1.
kafli
Þorgerður
hét kona. Hún bjó í Fljótsdal austur. Hún var ekkja af hinum
bestum ættum og hafði þá fé lítið. Þar bjó hún sem nú heitir á
Þorgerðarstöðum. Frændur Þóris vildu að hann staðfesti ráð
sitt og fengi sér forystu og fýstu að hann bæði Þorgerðar,
sögðu forgang góðan í því ráði. Þórir fékk þessarar konu og
skyldi boð vera að Hrafnkelsstöðum á mánaðar fresti. Var
Ásbirni boðið til boðs.
Glúmur
hét maður er bjó í Fljótsdal fyrir vestan þar sem nú heitir á
Glúmsstöðum. Þuríður hét kona hans og var Hámundardóttir,
kynjuð sunnan úr Þjórsárdal. Þau áttu sér eina dóttir þá er
Oddbjörg hét. Þær mæðgur fóru í fjós einn morgun snemma.
Nautamaður var í fjósi en Glúmur lá í rekkju sinni. En þá er
þær komu heim að bænum var hlaupin skriða á bæinn og þar
Glúmur inni orðinn og allur lýður sá er á bænum var nema
þessir þrír menn. Eftir þessi tíðindi lætur Þuríður færa bæinn
yfir ána, hóti ofar en áður var. Hún bjó þar lengi. Sá bær
heitir nú síðan á Þuríðarstöðum. Þessi tíðindi spurðust í
Hrafnkelsdal. Þuríður var hin vitrasta kona og skörungur
mikill. Fæddi hún upp meyna með mikilli virkt. Var hún og
allra kvenna vænst og best mennt.
Og
er Ásbirni komu orð bróður síns, hann tekur því vel og býður
að sér vinum sínum, ríður vestan yfir heiði og kemur á
Þuríðarstaði þess erindis að hann biður Oddbjargar sér til
eiginkonu og það var ráðið, fór við það ofan til boðsins að
hann flutti þetta brúðarefni með sér. Sjá veisla fór vel fram
og var all fjölmenn. Eftir boðið ríður Ásbjörn vestur yfir
heiði með konu sína heim á Aðalból. Voru góðar samfarir
þeirra.
Þau
Þórir og Þorgerður voru ásamt til þess að þau gátu son og
dóttir. Hét hann Hrafnkell en hún Eyvör. Hún var gefin Hákoni
á Hákonarstöðum er nam Jökulsdal. En þau Ásbjörn og Oddbjörg
áttu fjórar dætur og komust öngvar úr barnæsku. En síðast áttu
þau son er Helgi hét. Hann óx upp með föður sínum og var hinn
efnilegasti maður. Þeir frændur uxu upp þar í héraðinu
jafnsnemma og var þeirra fjögurra vetra munur.
Þeir
bræður sátu langa hríð í ríki sínu og var gott samþykki þeirra
meðan þeir lifðu báðir og varð Þórir sóttdauður. En eftir hann
tók fé og mannaforráð kona hans og Hrafnkell son hans, þó að
hann væri ungur að aldri, með umsjá Ásbjarnar. Helgi óx upp á
Aðalbóli með föður sínum. Hafði hann alla hluti til þess að
hann þótti betur menntur en aðrir menn bæði að yfirlitum og
skapsmunum.
Oddur hét
maður. Hann
hafði þar land numið. Bæði var hann blindur og
gamall í þann tíð. Hann átti son einn er Ölviður hét. Hann tók
fjárforráð eftir föður sinn. Ölviður var mikill maður vexti,
allra manna málgastur, ósvinnur og óvinsæll, heimskur og
illgjarn, og í öllu ójafnaðarmaður. Hann var aðdráttarmaður
mikill að búinu bæði af fjörðum neðan og af fjöllum ofan.
2. kafli
Það
bar til á einu sumri að Ölviður bjó ferð sína upp í
Fljótsdalshérað til grasa, allt fram að jöklum. Og í þessari
ferð ganga hrossin frá þeim Ölvið ofan eftir Fljótsdal en hann
leitar og hans menn ofan eftir heiðum hrossanna og finnur
eigi. Og er hann kemur fyrir botninn á Hrafnkelsdal þá sjá
þeir stóðhross mörg ofan í dalinn er Ásbjörn átti. Ölviður bað
þá taka hrossin og færa upp á föng sín. Mönnum hans þótti það
óráðlegt að taka hross Ásbjarnar, sögðu það eigi vel dugað
hafa við föður hans.
Ölviður
kvaðst eigi vilja vera óbirgur á fjöllum uppi fyrir eign
annarra manna "og hirði eg aldrei hver á og skal taka hross að
vísu."
Og
svo gerðu þeir og eru síðan lagðar klyfjar á hrossin og gengu
þau heim á Oddsstaði með. Og eftir það sendir hann hrossin
vestur yfir heiði og voru þau til ger allóþokkulega.
Og
er hrossin komu aftur þá ríður Ásbjörn austur yfir heiði og
kemur á Oddsstaði. Hann drap á dyr og bað Ölvið út ganga. Hann
gerir svo og heilsar vel Ásbirni. Ásbjörn spurði hvern óskunda
hann ætti honum að gjalda. En Ölviður kvaðst honum ekki illt
eiga að gjalda.
"Það
ætlaði eg," sagði Ásbjörn, "því að eg þykist ómeinn við aðra.
Skal eg þetta vel í höndum hafa ef þú vilt þess máls á unna
sem öðrum þykir rétt nema þú viljir heldur að við semjum með
okkur."
Ölviður
kveðst eigi vita að um þetta væri að málþarfa og kvaðst engis
máls vilja á unna "þykir mér það jafnskaplegt að hver vor
bónda sé eigi óbirgur fyrir annars eign. Mun eg og gera alla
jafna um þetta mál þó að þér hafið heldur mannaforráð en vér.
Og mun þér mál þykja bóta fyrir þetta mál áður eg bæti þér
þetta eða öðrum þó að eg geri þeim slíkt."
Ásbjörn
segir að honum mundi það eigi vel gefast. Reið hann heim við
svo búið og er heima þau misseri.
Og
er leið fram að vorþingi þá reið Ásbjörn ofan í
Fljótsdalshérað og stefndi Ölviði til vorþings til Kiðjafells,
þessi þingstöð er á hálsinum milli Skriðudals og Fljótsdals,
og sótti þar hrossamálið. Þar urðu öngvir menn til varnar og
lýkur Ásbjörn sektarorði við Ölvið, reið við það heim að hans,
háði féránsdóm. Síðan ríður Ásbjörn á Oddsstaði og tekur Ölvið
höndum í rekkju, leiddu hann út og drápu þegar. Ásbjörn kvaðst
svo leiða skyldu smámönnum að veita bóndum ágang. Skipti
Ásbjörn þá fénu við konu hans. Tók hún lausafé og búsbirgðir.
Hann tók bústaðinn undir sig og fékk þar forráðsmann fyrir. En
hann situr á Aðalbóli um hríð og hlýtur þar nú frá að hverfa
um sinn.
3. kafli
Þiðrandi
hét maður. Hann bjó á þeim bæ er í Njarðvík heitir. Hún liggur
milli Fljótsdalshéraðs og Borgarfjarðar. Þiðrandi átti
mannaforráð um Njarðvík og upp í hérað að Selfljóti. Selfljót
gengur fyrir austan úr heiðinni milli Gilsárteigs og Ormsstaða
og svo fellur það ofan í Lagarfljót. Þetta gætir fyrir ofan
reitinn en Lagarfljót fyrir vestan og er það kölluð
Útmannasveit. Þetta var þá hundrað bónda eign og sjötigu.
Þiðrandi var ríkur maður og þó vinsæll því að hann var hægur
við sína undirmenn. Hann var sterkur og mikill vexti og haukur
að hug. Hann bjó lengi og var gagnveitull. Og þá er hann var
gamall maður var hann kallaður Þiðrandi hinn gamli. Og var
hann og svo því að menn segja það að hann hefði sex vetur hins
fjórtánda tigar. Hann var þá þó enn hress maður. Hann var
virkur að fé og gekk hann þá jafnan að er húskarlar gáfu
lítinn gaum að.
Það
var einn vetur um brundtíð að húskarlar hans voru rónir á sjó
að leita fiska en sumir að heyvi að hann gengur til hrútahúss
síns þess er innan garðs var. Á því kvöldi komu allir fyrri
heim en hann. Menn spyrja hvar hann mundi vera. Konur sögðu að
hann hefði gengið til hrútahúss síns. Nú er hans leitað
þangað. Situr hann fyrir utan garðinn þar hjá húsinu. Menn
spyrja hví hann færi eigi heim. Hann segir sér gönguna óhæga
verið hafa en kvað þá þó lítið um hafa batnað og sagði hrút
einn hafa lostið sundur í sér lærlegginn. Var hann við þetta
heim borinn og ger hvíla hans. Og eftir þetta lýstur í verkjum
og blæs lærið mjög og þetta leiðir hann til bana.
Hann
átti eftir tvo sonu. Hét hinn eldri Ketill en Þorvaldur hinn
yngri. Hvortveggi þeirra bræðra var mikill vexti. Þorvaldur
var manna sjálegastur, hljóður og fáskiptinn. Hann var hinn
mesti samsmaður um flesta hluti. En Ketill var manna
sterkastur í það mund. Hann var ljótur maður og þó
höfðinglegur, dökkur og mikilúðlegur. Hann var manna hægastur
hversdaglega en hann var þögull og fálátur snemma og var
kallaður Þrum-Ketill. Gallar stórir voru á hans skapsmunum.
Sumir kölluðu það meinsemd. Það kom að honum í hverjum hálfum
mánuði að skjálfti hljóp á hans hörund svo að hver tönn í hans
höfði gnötraði og hrærði hann upp úr rúminu og varð þá að gera
fyrir honum elda stóra og leitað honum allra hæginda þeirra er
menn máttu veita. Þessum hroll og kulda fylgdi bræði mikil og
eirði hann þá öngvu því er fyrir varð, hvort sem var þili eða
stafur eða menn, svo þó að eldar væru þá óð hann. Þá gekk hann
undan húsum þili eða dyrabúning ef fyrir varð og gekk þetta á
hverjum þeim degi er að honum kom og urðu menn þá alla vega að
vægja til við hann sem máttu. En þá er af honum leið var hann
hægur og stjórnsamur. Þetta kom og til mikils honum og mörgum
öðrum þá er á leið ævi hans.
Systir
þeirra bræðra hét Hallkatla dóttir Þiðranda hins gamla. Hún
var gift Geiti Lýtingssyni er bjó í Krossavík norður í
Vopnafirði. Geitir var vinsæll maður en forgangur Hallkötlu
var einkar góður. Þau áttu tvo sonu. Hét hinn eldri Þorkell en
Þiðrandi hinn yngri. Hann hafði nafn afa síns. Þessir bræður
voru báðir vel menntir og þó sinn veg hvor. Þorkell var jarpur
á hár, dökkur maður, lágur og þreklegur og kallaður manna
minnstur þeirra sem þá voru, manna skjótlegastur og hvatastur
sem raun bar á, því að hann átti oft við þungt að etja og bar
sig í hvert sinn vel. Þiðrandi Geitisson var manna mestur og
sterkastur. Fannst eigi sá maður í þann tíma er sæmilegri
væri. Er og svo sagt að hann hafi hinn fjórði maður verið best
menntur á öllu Íslandi, en annar maður er til nefndur Kjartan
Ólafsson, hinn þriðji Höskuldur Þorgeirsson Ljósvetningagoða,
en hinn fjórði Ingólfur Þorsteinsson er kallaður var Ingólfur
hinn væni. Segja fróðir menn að öngvir hafi með slíkri menntan
skapaðir verið á öllu Íslandi sem þessir fjórir menn og er svo
mikið af sagt ásjónu þessara manna að margar konur fengu eigi
haldið skapi sínu ef litu fegurð þeirra. Og það er alþýðurómur
að þar eftir færi önnur menntan þeirra.
4. kafli
Hróar
hét maður. Hann bjó á þeim bæ er að Hofi hét. Það er í
Fljótsdalshéraði fyrir vestan Lagarfljót og fyrir utan Rangá
en fyrir austan Jökulsá. Þessi sveit hefir tekið viðnefni af
Hróari og heitir Hróarstunga. Hann fékk og viðnefni af
Tungunni og var kallaður Tungugoði. Barnlaus maður var hann og
átti mergð fjár. Hann var þá gamall maður.
Þess
er getið að Hróar gerir heimanför sína norður til
Vopnafjarðar. Hann kemur að kvöldi í Krossavík hina ytri.
Geitir Lýtingsson tók við honum vel og ágætlega og bauð honum
þar að sitja meðan hann vildi. Hróar Tungugoði er þar þrjár
nætur.
Eftir
það biður hann reka að hesta þeirra félaga og kvaðst þá vilja
lýsa yfir erindum sínum "og er eg til þess hingað kominn að eg
býð heim til fósturs Þiðranda syni þínum og ef þú vilt þetta
þá gef eg honum eftir minn dag fé og staðfestu og ríki. En
Þorkell taki þitt mannaforráð eftir þinn dag. Þykir mér þú því
að eins mína ferð góða gera ef eg fæ þetta sem eg beiði. Mun
okkur þá að þessum manni vera mikil styrkur að hann er sonur
þinn en fóstri minn og erfingi."
Geitir
kvaðst eigi nenna né vilja drepa hendi við svo miklum sæmdum.
Fer
nú Þiðrandi austur með Hróari í Tungu og gerir Hróar til hans
hvað öðru betur. Hefur Þiðrandi þar litla stund áður verið að
það máttu allir sjá að Hróar unni honum mikið og þar út í frá
alþýða manns, svo var hann vinsæll, og það hélst honum til
dauðadags.
Var
þá Þiðrandi sex vetra gamall er hann fór til fósturs úr
Krossavík. Þorkell var þá tíu vetra.
5. kafli
Þeir
bræður í Njarðvík sömdu eigi öll mál með sér um fjárfar.
Ketill vildi einn ráða öllu svo að Þorvaldur var að öngvu
kvaddur. En Þorvaldi leiddist það brátt og beiddi að þeir
mundu skipta fé og mannaforráði.
En
Ketill bað hann skipta þegar hann vildi og kvaðst honum unna
við sig alls fjár að helmingi "en mannaforráð er lítið og
nenni eg eigi skipta því eg ann þess öngum nema mér."
Þorvaldur
þóttist jafnt eiga hvorttveggja þó að hann næði eigi "en séð
hef eg það fyrir löngu að þú vilt mig flestu appella. Þykir
mér sem sénn muni minn kostur að eg muni slíkt hljóta að hafa
sem þú skefur mér af fé en þó skulum við skilja að sinni þó að
þú gerir minn harðan. En vita skaltu það að eg þykist að
helmingi eiga þó að eg fái eigi svo búið."
Síðan
leitaði Ketill að fémunum og skiptir öllu fé í helminga við
Þorvald bæði kvikfé og lausafé og öllu því er innan veggja var
nema goðorði. Því skipti hann eigi.
Eftir
það fór Þorvaldur á burt með alla eigu sína upp um heiði. Hann
byggði lendur sínar þær sem hann hafði hlotið en seldi kvikfé
að leigu.
Skip
stóð uppi í Fljótsdalshéraði við hin eystri fjöll þar sem
heitir Unaós. Þorvaldur fær vöru og ræður sig í þetta skip og
fór utan. Og er þeir koma í haf byrjaði þeim lítt og velktust
úti lengi sumars og að áliðnu sumri fá þeir veður stór og
ákaflega hríð. Þessi veður leiða þá úr hafi og sigla að
Hjaltlandi um nótt. Þar voru útfiri mikil og sigla þeir í boða
og brjóta skipið í spón og týndist fé allt en menn komust lífs
á land. Þorvaldur kom á land sem aðrir menn. Var hann í
íslenskum klæðum. Öngvan hlut rak upp af fé Þorvalds nema eitt
spjót mikið. Tók hann það í hönd sér. Hann var tvær nætur við
ströndina og beið ef nokkuð ræki upp af hans varnaði og vill
það ekki verða að þau mörk finnist að Þorvaldur ætti. Sýnist
honum það ráð að sitja þar eigi lengur birgðalaust. Er það
einn dag að hann gengur í burt.
Fyrir
Hjaltlandi réð þá jarl einn sá er Björgólfur hét. Hann var þá
gamall maður. Það sýnist Þorvaldi að snúa þangað að er jarl
réð fyrir. Hann settist utarlega um kvöldið en um morguninn
gekk hann fyrir jarl. Sjá jarl var vinsæll af alþýðu en var þó
þá óglaður. Hann kvaddi vel jarlinn. Hann tók því vel. Jarl
spurði hver hann væri.
Hann
kvaðst vera íslenskur maður, leysingi einn af smám ættum,
nýkominn úr skipbroti, auralaus maður "veitið mér, herra,
veturvist því að eg vil gjarna með yður vera."
Jarl
mælti: "Svo líst mér á þig sem þess munir þú þurfa."
Þorvaldur
bað hann vísa sér til sætis.
Jarl
mælti: "Sittu á óæðra bekk þar sem mætast þrælar og frjálsir
menn. Vertu fáskiptinn og kátur af þyrft þeirri við alla."
Þorvaldur
gekk til sætis og er hann þar um veturinn. Gerir hann eftir
því sem jarl mælti að hann var kátur við bekkjunauta sína enda
voru þeir auðveldir í öllum spurningum og spurði hann jafnan
margs. Og leið veturinn mjög fram að jólum.
Þá
ógladdist mjög lýðurinn. Jarlinn gerði þá mjög ókátan. Jarl
átti sér konu unga og tvo sonu við, unga að aldri en væna að
áliti. Og það var einn aftan að Þorvaldur spyr þá er næstir
honum voru hvað mönnum stæði fyrir ógleði. Enginn vildi segja
honum og líður nú að jólunum. Það var eina nótt að þeir menn
heyrðu sem næst lágu Þorvaldi að hann lét illa í svefni. Þeir
vildu vekja hann en jarl bað þá láta hann njóta draums síns.
Síðan vaknaði hann og spurðu menn hvað hann hefði dreymt en
hann vildi þar ekki frá segja. Það var tveim nóttum áður menn
héldu jól sín að Þorvaldur gekk fyrir jarl og kvaddi hann vel
og virðulega. Jarlinn tók því blíðlega.
Þorvaldur
mælti: "Því er eg hér kominn að eg vil spyrja yður að því er
enginn vill annar. Eg vildi vita hvað til ber um ógleði þeirra
manna er hér eru því að menn njóta hvorki svefns né matar og
aflar mér það nokkurrar hryggðar. Þykir mér þú af því
líklegastur til að segja mér, þeirra sem hér eru, að þú ert
hér formaður annarra."
Jarl
kvað hann þess ekki þurfa að forvitnast "því að það skiptir
þig öngvu. Þú munt ekki að því gera og hafðu öngva þökk fyrir
fréttina. Forvitnist þér það mart að yður er engin þörf á og
væri það maklegt að þess gyldi einhver."
Þorvaldur
kvaðst eigi mundu að hafa spurt ef hann hefði vitað að honum
þætti fyrir "mun eg þá og af hverfa en bið eg að þér ráðið
draum minn."
Jarl
svarar: "Enginn er eg draumamaður. Kann eg og ekki að ráða þá
því að eg hendi ekki tal af þeim en þó máttu segja ef þú
vilt."
Þorvaldur
mælti: "Þóttist eg ganga til sjávarins með þeim sama búningi
sem eg er vanur að hafa hversdaglega. Mér þótti þann veg ljóst
að eg sá leið mína. Spjót mitt hafði eg í hendi mér. Mér þótti
vera fjara er eg kom til sjávarins en eigi flóð. Eg þóttist
ganga með sjónum þar sem voru sandar miklir og útfiri. Og er
það þraut varð fyrir mér fles ein. En er eg fór yfir gjögurinn
var þar vaxið þangi stóru og þá sá eg á land upp hæð mikla eða
fjall en í fjalli því framan voru hamrar við sjóinn og bjarg
mikið og hátt. Eg þóttist snúa fyrir framan bergið þar til að
eg kom að forvaða einum. Eg þóttist þar vaða fyrir framan og
hafa djúpt. Og þá kom eg á smámöl. Gekk eg þá lengi með
sjónum, milli og bjargsins. Þá varð fyrir mér hellir mikill og
gekk eg þar inn. Eg sá þar brenna ljós svo að hvergi bar
skugga á. Eg sá járnsúlu eina standa upp í hellinum undir
ræfur en við þessa súlu var bundin ein kona. Hendur hennar
voru bundnar á bak aftur en hári hennar var vafið um súluna.
Hlekkir voru um hana úr járni. Var þar lás í öðrum enda og var
hún þar læst við. Eg þóttist taka til að leysa hana og það gat
eg leikið. Sá eg þar ekki fleira kvikt en hana eina. Fór eg þá
þaðan í burt með hana. Þóttist eg þá fara fyrir forvaðann og
komst eg þar. Þá þótti mér sem mér væri eftirför veitt af
einshverju kvikindi. Var mér það mikill ótti. Við hittumst en
ekki man eg hversu fór með okkur. Mun eg þá hafa látið illa í
svefninum. Í því vaknaði eg."
