Ljótólfi en þó má kalla kyrrt um sumarið.
Geta
verður þess hversu fór með þeim Una og Kolbeini, að Uni hlaut
það er þeir deildu um því allir voru í móti Kolbeini. Og svo
varð Kolbeinn reiður að hann stökk á skip og sigldi í haf og
braut skipið við klett þann er liggur í útnorður undan Grímsey
og týndist Kolbeinn þar og er eyin við hann kennd og kölluð
Kolbeinsey. En Hjalti situr þar eftir og minnkar ekki virðing
sína.
Um
haustið eftir tókst deila með þeim Klaufa og Ljótólfi. Þótti
Klaufa menn Ljótólfs óskilsamlega reka fé þeirra Þorsteins
svörfuðar og Karls. Klaufi bað Karl fara upp í dalinn til
réttanna en Karl kvaðst verða að fara út á strönd til rétta.
Klaufi ríður upp eftir dal en Karl út á strönd.
Ekki
er sagt frá ferðum Klaufa fyrr en hann kemur upp að Krókamelum
gegnt Búrfellshúsum og þar er hann fyrir fjallmönnum við
vaðið. Nú er féið rekið að vaðinu en Klaufi ver vaðið og er
við fimmta mann en réttamenn margir og tekst þar bardagi en
lögréttin var á Hæringsstöðum og bjó þar Hæringur. Hann sér að
féð dreifist þar við ána og hleypur heiman með tíunda mann og
komast þeir ei yfir ána því að Klaufi réðst í móti og var þá
kominn að honum berserksgangur og berjast þeir nú fyrir austan
ána. Í þann tíma kom Ljótólfur að með þriðja mann og snýr að
með Hæringi. Klaufi lætur nú sem ekki sé annað að sækja en
Ljótólf og hopar Klaufi nú undan út á ána og berjast þeir nú á
miðri ánni. Í þessu bili ríða níu menn utan eftir eyrunum
hvatlega. Var þar kominn Karl hinn rauði.
Hann
kallar hátt: "Klaufi frændi kunn þú hóf þitt."
Klaufi
mælti: "Illra heilla komstu nú því að nú hefði eg sigrast og
drepið Ljótólf ef þú hefðir ei komið og hefðum við þá einir
ráðið dal þessum."
"Það
skaltu ei mæla frændi," sagði Karl, "því að Ljótólfur á marga
frændur göfga um allt Ísland og mundum við sitja fyrir
afarkostum ef honum væri nokkuð til meins gert og sel honum nú
sjálfdæmi fyrir allan saman ójafnað þann sem þú hefir gert
honum."
Klaufi
reiddist þá og kvaðst það aldrei skyldu gera. Eru þeir nú
skildir og var Hæringur fallinn og fimmtán menn aðrir og
skildu við svo búið.
19. kafli
Á
þessu sama hausti sóttu þeir litgrös bræður úr Brekku, synir
Ásgeirs, upp á Klaufahlíð er móðir þeirra sendi þá eftir og
komu þeir heim í Klaufanes er þeir höfðu sótt grösin og vildu
finna Ingvildi systur sína og lögðu niður úti baggana meðan
þeir dvöldust. Var annað verja en annað hít mikil. Þá kemur
Klaufi að og saxar í sundur baggana með páli og gekk í burt
síðan. En er þeir bræður komu út sáu þeir að belgirnir voru
ekki tiltækir og fara þeir heim og mæta móður sinni. Hún
spurði því þeir hefðu ekki með að fara.
Þá
varð Þorleifi vísa á munni:
Belg
hjó fyrir mér
Böggvir
snöggvan
en
fyrir Ólafi
ál
og verju.
Svo
skal verða
ef
vér lifum b(ræður).
við
böl búinn
Böggvir
höggvinn.
Það
var eitt sinn að Ingvildur fagurkinn settist í kné Klaufa og
var við hann allblíð og bað hann lofa sér að fara ofan til
Brekku á kynni og kvaðst ei lengur skyldu í burtu vera en hann
vildi og bað að Heklu-Skeggi skyldi fara með henni. Klaufi
leyfði það. Hún fór síðan og var ei lengur í burtu en hann
leyfði.
En
er hún kom heim settist hún í kné honum og var blíð við hann
og mælti: "Ei ætla eg að önnur kona sé betur gefin en eg. En
það líkar mér illa við bræður mína er þeir hafa drepið yxni
mitt er mest gersemi var og vildi eg gjarna Klaufi minn að þú
létir þér þetta mislíka og sæktir yxnið þar sem það liggur til
gert í húðinni gegnt dyrum í Brekku niður."
Klaufi
svaraði: "Hvað mun það varða? Ei mun þig hér mat skorta."
Hún
svarar: "Ei varði mig þess að þú mundir vilja vera ræningi
bræðra minna."
Klaufi
spratt þá upp og gyrti sig sverðinu Atlanaut og var hinn
reiðasti og gekk ofan í Brekku og kom ekki á Grund og fann
þegar húðina liggja í dyrunum og tók upp allt saman
yxnisfallið og kastaði á bak sér og hugðist mundu ganga út
með. En það gekk ei því að við nam dyrigættunum og frá hafði
hann þau öll saman og gekk með þá suður að garði og hristi þar
af sér dyrigættin öll og þar hurðina með og gekk síðan heim.
En er hann kom heim var langt af nótt. Var þar borinn mjög
snjór að dyrunum. Gekk hann þá inn í snjóbyrgið. Þá kom
Ingvildur í mót honum og var allblíð við hann og svo rann
Klaufa þá reiðin að hann gat þá þeim bagga ei valdið sem hann
hafði áður lengi borið.
Hann
laut mjög í dyrunum er hún fagnaði honum og renndi sverðið
Atlanaut fram með slíðrunum og tók hún það og kastaði út í
snjóbyrgið og mælti: "Neyti sá sem neyta þorir."
Hún
dvaldi fyrir Klaufa þar til að hann var laginn í gegnum svo
hann fékk þegar bana. Þessu verki ollu þeir Ásgeirssynir og
tóku þeir Klaufa og drógu undir heygarð að húsbaki. Ingvildur
fór þá í rekkju sína en þeir bjuggust burt. Þegar kom Klaufi
til sængur Ingvildar er þeir voru burtu. Hún lét þá kalla á þá
bræður og hjuggu þeir þá af honum höfuð og lögðu neðan við
iljarnar.
Þeir
bræður komu heim um kvöldið í Brekku og spurði faðir þeirra þá
hvað þeir hefðu annast.
Þorleifur
kvað þá vísu:
Rauð
eg á randa gæði
rítorm
sakar vítis.
Meiður,
í málma veðri,
mens,
tók sverð að grenja.
Söng
hættlega hringa
hnitsólar,
á fitjar,
felli-Gunnur
meðal fjalla,
fetils
trolls hlóð eg þolli.
Ásgeir
sagði: "Finn eg nú hvað þið hafið gert en ekki ber eg traust
til að halda ykkur hér og farið þið til Ljótólfs."
Þeir
fóru þegar til Hofs og gerðu Ljótólfi kunnigt hvað þeir höfðu
gert.
Ljótólfur
tók því verki allvel og bað þá fara til Gríss "því vér vitum
allir saman þessi ráð."
Og
Grís tók því allvel en þó treystist hann ei til að geyma þá
svo að Sigríður vissi ei, kona hans, og var hún nú vör við ger
hvað til tíðinda var orðið og mælti hún kaup til að leyna þeim
og bað selja sér sverðið Atlanaut til geymslu og kvaðst eigi
mundi segja til þeirra fyrr en nokkur segði annar og það varð
nú kaup þeirra.
20. kafli
Það
var á öðru kvöldi að Karl hinn rauði sat við eld og
fylgdarmenn hans átta. Þeir heyra að nokkuð nauðar á húsinu og
kom kviðlingur:
Sit
eg á húsi,
sé
eg til þess,
héðan
munum vér
oss
hefnda vænta.
Karl
mælti: "Alllíkt er þetta róm þeim er Klaufi frændi vor hafði
þá er vér heyrðum til hans og má vera að hann þykist nokkurs
mikils við þurfa. Fellur mér svo í hug kveðskapur sjá að víst
er þetta fyrir stórtíðindum hvort sem þau eru fram komin eða
eigi."
Og
fara þeir út eftir þetta alvopnaðir og ætla að snúa yfir til
Hofs.
Þá
sáu þeir ekki lítinn grepp suður við garðinn og var það Klaufi
og hafði höfuðið í hendi sér og mælti:
Suðr
er og suðr er,
svo
skulum stefna.
Þeir
snúa nú þangað eftir Klaufa og fara til þess er þeir koma til
Steindyra og nam Klaufi þar staðar og laust höfðinu á dyrnar
og mælti:
Hér
er og hér er,
hví
skulum lengra?
Þá
snýr Karl heim til húsanna og kom þar að opnum dyrum og voru
inni eldar. Trapisa stóð á gólfinu en mikið slátur var fært
upp og soðið.
Grís
stóð upp á gólfinu og fagnaði vel Karli "og sestu niður
mágur," sagði Grís, "og tak snæðing."
Karl
svarar: "Annara er oss að tala um tíðindi þau er orðin eru."
Grís
svarar: "Engi koma nú ný tíðindi að oss eða hvað kanntu að
segja?"
"Það
er víst," segir Karl, "að eg ætla að Klaufi sé dauður."
"Hvað
mun annað til vor koma en láta illa yfir því?" sagði Grís.
Karl
svarar: "Þig hyggjum vér vita hver unnið hefir verkið."
Karl
settist nú niður og semst heldur með þeim og snæða nú
mennirnir. Gluggur var á húsinu norðan og skyldu þeir sitja
Ásgeirssynir þar við og sjá hvað komið væri. Þeir eru nú við
glugginn og sjá að þeir Karl eru komnir.
Það
varð Þorleifi á munni: "Glöggt þykist eg nú vita hversu til
mun ætlað. Sent mun eftir Ljótólfi og munu þeir veita Karli
atgöngu en eg þoli það aldrei að svo ágætur maður sé svikinn."
Þorleifur
kvað þá vísu þessa:
Kvaðat
sendir mig mundu
mundhyrs
rekast undan
dyggur
er sá er drjúgt mun eggja
dólg,
minn rúni, sinna.
Og
böðreyndan bendi
blóðorm
um kné góðan
hræva
gífurs með hreifum
heggr
og bítur á skeggi.
Og
enn kvað hann:
Hér
sit eg og hvet hvassan
hlymbrand
jöru randar
meðan
óvinir órir
oss
leiða matreiður.
Eigum
bernsklegt báðir
ból
það er lítt nýtur sólar,
oss
hlægir það eigi,
út
um hellisskúta.
Þetta
heyrir Karl og kennir Þorleif að máli og kvað þá vísu þessa:
Hér
gelr hvass á húsi
hyrlundr
mikils styrjar.
Fleinhríðar
vekur fæðir
ferð
sá er hræddr skal verða.
Því
munu ljóð, en, leiðar
linnsveigir,
renndu eigi,
bíð
þú gunnstara grennir,
Grísi
hætt, er eg vætti.
Eftir
þetta sprettur Karl upp en Sigríður Klaufasystir gekk að honum
og fékk honum sverðið Atlanaut. Hann brá sverðinu en kastaði
umgerðinni á öxl sér. Grís var þá úti og bar flot á
spjótskefti þeirra.
Karl
hljóp þá út að Grísi og hjó hann í sundur í tvo með sverðinu
og mælti: "Svo brytjum vér grísuna Grundarmenn."
Hann
sá þá að floti var riðið á öll spjótskefti þeirra. Hann tók
spjót og rak í skaflinn og dró út að fjöðrinni og þerrði þann
veg af með snjónum og svo gerðu þeir allir og snúa síðan úr
garðinum og sáu þar fara grepp harðla mikinn gagnvart sér og
var þar Klaufi kominn.
Þá
kvað hann vísu:
Ganga
hér fyrir garð fram
gunnhvöt
enni,
eruð
vanir vígum
sem
vér fyrri.
Séð
höfum sólheim,
sjá
munum annan.
Eruð
þér sem vér,
alls
um duldir,
alls
of duldir.
"Í
urð ætla eg nokkurum í kveld Karl frændi," sagði Klaufi.
Og
nú sjá þeir að fimmtán menn fara frá Bakkavaði. Þeir mætast
þar sem heitir Kumlahóll eða Kumlateigur. Var þar kominn
Ljótólfur goði og voru engar kveðjur með þeim. Hlupust menn
þegar að og varð hinn harðasti bardagi.
Og
er þeir höfðu barist um hríð mælti Ögmundur Höskuldsson við
Karl: "Gættu þín vel því að eftir standa skór þínir í fönninni
og mun eg standa fyrir þér á meðan þú kippir á þig."
Karl
kvað þá vísu:
Þoku
sé eg upp, við ekka
oss
hlífir sjá drífa
kols,
að Klaufahvoli,
kornél,
gróið vélum,
nærgi
er þeyr af þeirri,
það
er meinlegra einu,
ræð
eg þó að rigni blóði
randelds
í böð standa.
Þá
kom Klaufi í bardaga og barði blóðgu höfðinu á báðar hendur
bæði hart og tíðum og þá kom flótti í lið Ljótólfs. Því var
líkast sem þá er melrakki kemur í sauðadún. Þeir Ljótólfur
héldu nú undan og eru nú níu eftir en fimmtán héldu til en sjö
voru hinir. Og ætlar Ljótólfur að snúa ofan Bleikudal fyrir
ofan Bakkagarð en þar var Klaufi fyrir og bannaði þeim þar að
fara. Út snúa þeir undan og ætla ofan Nafarsdal fyrir utan
teiginn. Eigi var þess kostur. Klaufi var þar fyrir. Þá bar
Karl að og tókst bardagi í annað sinn. Undan varð Ljótólfur að
halda er þeir höfðu skamma stund barist því að Klaufi var þá í
bardaganum. Sjö voru þeir Ljótólfur er þeir héldu undan en
hinir fjórir. Allt fór Ljótólfur til þess er hann kom heim að
garðinum að Hofi. Eigi var þá kostur að fara í hliðið því að
Klaufi var þar fyrir. Þá bar Karl að og urðu þeir að berjast í
annað sinn þegar er þeim laust saman.
Þá
kvað Klaufi vísu:
Dynur
er um allan
dal
Svarfaðar.
Eru
vinir vorir
vals
of fylldir.
Knýjum,
knýjum,
Karls
um liðar,
látum
liggja
Ljótólf
goða
í
urð
og
í urð.
Þá
mælti Ljótólfur að þeir skyldu æpa upp allir senn "því að þá
mun Skíði heyra og mun hann koma til liðs við oss með þá menn
sem hann hefir til."
Skíði
heyrði ópið og stökk upp og út í garðinn við hinn þriðja mann
og átti hann þó eigi kost að fara til bardagans. Klaufi var
þar fyrir og varði þeim stiginn. Heim fór Skíði og fékk sér
eldibrand mikinn og vafði að næfrum og hljóp upp í garðinn og
við þetta stökk Klaufi til bardagans. Skíði hljóp og þangað
við þriðja mann og sá að bæði var á grundinni göltur og
hvítabjörn og gengust þeir að en Skíði gekk að og skildi með
þeim og lét eigi kost að berjast lengur "því að tveir eru
hvorir."
Ljótólfur
hófst undan og hlífði Skíði honum og þeir þrír saman
förunautar en horfinn var bæði gölturinn og svo bersi. Nú fara
þeir svo þar til er Ljótólfur náði dyrunum á útibúri sínu því
er hann átti. Þeir voru með Ljótólfi Ásgeirssynir rauðfelds.
Karl bar þá að dyrunum og var hann við annan mann. Hann átti
eigi kost inngöngu því að Skíði var þar fyrir. Skíði eggjar
Karl atgöngu en Karl eggjar Ljótólf útgöngu og lét honum eigi
vænna í annað sinn til afburðar. Ljótólfur kveðst nú mundu
vera láta að sinni og fer Karl heim eftir þetta og Ögmundur
með honum.
Þorsteinn
svörfuður fagnaði vel Karli frænda sínum og mælti: "Sest niður
frændi og seg frá tíðindum og þykist eg eigi vita hví erfiði
þetta hefir á mig fengið sem eg hafi verið með yður í
bardaganum og eigi má eg héðan ganga."
Karl
mælti: "Vissi eg faðir að þú varst í bardaganum og veittir oss
lið."
Þá
voru bundin sár Karls og Ögmundar.