Jarl
varð svo rauður er hann heyrði þetta að honum mátti nálega
einum fingri dreyra vekja.
Hann
þrútnaði mjög og mælti: "Undarlega er yður farið að þér segið
að yður dreymi það er menn segja yður og er ærin skapraun mín
þó að eg sé ekki minntur á því að eg man enn nær dóttir mín
hvarf á burt héðan. Væri það maklegt að sá kenndi á sínum hlut
er þér sagði þar sem eg hefi áður bannað öllum."
Þorvaldur
svarar: "Vel máttu vita þetta herra. Enginn þinna manna hefur
mér þessi tíðindi sagt. Þetta hefur mér í svefni sýnt verið.
Mun eg hér svo mikið mál til taka sem þér viljið."
Jarl
þagnaði og svaraði af stundu: "Hér skiptir tvennu um þína hagi
að þú ert maður forspár ella muntu dauður maður af stundu."
Þorvaldur
svarar: "Eg vildi að þér segðuð mér þau tíðindi er hér hafa
orðið í yðrum híbýlum. Þykist eg það vita að mikil munu
orðin."
Jarl
svarar: "Hví mun eigi verða svo að vera? Eg átti mér eina
dóttir, fyrr en þessa sveina tvo, er Droplaug hét. Það var
kallað að hún væri vel mennt. Eg unni henni mikið. Á hinum
fyrrum jólum hvarf hún héðan á burt. Hana tók jötunn sá er
Geitir heitir. Á hann þar byggð er þú þóttist koma. Það heitir
Geitishamar en það fjall heitir Geitissúlur. Að þeim manni
verður mörgum mein. Meiðir hann bæði menn og fé en sjá
meinvættur er mest á öllu Hjaltlandi. Hef eg það mælt að þeim
manni mundi eg hana gefa ef nokkur væri svo frækinn að henni
næði á burt."
Þorvaldur
kvaðst það ólíklegt þykja að hún mundi þaðan nást.
Jarl
svarar: "Eigi mundi eg hana félausa á burt hafa látið ef eg
hefði ráðið. Sýnist mér þú skyldur til að leggja þig í nokkra
hættu er þú hefur fyrstur til orðið eftir að spyrja."
Þá
svarar Þorvaldur: "Eg vildi aldrei eftir hafa spurt" og snýr
þegar á burt og til sætis síns. Hann mælti við öngvan mann á
því kvöldi.
Eftir
náttverð fara menn til rekkna. Og er Þorvaldur finnur að menn
eru sofnaðir þá rís hann upp og tekur spjót sitt í hönd sér.
Hann gengur út og til sjóvar ofan og var fjara en eigi flóð.
Hann gengur með söndum nokkrum og stefndi til norðurs, mjög
hina sömu leið sem honum hafði sýnst í svefninum. Þar til
gengur hann er fles ganga og gjögrar og þang stórt. Þá varð
fyrir honum malargrýti. Gengur hann enn þar til er forvaði var
og veður hann fyrir forvaðann. Hér kemur hann nú sem honum
hafði sýnst í svefninum og gengur að helli og inn í hellinn.
Sá hann að ljós brann. Öðrumegin sá hann rekkjurúm eitt, miklu
meira en hann hefði annað fyrr séð slíkt, og hugsaði þó að
hann legðist niður í rúmið og annar maður jafnmikill honum og
spyrntust í iljar að þó mundi ærið langt en Þorvaldur var þó
manna mestur. Þessi rekkja var ekki að öðru minni en að lengd.
Var þessi hvíla öngvu tjölduð nema borða einum en yfir
rekkjuna var breitt guðvefjarpelli. Beðirnir voru stórir svo
að mikið var upp úr hvílunni. Yfir hvílunni sá hann hanga eitt
sverð mikið. Hann tók það ofan og fylgdi steinafall mikið.
Sverðið var búið vel að umgjörð. Járnhjölt voru að. Ekki var
það búið meir. Hann brá sverðinu og var það grænt að lit en
brúnt með eggjunum. Hvergi var ryðflekkur á sverðinu. Eigi
hafði hann séð vopn jafneigulegt. Hann sá öðrumegin í hellinum
varningshlaða. Alls kyns íslenska vöru og léreft og margs
konar varning sá hann þar liggja er nöfnum tjáði að nefna og
svo hin bestu föng kostar og nóglegs drykkjar. Þar voru alls
kyns gæði þau er betra var að hafa en missa. Hann sá járnsúlu
eina í miðjum hellinum og þar konu við bundna með þvílíkum
hætti sem honum sýndist í svefninum. Hún sat í rauðum kyrtli
en svo fögur sem honum sýndist hún í svefninum þá sýndist hún
honum nú miklu fegri. Hann gekk að henni og heilsar hún honum.
Hann tók því vel og spurði hver hún væri. En hún sagði til og
kvaðst Droplaug heita og vera dóttir Björgólfs jarls.
Hún
bað hann fátt við sig mæla "er þér nauðsynlegra að leita þér
lífs því að þú ert verr kominn en þú hyggur. Hér ræður fyrir
tröll svo mikið að honum finnst eigi annar líkur. Er eg miklu
fastlegar komin en þú megir mér á burt koma."
Hann
segir hana með sér fara mundu.
Hún
segir að hann megi það ekki "því að hann er miklu meira tröll
en mennskir menn megi rönd við reisa. Mun hann heim koma brátt
því að hann fer að föngum í nótt en bindur mig við súluna
meðan hann er í burt. En um daga er hann í rekkju sinni og
leikur þá að mér, kastar mér hönd af hendi og hendir mig en þá
er hann vill sofa fær hann mér til leikna gull og gersemar.
Hann fær mér og öngva þá fæðu að eg megi eigi vel neyta og
öngvu hóti þykist hann of vel við mig gert geta það er hann
má."
Þorvaldur
svarar: "Annaðhvort skulum við bæði burt komast eða hvortgi."
Hann
brá þá sverðinu og hjó af henni járnfestina og beit svo vel að
þegar tók í sundur. Hann leiðir hana þá út af hellinum. Ekki
hafði hann fé í burt nema sverð. Þau ganga nú eftir mölinni og
að forvaðanum. Hann fann að hún var dregin mjög því að hún var
óheil. Tekur hann hana þá upp í fang sér og veður fyrir
forvaðann og hafði hann nú sýnu djúpara en í fyrra sinni því
að flætt var mjög. Hann gat litið upp yfir sig í bergið að
skor var því líkust sem höggvin væri með berghöggi. Ekki nær
hann þangað. Hann sá himintungl og var þá komið mjög að degi.
Þá var hann kominn mjög á flesin. Var þá seinfært mjög og þá
heyrði hann aftur til hellisins óp mikið.
Konunni
brá mjög við þessi læti og bað Þorvald láta sig ofan "og sagði
eg þér áður að þú mundir ekki mega við mig kjalast og leitaðu
fyrir þér. Nú er hann heim kominn og mun hann verða mér feginn
en hann mun ekki eftir þér leita ef hann ratar mig."
Hann
svarar: "Það skal aldrei verða því að eitt skal yfir okkur
ganga meðan eg má á þér halda" steypir af sér loðkápunni og
færir hana í, setur hana niður síðan í gjögurinn og spjótið
hjá henni en hann snýr aftur á veginn. Hann sér þá að bar við
himni höfuð jötunsins, miklu hærra en hamarinn. Hann bar að
henni grjót svo mikið að hún mátti ekki á burt komast. Þá tók
hann sverðið og gengur í mót jötninum.
Jötunninn
kallar hátt og bað hann niður láta melluefni sitt "ætlar þú
þér mikið í fang að færast auðvirði þitt ef þú vilt taka hana
frá mér er eg hefi áður lengi átt."
Og
í þessu stígur jötunninn upp í skoruna bjargsins þá sem
Þorvaldur hafði séð, en öðrum fæti á flesin og varð hann eigi
votskór. Og sá hann að til þess var þessi skor að jötunninn
vildi eigi vaða. En í þessu kemur Þorvaldur að og hleypur inn
undir hann en jötunninn breiðir frá sér lámana og ætlaði að
taka Þorvald. En í því höggur Þorvaldur til hans og kom á mitt
lærið jötunsins og tók af fótinn vinstra fyrir ofan kné en
hinn hægra fyrir neðan kné og kom sverðið í sandinn niður.
En
jötunninn féll og kvað við sárlega og mælti: "Illa hefur þú
mig svikið og meir en eg ætlaði að þú hefur tekið það eitt
vopn er mér mátti grand vinna. Fór eg af því óhræddur eftir
þér að eg hugsaði ekki að smámenni mundi mér verða að bana. En
nú muntu þykjast hafa mikinn sigur unnið. Muntu ætla að bera
vopn þetta og þínir ættmenn. En það mæli eg um að þá verði
þeim síst gagn að er mest liggur við."
Þorvaldur
leitaði þess á að hann skyldi ekki fleiri orð mæla þeim til
óþurftar og höggur á hálsinn svo að af tók höfuðið og stakk
höfðinu milli þjóanna. Því vann hann það eigi fyrri að hann
fálmaði höndunum og fékk Þorvaldur eigi færi á honum fyrr en
hann kyrrðist. Gengur hann síðan burt frá honum og þar til er
hún lá og fann þá að á henni var ómegin eða óvit. Hann tekur
hana upp og rann þá af henni brátt svo sem svefn. Hann gengur
með hana þar til er hann kemur heim til hallar. Þá voru menn
að dagdrykkju. Menn höfðu saknað Þorvalds og gáfu þeir lítinn
gaum að því.
Og
nú gengur hann inn í höllina og hafði Droplaugu á handlegg sér
en sverð í annarri hendi. Gekk hann fyrir jarlinn og kvaddi
hann og kvaðst færa honum dóttur sína. Jarl varð henni einkar
feginn og margir aðrir. Jarl spurði með hverjum hætti eða
atburð hann hefði henni náð. Hann sagði allan atburð og kvað
mjög eftir drauminum gengið hafa.
Jarl
svarar: "Mikil er gifta þín og gæfa er þú hefur unnið þann
óvin er hér hefur mestur verið á voru landi. En þó munum vér
brátt sjá þetta."
Hirðmenn
sögðu að þetta mundi ekki svo mikið tröll vera sem menn höfðu
látið "að hann hefur einn unnið og mun þetta lygi ein vera."
Og
eftir þetta ætlar Þorvaldur að snúa til sætis síns.
Jarl
kallaði þá eftir honum og bað hann sitja það forsæti fyrir
framan hásætið "mun annaðhvort vera um hagi þína að þú munt
meiri virðingar verður en eg hefi til þín gert eða þú munt
ekki langær maður verða. En það mega allir sjá að þú hefur oss
góða fórn fært. Er þín för góð orðin og er oss nú jafnnýtt um
sem þá er enginn varð til í þennan háska að ganga. En aldrei
mun mér efalaust að vér njótum þessarar konu fyrr en eg veit
víst að sjá fjandi er af ráðinn."
Eftir
það drekka menn og heldur í skemmra lagi. Þá eru tekin ofan
borð. Björgólfur jarl bað menn sína vopnast og ganga til að
sjá þessi tíðindi. Þeir fara og Þorvaldur með þeim og koma þar
til er sjá dólgur lá og sáu nú allir hversu að var unnið.
Gengu margir tæpt að, þeir er áður kölluðu þetta lítið
þrekvirki verið hafa. Jarl lætur fella mörk og draga saman.
Hann lætur hlaða bál og láta síðan draga jötuninn út á bálið
og brenna hann að köldum kolum og eftir það flytja þeir öskuna
á sjá út. Síðan fara þeir til hellisins á skipunum og flytja
þaðan mikinn auð og allt það er fémætt var og flytja heim. Er
þar kallað jafnan síðan Geitishellir og Geitishamrar. Og er
ekki getið að hann sé síðan af tröllum byggður.
6. kafli
Þá
er menn komu heim var varningurinn tíndur og er það kallað að
þar væri kominn mestur hluti þess varnings er á því skipi var
er Þorvaldur hafði á verið og þar kenndi Þorvaldur alla sína
vöru. Þorvaldur og jarl létu það hvern hafa er sér kenndu en
hitt var þó miklu meira er enginn bar kennsl á fyrir því að
íslenskur varningur var lítils verður hjá því sem annað var,
það sem þar var, því að það var margra manna sælur. Síðan
launaði Þorvaldur þeim mönnum vel er sitt erfiði höfðu fyrir
þessu haft.
Þorvaldur
situr nú í Hjaltlandi í mikilli virðingu. Þótti þetta hið
mesta þrekvirki er hann hafði unnið. Jarlinn virti öngvan mann
fyrir Þorvald fram og þar gerðu aðrir menn eftir. Sat hann þar
þau misseri hin næstu.
Og
á þessu sama sumri spurðist virðing sjá til Íslands er
Þorvaldur hafði fengið á Hjaltlandi. Margir menn í Austfjörðum
fögnuðu er þeir spurðu að svo hafði að borist nema Ketill
bróðir hans. Hann lét sem hann vissi eigi. Þótti mönnum mikil
gifta til Þorvalds fallið hafa svo afskiptan sem Ketill hafði
hann gert.
Þorvaldur
sat á Hjaltlandi framan til jóla og þá gekk hann fyrir jarl og
kvaddi hann og spurði hann hvort hann myndi nokkuð til hinna
fyrri jóla. Hann kvaðst gjörla muna.
"Þá
mun eg fram heimta það verðkaup sem þú sjálfur sagðir upp þá
er eg sagði þér draum minn, að þú hést að gefa þeim manni
dóttur þína er henni næði burt þaðan. Nú vil eg vita mitt
erindi. Vil eg ekki hér vera ef mig dregur ekki til."
Jarl
mælti: "Allt er mér samt í hug um það nú og þá að mér líst þú
maklegastur að njóta hennar ef nokkur nyt er í. En eigi sýnist
mér nú jafngóður kostur sem þá er héðan fór því að þessi kona
er nú eigi allra færi sakir skaplyndis en þú sérð sjálfur
fyrir kosti þínum. En halda vil eg allt það sem eg hefi um
mælt en þitt gjald mun vera ef nokkuð brestur í þar um. Er
líklegt að vel verði því að henni er allvel til þín. Og í
hvert sinn er þín er getið þá segir hún að enginn muni koma
til jafns við þig. En gefa vil eg þér jarldóm til þess að
synir mínir eru til færir við ríki að taka."
Þorvaldur
kvaðst eigi það vilja "því að mér þykir þá best komið er þér
varðveitið þar til að þeir taka við, en mér er það eigi hent
því að eg er eigi höfðingjaættar."
Og
eftir það var sent eftir móður Droplaugar þeirri er Arneiður
hét. Grímur hét bróðir hennar en faðir hennar hét Helgi,
danskur maður, en móðir þeirra Hallerna. Þau systkin komu
þangað og er þeim sagður þessi kaupmáli. Þeim kvaðst svo að
hyggjast að eigi mundi annar maklegri að njóta þessarar konu
en þessi maður og sögðust hér góðan þokka til mundu leggja. Og
við þetta var Droplaug fest Þorvaldi með miklu fé. Var þá
stofnuð veisla fríð. Skorti hvorki tilföng nóg né fjölmenni
mikið og fór veislan allvel fram. Og að henni liðinni gaf
Þorvaldur hverjum manni góðar gjafir. Fékk hann svo miklar
vinsældir að nálega báðu honum allir menn góðs og sat hann nú
þar þennan vetur til þess að voraði. Þá keypti hann skip það
er uppi stóð í Þórsá og færir þangað til stórfé og konu sína
Droplaugu. Voru góðar þeirra samfarir því að hvort þeirra
veitti öðru vel en við aðra menn var hún heldur skapstór en
þess í milli fálát og steigurlát en þó var hún afbragð annarra
kvenna bæði að yfirlitum og atgervi.
Arneiður
móðir hennar átti mörg skilgetin börn og var hún þá ekkja er
hún átti þessa sína dóttir, Droplaugu. Og á þessu vori seldi
hún sonum sínum í hendur bú sitt en gifti dóttur sína er Gróa
hét. En Arneiður réð sig í skip með Þorvaldi og vildi fylgja
dóttur sinni til Íslands. Grímur Hallernuson fór og með þeim.
Og er þau voru búin sigldu þau í haf og fengu góð veður og
hagstæð, tóku Ísland snemma sumars. Þau komu þar skipinu er
Höfn heitir í Borgarfirði fyrir sunnan Njarðvík.
Frændur
Þorvalds riðu margir til skips þegar þeir spurðu útkomu hans
og fögnuðu honum vel og buðu til sín með sæmd með því liði er
hann vildi að færi. En Ketill bróðir hans kom ekki til skips
enda sendi Þorvaldur honum engin orð. Þá var Ketill kvongaður
og átti son er Þorkell hét og var kallaður fullspakur. Hann
kemur lítt við þessa sögu en kemur hann þó enn við síðar.
7. kafli
Hallsteinn
hét maður. Hann bjó á þeim bæ er í Jórvík heitir. Hann var
ungur maður og var þá nýkvongaður. Hann var skyldur þeim mjög
Njarðvíkingum. Við þennan mann var Þorvaldur ástúðugastur áður
hann fór utan. Hann reið til skips þegar hann spurði útkomu
Þorvalds og bauð honum með sér að þiggja um veturinn með allt
sitt föruneyti. Það þekktist Þorvaldur og fór þangað með
fjórða mann, þjónustumann hans og þjónustumær hennar, en aðrir
skiparar vistuðust í hérað upp. Skipið var upp sett og umbúið.
Líður
veturinn og situr Þorvaldur í Jórvík með yndi miklu. Og um
vorið réðu frændur hans honum að hann skyldi kalla til við
Ketil bróður sinn að taka við goðorði sínu og mannaforráði.
En
Þorvaldur kvaðst eigi það mundu gera "því að mér mun það lítið
tjá þó að eg geri það og vinn eg það eigi til virðingar að
deila við frændur mína."
Það
er sagt að Þorvaldur reið heiman við nokkra menn upp í hérað
og vestur yfir Lagarfljót og upp á strönd og allt þar til er
hann kom á þann bæ er á Vallholti heitir. Þetta land var lítið
að húsum en þó fullbýlisland. Það kaupir Þorvaldur með fé.
Hann húsaði landið og efldi bústað þann og er sá bær góður
kallaður síðan jafnan. Eftir það tekur Arneiður móðir hennar
við búi fyrir innan stokk og allri umsjá. Er þá snúið nafni
bæjarins og kallað á Arneiðarstöðum. Sest Þorvaldur þar í bú
og fékk hann brátt vinsældir miklar. Droplaug skipti sér ekki
af ráðum. Var hún ríkilát mjög. Þótti mönnum mikils um hana
vert. Enginn var Þorvaldur goðorðsmaður, sem fyrr var ritað,
en þó var hann svo vinsæll að nálega vildi svo hver maður
sitja og standa sem hann vildi. Frændur hans hylltust hann að
mjög enda gerði hann sér alla menn að vinum.
Maður
hét Bessi og var Össurarson. Hann bjó í Fljótsdalshéraði. Það
er fyrir vestan Lagarfljót, þar er heitir á Bessastöðum, við
vatnsbotninn. Bessi átti tvö börn. Hét son hans Ormsteinn en
Þorlaug dóttir. Ormsteinn var kvongaður og bjó á Víðivöllum
hinum syðri en Þorlaug Bessadóttir var þá ung að aldri. Bessi
var spekingur mikill og var kallaður Spak-Bessi og við hann er
kenndur bærinn á Bessastöðum. Við þennan mann leggur Þorvaldur
heitt vinfengi og svo hvor við annan.
Flestir
fóru utan með skipinu er út höfðu komið með Þorvaldi því að
hann sendi Björgólfi jarli skipið og þar með mikinn íslenskan
varning.
Grímur
Hallernuson var eftir á Íslandi því að hann vildi eigi utan
fara. Hann keypti sér land það er að Giljum heitir. Það er í
Jökulsdal neðanverðum. Hann bjó þar tvo vetur og þá tók Grímur
Hallernuson sótt og andaðist og tóku synir hans við búi og
fjárforráðum.
En
á hinum fyrstum misserum er þau Þorvaldur og Droplaug bjuggu á
Arneiðarstöðum þá fór hún kona eigi ein saman. Líða stundir
fram í líkindum og þar til að hún ól barn og var það sveinn.
Hann var vatni ausinn og nafn gefið og kallaður Helgi. Sá
sveinn óx þar upp með föður sínum og var hinn efnilegasti. Og
enn liðu stundir eigi langar áður þeim varð annars sonar auðið
og var sá nefndur Grímur eftir Grími Hallernusyni. Uxu þeir nú
þar upp báðir bræður og var þeirra tveggja vetra munur, báðir
mjög efnilegir.
Fjóra
vetur var Arneiður fyrir búi áður hún andaðist. Er þar haugur
hennar fyrir ofan garð og utan. Þá tók Droplaug við öllum
ráðum og varð henni það vel í hag.
8. kafli
Gunnar
hét maður. Hann var skyldur mjög Njarðvíkingum. Hann bað
þeirrar konu er Rannveig er nefnd og var honum heitið konu.
Býr hann þá veislu og býður til mörgum mönnum. Þeim Þorvaldi
og Droplaugu var og þangað boðið og þeim mönnum er þau vildu
og hétu þau ferðinni. Og er að því kom er þau skyldu fara
kvaddi Þorvaldur Droplaugu til ferðar með sér.
Hún
kvaðst hvergi fara mundu "og svo vildi eg að við gerðum bæði,"
sagði hún.
Þorvaldur
spurði hví hún væri svo hverflynd "þar sem þú hést sem eg."
Hún
svarar: "Ekki fer eg að því og bið eg að þú farir hvergi því
að mér segir svo hugur um að oss verði lítil sæmd að boði
þessu og ráðin er eg að fara alls hvergi en þú munt ráða þínum
ferðum þó að eg beiði annars um."
Þorvaldur
svarar: "Eigi nenni eg að sýna svo mikla ómerki við frændur
mína þar sem við hétum bæði en eg mundi hvergi fara ef eg
hefði eigi svo fastlega heitið."
Býr
hann nú ferð sína. En hún varð hrygg mjög við það. Þorvaldur
fer nú við hinn níunda mann á einum teinæringi. Hann var
vopnaður vel.
Hún
bað að hann mundi eftir láta sverðið "því að mér segir þungt
hugur um þína ferð. Eigi fyrir því, einskis þykir mér vert
sverðið hjá þér."
Þorvaldur
sagði lítið mark að um hugboð manna "og hefur þú ekki þann veg
látið fyrr, en ekki er mér svo mikil elska á sverðinu að eg
megi eigi vel af því sjá."
Fer
Þorvaldur nú til skips og hún með honum og þykir henni
allmikið að skiljast við hann og gengur hún heim en Þorvaldur
siglir út eftir vatninu útsynningsveður. Styrmdi svo mjög að
Þorvaldur týndist í þessari ferð og þeir allir er með honum
voru. En þessi tíðindi spurðust brátt um héraðið og þótti
mörgum mikil.
En
boðið fór vel fram allt að einu er Gunnar kvongaðist. Þau
gerðu bú út í héraði á þeim bæ er á Brandastöðum heitir og
bjuggu lengi. Og þegar hin fyrstu misseri áttu þau barn. Það
var dóttir og hét Þórdís. Hún var efnileg og vel mennt. En á
öðrum misserum áttu þau barn annað. Það var sveinn og var
nefndur Þorkell. Þessi börn þóttu bæði efnileg og uxu þar upp,
vel efnileg. Þessi voru elst börn þeirra. Mörg áttu þau önnur
börn og koma þau ekki við þessa sögu. Þessi börn áttu sér
viðnefni og var hann kallaður Þorkell trani en hún Þórdís
bestingur.
9. kafli
Svo
er sagt að Droplaug kunni illa fráfalli Þorvalds og annaðist
mjög sjálf um fjárvarðveislu. En er Bessi spurði þessi tíðindi
þá gerði hann heimanför sína út á Arneiðarstaði en Droplaug
tók við honum forkunnar vel sem hún var vön.
Bessi
mælti: "Það er sem þú veist að vinskapur mikill var með okkur
Þorvaldi svo að hvor unni öðrum. Vil eg nú bjóðast til
fjárforræðis með þér. Þar með býð eg Helga syni þínum til
fósturs og því heiti eg þér með að kenna honum slíkt mannvit
sem eg kann."
Droplaug
kvaðst eigi nenna að drepa hendi við sæmd sveinanna "en þó er
mér nú að þeim mest yndi allra manna."
Þá
var Helgi sex vetra gamall en Grímur fjögra vetra. Hvortveggi
þeirra var snemma roskinn.
Þá
svarar Helgi: "Svo ann eg mikið Grími bróður mínum að eg má
eigi við hann skilja. Munum við annaðhvort vera heima báðir
eða fara burt báðir."
Bessi
svarar: "Gott þykir mér það að vita að ástúðugt sé með ykkur.
Vil eg að þið séuð þeim stundum með mér er ykkur þykir það
betra. Ann eg ykkur þess jafnvel báðum."
Helgi
segir að þeir mundu ýmist vera með honum eða heima til yndis
við móður sína. Nú fara þeir upp með Bessa og er hann
ástsamlegur til þeirra bræðra en lagði þó meira stund á að
kenna Helga íþróttir. Þeir voru þar löngum meðan þeir voru
ungir en því lengrum heima sem þeir voru eldri. Sinn veg var
hvor þeirra bræðra yfirlits. Grímur var hvítur og hrokkinhár
og að öllu sjálegur en Helgi var mikill maður vexti,
ljósjarpur á hár og rauðlitaður, breiðleitur og hinn
kurteisasti, en það þótti helst að yfirlitum Helga að hann var
munnljótur.
10. kafli
Þess
er getið eitt sumar að skip kom af hafi í Reyðarfjörð. Kona
ein réð fyrir skipinu sú er Gróa hét. Hún var systir
Droplaugar, mjög rík að fé. Fór hún af því út hingað að bóndi
hennar hafði andast og þá seldi hún lendur sínar og keypti
skip og ætlaði að finna móður sína. Droplaug ríður til skips
og býður systur sinni til sín og það þiggur hún. Og þennan
vetur er Gróa er þar voru sveinarnir Helgi og Grímur heima og
var Gróa vel til þeirra. Ástúðugt var með þessum frændum.
Fundu menn það að hvorri þeirra systra var yndi að annarri.
En
um vorið spurði Gróa Droplaugu hvar hún sæi henni bústað.
Hún
svarar: "Veit eg þá menn er sitja á góðum bústað með mikið lið
en fjárkost lítinn. Þykir mér líklegt að þeim muni falt land.
Sá bær heitir á Eyvindará, það er fyrir austan Lagarfljót, og
er eitthvert bjargmest land í héraðinu og þokkaland allmikið."
Svo
fór það til að þær systur keyptu þessa jörð og setur Gróa þar
bú saman og fékk Droplaug henni málnytu og aðra þá hluti er
hún þurfti að hafa til búsins. Gróa lætur höggva upp skip sitt
og flytja heim viðinn og leggja í hús og þeir viðir eru þar
enn í húsum. Gróa sýndi brátt af sér mikla risnu og tók mikla
vinsæld. Hún var kvenna minnst en afbragðlega sjáleg, greyp í
skapi og skörungur mikill og forvitra. Hún hafði eigi lengi
búið áður hún ól þann grip með fé sínu er henni þótti betri en
önnur eiga sín jafnmikil. Það var hestur er hún kallaði
Inni-Krák því að hann var inni hvern vetur. Hann var svartur
að lit. Lét hún hann gelda snemma. Svo mikill fégróður hljóp
að Gróu að Eyvindará að nálega þóttu tvö höfuð á hverju
kvikindi. Menn fóru úr ýmsum héruðum og báðu Gróu og hnekkti
hún öllum frá og kvaðst svo misst hafa bónda síns að hún
ætlaði öngvan mann að eiga síðan. Synir Droplaugar voru lengi
með Gróu og var það mál manna að þeir ættu góðs í milli að
ganga að vera á þeim þremur bæjum er bestir voru í héraðinu og
var þeim þar alls staðar ástsamlega veitt.
Það
bar til einn dag að drepið var á dyr á Bessastöðum og Bessi
bóndi fagnaði þeim sem komnir voru. Var þar Ásbjörn bóndi
vestan af Aðalbóli og Helgi son hans og fóru bónorðsför og
báðu Þorlaugar Bessadóttir til handa Helga Ásbjarnarsonar.
Bessi hyggur að og líst svo að eigi muni víst að æðri maður
veldist til við hann til mægða þó að hún væri góður kostur,
því að Helgi var hinn vinsælasti maður. Var þessu ráðið.
Leggur Ásbjörn til mannaforráðið allt og fé svo mikið sem
Bessi beiddi. Var Helgi hinn sæmilegasti maður.
Eftir
það var að veislu snúið og víða mönnum til boðið um héraðið.
Droplaugarsynir voru eigi heima og voru út á Arneiðarstöðum.
Bessi sendi þeim orð að þeir skyldu koma til veislunnar en
þeim fannst fátt um og létu sem þeir vissu eigi. Fóru þeir og
hvorgi og sátu heima. En veislan fór vel fram allt að einu. Og
upp frá því voru Droplaugarsynir aldrei langvistum á
Bessastöðum og hafa það margir menn fyrir satt að Helga
Droplaugarsyni væri aftursjá að um gjaforð þessarar konu.
Eftir
þetta setur Helgi Ásbjarnarson bú á Oddsstöðum og var vel um
samfarir þeirra. Tók Helgi Ásbjarnarson nú vinsældir miklar og
allt mannaforráð að helmingi við Hrafnkel frænda sinn fyrir
austan vatn. Og þegar hin fyrstu misseri er þau voru ásamt
varð þeim barns auðið. Það var mær og kölluð Ragnheiður.
Helgi
sat á Oddsstöðum tvo vetur og unnust þau mikið og vel. Og á
hinum þriðja vetrinum beiddist hún að fara á kynnisleit upp á
Bessastaði að finna föður sinn. Hún lét eftir meyna og vandi
af brjósti. Hún var uppi þar viku og þá þótti Helga mál að hún
færi heim og sendir eftir henni þræla tvo og uxa. Þeir voru
þar um nótt. Þá féll lognsnær um nóttina. Um morguninn fara
þau heimleiðis. Þá var Helgi farinn ofan á drang þann er fram
gengur af Oddsstaðahöfða. Sá hann þá að þeir óku sunnan eftir
ísinum og ofan í vök eina og drukknuðu þau þar öll. Þar heitir
nú Þrælavík. Helgi sá upp á misfarar þeirra og þótti allmikið.
Helgi gekk heim og sagði tíðindin og þóttu mörgum mikil.
Spurðust þessi tíðindi um allt héraðið. Og er Bessi spurði
þetta þá bauð hann heim meyjunni Ragnheiði og fékk henni þar
fóstur með sér. Ætlaði hann þá að Helgi mundi skjótara af
hyggja en það varð þó ekki.
En
hann sat þá enn tvo vetur að Oddsstöðum og þá eggjuðu menn
hann að hann kvongaðist. Og hann fór heiman og norður
Smjörvatnsheiði til Vopnafjarðar og komu til Hofs. Þar bjó sá
maður er Bjarni hét og var Brodd-Helgason, hinn mesti
skörungur og höfðingi mikill. Hann átti sér systur er Þórdís
hét. Hún var fríð kona og vel mennt. Viðurnefni átti hún sér
og var kölluð Þórdís todda. Því var hún svo kölluð að hún gaf
aldrei minna en stóra todda þá er hún skyldi fátækum gefa, svo
var hún örlát. Hún var skapstór og skörungur mikill, skafinn
drengur og líkleg til góðs forgangs en þó var hún lítils virð
heima. Og þessarar konu bað Helgi Ásbjarnarson sér til handa.
Bjarni gaf konuna. Er þá boð stofnað og sitja menn þar að
veislu og er boðinu var lokið ríður Helgi heim með konu sína
Þórdísi. Tók hún þar við búi og öllum forgangi. Kölluðu margir
að þess væri vel fengið sem síðan bar raun á að hún var
forvitra.
Litlu
síðar en hann var kvongaður var honum kennt barn. Það hafði
hann smíðað meðan hann var kvonlaus. Það var mær og hét
Rannveig. Matselja sú var móðirin er Helgi hafði sett fyrir bú
sitt. Þórdís tók við þessi meyju og gerði svo til sem hún
ætti. Fæddist mærin þar og var að öngvu ósjálegri en sú er
skilgetin var. En Þórdís lét þá konu þegar á burt og fékk
henni góða peninga. Á þetta lagðist mikil virðing hversu vel
Þórdísi fór það sem mart annað.
Og
er þau höfðu einn vetur ásamt verið þá bað hún Helga selja
land þetta því að hún þóttist eigi halda mega risnu sinni
fyrir aðkvæmdarsakir "og vildi eg að þú keyptir landið í
Mjóvanesi því að mér sýnist þá eigi jafnmjög í garðshliði."
Þetta
land kaupir Helgi og fer byggðum til og býr þar lengi síðan
þangað til að hann þóttist þar eigi mega sitja fyrir þeim
tíðindum er síðan gerðust.
11. kafli
Þórir
hét maður er bjó í Mýnesi fyrir austan Lagarfljót. Sá bær
stendur mjög í miðju héraði. Þar er einn bær í milli og
Eyvindarár, er Gróa bjó, er heitir á Finnsstöðum. Þórir var
hægur maður og vinsæll. Hann var þá kvonlaus og hafði svo
lengi verið. Hafði hann sett ýmsar matseljur fyrir bú sitt.
Þorgrímur
er nefndur leysingi einn. Hann átti viðnefni og var kallaður
tordýfill. Hafði hann unnið sig burt úr þrældómi og var áður
þræll fastur á fótum. Hann var heimamaður Mýness-Þóris og
skyldur honum mjög. Þorgrímur var lítill maður vexti og
kviklegur, orðmargur og illorður, heimskur og illgjarn, og ef
hann heyrði nokkurn mann vel látinn þæstist hann í móti og
mátti eigi heyra og varð hann þeim öllum nokkra flýtu að fá.
Sá
var siður víða í fyrndinni að lítt voru baðstofur og höfðu
menn þá baksturelda stóra. Var þá víða gott til eldibranda því
að öll héruð voru full af skógum. Þá var og svo húsaskipan að
hvert hús stóð af enda annars en öngvar stofur. Þá var allt
eitt, skáli sá er menn sátu í að mat og þar sváfu menn upp
undan borðum hver úr sínu rúmi. En innar af skálanum voru
lokhvílur og lágu þar í vildarmenn.
Það
var eitt kvöld um haust er menn komu heim frá heyverki og eru
gervir eldar stórir og kasta verkmenn klæðum og bakast við
eldana. Þórir lá upp frá eldinum á klæðin og talaði við gesti
sína.
Þá
tók Þorgrímur til orða og mælti: "Oft mun að því koma að vér
megum vel við una að vér höfum oss betur fengið húsbóndans en
flestir aðrir. Munum vér og þess mega vilnast að hvergi mun
slíkt að ganga sem hér í Mýnesi. Eða hvar vitið þér húsfreyju
þá er yður þyki honum fullkosta og jafnvel hafi haldið risnu
eftir sinn bónda sem hann eftir sína húsfreyju?"
Allir
þögðu og svöruðu öngvu. Þá svarar Þorgrímur sér sjálfur:
"Allgott er það að vita að eg vinn yður orðlausa og veldur það
því að þér kunnið öngvu að svara."
Sá
húskarl svarar honum er sat öðrumegin elds og nauta var vanur
að gæta. Hann mælti við Þorgrím: "Oft er það um hagi þína að
þú rausar það mart er eigi kemur til þín. Veit eg þá konu er
það munu allir mæla að hún muni skörungur vera með konum sem
Þórir með körlum og eigi minni rausn haldið eftir sinn bónda
en Þórir eftir sína húsfreyju og má eg segja hvar hún situr.
Farðu heiman vestur yfir Lagarfljót og upp á Arneiðarstaði.
Þar býr sú kona er Droplaug heitir. Hana vitum vér best hafa
setið eftir sinn bónda. Mun víðara mega til taka því að enginn
mun hennar maki finnast á voru landi," sagði húskarl, "og þó
víðara sé."
Þorgrímur
svarar: "Það mun best að þegja nú og taka fyrir
belgjarmunnann. En jafnan er eg málugur kallaður og er vel að
það komi að í kvöld að eg svari því sem til liggur. Þá mættir
þú það mæla að hún hafi vel unnað þeim bóndanum er hún átti er
Þorvaldur var Þiðrandason og best hefir menntur verið í
héraðinu ef hún hefði eigi lagt Svart þræl sinn í rekkju hjá
sér. Og það er nú eigi færri manna orðrómur að Helgi
Droplaugarson muni vera son Svarts þræls en Þorvalds."
Húskarl
svarar: "Mikið telst þér á tungu og það er öðrum þykir
ómælanda. Er það líklegast að þér taki um allt bak um síðir
það er þú lýgur."
Þórir
heyrir til tals þeirra og tekur til orðs í því er hann
sprettur upp, hann hafði sprota í hendi og rekur um eyru
Þorgrími og bað hann þegja og mæla eigi fleiri orð "er það
líkara að þér vefjist tunga um höfuð. En bið eg alla þá sem
hér eru við staddir, ef þeir þykjast nokkuð mér eiga betur að
launa en Þorgrími, geri svo vel að enginn reiði þessi orð."
Margir
hétu góðu um þetta að svo skyldi vera sem hann beiddi. En þó
bar hinn veg raun á að enn voru eigi allir svo þagmælskir að
þegðu yfir með og kemur oft að því sem mælt er að fer orð er
um munn líður.
Þessi
orð komu upp á Arneiðarstaði til eyrna Droplaugar og sonum
hennar. Þeir voru þá eigi heima um daginn er Droplaug spurði
þetta því að þeir höfðu það jafnan til skemmtanar að fara að
rjúpum og báru heim byrðum. Þeir hentu að þessu mikið gaman og
veiddu þeir ekki þann veg rjúpur sem aðrir menn. Ekki höfðu
þeir net og skutu með snærisspjótum. Þeir báru heim þetta
kvöld veiði og færðu móður sinni sem þeir voru vanir. Hún var
jafnan vön að taka vel við þeim en þó var nú venjubrigði.
Hún
var nú mjög hálfær og mælti fátt nema af styggð það er var,
kvaðst aldrei hirða hvort þeir bæru heim krækilfætur nokkrar
"mun eg aldrei búa að síður þó að þið farið ekki að slíku."
Helgi
svarar: "Ekki mein er þér að þessu móðir því að þetta verður
okkur fyrir og má þetta vel gera til matar mönnum. Verður oss
vandlifað. Illa þykir ef vér höfumst ekki að eða höfum ólæti
og er eigi víst að við getum svo gert að öllum líki vel."
Droplaug
svarar: "Má og vera, við þessa iðn er þú hefur, að Þorgrími
tordýfli þyki þú meir segjast í ætt Svarts þræls heldur en í
ætt Þorvalds Þiðrandasonar eða annarra Njarðvíkinga eða enn
annarra þeirra er mér þykja flestir íslenskir lítils virðir
hjá þeim."
Helgi
svarar: "Er svo móðir að ruglað er skapi þínu. En hafðu ráð
mitt að því þó að þér þyki sem er að eg er ungur. Skipaðu
aldrei skap þitt eftir hins versta manns orðum. Legg aldrei
trúnað þinn á slíkt er enginn mun annarra. Mun Tordýfli jafnan
heima það er illt er en þig mun þetta saka ekki. Nú mun eg
móðir hugga þig í fám orðum, að annaðhvort mun vera að mér mun
ætlaður aldur lítill eða Fljótsdælir munu sjálfir segja að eg
er son Þorvalds Þiðrandasonar, margir skulu minni til þess
reka, en eigi sonur Svarts þræls. Bið eg að þú gerir þér eigi
angur að slíku því að svo mun eg gera."
Þá
var Helgi Droplaugarson tólf vetra gamall og svo vel þroskaður
að margir voru þeir fulltíða að aldri að bæði hafði Helgi við
þeim afl og þroska. Grímur var tíu vetra og allvel menntur.
Með þeim bræðrum var svo ástúðigt að hvorgi vildi ganga úr
húsi út svo að annar væri eftir. Hún snýr í burt af tali þessu
og inn. Þeir voru þar um veturinn lengi áfram og var Droplaug
aldrei jafn blíð við þá sem áður og gáfu þeir að því öngvan
gaum. Fóru þeir fram sínu athæfi sem þeir voru vanir. Líður af
skammdegið.
Það
var eina nótt að tekið var á fótum Grími. Þá var nýlýsi mikið.
Hann spurði hver þar væri.
Helgi
svarar: "Láttu hljótt. Má eg aldrei sofna. Vil eg að þú rísir
upp því að nú er svo ljóst sem um dag. Vil eg að þú farir með
mér."
"Hvað
munum við nú að rjúpum fara um nætur?"
Helgi
svarar: "Förum við austur yfir vatn og ofan til Eyvindarár að
hitta Gróu frændkonu okkra því að mér leiðist fálæti móður
minnar."
Grímur
sprettur upp og klæðist og ganga út síðan. Þeir voru svo búnir
hversdaglega að þeir voru í söluvaðmálskuflum mórendum, þar
brækur að neðan. Feldi höfðu þeir til yfirhafnar. Snærisspjót
höfðu þeir í höndum en hvorgi hafði afl að bera sverðið, svo
var það mikið. Þeir sneru ofan af velli á Arneiðarstöðum og
ofan á vatnsís.
Þá
mælti Grímur: "Hví snýrð þú á ísana? Ekki er þar von rjúpna.
Snúum upp í heiði."
Helgi
svaraði: "Ekki ætla eg þann veg að fara því að þar er svo
styggt að hvern dag er að farið. Vil eg fara ís ofan til
Vallaness og ofan á Völlu, yfir Grímsá, svo ofan til
Eyvindarár."