Þorsteinn
svörfuður var færður í rekkju sína af vanmætti og lá hann þá
nótt alla og um morguninn eftir og veitti Karli syni sínum
mörg heilræði og bað hann bregða búi á Grund og fara til Upsa:
"Þess vil eg og biðja þig son minn, ver vinfastur við þá menn
er þér eru hollir í sveitinni."
Nú
mátti kalla kyrrt í sveitinni um veturinn eftir þann aga er
þeir höfðu haft. Þá komu til fylgdar við Karl Vémundur og
Þórður og Svarthöfði Héðinsson.
En
um vorið lét Þorsteinn svörfuður af berast og var hann grafinn
niðri á melnum gegnt Blakksgerði. Eftir andlát Þorsteins lét
Karl gera mikla veislu á Grund og bauð til Hávarði og sonum
hans og öllum vinum sínum innan dals. Það tóku menn þá ráðs er
þar voru komnir margir góðgjarnir menn að leita um sættir með
þeim Ljótólfi. Karl varð því samþykkur um síðir og fóru menn
til Hofs eftir veisluna og leituðu um sættir við Ljótólf og
gekkst það svo við að hvorirtveggju fundust á Grund og inntu
nú mál sín og var Ljótólfur í öllu tregari að sættast enda
voru öll mál meir dregin undir Karl. Þeir urðu utan að fara
synir Ásgeirs rauðfelds.
Skíði
gekk að og beiddi Karl að hann legði til við Ásgeir rauðfeld
hagjörð nokkura "því að sú er fjarlæg er hann á."
Karl
gerði nú svo að hann gaf honum hagmýrar miklar. Sú varð sættin
að Ljótólfur hlaut að gjalda sex hundruð silfurs. Í Siglufirði
stóð skip uppi og fóru þeir þar á Ásgeirssynir.
Svo
gengu sættir saman sem sagt var og má þá kalla kyrrt í dalnum
og fer Karl byggðum til Upsa.
21. kafli
Þessu
næst er það að segja að Ljótólfi er kona ætluð innan úr
Eyjafirði af Möðruvöllum, Þórdís dóttir Guðmundar gamla.
Það
bar að að skip braut í Fljótum og komst ekki mannsbarn af svo
að alþýða manna vissi.
Einn
morgun var Heklu-Skeggi kominn að Steindyrum. Hann var á vist
með Sigríði Klaufasystur. Hann sá að tveir menn höfðu vaðið
yfir ána en því sá hann það glöggt að snjóföl var fallið og
kallaði hann þá á Sigríði. Og þá kenndu þau sporin að þeir
Ásgeirssynir höfðu þar farið því að táin var miklu meiri á
Ólafi en öðrum mönnum. Og þá bað hún hann fara til Upsa og
segja Karli. Hann brá við þegar og fer til Hofs við hinn
fimmtánda mann en Ljótólfur var ekki heima og var hann farinn
inn til fjarðar. Þau voru fyrir búi meðan, Ragnhildur og
Skíði. Þar var Ingvildur fagurkinn. För þeirra gat Skíði
litið.
Nú
voru sveinarnir nýkomnir. Þeir Ásgeirssynir stóðu hjá Skíða er
hann ók á völl. Ekki sá hann annað fangaráð en þeir settust í
haugstaðinn og drap hann að þeim mykinni er frerið hafði en
síðan mokaði hann að blautri myki. Síðan fór hann suður á
völlinn og bar þá Karl að og frétti hvað komið væri til hans.
Hann
kvað það ekki að sínu viti "að neinir menn séu hér komnir."
"Leyndu
eigi Skíði," sagði Karl, "því að hér eru komnir synir
Ásgeirs."
"Sagt
er það er eg mun segja," sagði Skíði.
"Förum
vér heim," sagði Ögmundur, "og þæfum ekki Skíða. Rannsökum
bæinn."
Og
svo gerðu þeir.
Fyrir
sunnan hús lést Ögmundur sjá rauðan kyrtil hanga úti á ási og
diglaði niður úr og brá hann í munn sér og kenndi að salt var.
Síðan hljóp hann suður um húsin með kyrtilinn og dró með sér
tík mikla og hjó af henni höfuðið og færði í kyrtilinn og lét
taka strjúpann niður úr höfuðsmáttinni og dró að dyrunum þar
sem þær voru Ragnhildur og Ingvildur.
Hann
mælti þá: "Hér megið þið sjá hvað við höfum fundið. Illa hefir
sá er slíkan vin hefir svo ótrúr sem Skíði er því að hann
hefir sagt til þeirra bræðra og megið þið sjá hér annan
þeirra."
Þær
létu eigi sem þær heyrðu.
Þeir
hlaupa nú suður á völlinn og var þar Skíði fyrir.
Karl
hljóp að honum og tekur Skíða og rekur niður fall mikið og
mælti: "Seg nú ef þér er betra nú en fyrr. Vísir erum vér nú
orðnir að þeir eru hér Ásgeirssynir."
Skíði
mælti: "Það segja þeir sem vilja. Sagt hefi eg það er eg mun
segja."
Þá
tók Karl reip og renndi rúmsnöru að fótum Skíða og knýtti í
tagl hestinum og sté á bak og ríður fyrir ofan Skorðumýri.
Skíði dragnaði eftir og var þá eytt skógunum og stóðu stofnar
eftir. Hann hlaut að gnötra þar um til þess er Ögmundur hjó í
sundur taglið í hestinum.
"Illa
munum vér það er faðir þinn mælti, því að hann var vinur hans,
er vér kveljum Skíða svo."
Þeir
sáu þá hvar riðu þrír tigir manna utan að bænum. Skíði var
mjög meiddur því að honum blæddi hvervetna, hökubeinið var
rifið og hakan með, úr tennur tvær. Þeir fara þá yfir ána en
Skíði fer heim. Allt var jafnskjótt, að Skíði kom heim og
Ljótólfur og spurði hví hann væri svo leikinn illa.
Skíði
svarar: "Engi veldur því nema haldinyrði mín."
Þá
búast þeir Karl við á hólnum gegnt Grundarhúsum en hinir ríða
þangað þrír tigir manna og tveir um fram því að Ásgeirssynir
voru þá með Ljótólfi. Venda þeir yfir ána að Karli og tekst
þar bardagi og lýkur svo að nokkurir menn féllu af Ljótólfi en
tveir af Karli. Bárður sterki lyfti Ljótólfi í söðul upp og
bað hann undan ríða og svo gerði hann því að fátt gafst vel af
liði hans og skildust við svo búið. Fór Karl heim.
En
Ljótólfi varð það á munni er hann sá Skíða: "Kjóstu sjálfur
laun fyrir haldinyrði þína."
Skíði
svarar: "Þú skalt gera sæmd mína slíka sem þú vilt en
auðkjörin eru launin ef eg skal ráða."
Ljótólfur
svarar: "Hver eru þau?"
"Eg
vil að þú gefir mér Ingvildi," sagði Skíði, "og eigir hlut að.
Þykist eg maklegastur að njóta hennar fyrir hrakning þá er
Karl fékk mér."
"Því
beiðir þú þess er mig varði síst? Og ætla eg að þér verði það
ekki að glysi að eiga hana."
Skíði
svarar: "Hversu sem það er þá vil eg þetta verðkaupið en þú
ráð hverja sæmd þú leggur henni."
"Þá
skulum við leita við hana," segir Ljótólfur, "því að eg vil
eigi gefa hana nauðga."
Þeir
gengu þá til Ingvildar og vekja þetta mál við hana, hvort hún
vildi ganga með Skíða.
En
hún mælti til Ljótólfs: "Lítils þykir mér þú vilja virða mig
er þú vilt gifta mig þræli þínum."
Ljótólfur
svaraði: "Eg mun það bæta þér. Eg gef honum frelsi og fé svo
mikið að þið séuð ei meiri menn þó þið hafið meira."
"Nær
er þá," sagði Ingvildur, "og mun eg þá mæla nokkuð mínu máli."
Ljótólfur
spurði hvað það væri.
Hún
sagði: "Hann skal hafa fyllt skarðið í vör sinni á fimm vetra
fresti svo mér þyki vel fullt vera."
Þessu
játar Skíði og var þetta að ráði gert og gaf Ljótólfur Skíða
dal þann til forræðis er síðan er kallaður Skíðadalur. Mörk
var svo þykk upp frá Tungunni að aldrei var rjóður í. Skíði
hefir reistan bæ sinn þar sem síðan heitir á Möðruvöllum.