Þeir
fóru þá leið því að Helgi varð að ráða hvert sinn. En er þeir
koma neðan í Vallanes þá lýsti af degi. Síðan fara þeir út
eftir skógum og skortir eigi fugl að veiða og veiddu þeir
mart. Þeir komu út til Eyvindarár er alljóst var og tekur Gróa
við þeim allvel og varð þeim einkar fegin og bað þá þar lengi
að vera. Helgi játaði því. Eru þeir þar þennan dag.
Og
aðra nótt fyrir dag er Helgi á fótum og vekur upp Grím bróður
sinn, kvað vera veður gott að fara að rjúpum. Þeir ráðast til
ferðar og ganga upp úr garði og upp hjá gerði því er heitir að
Uppsölum. Og er þeir koma þar þá snýr Helgi ofan á Mýrar fyrir
neðan skóga og út eftir héraði.
Grímur
spurði hví hann færi svo "veit eg að eigi er fuglsins von á
svell eða mýrar heldur er hans von um skóga eða heiðar."
"Komið
mun þar verða. Þó mun eg fara út eftir brúnum fyrir ofan
Finnsstaði og fyrir utan Mýnes og út til Snæholtsskóga. Nú
munum við snúa upp til Tókastaða og svo utan með fjalli og
heim til dögurðar til Eyvindarár."
Hrím
var fallið á ísana og var vindlítið, ágætlega gott að ganga.
Og er þeir fara út eftir brúnum fyrir ofan Finnsstaði þá lýsti
af degi. Þeir sáu út frá Mýnesi hvar einn stakkgarður stóð
fram í vatnið Lagarfljót. Þennan stakkgarð átti Mýness-Þórir.
Og nú sjá þeir að hestur stóð undir garðinum og þar með tveir
menn og gerði annar hlass en annar bar út heyið.
Helgi
mælti: "Menn eru þar niðri í nesinu og er eigi ólíklegt
Þorgrími tordýfli það er á hlassinu er."
"Hvað
mun þig undir hvort hann er eða annar maður?"
Helgi
svarar: "Mér er sagt að hann hafi mælt við mig illmæli og
móður mína."
Grímur
mælti: "Hvað sagðir þú við móður þína á hausti að hún skyldi
eigi skipta skap sitt eftir hins versta manns orðum. Láttu nú
eigi það á þig falla."
Helgi
svarar: "Kom, og verð eg að finna hann og vil eg vita hvort
nokkuð er einurð í honum en ekki mun eg gera honum til meins."
12. kafli
Nú
fara þeir ofan eftir svellunum. Auðkennd var ferð þeirra
Droplaugarsona bræðra er þeir fóru úti. Hvorgi vildi ganga í
spor öðrum og gengu þeir jafnfram og af því kenndist för
þeirra þó að langt sæi til. En við garðinn á hlassinu var
Þorgrímur tordýfill sem þeir höfðu séð en nautamaðurinn var í
garðinum uppi sá er orðaskipti átti við hann.
Þorgrímur
mælti þá við hann: "Menn fara þar ofan eftir brúnunum fyrir
ofan Finnsstaði. Þeir fara frálega. Þykir mér líkt þeim
Droplaugarsonum ofan af Arneiðarstöðum."
Húskarl
svarar: "Hvað mun okkur varða hvar þeir fara? Eru þeir vaskir
sveinar og meinlausir og er öngum mein að ferðum þeirra."
"Aldrei
veit eg það," sagði Þorgrímur. "Get eg að þeir vilji mig
finna."
"Hví
mun það sæta," sagði húskarl, "eða hvað munu þeir vilja?"
Þorgrímur
mælti: "Manstu ei hvað við töluðum á hausti við eldinn?"
Húskarl
svarar: "Hvað mun nú undir því? Hugði eg að það mundi óvíða
farið hafa."
"Ekki
skaltu það ætla," sagði Þorgrímur, "veit eg að þau orð eru
komin upp á Arneiðarstaði til eyrna Droplaugar og sonum
hennar. Er mér sagt að þau hafi beisk við orðið og hafi hún
eggjað Helga á hendur mér. Get eg að hann muni nú ætla að reka
þess réttar og það get eg að eg bíði þess eigi úr stað, þessa
vanréttis, og mun eg beita hestinn frá hlassinu og ríða heim í
Mýnes og er eg þá hirður en eg sé glöggt að þessir menn snúa
hingað."
"Ekki
mundi eg það gera," segir húskarl, "taktu heldur tindlur úr
sleðanum og hafðu upp í garðinn og brjótum kleggjann undir
fætur okkur en þeir ungir báðir og munu þeir ekki geta að gert
við okkur ef við veitumst duganda."
Þorgrímur
svarar: "Ekki get eg hætta megi undir fjandur þessa því að svo
að eins lýst mér á þessa menn að þeim muni duga vel hendur og
hjarta og munu þeir geta sótta okkur með skotum því að þeir
hæfa allt það er þeir skjóta til, bæði menn og fugla" tekur nú
hestinn og hleypur á bak. Hann hefir vönd í hendi og ber á
tvær hliðar.
Húskarl
mælti: "Illa er slíkum mönnum farið sem þú ert, mælir rán og
regin við hvern mann en þorir öngvu í gegn að ganga ef eftir
er leitað. Ætla eg það sannast að þú sért bæði dáðlaus og
deighugaður. Hér mun eg bíða og vita hvað þeir vilja."
Þorgrímur
hrökkvir hestinn og hleypir þvers upp úr nesinu. Hann víkur
hestinum suður til móts við þá, bregður upp hendinni og
veifar. Hann setur þá upp óp mikið og þóttist spotta þá. Helgi
sér þetta og þótti illa. Steypir hann af sér feldinum og
hleypur til móts við Þorgrím tordýfil. Og þegar hann þóttist í
skotfæri við hann skaut hann til hans spjóti. Það leitar sér
staðar og flýgur undir hönd Þorgrími og kemur út undir
annarri. Fellur hann þegar dauður til jarðar. Þá tók Helgi
hestinn og leiðir þangað til, lætur Þorgrím á bak. Grímur
styður hann en Helgi leiðir hestinn ofan til stakkgarðsins.
Þeir heilsa húskarli vel. Hann tekur því glaðlega.
Helgi
mælti: "Nú höfum við drepið hér mann frá verki með þér og er
nú verkið óunnið og munum við taka til að vinna með þér."
En
hann svarar: "Engis þarf eg með. Tel eg eigi mér þetta harmsök
því að eg get að það tali flestir menn að honum mundi þessa
fyrir löngu von. Mun eg ekki vinna að ákafara þó að þetta hafi
í orðið. Farið þið heim þann veg sem ykkur gegnir best."
Helgi
mælti: "Þorgrímur vill vera í ferð með þér heim því að hann
þykist eigi einfær."
Hann
tekur reip úr sleðanum og bindur hann á bak fram við silann.
Tordýfill situr nú heldur gneypur á baki. Þeir fara nú bræður
heim til Eyvindarár en húskarl gerir hlassið og vinnur slík er
hann vill. En síðan fór hann heim, ekur hlassinu að vindauganu
og ber inn og eftir það gefur hann hestinum og brynnir en
Þorgrímur situr á bak á meðan. Og er húskarl hefir dvalið
daginn sem hann vill þá gengur hann inn er hann hefir mokað
fjós og dregið á völl en Þorgrímur sat á baki einart meðan.
Þórir bóndi var þá undir borð kominn og var þá nær hádegi.
Hann segir þá Þóri tíðindin. Þórir spurði því hann hefði svo
lengi dvalið.
Hann
segir að hann ætti mikið að gera "en mér þótti lítils um vert
þó að skítfuglinn væri drepinn."
Þórir
sprettur þá undan borðum og kveður tvo menn til farar með sér
og lætur söðla hesta.
Droplaugarsynir
komu heim til Eyvindarár og sögðu Gróu þessi tíðindi.
Gróa
kvað það vel orðið "en þó þykir mér þú frændi snemma taka til
manndrápanna."
Þetta
víg kalla menn Helga fyrst hafa vegið. Gróa bað þá skamma
stund dveljast "þið skuluð ríða nú heim á Arneiðarstaði" -
þeir stíga þá á bak Inni-Krák - "því að eg get að Þórir komi
hér í dag að vitja ykkar. Munum við semja mál með okkur en þið
farið nú vel."
Þeir
koma heim á Arneiðarstaði og er móðir þeirra þá í kátara lagi.
Hún heilsar þeim vel og spurði tíðinda. Þeir segja alls engin.
"Hvað
er í veiðum síðan þið fóruð heiman?"
Helgi
svarar: "Smátt er í veiðum móðir, veiddi eg tordýfil einn."
Hún
svarar: "Það er lítil veiður því að það er lítill fugl en
njóttu heill handa því að þann einn muntu veitt hafa að mér
mun mikil aufúsa á vera."
En
miklu var hún nú fleiri til sveinanna en áður.
Þórir
ríður nú heiman með félaga sína og kemur til Eyvindarár og
drepur þar á dyr og bað Gróu til hurðar ganga. Hún gerir svo
og heilsar þeim vel. Þórir tekur því heldur seint og spurði að
Droplaugarsonum.
Hún
segir þá eigi þar vera "en þó er sem þeir séu hér. Það sem til
tíðinda er orðið í ferð þeirra þá vil eg taka máli fyrir þá.
Gerðu fé svo mikið sem þú vilt en eg mun bæta, því að oss
þykir lítils vert eins þræls dráp heldur en það fari í manna
munna. En við höfum átt vinskap saman góðan síðan eg kom
hingað til lands. Ætla eg að enn skyldi svo vera. Er þetta
eigi stærra mál en svo að við megum þetta vel semja."
Þórir
segir það vel mega "því að marga hluti hefur þú vel til mín
gert og ráð sjálf fyrir þessum bótum."
Gróa
gekk þá inn og kom út með svo mikið fé sem vant er að bæta
þræla. Hún gaf Þóri fingurgull og bað sveinunum virkta. Þótti
henni sér veittur vinskapur ef hann héldi sátt við sveinana.
Þórir kvað svo vera skyldu sem hún beiddi. Reið hann heim við
svo búið.
13. kafli
Maður
er nefndur Nollar. Hann bjó á þeim bæ er heitir á
Nollarsstöðum. Það er hið næsta Arneiðarstöðum. Nollar átti fé
lítið en mikla ómegð og hafði það mest til atvinnu er hann
leigði. Hann var verkmaður mikill, svartur maður, manna
mestur, kvittinn var hann, illorður og óvinsæll, og í öllu var
hann óþokkamaður. Hann var bróðir Þorgríms tordýfils. Í öngvu
var Nollar vinsælli. Hann spurði tíðindi þessi er gerst höfðu
í héraðinu. Hann gerði för sína og fer um nótt til Mjóvaness
og finnur Helga Ásbjarnarson og biður hann taka við málinu.
Helgi
svarar því óbrátt, kvað ekki mart milli þeirra Droplaugarsona,
sagðist ekki hirða að þeim yrði slíkt til "þykir mér sem Þórir
eigi málið. Mun hann gera þér nokkurn sóma en þú ert nábúi
þeirra bræðra og munu þeir vera þér ásjámenn."
Nollar
svarar: "Því fór eg á þinn fund að þú ert vor höfðingi. Þykir
mér þú skyldastur til að losa vandræði manna í héraðinu þó að
eigi falli jafnstórt til sem nú er orðið en ella er ekki skot
til þín."
Helgi
mælti: "Farðu á burt og vil eg ekki veita þér þína bæn því að
mér þykir menn vel til valdir þó að þið séuð bræður að þungt
fái af."
Nollar
fer á burt og þykir sín fór ill orðin og segir Helga því oft
lítinn hlut mundu hafa fyrir Droplaugarsonum "ef þeim skal
aldrei refsa sín ókynni."
Nollar
leggur á þá bræður mikinn óþokka. Þeir létu sem þeir vissu það
eigi.
Þorbjörn
hét maður. Hann bjó á Skeggjastöðum. Það er út hið næsta
Nollarsstöðum en suður frá Ási. Hann hafði verið kvongaður en
þá var hún önduð. Hann átti dóttir eina er Helga hét. Hún var
væn og vitur. Þorbjörn var vel fjáreigandi, vinsæll maður og
góður bóndi og þá við aldur.
Bessi
hinn spaki var vin Þorbjarnar og þá oft heimboð að honum og
gjafir en Bessi hafði gefið Helgu marga góða gripi og var það
orð á að honum þætti sjá kona betri en aðrar síðan hans kona
var önduð. En á þeim misserum var það mælt að Helgi
Droplaugarson legði þangað komur sínar til Helgu
Þorbjarnardóttir og ekki var það kallað henni um þveran hug
sem raun bar nokkuð á því að þá er þeir bræður höfðu tvær
nætur heima verið þá tekur Helgi Inni-Krák og beitti fyrir
sleða. Hann lætur koma húð í sleðann og kvaddi Grím til ferðar
með sér, snúa síðan ofan á ís. Þeir fara út eftir ísinum allt
fyrir Skeggjastaði, snúa til bæjar, láta þar hestinn úti í
túni og kasta heyi fyrir. Þeir bræður ganga inn í stofu.
Heilsar Helga þeim vel og sest Helgi niður hjá henni.
Og
er þau töluðu sín á meðal þá beiddi hann að hún mundi fara
ofan til Eyvindarár og vera þar um veturinn. Þessu játar hún.
Og er þau töluðu þetta sín í milli þá kemur þar inn maður
einn. Sá var í svörtum kufli. Þar var Nollar. Hann reikar utar
og innar eftir gólfinu og lætur slúta höttinn. En þá er minnst
er von hleypur hann fram og ofan eftir vellinum, svo ofan að
vatni. Þar stendur steinn undir bakkanum. Þar kastar hann
klæðunum og leggur upp á steininn. Síðan skýtur hann
beinspýtum undir sig, hleypur síðan upp eftir vatni slíkt er
fara má. Um hádegisskeið kemur hann upp á Bessastaði. Hann var
í kóðsisbrókum. En svo hafði hann fljótt farið að það var með
megni. Bessi heilsar honum vel og spyr hví hann færi svo
mikið.
Nollar
svarar: "Því, að ærin er nauðsyn og fer eg ekki síður þinna
vegna en minna."
"Hvað
er það?" sagði Bessi.
"Helgi
fóstri þinn er kominn á Skeggjastaði út og ætlar hann að fífla
Helgu Þorbjarnardóttir út til Eyvindarár og leggja hana í sæng
hjá sér, en þar kemur að því sem mælt er að betra er véltum að
vera en öngum að trúa því að þú hefir trúað honum sem sjálfum
þér. Má það ekki í einu orði í telja hvern sóma þú hefur honum
gert en hann launar því sem hann hefir nægst til, illsku og
undirhyggju."
Bessi
brosti að og mælti: "Hví segir þú mér þessi tíðindi heldur en
öðrum mönnum?"
Nollar
svarar: "Því, að eg ætlaði að þér mundi helst undir þykja og
umhugað því að það er alþýðurómur að þér þyki hún betri en
aðrar konur."
Bessi
svarar: "Það hefur jafnt verið mátulega í hóf stillt og þó að
Helga væri gefin fóstra mínum þá þætti mér þar fríð kona vel
gefin hraustum manni. En þó get eg að honum þyki sér það of
lágt fyrir mannvirðingar sakir. En þann einn vinskap hefi eg
átt við Helgu að hvortgi hefur spillst fyrir því. Hefi eg af
því gefið henni gjafir að faðir hennar hefir gefið mér góða
gripi. Nú farðu og seg öðrum þessi tíðindi þín því að eigi
deyfist hugur minn við mart."
Nollar
svarar: "Satt er það þó að segja að útlifað hafa nú kappar
Fljótsdæla er þeir láta eitt sveinsnykri taka af sér konur þar
sem þú ert svo ær fyrir henni að þú gáir einskis. Mun eg láta
af að segja þér þó að eg verði vís að þú lætur sem þú vitir
eigi þó að þér sé sneypa ger. Reynist þá skaplyndi yðart er
eigi er við þá um að eiga er yður þykir dælt við. Er og því
síður dáð í yður er meir er á yður leitað."
Bessi
svarar: "Það veit eg að þér mun fara sem Þorgrími bróður þínum
að þú mælir til óhelgi þér ef þú nytir þér eigi betri manna
við."
Bessi
sprettur þá upp, kvaddi menn til ferðar með sér. Þeir taka
hesta Bessa tvo og leggja á söðla. Ríður Bessi og annar maður
með honum en tveir ganga hjá. Nollar var hinn fimmti. Þeir
fara út eftir ísum. Færð var góð og allkalt og strauk mjög
við.
Þau
Helgi og Helga sátu á tali mjög til annars litar.
Þá
bað Helgi að hún mundi búast "því að langt er út til
Eyvindarár en eg vil eigi koma þar um nótt."
Helga
litaðist þá um: "Hvort var ekki Nollar hér í morgun á gólfi um
hríð?"
Helgi
mælti: "Það ætla eg víst að hann væri hér og skjótt hefur hann
nú burt horfið."
"Kynlegt
þykir mér ef hann þykist eigi vís orðinn nokkra tíðinda. Mun
eg hvergi fara daglangt því að eg get hann þangað njósnir
farið hafa að mér þætti vel að hann yrði lygimaður af."
Helgi
svarar: "Gerðu sem þú vilt en það segi eg þér sem eg mun efna
að eigi fer eg eftir þér annan dag."
Helga
svarar: "Vel er þó þú ráðir því en hvergi fer eg að sinni."
Helgi
gengur þá út og sest í sleða en Grímur fer á bak. Fara þeir nú
út eftir ísum. Nú sjá þeir bræður að menn fara sunnan eftir
vatni fyrir Nollarsstöðum. Þeir kenna nú mennina.
Nú
tekur Nollar til orða: "Bessi, nú máttu sjá hvort eg hefi
nokkuð logið til. Þar fara þau nú út eftir ísunum frá
Skeggjastöðum. Ríður Grímur fyrir en þau Helga sitja í sleða.
Er nú svo að eg tek að þreytast. Vildi eg að þú leyfðir mér að
fara heim því að eg á mart að gera en eg er einn til."
Bessi
svarar: "Farðu hvert er þú vilt. Ætla eg sjaldan að kveðja þig
til ferðar með mér og óþökk skaltu af mér hafa fyrir þessa
ferð."
Nollar
snýr nú heim til bæjar síns en þeir Bessi fara út eftir ísum
mikið tölt.
Þeir
bræður fara út undan. Fara hvorutveggju með hinu vestra
landinu uns þeir koma fyrir nes það er gengur vestan í
Lagarfljót og heitir Meðalnes.
Utan
í nesinu stendur bær er heitir á Hreiðarsstöðum. Þar er nú
sauðahús. Þar bjó sá maður er Hreiðar hét. Hann var
landnámsmaður og vinur mikill Bessa og Droplaugarsona. Hreiðar
var hinn besti bóndi og hinn vænsti maður. Heldur var hann nú
við aldur og hafði þar búið langa ævi.
Fyrir
nesið voru allt vakar. Þar brynnti hirðir nautum sínum. Og er
þeir bræður komu að vökinni þá segir Helgi að þeir mundu
brynna hesti sínum því að honum var heitt. Þá var mjög
hálfrökkvið. Þeir gera svo. Þá mælti Helgi að þeir munu hlaupa
upp í skóginn. Þeir bregða hnífum sínum og kvista viðinn.
Helgi benti og gerir sýlt í neðan. Þá bindur Helgi á bak
hestinum fram við silann og niður undir kvið. Hríslu bindur
hann í tagl og leggur upp tauma og mælti að hann skuli fara
ofan til Eyvindarár. Hríslunni hrökkvir um kríka hestinum og
hleypur hann því harðara ofan eftir ísunum. Þeir bræður hlaupa
upp í skóginn. Helgi brýtur sér völur tvær og gerir
kvistlausar. Hann hefur þetta í hendi sér.
Nú
koma þeir Bessi að vökunum. Og er þeir koma sunnan fyrir nesið
þá taka til orða húskarlar Bessa: "Ei veit eg hverju sá hælir
er þessa menn segir hughvata þar er þeir renna undan þeim
manni er þeim hefur bestur verið alla ævi. Nú ætlum vér aldrei
dáð í þessum mönnum."
Bessi
mælti: "Þetta er mikil heimska er þið mælið. Get eg heldur að
hinn veg beri raun á að þeir verði fám líkir um hríð. Nú vil
eg að þið farið heim á bæinn á Hreiðarsstöðum en eg mun ríða
eftir þeim bræðrum við annan mann því að eg vænti þess að sá
einn verði fundur vor og þeirra bræðra að eg mun ekki mann
fjölda við þurfa því að hér hafa hvorugir heiftarhug á öðrum.
En þið bíðið mín hér meðan til þess eg kem hér á morgun."
Húskarlar
verða þessu fegnir og taka við klæðum sínum, ganga til húss og
hlæja allmjög og kváðust aldrei þvílíka menn hafa séð sem
þessir eru "er hleypa undan því meira sem meir líður á
daginn."
Bessi
hrökkvir hestinn út eftir vatninu. Húskarlar gengu að vökunum
og lögðust að niður og drukku er þeim var heitt orðið við
gönguna, lögðu vopnin niður á fötin þau er þeir höfðu um
daginn. Þeir voru í stakki og brókum.
Þá
mælti Helgi við Grím bróður sinn: "Hlaupum við nú ofan að þeim
og tökum þá og veitum þeim harmkvæli nokkur. Þeir hafa okkur
mjög gabbað."
Grímur
svarar: "Aldrei geri eg það því við eigum öngum manni betur að
launa sem Bessa. Hefur hann okkur metið umfram alla menn
aðra."
"Svo
skal vera," segir Helgi. "Hans skal að njóta því að hann er
vinur minn en hafa skulu þeir nú erindi ellegar en munum svo
fyrir sjá að þá saki ekki til lengdar. En vita skulu þeir að
við eigum alls kosti við þá."
Nú
varð svo að vera sem Helgi vildi. Þeir hlaupa ofan á ísinn.
Tekur sinn mann hvor þeirra bræðra. Grímur fékk ekki að þeim
gert er hann tók annað en það er hann hélt honum undir sér.
Helgi veitir þeim umbúð er hann vélar um svo að hann snarar
saman hendur á víxl á kviðnum en hneppir höfuðið aftur á meðal
fótanna, skýtur völunni í knésfæturnar, nemur þá við
hnakkabeininu. Nú fer hann til með Grími og býr um svo sem
hinn fyrra, breiða yfir þá klæðin og ganga svo til bæjar á
Hreiðarsstöðum, drepa þar á dyr og biðja Hreiðar út ganga.
Hann gerir svo og heilsar þeim vel, býður þeim þar að vera.
"Oft
er þess kostur," sagði Helgi, "en við fórum jafnan síð og
skulum við heim í kvöld en þó þykist eg enn við þurfa því
glófar mínir liggja niður við nautabrunna en nú gengur til
hafs og þykir mér dríflegt. Vildi eg að þú tækir upp í kvöld
og hafir heim með þér þá er þú brynnir nautum þínum."
Hreiðar
var sá einn maður að hann háttaði aldrei fyrr en þriðjungur
var af nótt en lá allt til hádegis. Hreiðar gekk inn en þeir
bræður gengu suður til Hofs og svo fyrir neðan Skeggjastaði.
Þá gerir á veður og tekur að drífa og nú gerir á hið mesta
illviður.
Þá
snýr Helgi til bæjar á Nollarsstöðum "vil eg ganga með bæjum
en eigi eftir ísum því að mér þykir villufært."
Helgi
drepur þar á dyr. Þá var liðið dagsetur. Nollar rís upp úr
rekkju sinni og steypir á sig stakki og gengur til hurðar og
þegar hann lýkur upp hurðinni þá þrífur Helgi í hönd honum og
kippir út í illviðrið. Grímur tekur í aðra hönd honum og leiða
hann að viðkestinum, fletta stakkinum fram yfir höfuðið.
Grímur stendur á fyrir framan höfuðið en Helgi hnykkir einum
sviga úr kestinum og hýðir Nollar svo að hvergi var heil húð
hans milli hæls og hnakka.
Þá
létu þeir hann standa upp og báðu hann fara burt frá þeim
"skaltu hafa þetta fyrir hlaup þitt og bíð svo verra."
Þeir
fara og snúa nú heimleiðis, koma svo heim er mikið var af
nótt. Tekur Droplaug við þeim báðum höndum sem hún var jafnan
vön.
Bessi
reið um kvöldið til þess er hann kom til Eyvindarár. Nokkru
fyrri kom Inni-Krákur. En í þessu kom griðkona úr fjósi og
sagði Gróu að Inni-Krákur var kominn heim með undarlegan
búning. Gróa gengur út og húskarlar með henni og taka
Inni-Krák og beita frá sleðanum, brynna og gefur honum. Síðan
leysir hann úr sleðanum rekendina. Þá kemur Bessi í tún. Gróa
fagnar honum með blíðu. Bessi þekkist það og spurði hvort þeir
væru þar komnir frændur hennar.
Hún
segir að það væri eigi "eða hversu stenst af um ferðir þínar?"
Bessi
segir alla sögu sem farið hefir. Bessi var þar um nóttina.
Veitir Gróa þeim allalvarlega. Gróa biður þeim virkta við og
mælti að hann skuli veita þeim vinskap. Bessi segir að svo
skuli vera.
Hreiðar
sat við fornsögu til þess er liðið var dagsetur. Þá fór hann
út og gaf nautum sínum. Eftir það rekur hann þau til brunns.
Honum kemur þá í hug hvað Helgi hafði mælt við hann, snýr að
vatninu og að vökunum, finnur eigi glófana, sér þar bandhnútu
þessa er þar lágu. Leysir hann þá. Eru þeir svo stirðir sem
stokkar. Fer Hreiðar heim eftir eyk og ekur þeim heim til
bæjar. Hann hjúkar þeim við og hressast þeir vel. Þar voru
þeir nóttina.
Og
um morguninn býst Bessi heim frá Eyvindará. Gróa gaf honum
fingurgull og seilamöttul og mælti til fullkominnar vináttu
við Bessa. Ríður hann þar til er hann kemur á Hreiðarsstaði.
Hreiðar tók við Bessa forkunnar vel. Sögðu húskarlar hans
sínar eigi sléttar.
Bessi
hló mjög að, kvað gleðibrögð vera ungra manna "en er víst að
þeir hafa sýnt það að þeir hafa alls kosti átt við ykkur en
látið mín að njóta er þeir hafa eigi meira að gert við ykkur
því að ærnar sakir gerðuð þið til þó að þeir hefðu drepið
ykkur. Nú skuluð þið láta vera kyrrt."
"Svo
munum við gera," sögðu þeir, fara heim eftir það, fara upp
eftir ísunum þar til er þeir koma fyrir Nollarsstaði. Þar sjá
þeir Nollar sitja á hyrnishrúku sem hundur og er allhlámáll.
Hann biður Bessa að hann mundi rétta málið, slíkar hrakningar
sem hann hefur fengið.
Bessi
kvað það maklegt þó að hann hefði nokkurt bráðræði fengið "en
þó má eg eftir leita þó að þú sért ómaklegur."
Nollar
dragnar heim en Bessi ríður þar til er hann kemur á
Arneiðarstaði. Þá var í annan lit. Þeir Droplaugarsynir voru í
túninu úti og buðu honum þar að liggja og urðu fegnir fóstra
sínum er hann var þar kominn. Bessi þekktist það og var hann
þar um nóttina. En um morguninn þá ræða þeir margt og flest um
þessa hluti er hann hafði farið eftir þeim bræðrum.
"En
eg hefi af því gert ferð mína eftir ykkur að eg vil að þið
varist það sem eg mun segja ykkur að þið látið eigi vonda menn
komast í milli ykkar og mín því að þið munuð ekki þess til
taka að eg muni ykkur af hendi gefa meðan þið veitið eigi mér
ágang eða Ormsteini syni mínum. En ef ykkur greinir á þá mun
eg í jafnan stað leggja. Mun eg með ykkur við hvern sem þið
eigið í héraðinu aðra. En við konu þá er þú hefur lagt tal
þitt við þá gerðu fyrir mínar sakir. Grandalaust hefir verið
okkart vinfengi. Mun eg allt að einu halda vinskap við þau á
Skeggjastöðum þó þér gerið af yðru ráði þvílíkt sem yður
líkar."
Helgi
svarar: "Ei veit eg að þar þurfi um að vanda héðan í frá."
Bessi
mælti: "Það vildi eg að þið fengjuð Nollar kvikindi nokkurt
fyrir sitt harðrétti er þið hafið honum veitt þó að hann hefði
maklegleika til."
Helgi
segir að það skuli víst gera fyrir hans orð. Bessi býst heim
við sína menn. Helgi gaf Bessa uxa tvo, fimm vetra gamla,
gráir báðir, og stóðhest rauðan og var kallaður Heiðarauður og
með merar þrjár. Hvorum þeirra húskarla Bessa er þeir höfðu
hneppt við vakirnar gaf Helgi, öðrum sverð en öðrum öxi.
Skildust þeir vinir. Fór Bessi heim en þeir bræður sátu heima
um hríð. Helgi leitar aldrei á þá konu oftar og öngva aðra svo
að menn viti. Er það og alþýðu manna sögn að Helgi hafi öngva
konu elskað svo að menn viti.
14. kafli
Þess
er getið eitt sumar að skip kom af hafi í Gautavík í
Berufirði. Skipi þessu fylgdu þrænskir menn og vistuðust hér
um veturinn.
Á
því sama vori eftir vetur afliðinn beiddi Þiðrandi Geitisson
fóstra sinn fararefna: "Vil eg kynna mér siðu annarra manna."
Hróar
svarar: "Það þykir mér mikið ef þú vilt fara af landi í burt
því að eg gerist mjög hrumur af elli og veit eg eigi hvort þú
kemur aftur. En allt að einu þá skal eg sæma þig að því sem eg
hefi föng á. En biðja vil eg að þú komir sem fyrst aftur. En
þú munt ráða."
Hróar
Tungugoði fékk Þiðranda mikið fé. Honum þótti mikið er þeir
skildu og öllum þótti mikil hans fráför. Réðst Þiðrandi til
ferðar og fer suður yfir heiði, ræður sig í skip, fer utan um
sumarið. Þeim byrjaði vel og skjótt. Þeir komu skipinu í
Þrándheim í Niðarós. Þá réð Hákon hinn ríki fyrir Noregi. Hann
hafði aðsetu að Hlöðum. Þá sýndist hverja menning Þiðrandi
hafði hlotið því að öllum mönnum fundust orð um að eigi hefði
þvílíkur maður komið í manna minnum sem Þiðrandi var. Hann fer
á fund Hákonar jarls. Jarl tók við honum vel og setti hann í
hásæti hjá sér og veitir honum af mikilli blíðu um veturinn.
Hann virti öngvan sinna manna jafnan Þiðranda. Þeir töluðu
löngum. Þiðrandi sýndi slíkt af sér að unni honum hver maður
hugástum. En er vor kom þá beiddi Þiðrandi sér fararleyfis út
til Íslands.
Jarl
spurði hví hann vildi svo litla stund dvelja við þar "því að
eg ann þér hér allvel vistar. Hefur hér enginn sá maður komið
að mér þyki svo mikil eftirsjá að sem um þig ef þú ferð á
burt."
"Vel
hefur þú til mín gert þessa stund en þó má eg eigi nýta að
vera hér lengur því að eg ann móður minni svo mikið að eg hlýt
að fara nú fyrst. Má yður það segja því að eru þar enn þeir
menn að létu sem best þætti að eg kæmi fyrr aftur en síðar."
Jarl
svarar: "Svo skal nú vera."
Þiðrandi
kaupir sér skip og lætur í koma mikið fé. Hann þiggur af jarli
góðar gjafir. Eftir það láta þeir úr landfestum og sigla í
haf. Það hafa margir menn fyrir satt að Þiðrandi hafi ónýtt
skaplyndi jarls fyrir sumar greinir og vildi af því eigi
lengur vera með honum.
Þiðrandi
fékk það sumar góða byri og kom skipi sínu í Skálavík í
Vopnafirði og bar af skipinu og flutti heim varninginn. Eftir
það býr hann um skipið og setur upp. Hann fór heim í
Krossavík. Þar var tekið við honum forkunnar vel og með allri
blíðu. Verður þar og fagnafundur mikill með þeim Þiðranda og
Hróari.
Hann
er þar fáar nætur áður en Hróar lýsir því að hann vill að
Þiðrandi fari austur með honum til eigna sinna og ríkis "því
að eg má eigi annað en vera ásamt við Þiðranda, svo ann eg
honum mikið, og hver stund þykir mér löng ef hann er eigi hjá
mér."
Þiðrandi
segir að það skuli þegar vera er hann vildi "því að eg vil
þess njóta meðan kostur er."
Býr
Þiðrandi ferð sína, fer með Hróari austur til Hofs í
Hróarstungu. Urðu frændur hans honum fegnir þar sem þeir komu
í Vopnafirði. Allir frændur Þiðranda sýndu á sér mikinn
feginsþokka er hann var aftur kominn með virðingu.
Ketill
þrymur sendi orð Þiðranda systursyni sínum að hann skuli koma
í Njarðvík til heimboðs og segir að hann skuli eigi til
einskis fara "því að hann er sá einn minna frænda að mér er
mest aufúsa að eiga mart við og gott."
Þiðrandi
heitir ferðinni er á liði sumarið og heyverkum er lokið en
kvaðst eigi tóm eiga að því að hann hafði fyrr heitið öðrum.
Ketill segir að Þiðranda færi vel.
15. kafli
Maður
hét Ásbjörn. Hann var sunnlenskur og þá nýkominn í
Fljótsdalshérað. Hann var fæðingi suður í Flóa. Hann fór þaðan
austur á Rangárvöllu, þá austur á Síðu og léttir eigi fyrr en
hann kemur austur í Fljótsdal. Hann tekur sér þar vist.
Ásbjörn var mikill maður vexti, dökkur á hárslit, ljótur í
andliti og heldur óþokkulegur. Þó slægði marga menn til að
taka við honum því að hann var garðlagsmaður svo mikill að
enginn lagði lag við hann. Ásbjörn átti viðnefni og var
kallaður vegghamar. Ásbjörn hafði verið fimm vetur í
Fljótsdalshéraði er þetta varð til tíðinda og hafði lagið
garða um tún manna og svo merkigarða. Ásbjörn var svo mikill
meistari á garðlag að það er til marks að þeir garðar standa
enn í Austfjörðum er hann hefur reista.
Þorbjörn
hét maður. Hann var kallaður kórekur. Hann bjó á þeim bæ í
Fljótsdalshéraði er heitir á Kóreksstöðum fyrir austan
Lagarfljót. Það er í Útmannasveit við hin eystri fjöll.
Þorbjörn átti sér konu. Hún var skyld þeim Njarðvíkingum. Hann
átti tvo sonu. Hét annar Gunnsteinn en Þorkell hinn yngri.
Þorkell var þá átján vetra en Gunnsteinn hafði tvo vetur um
tvítugt. Þeir voru báðir miklir menn og sterkir og
allvasklegir. En Þorbjörn var nú gamlaður mjög. Hafði Ásbjörn
vegghamar verið þar tvo vetur og grætt fé nokkuð en á hinum
þriðja vetri gerir hann bú því að hann átti ólétta konu. Átti
hann áður nokkur börn. Hann leigir land þar fyrir utan læk það
er nú heitir á Hlaupandastöðum en þá að Sauðlæk. Hann var þar
ein misseri. Honum varð illt til fjár og varð óhægt búið.
Á
þessu sumri gerir Ásbjörn vegghamar heimanferð sína út í
Njarðvík á fund Ketils og bað að hann mundi taka við honum til
húskarls. Ketill spyr hví hann vill eigi búa lengur. Honum
kvað þykja óefnilegt að búa við óhægindi mikil.
Ketill
svarar: "Of liðmargur þykir mér þú vera."
Ásbjörn
kvaðst ekki fleirum leita vistar en sér einum, lést annað
mundu sjá fyrir liði sínu. Ketill spyr hvað hann ætlar að sjá
fyrir liðinu.
Hann
kvaðst ætla að hlaupa burt frá "og hingað til þín því að eg
ætla að mér sé lítill ágangur veittur fyrir ríki þínu. Mun eg
konuna láta kjalast við börnin."
Ketill
svarar: "Það hafði eg oft ætlað að taka við þér. Mun eg gera
þér á kost. Þú skalt gera garð ofan úr fjalli undan hömrum og
út í sjó. Þetta skaltu vinna til tveggja missera vistar."
Ásbjörn
kvaðst ætla að hann mundi þetta fá fullvel unnið "munum við
þessu kaupa en þú skalt sitja fyrir að eigi sé fylgt á hann."
Ketill
játar þessu. Síðan gerir hann ferð sína upp yfir heiði, fer
eftir rekkjuklæðum sínum en þar hleypur hann frá liðinu og
skyldi af því heita á Hlaupandastöðum. Þá tóku þeir á
Kóreksstöðum við ómegð hans en misstu landsleigu sinnar við
hann og sátu fyrir öllum vandkvæðum.
Ásbjörn
tekur til garðlags út í Njarðvík ofan úr fjalli. Hann vinnur
mikil verk á um sumarið en ekki hefur hann venjubrigði í
skapsmunum því að öllum líkaði illa við hann nema Katli einum.
16. kafli
Á
sjöundu viku sumars býr Þiðrandi heimanferð sína. Hann ríður
við hinn sjöunda mann út með Lagarfljóti og ofan eftir
Hróarstungu og þar yfir fljótið er heitir að Bakkavaði, ríða
út eftir héraði og koma um kvöldið á Kóreksstaði til
Þorbjarnar. Þorbjörn gekk á móti þeim Þiðranda og synir hans
með mikilli blíðu og bauð honum þar að vera svo lengi sem hann
vildi. Hann var þar þessa nótt og gera þeir til hans ágæta
vel. Þeir bræður báðu Þiðranda að hann mundi vilja fara út til
Njarðvíkur og biðja Ketil að hann léti lausan Ásbjörn en gyldi
þó sumarkaup eða ella tæki hann við liði sínu.
Þiðrandi
kvaðst skyldur að leggja orð til "en eigi nenni eg að ríðast í
meira þar er Ketill frændi minn er til annarrar handar."
Þeir
segja að þeim þætti það vorkunn.
Eftir
nóttina afliðna búast þeir til ferðar tuttugu saman. Þeir ríða
út yfir Ós og ofan í heiði þar er heitir Gönguskarð í víkinni.
Var þá miður aftann er þeir komu í víkina. Þá var fátt manna
heima. Þá var eigi lokið heyverkum en þar var heyland mikið.
Var mannfólk á verknaði en Ketill var einn heima karlmanna og
konur nokkrar. Ketill sat í skála.
Nú
var sagt í þann mund kæmi að honum skjálfti, sem jafnan var
vant, að hann hrökk af fótum upp svo að gnötraði í honum hver
tönn. Honum var og sá hrollur sem vatni væri ausið milli
skinns og hörunds. Þá mælti hann við konu eina að gera skyldi
eld fyrir honum og vildi hann bakast. Hann kastaði undir sig
gæru einni. Ketill bakast við eldinn.
En
Þiðrandi og hans menn ríða ofan eftir víkinni. Og er þeir koma
á víkina mjög að bænum þá sjá þeir að maður var upp í hlíðinni
að garðlagi. Hann var í grám kyrtli. Hann hafði hneppt upp
blöðunum á axlir en lykkjurnar héngu niður að hliðunum og í
hvítum torfstakki yfir utan. Hann hafði drepið á höfuð sér
hött. Þeir kenna þennan mann að þar var Ásbjörn vegghamar.
Hann kveður þá ekki. Þeir ríða svo ofan með garðinum. Mæltu
hvorugir við aðra.
Þá
ríður Gunnsteinn Kóreksson ofan að Þiðranda og mælti:
"Allvænlega lætur sjá maður. Muntu leyfa mér að eg taki
geirnagla úr spjóti mínu og taki af spjótið af skaftinu og
skjóti til hans og viti hversu hann verður við."
Þiðrandi
mælti: "Gerðu það eigi því að það er fornt mál að oft hlýst
illt af illum og vil eg eigi að þú eigir við hann."
Þá
snýr hann í halaferðina og af götunni. Þá tekur hann úr
geirnaglann úr spjótinu og skaut til hans með hlátri miklum.
En er Ásbjörn sér að spjótið fer að honum þá hleypur hann upp
við. Skotið kom í kyrtilsblaðið og í lykkjuna og svo út í
blautan garðinn og svo að hann fellur út af garðinum. Hann
sprettur upp skjótt og tekur spjótið og kastar niður en hann
hleypur upp á garðinn og þegar inn yfir. Hann tekur þegar
skeið heim til bæjar. En þegar er hann kemur í túnið þá
hleypur hann í eldaskálann þar er Ketill bakast. Hann kastar
sér upp í sætið gegnt eldinum. Ketill spyr hvað honum væri.
Hann
svarar: "Vant er að vita hverjum vér skulum fagna. Ætlaði eg á
vori er eg réðist hingað að eg mundi eigi barður til meiðinga
eða með öllu til bana. Eru þeir komnir hér Kórekssynir. Hefir
Gunnsteinn skotið spjóti undir hönd mér og kom út undir
annarri. Nú ætlaði eg að eg mundi hafa heimsótt höfðingja er
þér eruð. En eg sé að enginn er í þér dugur að þér rekið
aldregi vorra harma þó að oss séu skammir gervar."
Ásbjörn
hafði hátt raddarlag og sárlegt andarlag.