Ljótólfur fékk honum búfé svo að þau voru vel birg. Þau Skíði
og Ingvildur áttu þrjá sonu. Þorkell hét hinn elsti, annar
Björn, þriðji Grímur. Þá er Þorkell var nokkurra vetra gamall
býður Ljótólfur honum til sín til fósturs og vex hann þar upp.
22. kafli
Nú
verður þess að geta er vér hvurfum frá, að þá er Karl hafði
heima verið eina nótt þá ríður hann út á strönd en þoka var
mikil. Ljótólfur hafði og riðið út á sand að vita um viðu og
skyldi draga heim. Fóru þeir fimm saman.
Karl
reið til þess er hann kom í Holt hið ytra og mætti Geirdísi er
hún gekk frá goðahúsi. Hún fagnaði vel Karli. Hann frétti
hvort Geiri son hennar væri heima. Hún kvað hann genginn að fé
upp í Holtsdal. Karl reið úr garði og sneri upp í hlíðina.
Karl spurði ef þeir sæju nokkuð manna fyrir sér. Þeir sögðu að
maður rak fé út eftir hlíðinni.
"Þann
veg munum vér stefna," sagði Karl.
Þeir
mæta Geira við gerði það er upp er og suður frá Böggvisstöðum.
Karl lét taka Geira og drepa og er það kallað á Geiravöllum.
Þá reið Karl heim til Upsa. Ei lét Ljótólfur sem hann vissi
hvað í hafði gerst og sitja nú hvorutveggju um kyrrt þrjá
vetur.
Ögmundur
var einatt með Karli og Svarthöfði Héðinsson, og tóku mjög að
eyðast féin fyrir Karli af kostnaði þeim er hann hafði og
gerðist eigi hægt til bændunum og varð hann ei jafn vinsæll
sem verið hafði.
Eitt
sumar kom skip af hafi í Svarfaðardalsárós og hét Gunnar
stýrimaður fyrir skipinu. Hann var víkverskur maður og mikill
vin Karls. Ljótólfur var á þingi er skipið kom. Karl reið til
skips og bauð Gunnari til vistar með sér við svo marga menn
sem hann vildi.
Gunnar
tók því vel "en bíða mun eg Ljótólfs goða. Er mér sagt að
mikið missætti sé með ykkur og mun eg ráðast þangað til
vistar. Þykir mér þá vænst að eg komi nokkru á leið um sætt
með ykkur."
Karl
ríður heim til Upsa en Gunnar bíður þar nokkra hríð og kemur
Ljótólfur ei heim.
Karl
elur á málið að Gunnar mundi til hans fara "og mun fara að
auðnu um sætt með okkur Ljótólfi."
Gunnar
ræður nú til Upsa með Karli og nokkrir menn með honum. Litlu
síðar kom Ljótólfur heim. Er nú kyrrt um veturinn. Austmaður
fór jafnan upp til Hofs um veturinn að leita um sættir með
þeim Karli og Ljótólfi og því kom hann á leið að sættarfundur
var lagður með þeim niðri á brekkunum hjá Grafarhúsum. Til
þess fundar kom Skíði og Ingvildur fagurkinn. Og þá er mjög
var ráðin sættarstefna með þeim Karli og Ljótólfi þá sagði
Ingvildur að seint mundi verða fyllt skarð í vör Skíða ef sjá
sætt skyldi takast.
Skíði
mælti: "Mæl þú allra kvenna örmust og vesulust."
Gunnar
svaraði: "Oft stendur illt af tali kvenna og kann vera að af
hljótist þessu tali sem þá verst hefir af hlotist."
Nú
var lokið öllu um sættina og skildust ósáttir.
23. kafli
Ólafur
kemur nú utan úr Ólafsfirði til Upsa og beiðir Karl að synir
hans mundu fara heim með honum því hann mæddist mjög fyrir
aldurs sakir. Fóru þeir nú heim með honum synir hans, Þórður
og Vémundur, og voru þeir ekki með Karli síðan.
Um
vorið eftir bjuggu Austmenn skip sitt þar til þeir voru búnir
en Gunnar var að Upsum.
Það
var einn morgun er þeir voru úti staddir, Karl og Gunnar, og
horfði Karl upp í himininn og fór annar litur í hann en annar
úr. Gunnar spurði hví hann væri svo litverpur.
Karl
svarar: "Lítið bragð mun á því vera en fyrir bar nokkuð."
"Hvað
var það?" segir Gunnar.
"Eg
þóttist sjá Klaufa frænda minn ríða í loftinu yfir mér og
sýndist mér hann á gráum hesti og dragnaði þar eftir sleði.
Þar þóttist eg sjá ykkur Austmenn mína og sjálfan mig í
sleðanum og skögðu út af höfuðin og get eg mig þá litum
brugðið hafa er eg sá þetta."
Gunnar
sagði: "Ekki ertu svo mikill fyrir þér sem eg ætlaði. Sá eg
slíkt allt og hyggðu nú að hvort eg hefi nokkuð brugðið lit."
"Ekki
sé eg það," sagði Karl.
En
þá er þeir ræddu þetta þá kvað Klaufi í loftinu:
Mikið
mun mönnum þykja,
margur
sér þar til bjargar,
svo
greiðist, lok lýða,
langr
heimfjötur þangað.
Koma
mun sáð um síðir,
síð
hygg eg að það líði,
jafnt
læt eg við ský skrimta
skin
grams og ríð framsi
og
ríð framsi.
Og
enn kvað hann:
Kól
aldregi Ála
éldrauga
ske vélum,
beit
á seggja sveitum,
svimm
eg nú við ský grimmum,
svimm
eg nú við ský grimmum.
Og
þá mælti hann svo að þeir heyrðu báðir: "Heim ætla eg þér með
mér í kvöld Karl frændi."
Þá
mælti Gunnar að þeir mundu til skips um daginn.
Karl
mælti: "Ekki er annt um það því ekki er byrlegt."
Gunnar
lét ekki letjast.
Karl
gekk til Þorgerðar konu sinnar og sagði henni: "Nú mun eg
flytja Austmenn mína til skips í dag en eg mun segja þér
hversu hátta skal ef eg kem ei heim í kvöld því ei veit hverju
heilli heiman fer."
Hann
sagði henni fyrirburðinn.
"Nú
verði svo að eg látist þá vil eg að þú færir byggð þína upp á
Grund og hefir mér allt þyngra fallið síðan eg fór þaðan. Eg
vil láta færa mig yfir á þá er hér er út á ströndinni ef eg
læst á fundi okkrum Ljótólfs. Þykir mér þar gott tilsýni er
skip sigla út eða inn eftir firðinum. Eg vil og að þú látir
heita eftir mér ef þú átt svein því þú ert ei heil kona og
vænti eg að nokkur heill fylgi."
Þorgerður
svaraði: "Gjarnan vildi eg að þú færir hvergi og er mér ekki
að skapi fyrirburður sjá."
Karl
svaraði: "Ekki verður að gert. Svo verður að vera sem vera
vill."
Og
eftir það búast þeir heiman Gunnar og Karl, Svarthöfði og
Ögmundur. Tveir voru Austmenn aðrir en Gunnar, og Karl var við
hinn sétta mann. Og er þeir komu ofan á hólana fyrir sunnan
Brimnessá og til dælar þeirrar er ofan er og suður er frá ánni
þá spretta þar upp fyrir þeim þrír tigir manna og var þar
Ljótólfur. Tekst þar bardagi mikill og harður.
Þá
mælti Ljótólfur: "Grið viljum vér gefa Austmönnum."
Gunnar
svaraði: "Annaðhvort munum vér hafa grið allir eða engi."
Og
er þeir höfðu barist lengi þá geta þeir gert Karl fráskila
sínum mönnum og sækja sjö menn en hann hörfar undan þar til er
hann kom til Hyltinganausta. Þar felldi hann þá alla er hann
sóttu. Og þá kom Skíði að við tólfta mann. Karl hljóp upp á
naustið.
Skíði
mælti: "Það er vel Karl að við höfum hér fundist."
"Eigi
lasta eg það," sagði Karl, "og kann eg drengskap þínum að því
að þú munt vilja sækja einn að mér og er það þá nokkur frami
en ef þú sækir mig með fleiri mönnum þá þykir mér þú ekki enda
skildagann við Ingvildi, þann er þú hést þá er þú fékkst
hennar, og þykir mér því að eins fullt skarðið í vör þinni ef
þú berð einn af mér."
Skíði
mælti: "Njóta mun eg nú liðsmunar og mun nú verða að leggja
til slíkt hver sem sýnist. Kalli sá fullt skarð Skíða sem það
vill en sá öðru vísu er það vill mæla."
Nú
veita þeir Karli atsókn en hann verst vasklega. Er svo sagt að
hann Karl vegur þrjá menn Skíða en særir flesta þá sem eftir
voru. Þeir Skíði létta nú ei fyrr en þeir drepa Karl.
Þeir
Ljótólfur og Austmenn berjast í öðrum stað og falla þeir fyrir
Ljótólfi allir og svo Svarthöfði og Ögmundur fylgdarmenn
Karls. Það er sögn manna að hálfnað hafi lið Ljótólfs. Og
eftir það fer hann heim.
Og
er þetta fréttist til Upsa þá lætur Þorgerður færa Karl og
Austmennina upp til Karlsár og voru þar lagðir í skip og fé
mikið með þeim og því heitir þar að Karlsá síðan.
24. kafli
Eftir
þessi tíðindi færir Þorgerður bú sitt upp á Grund og hefur þó
annað bú að Upsum.
Nú
líður af sumarið. Frá því er sagt að Þorgerður kennir sér
sóttar og elur hún sveinbarn. Er sá sveinn nefndur Karl eftir
föður sínum. Hann vex þar upp og er snemma mikill vexti. En er
hann var nokkurra vetra gamall þá uxu þó eigi mikið vitsmunir
hans. Hann mælti ekki orð og því var hann kallaður ómáli og
ekki maður mikill.
Þorkell
Skíðason fer þá heim til föðurs síns og vaxa þeir þar upp
allir bræður, synir Skíða, og eru efnilegir menn allir.
Nú
líður svo fram nokkra vetur að ekki gerist til tíðinda.
Ljótólfur amast ekki við byggð Þorgerðar og hefir einn
mannvirðing alla. Karl Karlsson vex upp með móður sinni uns
hann var tólf vetra gamall og töluðu það flestir að hann væri
fífl. Þorgerði óhægðist fjárhagurinn mjög því hún hafði mjög í
kostnaði en voru verk jafnan lítil en enginn fyrir utan stokk
til umsýslu.
Það
var því næst að hestaþing var nefnt uppi fyrir Tungugerði.
Skyldu þeir etja hestum Ljótólfur og Þorkell Skíðason. Mörgum
var þar öðrum hestum til mælt þó þeir menn séu ei nefndir er
þá áttu.
Á
Grund voru rekin að hross um daginn þau er menn skyldu ríða.
Þar var eitt hross þrevett ótamið. Það var svo mikið sem þau
stærst eru og fax á mikið. Karl ómáli var úti er hrossin voru
heim komin. Hann sá hrossið ótamda og hleypur á og þrífur
taglið. Hann les sig fram með og fær þrifið hálsinn en það
æðist við og hleypur víða um völlinn. Karl fylgir vel og
léttir ei fyrr en hann komst á bak og krækir fótunum niður
undir kviðinn en heldur sér í faxið. Hrossið hleypur aftur og
fram til þess að þeir eru búnir sem fara ætla. Þá reið Karl
með þeim upp eftir hólmunum. Hljóp þá hrossið ýmist fyrir þeim
eða eftir og gerðu menn óp mikið að honum. Upp koma þeir til
mannamótsins og hleypur Karl af baki hrossi sínu og settist
niður einn saman. Þar hafði maður kastað niður glófum og þar
lá hjá öx silfurrekin. Karl tekur upp og leggur í kné sér
hvorutveggja. Hann strauk einatt öxina. Ekki gekk hann til
hestavíga.
En
Þorkell Skíðason hafði þar niður kastað og þá er lokið var
hestvígum þá svipast hann um hvar hann hafi lagt handagervi
sína og þá sá hann hvar Karl sat og strauk öxi hans.
Þá
gekk Þorkell að honum og mælti: "Þykir þér góð öxin Karl?"
Hann
þagði og leit frá honum við.
"Sjá
þykist eg að þér þykir góð öxin og ræð eg að þú þiggir allt
saman og glófana í föðurbætur."
Karl
spratt upp og kastar frá sér öxunni og kom í stein og brotnaði
úr allur muðurinn og sest niður annarstaðar.
En
Þorkell gekk til Ljótólfs og sýndi honum hversu sá afglapi
hefði leikið öxina "og hefir hann nú sýnt hver fóli hann er."
Ljótólfur
svarar: "Heimskur sýnist yður hann vera en mér líst hann
hyggnari en þér og svo mun reynast."
"Þetta
hefur þú aldrei fyrr mælt," sagði Þorkell.
"Ekki
hefi eg lagið til þess," sagði Ljótólfur.
"Þetta
skal reyna," sagði Þorkell, "hvor okkar vitrari er. Eg hefi
hér þrjár merkur silfurs er eg skal bjóða honum í föðurbætur
og hefi eg það að marki að hann er fífl ef hann þegir við en
ef hann svarar þá er hann ekki jafn heimskur sem hann lætur."
"Freista
máttu ef þú vilt," sagði Ljótólfur, "en ráðlegra þætti mér að
þér ættuð ekki við hann meðan hann talar ekki til yðvar."
Þorkell
sagði: "Freista mun nú verða um sinn."
Og
gengur Þorkell nú þar að sem Karl situr og hefir sjóðinn í
hendi og réttir að honum og mælti: "Viltu fé Karl?"
En
Karl þagði við.
Hann
spurði í annað sinn hins sama.
Karl
svaraði: "Viltu fé Karl?"
Þorkell
mælti: "Það vissi eg að þú mundir mæla kunna. Eg vil nú gjalda
þér fé þetta í föðurbætur, þrjár merkur silfurs."
Síðan
setti hann sjóðinn á nasir Þorkels svo fast að brotnuðu tvær
tennur úr höfðinu og stóðu blóðbogar úr andlitinu og gekk
Þorkell burt við svo búið en Karl fór til sinna manna. Og er
Ljótólfur sér þetta á honum spyr Ljótólfur því hann er svo.
Hann
svaraði: "Karl laust mig með sjóðnum."
Ljótólfur
svarar: "Þér var engin þörf á að eiga við hann og munuð þið
ekki jafnir menn reynast ef þið skuluð nokkuð við eigast."
25. kafli
Nú
hlaupa menn í tvo staði og ríða síðan heim af hestaþinginu.
Þeir Karl ríða þar til er þeir koma út yfir á.
Þá
nam Karl staðar og mælti: "Hverjir munuð þér vera með
þingmönnum mínum ef eg þarf nokkurs við?"
Þeir
spurðu hvers hann beiddi.
Hann
sagði: "Ei meira en eins dags verks þá eg kref yður til en
yður skal ekki í skaða."
Þeir
svöruðu: "Hvað muntu fram leggja að verkalaunum?"
Hann
sagði: "Hundrað silfurs mun eg fá hverjum yðrum og mun eg
kjósa dag til nær þér skuluð vinna mér. Mun eg þá gera yður
vara við."
"Varði
oss þess," sögðu þeir, "að þú mundir góður drengur vera en
ekki kom oss það í hug að þú mundir svo mikið verðkaup gefa á
einum degi. Viljum vér það gjarna."
"Hversu
margir viljið þér vera?" sagði Karl.
"Ei
færri en átján," sögðu þeir.
"Eg
mun yður afgreiða féið þá þér viljið en ráðið kalla eg
kaupið," sagði hann.
Þeir
játa nú þessu og skildu við svo búið.
Og
reið Karl á Grund og sat þar um veturinn þar til voraði.
Þá
sendi hann eftir þeim bræðrum sínum, Þorgrími, Þorsteini og
Þorvaldi. Og er þeir koma þá fagnar Karl þeim vel og þá lætur
hann breiða úti eina öldungshúð mikla og steypir þar niður á
gulli og silfri því sem innan veggjar var því þeir bræður
vildu skipta láta og þótti þeim horfa til auðnu ef ei væri
skipt. Karl stóð hjá meðan þeir skiptu og lagði ekki til en þá
er skipt var þá rótar Karl saman fénu og gekk burt þegjandi.