Ketill
hleypur upp við bræði mikla. Hann þrífur ullskyrtu sína og
kemst í en áður í brókum leistalausum. Voru ilbönd undir
neðan. Ei höfðu menn þá línbrækur í það mund. Ketill gengur þá
þegjandi utar eftir eldhúsinu svo að alla vega hrauð eldurinn
um hann. Hann gengur utar til lokrekkju þeirrar er hann var
vanur að sofa, tekur ofan hjálm og setur á höfuð sér og sverð
í hönd sér, setur skjöld fyrir sig.
Eftir
það snýr hann út með brugðið sverðið en kastar eftir
umgjörðinni. En í því er hann kom í tún þá ríður Þiðrandi í
túnið og hans menn. Ketill snýr þegar að Þiðranda og höggur
til hans með sverðinu. Þiðranda bar svo nær höggið að hann sá
eigi ráðrúm til að skjóta fyrir sig skildinum. Hann hneppir
sig aftur úr söðlinum og kemur standandi niður. En Ketill
stöðvar ekki höggið að heldur. Þá riðu menn mjög í standsöðlum
smeltum. Ketill höggur um endilangan söðulinn og tekur í
sundur bogana báða og hestinn undir söðlinum. Ketill höggur
þegar annað sinn til Þiðranda. Hann kemur þá skildi fyrir sig.
Ketill klýfur þá skjöldinn fyrir utan mundriða svo að sverðið
nam í vellinum stað.
Konur
þær er á bænum voru hlupu út þangað er menn voru á verki.
Annar bær stóð þá í víkinni sá er að Virkihúsum heitir. Þangað
hlupu sumar konur því að þar voru enn karlar nokkrir. Fóru
þeir þangað. Þeir urðu alls tuttugu menn.
Þiðrandi
mælti við menn sína að enginn skyldi bera vopn á Ketil "en ef
nokkur gerir öðruvísu en eg mæli fyrir þá mun eg bera vopn á
hann þó að hann sé af mínum mönnum."
Eftir
þetta biður Þiðrandi Ketil frænda sinn allra samninga "hef eg
hér aðrar viðtökur en eg hugði til og ef nokkuð er það í orðið
vorum ferðum að yður þykir málþarfa þá vil eg bótum upp halda
svo að þér þyki sæmd í. Nú með því að þú vilt einskis mín orð
meta þá láttu mig njóta móður minnar en systur þinnar og er
meiri ábyrgðarhlutur að halda þessu fram sem nú hefur þú upp
tekið."
Ketill
þegir við ávallt en Þiðrandi biður hann vægðar einart. Ketill
lætur sem enginn væri annar, en Ketill sækir hann í ákafa.
Þiðrandi
mælti: "Hví er nú eigi vel að nú vinni maður það er má annað?
En enginn maður skal bera vopn á Ketil því að hann mun sefast
brátt. En eigi bið eg að þér drepið menn hans."
Sem
þeir mega þá gera þeir svo. Þá hörfa þeir suður eftir túninu.
Tekur nú að líða aftanin mjög og lægir sólina en hross þeirra
voru hér og hvar því að þar hleypur hver af hestum sínum sem
kominn var. Þá ber suður eftir vellinum, allt til þess er þeir
koma að læk þeim er fellur fyrir utan garð þann sem liggur
fyrir neðan hlaðið. Þá stingur Þiðrandi fram blóðreflinum og
hleypur öfugur yfir lækinn. Þá var höggvinn af Þiðranda
skjöldurinn allur svo að enginn spónn var eftir nema það er
mundriðanum fylgdi. Í þessu höggur Ketill til Þiðranda og
kemur á öxlina hægri og leysir frá herðarblaðið svo að sá inn
í lungun. Þiðrandi hljóp þá ofan yfir lækinn, tekur sverðið
hinni vinstri hendi og höggur til Ketils og í gegnum hann.
Ketill fellur þá dauður til jarðar en Þiðrandi gengur suður
yfir lækinn og að þúfu þeirri er stendur fyrir neðan götuna er
nú heitir Þiðrandaþúfa. Hann sest þar niður. Þá stóð ekki
fleiri manna upp en þeir Kórekssynir, Þorkell og Gunnsteinn.
Allir voru fallnir aðrir menn Þiðranda. Þeir Kórekssynir
settust þá niður hjá honum á sína hönd hvor. Þeir voru þá
móðir mjög. Menn Ketils styrmdu yfir honum og huldu hræ hans.
Eftir það gengu þeir heim vígmóðir og þó margir sárir.
Nú
tekur Þiðrandi til orða: "Svo jafnt Gunnsteinn, hversu þykir
þér að fara? Hvað mun nú tjá að lasta það er orðið er? En
farið hefur betur að hér megið þér sjá nú hversu einræðið kann
að gefast en ekki tjáir nú að ávíta þig. En hvað hefir þú séð
til Ásbjarnar félaga þíns um aftan?"
Gunnsteinn
svarar: "Átt hefi eg annað verkefni en hyggja að þeim skelmi."
"Ekki
er mér það þó. Eg hefi ekki svo annríkt átt að eg hafi eigi
augu til sent hvað hann hefur að hafst. Þegar í kvöld er
Ketill gekk út og menn drifu að honum þá kom Ásbjörn út og
hafði hönd fyrir auga og skyggndi til hversu færi á milli vor.
En nú hefur hann farið eftir hermannlega og það hygg eg nú að
hann sé hér nú í vellinum fyrir utan lækinn og ætla eg að hann
fletti mannnáinn einn."
Gunnsteinn
sér nú hvar hann er og hleypur út yfir lækinn. Hann hafði
sverð í hendi og höggur á hrygginn og tekur hann í sundur í
miðju. Eftir þetta gengur hann til sætis síns.
Kona
ein gengur út um kvöldið. Það var griðkona.
17. kafli
Gunnar
hét maður. Hann var á vist með Katli. Hann var Austmaður og
hafði komið út um sumarið. Hann var háleyskur maður að ætt,
mikill maður og víglegur, ungur að aldri og allvel menntur.
Hann sat í útibúri fyrir ofan hús. Þar var inni varningur
hans. Ekki hafði hann verið við fund þennan og ekki hafði hann
vitað til að styrjöld sjá hafði verið. Konan hleypur til
búrsins. Þetta var vinnukona hans. Gunnar sat í dyrum
útibúrsins og fiðraði örvar.
Hún
tekur til orða: "Satt er það er mælt er að eigi má mann sjá,
hver hvergi er. Mundi Ketill eigi það ætla að hausti er hann
bauð þér hingað að honum mundi enginn brautargangur að þér
verða ef hann þyrfti nokkurs við. En þú ert mannfýla því meiri
er þú liggur inni kyrr sem hundur á hvelpum þar sem húsbóndi
þinn er lagður við velli og margir hans menn. Er hér kominn
ófriðargangur og hafa þeir vegið Ketil."
Gunnar
hljóp upp við þessa tíðindasögu og þrífur boga í hönd sér,
leggur ör á streng er hann hafði nýgert.
Hann
gengur þá út og mælti: "Hvort eru þessir menn á burt farnir
frá óverkum sínum er þetta hafa gert?"
Hún
svarar: "Eigi er það."
"Hvar
eru þeir nú þá?" segir hann.
"Þar
eru þeir er eftir lifa fyrir sunnan lækinn á vellinum."
Gunnar
mælti: "Hvar er hann Þiðrandi? Eg vildi hann sjá."
"Það
ætla eg," sagði hún, "að hann sitji á fuglþúfu milli þeirra
bræðra Kórekssona."
Gunnar
bendir nú bogann og var það allt jafnskjótt að strengurinn
gall heima við bæinn og Þiðrandi féll á bak aftur. Kom örin
fyrir brjóst Þiðranda og út í millum herðanna. Gunnar spurði
hvað manna sjá hefði verið.
Hún
svarar: "Það var Þiðrandi Geitisson."
"Seg
allra kvenna örmust. Eigi fékk annan mann vinsælla né betur að
sér. Hefi eg þeim manni bana unnið er eg vildi síst."
Þorkell
Kóreksson spurði Gunnstein bróður sinn hvort hann væri mjög
sár.
Gunnsteinn
kveðst hafa sár nokkur "en hvað líður þér Þorkell?"
"Ekki
sár er skaðlegt á mér."
Þá
mælti Þorkell: "Nú munum við eigi þurfa Þiðranda að bíða enda
mun eigi ráð heim að leita til bæjarins. Eigi get eg að við
náum hestum okkrum. Munum við og eigi vera mjúkir til göngu."
Þeir
hvelfa skildi yfir Þiðranda þar á þúfunni, ganga síðan á burt,
fara upp til götu, rétta leið upp í brekkur. Þeim fórst seint
því að náttmyrkur var á mikið. Þeir gengu til þess er þeir
komu að brekkum þeim er efstar voru í skarðinu. Þar var
hvammur fyrir sunnan götur og heitir Kiðjahvammur. Á fellur
ofan úr skarðinu og ofan í hvamm. Þar er mikill foss í. Undir
fossinum er hellir mikill. Í þeim helli eru menn oft á haustum
er á fjall er gengið.
Þorkell
mælti: "Förum við til hellisins því að mig gerir svo móðan að
eg má eigi lengra ganga."
Þeir
fara til hellisins. Er þar hlaðið grjóti fyrir framan.
Gunnsteinn kastar sér niður þegar því að honum var heitt mjög.
Hann verpur af sér klæðum. Þorkell sprettir af sér belti sínu.
Eftir það flettir hann af sér klæðum. Þá falla út iðrin. Hann
sest þá niður og lét Þorkell þar líf sitt. Við þetta hafði
hann gengið allt neðan úr Njarðvík. Nú er Gunnsteinn einn
eftir hjá bróður sínum dauðum. Hann var sár mjög. Gunnsteinn
sá það af sínu ráði að ráðast á burt þaðan. Hann stendur þá
upp og er hann ætlar þaðan til göngu þá var hann svo stirður
að hann mátti hvorugan fót hræra yfir annan fram. Sest hann þá
niður. Verður hann nú þar að vera þó honum þætti eigi gott.
Þorbjörn
kórekur lét illa í svefni þessa nótt. En er hann vaknar þá fer
hann skundandi í klæði.
Hann
vekur upp smalamann og mælti að hann mundi fara sendiför hans
"vil eg að þú takir hesta tvo. Vil eg að þú ríðir út til Óss
og ofan í Gönguskarð til hellis þess er þér eruð vanir að hafa
náttból um haustum þá er þér gangið á fjall og vit við hvað þú
verður þar var. En ef þú verður við nokkur tíðindi var þá þigg
eg að eg fengi."
Sauðamaður
ríður ofan til Óss og ofan í Gönguskarð. Hann leitar til
ferðar. En er hann kemur ofan í Kiðjahvamm, þar stígur hann af
baki og gengur upp undir fossinn. Hann gengur inn í hellinn.
Þá var lýst af degi. Hann spurði hvort nokkuð væri þar það sem
honum mætti andsvar veita. Gunnsteinn segir til sín.
Sauðamaður spyr tíðinda. Gunnsteinn segir slík sem orðin eru.
Sauðamaður spyr hvort hann mundi fær með honum í burt.
Gunnsteinn kvað eigi annað til þess. Hann vildi þá brátt út
ganga og mátti eigi, nema hann styddist við axlir honum, öðrum
fæti. Hann kemur honum í söðul og ber að honum klæði og býr um
hann sem honum þótti vænlegast, ríður nú upp yfir heiði og
komu heim um hádegisskeið. Þá hafði Kórekur búið laug. Tekur
hann nú og fægir sár Gunnsteins og veitir honum hægindi slík
sem hann mátti.
18. kafli
Þessi
tíðindi spurðust brátt og þótti mörgum mikil sem var. Hróari
Tungugoða féll þetta næst svo að hann leggst í rekkju af harmi
og deyr af helstríði. Eftir þennan fund kemur Þorkell
fullspakur heim því að hann hafði farið ofan í fjörðu eftir
skreið. Hann kom þann dag heim er fundurinn hafði verið áður
um nóttina. Þorkell fréttir fundinn og að fallinn er faðir
hans og Þiðrandi. Haug verpir hann eftir Þiðranda frænda sinn
og stendur hann þar á bakkanum ofan undan bænum. Hann færir í
haug menn þá er féllu. Þorkell rak á burt Austmanninn með
miklum hrakningum, kvað hann þeim mikla skömm gert hafa svo
eigi mundu menn bætur bíða, drepið þann mann er aðrir væntu
sér af hins mesta yndis. Gunnar hvarf nú á burt og spurðist
ekki til hans.
Margir
menn hörmuðu þessi tíðindi er þeir spurðu og þóttu þetta
miklir atburðir, bæði Þorkell Geitisson bróðir hans og Bjarni
Helgason frá Hofi í Vopnafirði því að hann var náinn frændi
Þiðranda, Þórdís todda, er átti Helgi Ásbjarnarson, systir
Bjarna, svo þeir bræður Þorvaldssynir Þiðrandasonar, Grímur og
Helgi. Þeir voru allir í eftirleit við Gunnar austmann og
vildu allir Þiðranda hefna en til þessa manns spurðist aldrei.
Var það flestra manna ætlan að hann mundi hafa hlaupið til
fundar við aðra Austmenn þá er sátu búðsetu þar er þeir höfðu
skip uppi, í víkum milli Njarðvíkur og Borgarfjarðar fyrir
handan Snotrunes. Þar sátu seytján Austmenn og ætluðu menn af
því að hann mundi þangað vera farinn.
Líður
nú á veturinn allt þar til að daga lengdi. Þá býr Þorkell
Geitisson ferð sína norðan úr Krossavík með tíunda mann austur
yfir heiði í hérað. Hann ríður upp eftir héraði fyrir vestan
fljót allt þar til er hann kemur á Arneiðarstaði. Hann fær þar
góðar viðtökur af Droplaugu og sonum hennar. Hann var þar um
nóttina.
Þá
biður hann þá bræður að þeir mundu fara með honum ofan til
Njarðvíkur og hitta Þorkel fullspak og þaðan suður í fjörðu
"vil eg vita að eg komist nokkuð á sporð um þennan mann,
Gunnar, er nú er kallaður Þiðrandabani, er oss hefir mikla
harmsök unnið. Þetta er öllum oss mikil nauðsyn á að geta hann
af ráðið."
Þeir
bræður ráðast nú til ferðar með Þorkeli og fara út eftir
héraði. Þeir kveðja upp einstaka menn og verða þeir saman
átján. Nú fara þeir og koma um kvöldið á Kóreksstaði til
Þorbjarnar. Þeim er þar boðið að vera og þeir eru þar um
nóttina. Þeir spyrja Gunnstein vandlega að þeim tíðindum er
gerst höfðu um haustið í Njarðvík en Gunnsteinn sagði
greinilega frá og þótti þó mikið fyrir að segja. En er
þriðjungur lifði nætur þá stendur Helgi Droplaugarson upp. Var
tunglskin mikið og færðir góðar bæði um héruð og heiðar. Hann
vekur þá förunauta sína.
Þá
gengur hann til Gunnsteins og mælti við hann: "Þú munt vilja
með oss frændi út í Njarðvík."
Gunnsteinn
svarar: "Fara skal eg ef þér viljið."
Eftir
það ráðast þeir til ferðar, fara út fyrir neðan Sandbrekku og
svo út til Óss og upp í heiði til Gönguskarðs uns þeir koma
svo upp að ein brekka var eftir. Þar er hvammur fyrir utan
göturnar og heitir Djúpihvammur. Þar liggur leiðin um sumarið
hið syðra en jafnan um veturinn fara menn ofan eftir hvamminum
þá er snjáva leggur. Helgi snýr nú af götunni og sest niður.
Hann biður þá alla niður setjast og skipar þeim í garða en
hlið í miðju sem í húsgarði.
Þorkell
Geitisson mælti: "Hvað skal breytni sú frændi?"
Helgi
svarar: "Eg þóttist heyra mannamál upp í skarðið áðan. Nú
skulum vér taka þessa menn höndum hverjir sem þeir eru."
Og
er þeir höfðu nýsest niður ríða þar að þeim fimm menn á
broddstöfum. Þessir menn allir höfðu stálhúfur og gyrðir
sverðum. Þeir kenndu þessa menn að þar var Þorkell Ketilsson
fullspakur neðan úr Njarðvík og heimamenn hans. Helgi sprettur
upp og þeir allir og mælti að þeir skyldu hafa hendur á þeim.
Þeir gerðu svo. Helgi gekk að Þorkeli og heilsar honum og spyr
hvert hann ætlar að fara.
Þorkell
kveðst ætla að fara upp í hérað og heimta skuldir.
"Því
segir þú svo ólíklega að þú munir fara að fjárreiðum í þetta
mund missera? Og sé eg að ekki er þetta þitt erindi. Nú þykist
eg vita hvert þú ætlar og svo erindi þitt. Það mundi eg ætla
að þú mundir fara upp í Mjóanes á fund Helga Ásbjarnarsonar og
selja honum í hendur Gunnar Þiðrandabana og mun þér það þykja
líklegast að hann muni geta haldið Gunnari fyrir mér. Þú veist
að fátt er með okkur."
Þorkell
svarar: "Því ætlar þú mér þann hlut að eg muni þann mann halda
er oss hefur mesta skömm gert? Og munuð þér það spurt hafa að
eg rak hann í burt þegar hinn sama dag er eg kom heim."
"Ekki
hirði eg hvað þú segir til þess. Nú er þér skjótt til að kjósa
um tvo kosti, hvort þú vilt að eg drepi þig hér í Djúpahvammi
eða ella seljir þú fram manninn."
Þorkell
kvaðst eigi mundu ferðir sjá um þennan mann. Helgi flettir þá
Þorkel af vopnum og klæðum og alla hans félaga. Þá lætur Helgi
leggja þá niður og fær til jafnmarga menn að vinna á þeim.
Helgi
mælti: "Ei er oss vant við þig ef þú virðir einskis frændsemi
við mig. Nú skal eg eigi hlífast við þig."
Nú
sér Þorkell í hvert vandræði komið var og mælti: "Fast gengur
þú að flestu því er þú vilt þér afskipti veita. Mér mun fara
sem flestum að eg mun kjósa að lifa ef eg á kosti. Mun eg nú
segja víst að Austmaðurinn er í minni varðveislu. Hefi eg hann
haldið í allan vetur síðan er tíðindin gerðust. Gerði eg það
til ólíkinda að kveðja hann á burt. Upp í heiðinni fyrir ofan
bæinn í Njarðvík gengur hjalli sunnan frá skarðinu út fyrir
Skálanes. En á hjallanum gegnt bænum er hlaupin urðskriða ofan
úr hryggnum á hjallann. Það grjót er mjög mosa vaxið og
geitaskófu. Þar á milli steinanna sló eg tjaldi á hausti er eg
rak hann á burtu. Það er járngrátt og samlitt við grjótið. Þar
setti eg húðfat hans og bjó eg um sem eg kunni og þar hefur
hann verið síðan."
Þá
svarar Helgi: "Nú gerðir þú vel er þú sagðir hið sanna til.
Eigi fyrir því, vissi eg áður að hann var í þinni varðveislu.
Skal eg nú og eigi gera þér til meins en þú munt nú eigi að
sinni laus verða að svo búnu."
Þá
mælti Helgi til Þorkels Geitissonar og spurði: "Hvort viltu nú
heldur fara ofan yfir heiði og leita Austmanns eða viltu sitja
hjá Þorkeli nafna þínum og gæta hans til hádegis?"
Þorkell
Geitisson svarar: "Eg vil vera eftir hjá nafna mínum og gæta
hans því að við erum ófráir Vopnfirðingarnir. Mun hér lítils
við þurfa. Þykir mér meiri hamingjuraun eftir honum að leita.
Treysti eg þér betur og þinni giftu eftir honum að leita."
"Því
bauð eg og kjörs á," sagði Helgi, "að mér þykir vel að þú
ráðir en vant er að sjá hverjum þess verður auðið. Nú skal
skipta liði í helminga. Munum við bræður fara ofan yfir heiði
við tíunda mann og vita hvað eg komi áleiðis en þér félagar
farið upp á Arneiðarstaði í kvöld og bíðið mín þar uns eg kem
á morgun, nema eg finni eigi Austmanninn, þá mun eg koma á
hádegi. Þá skal drepa Þorkel fullspak ef hann hefur logið en
ef hann segir satt þá má hann eigi að hafa þó að hann setji
undan. En ef eg kem eigi aftur fyrir hádegi þá skaltu Þorkel
láta fara hvert er hann vill því að ratað mun eg þá hafa hæli
Austmannsins hvort sem hann verður fyrir höndum eða eigi."
Nú
skiljast þeir þar. Fara þeir Helgi ofan yfir heiði en Þorkell
Geitisson situr eftir hjá nafna sínum. En er þeir Helgi komu
upp í skarðið þá lýsti af degi. Þá var bakki mikill til hafs.
Dregur upp skjótt á himininn og tekur að drífa. Fylgir vindur
af landnorðri. Þeir sækja ofan í brekkurnar. Þá sjá þeir hvar
hjallinn gengur út eftir hlíðinni.
Þá
mælti Grímur Droplaugarson: "Vinnum vér eigi tvisvar hið sama.
Snúum vér nú hér út eftir hjallanum."
Þeir
fara nú eigi lengi áður en þeir sjá urðina og tjaldið svo. Þá
var hálfljóst af degi. Nú vex drífa og svo vindurinn. Tekur nú
að kólna.
Í
þennan tíma vaknar Austmaðurinn í tjaldinu. Hann þarf að ganga
örna sinna. Hann rís upp í skyrtu og línbrækur. Hann kippir
skóm á fætur sér en hneppir ei. Ekki hafði hann yfir sér og
ekki í hendi. Og er hann bregður brókum sínum þá heyrir hann
mannamál suður á hjallann frá sér. Þeir áttu þá skammt til
tjaldsins. Hann sá að þá var eigi ráð að snúa í tjaldið er
ófriðarmenn voru svo nær komnir. Hann snýr þá út eftir
hjallanum slíkt sem hann má fara. Þeir sjá nú manninn og
þóttust í hendi hafa ráð hans og ætluðu að hann mundi skammt
undan taka. Eggjaði hver annan að eftir skyldi halda. Gunnar
hleypur nú slíkt sem fætur mega bera svo að af liggja skórnir.
Nú dregur þó í sundur með þeim meðan hann var ómóður. Gunnar
hleypur ofan hjá skálanum og út af lautinni. Þá nemur hann
staðar og hnýtir línbrókina að beininu. Þá voru þeir komnir
ofan hjá skálanum á völlinn. Þeir gera garð ofan að sjónum.
Grímur var þar allra manna skjótastur. Hann hleypur þá fram
frá liðinu og að honum Gunnari og ætlar þegar að sæta áverkum
við hann. Gunnar sér þetta og kastar sér á kaf. Hann drepur
þegar vör undir sig. Grímur sér að hann getur eigi með vopnum
sótt hann og skýtur eftir honum spjóti og kemur í hina vinstri
hönd Gunnari. Hann tekur til og kippir á burt en hann leggst
út á víkina. Þá varð hvasst mjög og föll stór.
Helgi
kveður nú við og mælti: "Hvar vitið þér slíkan mann að áræði
sem þennan eða hver er fús eftir honum að ráðast?"
Enginn
kvaðst til mundu hætta.
"Þess
er von," sagði Helgi, "því að annaðhvort mun einum endast eða
öngum af voru liði. En sá mun eigi fara því að mér þykir
landtakan óvísleg þar er Gunnar er á ströndu fyrir enda er
eigi víst hversu sundið tekst. Nú munum vér heldur ganga inn
til nausta og vita ef vér fáum oss þar skip að róa eftir honum
þó að oss sé það nokkru seinna. En þó skulum vér að hyggja
jafnan hvert hann leggst."
Þeir
Helgi gera nú svo sem hann mælti fyrir en Gunnar leggst yfir
víkina og kemur á land fyrir sunnan skriðurnar er nú heitir
Gunnarsdæld. Því hafa þeir menn saman jafnað er hvorttveggja
hafa komið og kunnugt er um að það sé jafnlangt sund er Gunnar
hefur lagst yfir þvera Njarðvík og frá Naustadæli og yfir til
Vindgjár. Gunnar hleypur þá upp á nesið, Snotrunes. Hásetar
Gunnars sátu öðrumegin nessins búðsetu. Hann leitar þangað til
þeirra. Þeir Droplaugarsynir róa yfir víkina og koma litlu
síðar á land en Gunnar. Þeir setja upp skipið og ráðast til
göngu og sjá hvar Gunnar fer. Þeir herða nú eftir honum.
Gunnar hleypur inn í búðina. Þá sitja þeir að dagverði.
Gunnar
bað þá ásjá "vildi eg að þér verðust með mér. Munum vér þá
eigi uppgefnir fyrir þeim er eftir sækja."
Þeir
kváðust aldrei mundu gefa sig upp fyrir ógiftu hans. Hann gaf
nafn víkinni og kenndi við félaga sína og kallaði Geitavík, og
svo heitir hún ávallt síðan. Og er hann sér að hann fær ekki
af þeim þá snýr hann burt og upp á Snotrunes. Hann stefndi
suður til Borgarfjarðar með ekki meirum birgðum en áður hafði
hann. Þeir Droplaugarsynir sjá að Gunnar hleypur burt úr
víkinni. Koma þeir ekki þar. Þeir hlaupa hið efra fyrir ofan
búðirnar. Gunnar tekur nú að hrymjast mjög á fótum er hann
hljóp berfættur um klakann og kuldi mikill. Frýs að honum
línklæðin. Dugði honum það að hann kostaði um ferðina slíkt er
hann mátti. Fékk honum því vermans. Nú dregur þó saman með
þeim uns hann kom upp í ásinn. Þá hallar burt af suður.
19. kafli
Sunnan
undir hálsinum stendur bær er heitir á Bakka. Sá er næst,
hyggja þeir. Þar bjó sá maður er Sveinungur hét. Hann var
kraftamaður mikill og átti góða peninga, kvongaður maður og
átti einn son, níu vetra gamlan þá er þetta varð tíðinda. Ekki
var þar fleira karla. Voru þar fleira konur nokkrar.
Sveinungur var einrænn maður og var mál manna að hann væri
eigi allur þar er hann var sénn. En þó var hann góður þá er
hann vildi en gerði við fá eiga. Sveinungur var þennan dag
farinn að torfi þá leið sem Gunnar var á för. Hann er þá að
gera hlassið er Gunnar hleypur þar hjá. Hann hafði þá borið í
hripin en eigi hlaðið í milli.
Gunnar
hleypur að Sveinungi og mælti: "Bjargaðu mér."
Sveinungur
svarar: "Hvers þarftu við?"
Gunnar
svarar: "Fjandmenn mínir hlaupa eftir mér og vilja drepa mig
ef þeir ná mér."
Sveinungur
spyr hver hann væri.
Hann
svarar: "Eg heiti Gunnar og er eg kallaður Þiðrandabani."
Sveinungur
spurði: "Hverjir hlaupa eftir þér?"
Gunnar
svarar: "Eg veit það eigi víst. Þó ætla eg að þeir séu
Droplaugarsynir."
"Það
er vel," segir Sveinungur, "og mun hér eigi að sökum að
spyrja. Er það gott að vita þó að þú fáir hegning fyrir þann
glæp er þú hefir unnið, drepið þann mann er allir hugðu best
til."
Gunnar
svarar: "Ei dyl eg að verkið sé illt orðið. Er ekki þörf að
minnur. Er það öllum boðið að bjarga sér meðan hann má."
Sveinungur
mælti: "Leggstu niður á milli hripanna ef þú vilt en ekki mun
þér þetta fyrir slíkum köppum sem eftir sækja."
Sveinungur
steypir af sér kuflinum og færir hann í. Gunnar leggst nú í
sleðann milli hripanna en Sveinungur þrífur í tauma hestsins
og léttir eigi fyrr en hann kemur heim á Bakka. En þá er
Gunnar lagðist niður í sleðann bar hálsinn í milli þeirra.
Voru þeir Droplaugarsynir þá vestan í hálsinum en torfin eru
austan í hálsinum og sáu þeir eigi fyrir því. Sveinungur ekur
fyrir þver dyr hlassinu. Sveinninn ungi stóð í dyrum. Hann var
í hvítum stakki og söluvoðarbrókum.
Sveinungur
mælti við sveininn: "Taktu staf þinn og hlaup suður og upp í
fjall og safna saman fé okkru því að veður gerir illilegt og
rek í hús."
Sveinninn
mælti: "Fara mun eg inn í stofu og taka hött minn og vöttu."
Nú
hleypur sveinninn slíkt er hann má fara því að hann var
hræddur við föður sinn. Sveinungur beitir hestinn frá hlassinu
og leiðir til brunns, lætur síðan inn í hús. Eftir það gengur
hann heim. Hann leysir þá úr sleðanum reipin og reisir hann
við vegg upp.
Í
þessu bili koma þeir Droplaugarsynir þar í tún. Sveinungur
heilsar þeim glaðlega. Þeir tóku því vel. Hann spyr hversu af
stæðist um ferðir þeirra. Helgi spyr hvort hann hefði nokkuð
manna séð hlaupa hjá sér áðan "er þú ókst torfinu."
"Öngvan
sá eg nema sjálfan mig en heimill er greiði við ykkur sá sem
þér viljið þiggja."
Helgi
kvaðst einskis við þurfa "er dags mikið enn eftir. Er mér
miklu meiri forvitni á um þennan mann er áðan hljóp um
torfgrafirnar. Þykir mér það eigi vera mega að þú sæir hann
eigi."
Sveinungur
svarar: "Aldrei veit eg hvort eg sá eigi áðan mann hlaupa
fyrir ofan torfgrafirnar í ljósum klæðum og sá hinn sami
hleypur nú þar suður í fjallið."
Hann
réttir til höndina og vísar þeim til. Þeir sjá nú hvar
maðurinn hleypur. Eggjar Helgi nú að þeir skyldu leggja eftir
manninum. Þeir gera nú svo. En er hann hljóp í burt þá hafði
Sveinungur velt hlassinu inn í anddyrið. Varð Gunnar þá undir
en hripin á hann ofan. Þar lá hann þá er þeir komu
Droplaugarsynir og nú þegar er þeir voru burt þá ryður hann af
honum torfinu. Hann tekur hníf úr skeiðum, ristir af honum
klæðin. Eftir það fylgir hann Gunnari í fjóshlöðuna, kemur
honum á heystál upp. Eftir það gengur Sveinungur inn og hleður
upp torfinu.
Droplaugarsynir
gengu suður yfir Brunnlækjarbrunna. Það er á sunnanverðum
vellinum.
Þá
stingur Helgi við fótum og nemur staðar og mælti: "Þó fer
þessi maður frálega er áður er nýkominn af sundi er hér
hleypur í fjallinu. Þætti mér sem hann mundi nú mjög hrymdur
er hlaupið hefir berfættur á klaka í allan dag. Eða hvort æpir
hann eigi að fé?"
Gunnsteinn
Þorbjarnarson svarar: "Hvað muntu það mega marka? Má hann það
gera til ólíkinda."
Helgi
svarar: "Ei sýnist mér sjá maður svo vera sem mér væri von að
Gunnar mundi vera. Munu eigi þau töfl í vera að Sveinungi muni
hafa sent heiman son sinn að safna heim fé en hafi borgið
hinum og komið undan? Nú skulum vér ekki elta þennan mann.
Skal nú snúa af og eiga við Sveinung bónda."
Þeir
ganga nú heim til bæjarins en Sveinungi er inni í anddyri og
hleður upp torfinu og mælti: "Hví farið þér svo hverft?"
Helgi
svarar: "Því, að það er vor ætlan að maðurinn muni vera í
þinni varðveislu en eigi í fjalli uppi sem þú sagðir. Er þar
son þinn."
Hann
svarar: "Eg ætlaði að hann mundi í stofu inni. En þó veit eg
eigi hversu eg mundi nú fara að fela hann."
Helgi
svarar: "Þú munt hafa látið hann í milli hripanna og velt
honum af sleðanum með torfinu. Munum við hafa gengið á hann.
Nú viljum vér rannsaka hér."
Sveinungi
svarar: "Hafið þér nú ríki til þess fyrir liðfjölda sakir en
aldrei hef eg fyrr rannsakaður verið sem þjófar."
Nú
ganga þeir inn og rannsaka hús öll og finna hann eigi inni.
Þá
mælti Helgi: "Bæði skal koma í fjós og hlöðu."
Sveinungur
svarar: "Það er víst að þar sé Austmaðurinn því að hún baula
er jafnan taðdrjúg."
Helgi
svarar: "Aldrei hirði eg um skrýtyrði yðar."
Sveinungur
gengur til rúms síns og tekur ofan sax eitt mikið. Það var níu
álna hátt. Hann festir það á sig. Síðan gengur hann til fjóss
og lýkur upp fjósinu.
Hann
snýst þá við honum Helga og mælti: "Vita munuð þér Helgi hvað
lög eru því að þú ert lagamaður mikill, að eigi skulu fleiri
menn inn ganga en fyrir eru. Nú er eg einn. Vil eg að einn
yðar gangi inn því að ekki eru hér fleiri fylgsni en brátt
munu ratast í básum mínum og stíum hjá geitfé mínu. Vil eg
ekki hark manna að fé mitt skemmist af vopnum þeirra. En í
hlöðu eru dregnar geilar umhverfum hey. Myrkt er þar því að eg
lét þar inn færa mikið úthey á hausti og byrgja öll vindaugu
með myki, en frosin hart. Láttu menn þína höggva upp vindaugu
en Helgi gangi með mér og rannsaki."
Helgi
svarar: "Svo skal vera sem þú leggur ráð til."
Hann
gengur inn í fjósið. Helgi gengur með honum en þeir Grímur og
hans menn höggva upp vindaugun. Þeim gengur seint því að hart
var mjög frosið. Helgi rannsakar fjósið í básum og stíum.
Eftir það ganga þeir til hlöðu.
Þá
mælti Sveinungur: "Nú skaltu standa í dyrum en eg mun ganga í
hlöðuna og umhverfum heyið. Eg mun og ganga upp á heyið og
velta af ofan því er vott er. Er þér ófært að fara upp á heyið
fyrr en eg hefi hreinsað áður því að þú ert skartsmaður
mikill. Vil eg eigi að saurgist klæði þín."
Sveinungur
fer nú upp á heyið, leggur Austmanninn niður á stálið
innanvert, vefur nú að honum flögu mikla og þurra, veltir nú
öllu saman út af stálinu og lætur liggja flögurnar. Og er hann
er að velta hinni þriðju flögunni þá hafa þeir uppi vindaugað
og var þá ljóst í hlöðunni. Þá sjá þeir að þar eru öngvir
afkimar.
Þá
stendur Sveinungur upp af heyinu og mælti: "Nú hafið þér séð
hér fylgsni öll. Er nú að leita í heyinu og fletta öllu upp í
flögum. Mun annaðhvort að hann mun eigi hér vera eða í heyinu.
Ella farið út til og brjótið upp heyið ef þér viljið en eg mun
standa hjá."
Helga
fannst fátt um og mælti: "Aldrei nenni eg að brjóta það upp.
Ætla eg að eigi þurfi hér lengur að leita."
Eftir
þetta fara þeir burtu og biðja ekki Sveinunga vel lifa. Þaðan
á leið fara þeir sem fyrr og er þeir koma suður í garð þá
rekur sveinninn féð þar í móti þeim. En þegar þeir
Droplaugarsynir eru á braut þá tekur Sveinungur Austmanninn á
braut en lætur liggja flögurnar. Hann fylgir honum til sjóar
og til nausts síns. Þar var velt fyrir framan skip er
Sveinungur átti er hann sótti sér farm á suður í fjörðu um
haustið. Voru grafnir stafnarnir niður í jörð en nú fokinn
undir snjór hið neðra með borðunum. Þar var og inni sauðfé er
Sveinungur átti þá er illt var úti. Sveinungur tekur nú pál og
grefur nú inn undir skipsborðið. Hann lætur Gunnar koma inn
undir skipið. Síðan mokar hann að snjónum og sauðamyki en í
þessu kemur sveinninn með féð og reka inn og byrgja aftur
hrófið. Treður féð svo að ekki sér nývirki á. Sveinungur
brokkar þar eftir en sveinninn fer heim.
Droplaugarsynir
fara suður frá garðinum. Þá stingur Helgi við fótum og mælti:
"Þar kemur að því sem mælt er að eftir koma ósvinnum manni ráð
í hug. Þykir mér sem vér munum enn hafa vanleitað hér."
Grímur
svarar: "Hvar ætlar þú hann muni verið hafa?"
"Flögur
þrjár velti Sveinungur utar af heyinu. En mér þótti sem sú
fyrsta væri þyngst en þá var myrkt að og þá sagði hann að eg
skyldi til ganga."
Grímur
svarar: "Hví sástu eigi þetta þá sem nú?"
Helgi
svarar: "Því mér þótti þá eigi jafnlíklegt sem nú. Nú skal þó
aftur hverfa að sinni," sagði Helgi.
Sjá
hlutur er sá að mörgum aflar tvímælis á að Helga muni
áræðisfátt orðið hafa þá er þeir voru tveir inni og muni hann
þá séð hafa en þótt eigi til ráðanda.
Grímur
mælti: "Skulum vér nú til fjóss ganga?"
"Nei,"
sagði Helgi, "eigi get eg þess við þurfa."
Þeir
ganga nú ofan eftir vellinum. Þá er Sveinungur kominn upp úr
klifum neðan úr fjörunni.
Og
er þeir finnast þá tekur Sveinungur til orða: "Enn stýrir þú
hverft Helgi."
Hann
svarar: "Svo mun þér það þykja."
"Hvert
skal nú á leita?" sagði Sveinungur.
Helgi
svarar: "Mér þykir vanleitað enn í þínum herbergjum."
Sveinungur
svarar og brosti að: "Hvar mun hann nú verið hafa?"
Helgi
svarar: "Það get eg að hann hafi verið í flögu þeirri er þú
veltir fyrst, sú valt þunglegast."
Sveinungur
svarar: "Þá mundi eg nú ganga þangað og grípa hann í klær
þér."
Helgi
svarar: "Hafa muntu slægð til þess að koma honum þaðan á braut
og í annað leyni."
Sveinungur
mælti: "Hvert viltu þá þess leita?"
Helgi
svarar: "Nú vil eg leita hans niðri í naustahúsi þínu."
Sveinungur
mælti: "Þetta er miklu ráðlegast að þær gymlur muni hafa tekið
við honum því að þær hafa ráð undir hverju rifi. Eg á þar fé
mart inni og hefi eg byrgt en ef þér látið hrófið upp þá fel
eg yður alla ábyrgð á hendi því að fénaður er þegar í fjöru en
nú er hafrænlegt. Kann hér jafnan það á að verða í Borgarfirði
að flæði féð sem áður er kunnugt. Nú ef þér látið út féð en
eigi inn þá ætla eg yður að ábyrgjast bæði við hríðum og
sjávargangi. Eg á þar skip inni er eg hvelfdi að hausti. Það
eitt er þar fylgsni. Nú munuð þér það verða úr stað að færa ef
þér viljið þar rannsaka. Nú fel eg yður þar slíka ábyrgð á
hendi sem öðru ef nokkuð verður að."
Helgi
svarar: "Það hirði eg aldrei. Veit eg eigi hvað að ábyrgð
verður. Allt skal nú leita að nýju."
Helgi
gengur ofan í einstigið en Sveinungur sest niður á bakkanum og
horfir út á sjóinn. Þeir ganga nú að hrófinu og hleypa út
fénu.
Þá
mælti Helgi: "Jafnt er sem Sveinungur segir, ekki eru hér
fylgsni fleiri en undir skipinu. Skuluð þér höggva hjá
umhverfum skipið. Síðan skal færa úr stað skipið."
Þá
mælti Grímur: "Ei munum vér þess við þurfa bróðir," sagði
hann. "Stingum vér heldur spjótum vorum inn undir borðin.
Munum vér þá varir við verða ef nokkuð verður fyrir en vér
megum eigi upp koma skipinu nema vér brjótum nokkuð að. Er það
skaði mikill ef brotinn verður svo góður gripur."
Þá
taka þeir þetta bragð, stanga spjótum alla vega undir skipið.
Þá verður Gunnar var við og þrífur upp innviðuna en spyrnir í
bitana og þar hrökkvist hann að upp en þeir lögðu fyrir neðan.
Fékk Gunnar mikinn þykk af eins manns vopni. Hann fékk lagið í
gegnum lærið fyrir neðan þjóhnappana. Þetta var mikið sár. Við
þennan áverka brá Gunnar sér ekki og ekki fann sá er hélt
annað en hann hefði stungið í snjóinn. Og er þeir höfðu leitað
sem þeir vildu þá ráðast þeir á burt, ganga úr naustinu og
láta eigi féð inn. Þeir ganga upp einstigið. Situr Sveinungur
þar á bakkanum. Hann mælti ekki orð við þá. Sveinungur var
þústinn mjög og litverpur. Stundum var hann bleikur sem bast
en stundum svartur sem jörð. Nær horfðu fram öll hárin eftir
hans haus. Þeir þóttust þá mega sjá að honum var mikið í skapi
og áttu þar ekki við hann fyrir það að þeir höfðu það fyrir
satt að þá mundi Sveinungur hafa tryllst að þeim ef þeir hefðu
Austmanninum náð. Eftir það fara þeir Droplaugarsynir á burt
en Sveinungur vitjar Austmannsins og færir hann heim á því
kvöldi í sín herbergi og bindur sár hans. Eftir það færir hann
Gunnar í jarðhús er hann átti. Það var eigi heima á bænum.