Þeir spurðu því hann gerði svo en hann þagði. Þeir skiptu þá
enn aftur en Karl rótaði jafnan saman.
Þeir
spyrja því hann geri svo "og viljum við að þú skiptir en við
kjósum."
...
"Hvað
þá?" sögðu þeir.
"Þið
skuluð gera annaðhvort, hafa fé allt og hefna föðurs vors eða
eg mun hefna hans og hafa allt eftir því sem þá vill auðna til
falla og skuluð þið úr öllum vanda þar um."
Þeir
kjöru heldur að hafa ekki af fénu og fara þeir bræður heim.
Og
líða nú stundir frá og heimtir Karl að sér þá menn sem honum
höfðu verkum heitið. Þeir brugðu við skjótt og ætla að þeir
skulu fara til verks nokkurs, ganga að garðlagi eða húsan
fyrir því að margt hús var komið að falli. En er þeir komu tók
Karl vel við þeim og eru þeir þar um nóttina.
Um
morguninn er Karl snemma á fótum og biður menn upp standa.
Og
er menn eru klæddir biður Karl þá ganga til dagverðar "og vil
eg ..."
Hann
var frammi á meðan þeir mötuðust og ber út í tún alls konar
herklæði. Og er þeir koma út sjá þeir að Karl var herklæddur.
Þá skaut þeim skelk í bringu og vildu nú gjarna hafa engu
keypt.
26. kafli
Þeir
stíga nú á hesta sína. Veðri var svo varið að þoka var svo
mikil að hvergi sá bæja milli. Karl ríður nú suður úr garði og
upp á hólma og allir þeir eftir. Hann ríður þar til hann kemur
í Skíðadal á Möðruvöllu. Það var snemma morguns og var
Ingvildur ei upp risin. Karl ríður að hússbaki og segir að
þeir skyldu bíða hans þar. Karl ríður að dyrum og gengur
griðkona ein út. Karl spurði hvort Skíði væri heima.
Hún
svarar: "Hann er farinn upp til rétta undir hlíðina og þar eru
synir hans."
Hann
spyr: "Er Ingvildur heima?" sagði Karl.
"Hún
er í rekkju sinni," sagði hún.
Karl
og þeir förunautar hans ríða nú upp til réttanna og handtaka
þeir þá feðga þegar og leiða heim í tún. Og þá gengur Karl inn
í bæ og biður Ingvildi upp standa. Hún stóð upp og vildi
klæðast og komst ei í fleira en í serk sinn. Karl tók í hönd
henni og leiddi hana út í tún og setti niður einhvers staðar í
túninu. Hún var faldlaus og hafði hárið bæði mikið og fagurt.
Karl
brá þá sverði og mælti til Ingvildar: "Hversu mikið er nú
skarð í vör Skíða?"
"Nei,"
sagði hún, "aldrei er þar nú skarð."
(Hér er eyða sem margir hafa spreytt sig á að fylla í og er
það flest keimlíkt. Eitt elsta afbrigðið er í handritinu Thott
976 fol.)
Hann tók
þá Þorkel son þeirra hinn elsta og hjó höfuð af honum, gekk
síðan til Ingvildar og spurði hvort fullt væri skarðið í vör
Skíða. Hún kvað það fullt með öllu. Tók hann þá annan son
hennar og hjó af honum höfuðið. Hann gekk til hennar og
spurði hins sama. Hún kvað ekkert skarð í vera og svaraði
hinu sama.
En hún svaraði hinu sama.
Þá
tók hann son þeirra hinn yngsta, Björn, og höggur höfuð af
honum, gengur síðan til Ingvildar, þerrir nú sverðið eftir
miðri ... og spyr hvort fullt væri skarð í vör Skíða.
Hún
sagði að hann þyrfti ekki jafnan að klifa hins sama "og hefir
það allvel gróið."
Þá
gekk Karl að Skíða og spurði hvort hann vildi þiggja líf að
sér.
Hann
kveðst það gjarnan vilja þiggja "þó eg þægi að miklu verra
manni."
"Þá
máttu fara hvert er þú vilt en eg mun taka bú þetta. En eg mun
fá þér fararefni svo þú megir fara hvert er þú vilt en ekki
vil eg að þú finnir Ljótólf."
"Hvað
leggur þú þá til?" sagði hann.
"Þú
skalt fara utan á einhverju skipi. Eg mun fá þér fé það er eg
vil."
Hann
fékk honum tvo hesta.
Karl
mælti: "Þú skalt fara upp úr ... og svo vestur. Far sem eg
kenni þér ella mun eg gera til þín og drepa þig."
Skíði
fór sem Karl bauð honum til þess er hann kom suður á Eyrar og
fór þar utan, og er hann úr sögunni fyrst.
Karl
tók upp búið og færði á Grund. Hann lét Ingvildi fara með sér
og setti hana hið næsta sér. Jafnan gekk Karl með bert
sverðið, það sem hann hafði vegið sonu hennar með, og spurði
hana jafnan hvort fullt væri skarð í vör Skíða. Hún sagði það
aldrei jafn vel gróið hafa verið sem nú.
Karl
sat á Grund þann vetur. Ljótólfur lét ei sem hann vissi hvað
fram hafði farið. Og um veturinn réðu það vinir Karls honum að
hann mundi færa byggð sína af Grund og þótti seta hans þar
óvarleg svo nærri Ljótólfi og báðu hann fara til Upsa og svo
gerði hann. Karl bjó að Upsum einn vetur og tók að þverra
fjárkostur hans. Móðir hans spurði hann hversu hann ætlaði til
um bú sitt en hann gekk undan þegjandi.
Um
vorið einn morgun gekk Karl í burt og hafði heim hest sinn og
ríður upp til Hofs. Ljótólfur var í hvílu. Karl drap á dyr og
gekk út verkakona. Hún heilsaði Karli og spurði hvert hann
skyldi fara. Hann kveðst ei lengra mundu fara og spyr hvort
Ljótólfur væri heima.
Hún
sagði hann heima "og far þú í burtu hvatlega því hann vill
öngvan mann feigari en þig."
"Eg
vil finna hann," segir Karl.
"Hvað
er manna með þér?" segir hún.
"Eg
er einn saman," segir Karl, "og bið þú Ljótólf út ganga."
Hún
gengur inn og kallar á Ljótólf og sagði að Karl ómáli vill
finna hann.
"Hversu
fjölmennur er hann?" sagði Ljótólfur.
"Hann
er einn saman," segir hún.
Margir
menn stóðu upp og vildu ganga út með honum.
"Ei
þurfið þér upp að hlaupa. Eg vil einn út ganga og vita hvað
hann vill."
Nú
gengur Ljótólfur út og heilsar Karli. Hann tók því vel.
"Hvað
viltu mér Karl?" segir Ljótólfur.
"Eg
vil að þú gangir á götu með mér því við þig er erindið."
Ljótólfur
mælti: "Eru nokkrir menn með þér?"
"Eg
er einn saman," sagði Karl.
"Skammt
mun eg fara," sagði Ljótólfur, "því eg á lítt vanda til að
leiða menn á götu, allra helst ef ei eru vinir mínir."
Karl
veik hestinum ofan fyrir hlaðið. Ljótólfur gekk með honum ofan
til árinnar og út með ánni til Þingavaðs.
Hann
kvaðst ei mundu fara lengra "og lúk erindum þínum."
"Eg
vil að þú takir við öllu fé mínu, löndum og lausum eyri, og
haf af ávöxt og far með sem þú eigir þar til sem eg kem til."
"Hvað
ætlar þú fyrir þér?" sagði Ljótólfur.
"Eg
ætla utan," sagði Karl.
Ljótólfur
sagði: "Margir eru aðrir menn til að taka við fé þínu og er ei
víst að þú náir þá er þú vilt."
Karl
svaraði: "Því hefi eg þessa leitað að mér þykir mitt hvergi
jafn vel komið sem hjá þér."
Ljótólfur
svarar: "Undarlegur maður þykir mér þú vera en þó vil eg játa
að taka við fé þínu og mun það flestra manna mál að þú verðir
heimskur af þessu."
Þrjá
vetur var ráðið umboð Ljótólfi ef Karl kæmi eigi til fyrr, en
laust þegar hann kæmi til. Hann sagði móður sinni þessa
ráðagerð.
Hún
svarar: "Þó verður þér illt til manna að varðveita fé þitt og
er það vænna að þú náir aldrei."
Karl
svarar: "Eg sé fyrir því en ekki þú."
27. kafli
Þá
reið Karl vestur til Skagafjarðar og keypti skip í
Kolbeinsárósi að þeim manni er Bárður hét og gerði félag við
Bárð og réðst til skips þegar hann var búinn. Hann lét fara
með sér Ingvildi fagurkinn og gerði hann það til skapraunar
við hana en eigi fyrir ræktar sakir. Eftir það sigla þeir í
haf og komu að Þrándheimi. Bárður spyr hvað Karl ætlar fyrir
sér.
Karl
svarar: "Eg vil afla mér fjár því langt er sumars eftir. Ætla
eg að halda til Danmerkur."
Bárður
sagði: "Það líkar mér vel og vil eg fara með þér."
Þeir
halda til Danmerkur og koma þar síð um haustið. Og er þeir
hafa skamma stund þar verið koma tveir menn af landi ofan,
miklir og illilegir. Og er þeir koma í kaupstefnu spurðu þeir
hvort nokkur maður hefði ambátt að selja þeim. Karl spurði
hvað þeir mundu við gefa.
"Það
sem vill," segja þeir.
Karl
sagði: "Á eg ambátt og mun ykkur dýr þykja og ei veit eg hvort
þið getið þjáð hana því hún er óvön verknaði."
Þeir
segjast mundu það ábyrgjast "og met þú hana," sögðu þeir.
Karl
sagði: "Hún skal vera fyrir þrjú hundruð silfurs."
"Þess
þyrfti," sögðu þeir, "að hún ynni mikið og vel, svo dýr sem
hún er og viljum við sjá hana."
Karl
gengur á skip út og bregður sverði og spyr Ingvildi hvort
fullt væri skarð í vör Skíða. Hún sagði það aldrei jafnfagurt
verið hafa sem nú.
"Þá
skaltu ganga á land með mér," sagði hann og tók í hönd henni
og leiðir hana og sýnir þeim ambáttina.
Þeir
kváðust öngva ambátt jafnfagra séð hafa. Þeir töldu honum nú
silfrið.
Karl
mælti: "Það vil eg skilja að kaupa hana þvílíku verði ef mér
sýnist."
Þeir
sögðu: "Ekki muntu í raun koma um það og er það líkara að vér
sjáumst aldrei."
Síðan
gengu þeir á land en hún sperrðist við og tók annar í hár
henni og leiddi hana en annar hafði svipu í hendi og keyrði
hana. Karl gengur til skips. Bárður spyr hvað hann vildi að
þeir legðu fyrir sig.
Karl
sagði: "Hér munum við í vetur vera."
Bárður
spyr að vori hvað Karl vildi að hafast.
Hann
svarar: "Spurt hefi eg til víkings þess er Björgólfur heitir.
Hann hefir langskip og lið vandað. Þar vil eg fara í sveit með
honum og afla svo fjár og frægðar."
Bárður
sagði: "Þá munum við skilja félagið því eg er enginn
hermaður."
Karl
mælti: "Þú skalt fara með skip okkart sem þú eigir en er við
finnumst gerum við sem okkur sýnist."
Nú
skiljast þeir góðir vinir og fer Karl leiðar sinnar.
28. kafli
Svo
er sagt að Karl fær sér eina skútu og heldur suður með landi
þar til að þeir koma að einni eyju. Þar var Björgólfur fyrir.
Karl reri þar að skipunum og spyr hver réði fyrir.
Einn
maður gekk út á vígið og sagði að sá héti Björgólfur "eða hvað
heitir þú?"
"Eg
heiti Karl."
"Hvaðan
ertu af löndum?" segir Björgólfur.
"Eg
er af Íslandi," segir Karl.
"Hvert
ætlar þú að fara?" segir Björgólfur.
Hann
svaraði: "Eg hefi nú sótt mitt erindi er eg hefi þig fundið og
vildi eg ráðast í föruneyti með þér og afla mér svo fjár."
Björgólfur
tók við honum og gengur Karl á skip og setur Björgólfur hann
hið næsta sér. Þeir halda síðan í Suðurríki og herja víða um
landið og hafa sigur hvar sem þeir koma. Þeir liggja tvo vetur
í víkingu.
Það
var einu sinni að Karl mælti við Björgólf: "Nú mun eg létta
hernaði og fara norður í lönd til áttjarða minna."
Björgólfur
svarar: "Þú munt ráða en gjarnan vildi eg að við skildum ei
því eg hefi engan slíkan dreng reyndan sem þig."
Nú
fara þeir báðir saman til Danmerkur og situr Karl þar um
veturinn. En um vorið kaupir Karl knörr einn og á einn allan
farminn. Og er hann var mjög búinn sér hann hvar tveir menn
ganga og leiddu konu í millum sín. Þar kennir hann kaupunauta
sína og Ingvildi og hékk annar trefill fyrir en annar á bak.
Þeir
sögðu Karli: "Hér förum við með ambátt þá er þú seldir okkur
og höfum við engu kaupi verr keypt. Við börðum hana aldrei svo
að hún vilji vinna fyrir okkur og viljum við nú gjarna selja
þér hana aftur."
Karl
sagði: "Eg vil og nú kaupa hana."
Hann
taldi þeim nú jafnmikið silfur sem þeir fengu honum. Hann
leiddi hana til skips og lét gera henni laug og klæddi hana
góðum klæðum og gerði hana svo sæla sem þá hún var sælust.
Eftir það heldur hann til Íslands og kemur skipi sínu í
Svarfaðardalsárós og færir varnað sinn til Upsa. Bú hans hafði
þar staðið meðan hann var utan. Urðu menn fegnir mjög hans
heimkomu.
Þá
er hann hafði heima verið um stund gengur hann til Ingvildar
og bregður sverði því sem hann hafði vegið með sonu hennar og
mælti: "Hvort er fagurt skarð í vör Skíða?"
Hún
kvað það aldrei jafnfagurt verið hafa.
Karl
reið til Hofs einn dag og hittir Ljótólf goða. Ljótólfur
fagnar honum vel og spyr hvert hann ætlar að fara.
Hann
kveðst ei lengra fara mundu: "Vil eg nú taka við fé mínu."
Ljótólfur
svaraði: "Hefir þú eigi meðtekið áður og sest í búið?"
Karl
svaraði að engu væri eytt að svo búnu "og muntu nú skipta af
þínum hlut því eg veit að þú munt eiga búið að helmingi eða
meir."
Ljótólfur
sagði: "Það þykir mér ráð að í vor sé skipt fénu og vil eg að
þú farir með sem þú eigir."
Karl
sagði: "Það mun vera verða."
Þeir
skilja nú við þetta og reið Karl heim til Upsa og sat þar um
veturinn með fjölmenni. Að liðnum vetri reið Karl til Hofs og
hittir Ljótólf. Hann spurði hvað Karl vildi.
"Eg
vil að við skiptum fénu," sagði Karl, "og er nú óhægra en næst
er eg beiddi því eg hefi eytt miklu fé í kostnaði í vetur."
Ljótólfur
sagði: "Hvað ætlar þú fyrir þér ef fénu er skipt?"
"Eg
ætla utan," sagði Karl, "því mér er lítt hent búið."
Ljótólfur
mælti: "Hver skal þá hafa umboð þitt meðan þú ert burt?"
Karl
svaraði: "Þér hef eg ætlað ef þú vilt."
Ljótólfur
sagði: "Þá þætti mér ei skipta þurfa. En kynlegt þykir mér er
þú vilt jafnan fá mér í hendur fé þitt því óvíst er að eg
verði jafn drengur í hvert sinn."
"Hversu
sem það fer," sagði Karl, "þá mun eg þér mitt umboð fá."
"Ei
þarf þá að skipta," segir Ljótólfur og tekur hann við umboðinu
Karls í annan tíma.
Nú
ríður Karl heim og lætur búa skip sitt.
En
er hann var búinn leiddi hann Ingvildi fagurkinn til skips með
sér og voru skapsmunir hennar hinir sömu. Karl hélt í haf og
gaf vel byri og tóku Þrándheim. Var Karl þar um veturinn en um
vorið hélt hann til Svíþjóðar. Og er hann kom í einn kaupstað
kemur maður af landi ofan, mikill og illilegur, og falar
ambátt ef nokkur væri föl.
Karl
sagði: "Eg hefi að selja og mun þér dýr þykja eða hvað heitir
þú?"
"Rauður
heiti eg," sagði hann, "og mettu ambáttina."
Karl
svarar: "Fyrir sex hundruð silfurs."
Og
þessu kaupa þeir.
"Þykir
mér því betur," sagði Karl, "sem þú gerir hana vesalli."
Síðan
gengur Rauður á land upp með hana en Karl fer í kaupferðir til
ýmsra landa og var þrjá vetur í þessari iðn. Karl var um vetur
í Noregi og fór um vorið í kaupstefnu þangað sem Haleyri
heitir.
Og
einhvern dag gengur maður af landi ofan og leiðir eftir sér
konu svo nakta að aldrei beið á henni ríðanda ræksn. Hún var
alblóðug öll. Karl spurði með hvað hann færi.
"Þetta
er ambátt, ill og aum, er eg keypti hinn fyrra dag en þessi
ambátt fer mjög að kaupum og þykist sá betur hafa er lausa
lætur en hinn er við tekur og vildi eg gjarnan selja hana."
Karl
mælti: "Hvað heitir þú?"
"Eg
heiti Brynjúlfur."
"Þú
munt gera ambáttina ódýra," sagði Karl.
Brynjúlfur
sagði: "Ei nenni eg að selja hana með afföllum, heldur mun eg
kvelja hana til dauða."
Karl
kaupir nú ambáttina og telur Brynjúlfi sex hundruð silfurs en
Karl leiðir hana til skips og var þar Ingvildur fagurkinn. Hún
lagði þá hendur um háls Karli og grét en það hafði Karl aldrei
áður séð að henni hefði nokkurs fengið hvað sem að henni hafði
borist. Karl lætur gera henni laug og fá henni góð klæði. Þá
gekk Karl til tals við hana og brá sverði því hann hafði vegið
með sonu hennar og spurði hvort fullt væri skarð í vör Skíða.
Hún sagði það aldrei fullt mundu verða.
Karl
sagði: "Þá mun eg af leggja héðan í frá og svo mundi eg gert
hafa ef þú hefðir þetta fyrr mælt. Skal eg nú færa þig Skíða
bónda þínum því eg veit nú hvar hann er niður kominn."
29 kafli
Þegar
byri gaf siglir Karl til Írlands og hefir frétt af hvar Skíði
var. Hann hafði þá unnið undir sig mikinn hluta af Írlandi.
Karl kom þar að landi sem Skíði var fyrir. Hann var þar
genginn á land að berjast við Íra og ætlaði að þá skyldi til
skarar skríða með þeim. Þá er Karl kom til orustu var Skíði
búinn að flýja. Karl gengur þegar í lið með Skíða og hans menn
og berjast þann dag allan og gekk Karl jafnan í gegnum lið
Íra. Er og svo sagt að hann felldi höfðingja þann er fyrir því
liði var er Skíði hafði barist við og nálega allt það lið.
Eftir bardagann gengur Skíði að Karli og spyr hver honum hefði
lið veitt.
"Þessi
maður hefur verið óvinur þinn mikill og heiti eg Karl son
Karls hins rauða. Það var mest erindi mitt hingað að veita þér
lið og bæta þér svo sonu þína."
Þá
fagnaði Skíði honum vel og býður honum allar sæmdir með sér að
þiggja.
Skíði
sagði: "Ei vannstu það framar að drepa sonu mína en þú áttir,
þó að þú hefndir föður þíns."
Karl
sagði: "Hér hefi eg Ingvildi fögurkinn konu þína."
Skíði
svaraði: "Eg vil ei að hún komi í augsýn mér. Eg hefi ekki
verra verk unnið en það eg af henni hlaut er eg drap föður
þinn."
Karl
var þar um veturinn en Ingvildi var fengin önnur vist.
Um
vorið býst Karl burt af Írlandi með miklum sæmdum er Skíði
fékk honum og skildust góðir vinir. Karl hafði Ingvildi með
sér og heldur skipi sínu til Noregs og er þar vetur annan.
Síðan hélt hann til Íslands og kom skipi sínu í
Svarfaðardalsárós. Bú hans stóð að Upsum og annað á Grund og
höfðu kvikfén mikið fram gengið að hvorutveggi búinu. Karl
reið upp til Hofs. Ljótólfur fagnar honum vel.
Karl
mælti: "Nú er hér komin Ingvildur fögurkinn. Vil eg að þú
takir með henni. Máttu nú gifta hana hverjum er þú vilt því að
öngum mun hún nú of stór þykjast."
Ljótólfur
svaraði: "Þar er sú kona er eg vildi aldrei sjá því það verk
hefi eg verst unnið er af henni leiddi til þá eg lét drepa
föður þinn."
Karl
sagði: "Nú vil eg að þú skiptir fé með okkur. Vil eg taka við
jafn miklu sem þú tókst af mér en eg ætla þér ávöxt þann sem
orðið hefir."
Ljótólfur
svaraði: "Það eina stendur saman að Upsum og á Grund að eg
ætla mér ekki af."
Karl
sagði: "Gott þykir mér að þiggja sæmdir af þér. Sé eg að þú
gefur mér allan ávöxtinn."
Ljótólfur
mælti: "Ríð nú til Upsa og tak þar við búi þínu."
Síðan
sættust þeir heilum sáttum og héldu vel sína vináttu. Reið
Karl til Upsa. Ljótólfur tók við Ingvildi fögrukinn og kunna
menn það ei að segja hvort hún hefir gift verið en sumir segja
að hún hafi tortýnt sér af óyndi.
Ljótólfur
bjó að Hofi þar til er hann lést og fannst hann í óþokkadæl
nokkurri á ofanverðum vellinum og stóð í gegnum hann saxið er
gert var úr sverðinu Atlanaut er Klaufi hafði átt og Ljótólfur
fékk eftir bardaga þeirra Karls hins rauða. Ljótólfur var
færður suður og ofan á völlinn.
Yfirgangur
Klaufa gerðist svo mikill að hann meiddi bæði menn og fénað.
Karli þóttu mikil mein á um Klaufa frænda sinn er hann gekk
aftur. Karl fór til haugs hans og lét grafa hann upp. Var hann
þá enn ófúinn. Hann lét gera bál mikið á steini þeim sem er
fyrir ofan garð að Klaufabrekku og brennir hann til ösku. Karl
lét gera blýstokk og koma í öskunni og rekur á tvo járnhanka.
Síðan sökkur hann stokkinum í hver þann sem er fyrir sunnan
garð á Klaufabrekku. Steinn sá er Klaufi var brenndur á sprakk
sundur í tvo hluti og varð aldrei mein að honum Klaufa síðan.
Karl
sat á Upsum lengi ævi og er það sumra manna sögn að hann hafi
utan farið og aukið þar ætt sína en fleiri segja hann hafi átt
Ragnhildi Ljótólfsdóttur og mörg börn með henni. Böggvir hét
son hans er bjó á Böggvisstöðum, annar Hrafn er bjó á
Hrafnsstöðum. Ingvildur hét dóttir hans er bjó á Ingarastöðum.
En
er eyddist fé fyrir Karli þóttist hann ei búa mega að Upsum
fyrir kostnaðar sakir og sakir Ljóts Ljótólfssonar. Ljótur tók
við mannaforræði eftir föður sinn og bjó á Völlum. Tók þá að
greinast með þeim Ljóti og Karli og vildi Karl víkja burt úr
dalnum og segja menn að hann hafi farið til Ólafsfjarðar og
verið þar í elli sinni og hefir Karl sett þar bæ sem heitir á
Karlsstöðum og lét þar líf sitt og þótti hinn besti drengur.
Margir menn eiga að telja til Karls unga en Ljótur hafði
mannaforræði um allan dalinn.
Böðvar
hyggjum vér að búið hafi að Urðum, sonur Eyjólfs Breiðhöfða er
Urðamenn eru frá komnir. Eyjólfur breiðhöfði var sonur Þorgils
mjögsiglanda.
Margar
eru sögur af Valla-Ljóti og var hann hinn mesti höfðingi.
Ljótur lét drepa Eyglu-Halla bróður Karls unga.
Nú
lýkur hér Svarfdæla sögu með þvílíku efni.