Þeir
héldu suður með hlíðinni og stefndu suður til Dysjarmýrar,
komu þar svo að liðið var dagsetur. Þar drápu þeir á dyr. Þar
bjó sá maður er Gunnsteinn hét. Hann var goði þeirra
Borgfirðinga og hafði þar mannaforráð. Gunnsteinn var
samborinn bróðir Sveinunga. Gunnsteinn var manna mestur og
sterkastur, búþegn góður og hinn harðasti í skapi við hvern
sem hann átti. Var það enn og orðtak manna að hann væri í
þvílíkri náttúru sem Sveinungur, að hvorgi væri einhamur. Þeir
bræður kalla út Gunnstein. Hann fagnar þeim vel og býður þeim
þar að vera og það þiggja þeir. Er þeim fylgt í stofu og
dregin af þeim klæði. Þar höfðu menn lokið náttverði. Var þeim
unninn beini góður. Þá sest Gunnsteinn framan að stóli og spyr
að ferðum þeirra og erindum. Helgi segir honum léttilega frá
öllum rekstri þeim er þeir höfðu haft við Sveinunga um daginn.
En er hann heyrði að Sveinungs var getið þá spyr hann vandlega
hversu með þeim hefði farið. En Helgi segir jafnt sem farið
hafði.
Enginn
maður hafði þá hníf á belti. Þá er menn fóru úti höfðu þeir
tygilhnífa og festu á háls sér. Helgi bregður hnífinum og
ætlar að matast. Hann tekur þann hlut sem eftir var á
diskinum. Það var skammrif eitt. Nú bregður hann hnífi og
ætlar að skera af.
Hann
mælti þá, Helgi: "Ei er ofsögur sagt um fé þetta er hér gengur
um Miðfjörðu því að mér þykir þetta líkara af nautum muni
vera."
Gunnsteinn
svarar alls öngvu. Hann seilist upp yfir borðið og þrífur hönd
hina hægri fyrir ofan úlfliðinn og kreistir höndina svo fast
að hann lýr alla hana og úr hrýtur hnífurinn og niður á
borðið. Þá kastar Helgi niður skammrifinu en þrífur til
handarinnar og lítur til Gunnsteins. Hann sér að Gunnsteinn
var svo bleikur í andliti sem nár og fram horfðu öll hár á
höfði honum.
Helgi
mælti þá við Gunnstein: "Hvort ætlar fjandi þinn að hamast á
oss?"
Gunnsteinn
svarar: "Ekki mun eg tryllast á þér en halda mun eg þér þangað
til er þú hefur sagt mér með röskleik hvort þú hefir ekki mein
gert bróður mínum."
Helgi
svarar: "Láttu mig lausan. Ekki mein hef eg gert honum. Ei
fyrir því, slíkur skratti er hann sem þú og eigi ætla eg hann
sé betri."
"Trúa
mun eg að þú hafir drengskap til að segja satt en ef öðruvísi
er skulum við eigi skildir."
Gunnsteinn
lætur þá lausa höndina en Helga var svo stirð höndin að hann
kenndi einskis fingurs á þeirri hendi. Hann sprettur þá upp
undan borðinu og allir þeir, ganga innar að pallinum og
setjast þar niður. Enginn þeirra tekur til matar. Er þá fram
borinn maturinn. Fóru heimamenn þá í rekkjur. Enginn þeirra
Helga manna þiggur þar greiða. Leggjast þeir niður í klæðum
sínum og eru þar um nóttina. Og er lifa mun þriðjungur nætur
þá gengur Helgi út. Er þá ljós vegur en tungl óð í skýjum. Þá
snýr Helgi inn og vekur upp menn sína, segir að allgóður sé
vegur.
Þeir
fara nú burt þaðan og biðja Gunnstein ekki vel lifa, ganga upp
á heiðina. En er þeir komu upp að bæ þeim er í Fannstóði
heitir, sá er efstur í Borgarfirði, þá lýsti af degi. Þeir
ganga upp heiðina. Helgi gekk fyrir en illt var að fara mjög.
Helgi vildi niður setjast og hvílast. Hann skaut frá sér
spjótinu en falurinn lá í knjám honum. Hann sér að spjótið var
allt blóðugt.
Þá
tekur Helgi til orða: "Satt er það sem mælt er að oft verður
lítils vant og get eg svo hér hafa orðið. Gefast annarra ráð
verr en mín. Þar hefur Austmaðurinn verið undir skipinu. Hefur
hann fengið geig nokkurn af spjóti mínu en eigi veit eg hversu
mikill er. Mundi yfir hafa tekið ef svo hefði með verið farið
sem eg gaf ráð til."
Þeir
svöruðu: "Förum vér aftur hvatlega og drepum Sveinung ef vér
náum eigi Austmanninum."
Helgi
svarar: "Hefði hann maklegleika til þess en eigi sýnast mér
þeir bræður hvers manns færi við að eiga. Get eg Sveinungur
muni hafa brögð undir brúnum. Munum vér eigi auðnu til bera
yfir höfuðsvörðum Gunnars að standa er dregur þá undan er í
hvekkingum var með oss. En það er nú satt að segja að eg hygg
að Gunnar sé fárra maki í hreysti og eljun. Mun nú skilja með
oss að sinni."
Stendur
Helgi þá upp og tekur til göngu. Léttu þeir eigi fyrr en þeir
komu á Arneiðarstaði. Hitta þeir Þorkel Geitisson. Hann spyr
hversu farið hafi en Helgi segir alla atburði svo sem gengið
hafði. Þorkell kvað mjög vaxa ófrið en ekki við meðalmenn að
eiga þar sem þeir voru bræður.
Þorkell
kvaðst þar hafa setið yfir nafna sínum til hádegis í
Djúpahvammi "en þá er eg lét hann lausan, sneri hann þá heim
til Njarðvíkur."
Nú
skiljast þeir. Fer Þorkell Geitisson heim í Krossavík en Helgi
fer heim á Arneiðarstaði.
20. kafli
Þessi
atburður spyrst nú víða og þótti mörgum sjá maður mjög úr
öngum ekið hafa. Líða nú stundir og eigi langar áður en
Sveinungur fer heiman og Austmaður með honum. Þeir fara upp
yfir heiði og létta eigi fyrr en þeir koma í Mjóvanes. Þeir
finna Helga Ásbjarnarson. Fer Austmaður heim í hérað. Helgi
tekur við honum og lætur hann koma í útibúr sitt er stóð úti í
túni. Ekki vissu þetta fleiri menn en Helgi og Sveinungur að
Austmaður var þar kominn til varðveislu. Er hann þar það er
eftir var vetrarins. En flestra manna ætlan er það að Gunnar
mundi með Sveinungi vera.
Líður
nú vorið og svo fram að þingi. Þingstöð manna var að Helga
Ásbjarnarsonar að Kiðafelli. Helgi átti að helga þing. Hann sá
að eigi mátti hann bæði fara að helga þing og varðveita
Austmann svo að eigi yrði nokkur var við að hann væri þar.
Hann
tekur það ráð að hann sagði Þórdísi toddu um kvöldið það hið
sama og hann skyldi heiman ríða um morguninn eftir að þar væri
Gunnar Þiðrandabani í hans varðveislu "vil eg nú að þú takir
við valdi hans meðan eg er í burtu og gætir að eigi verði menn
varir við að hann sé hér."
Þórdís
svarar: "Undarlegur maður ertu Helgi er þú ætlar að eg muni
halda þann mann er oss hefir slíkt mannspell gert. Skal eg
láta drepa hann ef eg næ honum og skal eg þetta efna sem eg
hét. Sýnist mér sem þó sé ærinn agi meðal vor frænda. Er það
eigi ólíklegt að af þessu gráni enn meir með yður en áður. Eg
skal þegar á morgun senda mann Bjarna bróður mínum og skal
hann hafa virðing af."
Helgi
svarar: "Það gerir þú sem þér líkar. Þér mun eg selja hann.
Máttu og muna hversu mikils þú varst virð meðan þú varst
heima. Varstu þá í einum sloppi og gekkst þar fyrir búi. Sá eg
þig ekki betur haldna en eina ambátt áður en eg tók við þér.
Nú máttu hugsa hvað þú átt mér að launa því að þú gerist nú að
litlu færra kvödd en eg. Svo tekur nú að vera þín virðing að
nálega vill svo hver maður sitja og standa sem þú vilt. Nú er
þér það að segja ef þú selur fram manninn undir öx Bjarna að
jafnskjótt skaltu í burtu verða og norður til Hofs og hafa
slíka sæmd sem Bjarni bróðir þinn hyggur þér og aldrei skaltu
í sama húsi mér vera meðan þú lifir."
Hún
svarar: "Það hirði eg aldrei hverju þú heitir mér. Mun Bjarni
mig að öngvu verr halda en þú."
Þau
skilja nú tal sitt og þótti sitt sinn hvoru þeirra. Líður af
nóttin en um morguninn drífa menn að honum Helga. Hann lætur
reka að hesta. Ríður Helgi á burt með sínu liði og upp á háls.
Hann helgar þing. En er Helgi er á burtu þá gekk Þórdís til
útibúrsins og lýkur upp. Hún gengur að Gunnari og veitir honum
beina. Hún mælti ekki við hann. Líður dagur sá til aftans. Er
þá híbýlum á leið snúið í Mjóanesi. Og er menn eru undir borð
komnir er drepið á dyr og til hurðar gengið. Þar eru komnir
menn úti, nær átta tigum manna. Þeir láta kalla út Þórdísi.
Hún gengur út og kennir Bjarna bróður sinn. Hún tekur við
honum með allri blíðu. Bjarni þekkist það vel. Er þá tekið af
hestum þeirra og er þeim beini veittur. Og er lokið er
náttverði þá fara menn í hvílur. Þórdís gengur þá til hvílu
þeirrar er Bjarni hvílir í. Hún leggst á rekkjustokkinn. Þau
taka tal með sér því að þeim varð mart til tals.
Þar
kom þó um síðir að Bjarni tekur svo til orða: "Það er mitt
erindi hingað að eg hefi haft njósn að Gunnar hefur hér verið
um hríð. Nú vissi eg að Helgi mátti eigi annast hann meðan
hann var á þingi. Mun hann nú vera í þinni varðveislu."
Hún
svarar, kvað eigi það vera "og eigi veit eg hví þú ætlar mér
það að eg mundi varðveita þann mann er svo mikið skarð hefur
gert í ætt vorri að vér munum aldrei bætur bíða."
"Ekki
hirði eg hvað þú segir til þess því að það veit eg að hann er
í þínum híbýlum. Fór eg af því hingað til þín að eg þóttist
vita að þú mundir mína fór góða gera. Nú er ekki að dylja þess
er satt er. En veit eg fyrir hvað þú dylur. Hann mun hafa
boðið þér varnað á um að segja til hans og heitið þér ógnun,
talið upp hversu ósællega þú varst sett meðan þú varst heima.
Mun hann hafa heitið þér að reka þig á burt með hrakningum. En
þó að svo sé að þú komir til Vopnafjarðar þá skaltu eigi minna
ráðandi en hér í Fljótsdalshéraði ef þú gerir nú mína sæmd sem
eg beiði."
Þórdís
kvaðst eigi mega það segja er eigi var til og hún vissi eigi
hvar væri.
"Ekki
hirði eg nú um dulkofra þinn því að eg mun nær geta hvar hann
er ef eg vildi eftir leita. Nú mun eg mark til gera að mér
þykir mikið undir að ná manninum. Eg hefi sjö hundruð silfurs
í einum sjóð. Það er hið besta fé. Það skal þér gefa til þess
að þú seljir fram manninn mér í hendur."
Þórdís
svarar: "Ófésparari ertu nú við mig en þá er eg var heima að
Hofi. En ekki þætti þér það verra þó að eg ætti það því minna.
Mundi eg og við taka fénu ef eg vissi hvar hann væri."
Bjarni
svarar: "Þá mun eg segja þér hversu fara mun. Eg mun hér
rannsaka öll híbýli á morgun þar sem mér þykir líkast til. Það
get eg að hann sé í vöruhlaða þínum og skal eg hann þaðan
draga og drepa hann fyrir augum þér til hörmungar."
Þórdís
svarar: "Ei mun sú raun á verða að hann sé hér."
Snýr
hún nú til rekkju sinnar og er skapþungt sem von var til. Sofa
menn af nóttina. Og þegar menn eru sofnaðir stendur Þórdís upp
í klæði sín. Hún vekur upp sauðamann sinn, bað hann ganga út
með sér.
Og
er þau koma út þá mælti Þórdís: "Þú skalt fara sendiför mína
skyndilega upp undir Kiðjafell á þingvöll. Þú skalt segja
Helga að hann komi heim sem hann má fyrst og fari eigi
fámennur. Seg að þeir eru hér gestir komnir að eg þykist eigi
fulla sæmd veita mega nema hann sé við því að eg á öngum manni
meira sóma að veita en Bjarna bróður mínum. Eg veit að hann
mun skjótt við bregða. Ríð nú mikið og far ákaft því að eg
heiti þér því að þú skalt eigi sauðreki þurfa að vera héðan af
meðan við lifum bæði ef þú gerir nú vel þetta erindi."
Hann
tekur hest og ríður upp á hálsa og léttir eigi fyrr en hann
kemur á þing. Hann ríður til búðar Helga og stígur af baki.
Hann gengur inn í búðina og að þar er Helgi hvíldi. Hann
fagnar vel húskarli og spurði tíðinda en hann sagði erindi sín
þau er Þórdís bauð honum. Þá var í næturelding. Hann býst
skjótt og kveður upp menn sína og biður reka að hesta. Ríður
hann þegar burt af þinginu með hálft annað hundrað manna og út
eftir hálsum og svo heim í Mjóvanes.
En
um morguninn snemma í Mjóanesi þá stendur Bjarni upp og lætur
menn sína brátt reka að hesta sína "vil eg ríða á burt."
Þórdís
gengur að honum og bað að hann skuli eta dagverð "áður þér
ríðið."
Bjarni
kvaðst eigi nenna að rannsaka hana sem þjófa fyrir frændsemis
sakir "en hefur þú maklegleika til. Viltu alls kostar illa til
mín gera. Mundi eg finna hann ef eg vildi leita með harðindum
því að þar mun hann vera sem eg sagði þér í nótt."
Eftir
þetta ríður Bjarni á burt með menn sína. Skiljast þau systkin
með lítilli blíðu að sinni. Síðan ríður Bjarni út með vatni.
Og er þeir eru komnir út með vatni sjá þeir jóreyk ofan að
garði í Mjóvanesi. Ríður Helgi ákaft. Hann kemur í tún. Er
Þórdís þá eigi inn gengin. Hún snýr að Helga bónda sínum og
fagnar honum vel.
Hún
segir honum allar viðræður þeirra Bjarna og hversu farið hafði
allt með þeim "hefi eg þig meira metið en alla aðra."
Hann
þakkar henni allan góðvilja "vissi eg að eg var vel kvongaður
en eigi vissi eg að þú varst slíkur skörungur sem þú ert.
Hefur þú miklu betur þetta gert en þú hést. Nú mun eg ríða
aftur á þing ef þú þykist birg heima."
Hún
segir Helga þá hvað Bjarni hafði fram lagið og hvað hann hafði
um mælt. Eftir þetta ríður Helgi til þings. Þórdís stjórnar
búi heima. Bjarni ríður norður til Hofs en þau Þórdís og Helgi
höfðu Gunnar með sér og gerðu vel til hans. Er hann þar um
sumarið í góðum fagnaði og fæddur þó á laun.
21. kafli
Þeir
Droplaugarsynir héldu svo ríkt vörð á um skip það er Gunnar
átti að hann náði aldrei þangað að koma og öngum fjárhlut náði
hann nema nokkrum gripum og þó fám. Austmennirnir fara utan um
sumarið, koma til Noregs og segjast aldrei vita hvort Gunnar
mundi fara til Hálogalands eða eigi. Nú segja þeir öll tíðindi
og undanrekstur þann allan er hér hafði verið.
Þetta
sumar ríða menn til þings og leggur Þorkell Geitisson fé til
höfuðs Gunnari og fékk öllum höfðingjum umboð að hann skulu
höndum taka. Allir hétu góðu um þetta en þeir þó mestu er
Þorkell átti heitast vinfengi við ef hann kæmi því fram. Það
var Þorkell Eyjólfsson. Hann bjó vestur að Helgafelli og átti
Guðrúnu Ósvífursdóttir. Hún var í kærleikum við Helga
Ásbjarnarson. Höfðu þau fyrr senst gjöfum í millum. Þó hafði
Þorkell Eyjólfsson eigi vitað til þess.
Og
er af líður sumarið þá lætur Helgi járna hesta þrjá. Hann fær
mann til föruneytis við Gunnar og sendir hann norður á
Möðrudalsheiði og svo norður hið efra til Mývatns og fara svo
vestur til sveita uns hann kom til Helgafells, því að hann var
sendur þangað til umsjár og halds með nógum jarteiknum til
Guðrúnar Ósvífursdóttir að hún skuli taka við honum með blíðu
og halda hann þar fyrst um veturinn og koma honum utan um
sumarið eftir. Bar og vel í móti nú. Er Þorkell eigi heima.
Hann hafði heitið Þorkeli Geitissyni að taka Gunnar af lífi ef
hann næði honum. Þorkell hafði farið út í eyjar eftir skreið.
Guðrún tekur við Gunnari ævar vel. Dvelst förunautur Gunnars
skamma hríð. Sendir Guðrún Helga Ásbjarnarsyni góðar gjafir.
Fer hann til þess er hann kemur í Austfjörðu.
Gellir
hét son þeirra Guðrúnar og Þorkels. Hann var ungur maður og
vel menntur og farmaður mikill. Hann kom út þetta sumar í
Laxárósi en nú var hann að vist með föður og móður að
Helgafelli.
Og
er Gunnar hefir þar verið eina nátt þá kemur Þorkell heim síð
um aftan. Þar var fjölmenni mikið. Eru gervir eldar fyrir þeim
og dregin af þeim klæðin. Menn ganga fram úr stofu til
eldanna. Þorkell sér að þar gengur fram maður einn í blám
kyrtli og heklu grárri. Sá maður var ákaflega þreklegur en
eigi hár. Hann hafði bjarta öxi í hendi. Maðurinn var ljós á
hár, réttleitur og vel í yfirbragði. Þorkell spyr hver sá
maður væri hinn drengilegi. Hann segir til sín og kveðst
Gestur heita.
Þorkell
starir á þennan mann um hríð og mælti: "Furðu líkur ertu þeim
manni að frásögn er heitir Gunnar og er kallaður Þiðrandabani
og hefur verið í Austfjörðum um hríð. Eða hvar er heimili þitt
eða hvert ætlar þú að fara?"
Þá
varð honum orðfall og svarar öngvu.
Þorkell
svarar: "Svo virðist mér sem þú munir annar maður en þú segir
og rétt get eg að eg fari um nafn þitt og athöfn."
Gunnar
svarar: "En ef svo er sem þú segir hvað mundir þú þá til
taka?"
Þorkell
svarar: "Það skaltu vita brátt."
Hann
sprettur nú upp og þrífur sverð eitt er lá í sætinu og hét
Sköfnungur er síðan týndist með honum á Breiðafirði. Þorkell
bregður þegar sverðinu og hleypur innar yfir eldinn og höggur
til Gunnars. Hann bregður við öxinni og upp yfir höfuð sér.
Þorkell höggur í öxarfetann en missti mannsins. Svo fast hjó
Þorkell að mjög svo festi sverðið í öxarfetanum. Gunnar
bregður við og færir upp öxina. Menn hlaupa innar í stofuna og
sögðu Guðrúnu hvað um var í eldaskálanum.
Hún
gengur fram og biður Þorkel bónda sinn stöðvast "vil eg að þú
gerir honum ekki grand nema þú viljir að við skiljum okkart
félag upp frá þessum degi ef þú gerir honum nokkurt mein því
að Gunnar var mér sendur af vinum mínum til halds og trausts.
Skal eg hann svo annast sem son minn til þess er skip ganga af
Íslandi í sumar. En ef nokkur maður vill hár af höfði honum
blása þá skal eg þeim líkan grimmleik gjalda sem eg má mestu á
leið koma. En það mæla sumir að það sé lítið gaman þeim sem
það hafa reynt að verða fyrir reiði minni. Skal eg þá og ekki
af spara það er illt er ef eg verð vör við að nokkur geri
honum mein. Það vil eg að þú eigir ekki við hann því að honum
mun einhlít mín umsjá og velgerningur."
Þorkell
svarar: "Oftast ertu ráðgjörn Guðrún. Verður oftast engin hæfa
á ef þú ræður eigi því sem þú vilt. Verðum vér jafnan
lítilmenni af ef þú hlutast til."
Sefast
Þorkell nú brátt og rennur honum reiðin. Er Gunnar þar um
veturinn í góðum fagnaði.
22. kafli
Það
er sagt einn aftan um fardaga sjálfa að þau Guðrún eru komin í
rekkju sína.
Þá
tekur hann til orða: "Hversu er þess gert við Gunnar félaga
þinn að þér þyki vel vera?"
Guðrún
svarar: "Það mun eg skjótt segja þér. Skip stendur uppi í
Laxárósi það er Gellir son minn hélt hingað í fyrra sumar. Það
vil eg láta hlaða þar og búa utan í sumar og hlaða varnaði og
góðum reiða. Þetta vil eg gefa honum en Gellir skal sitja
eftir í sumar."
Þorkell
sagði ekki í móti "því að mikill er ofsi þinn en þó mun enn
sem oftar að lítið samþykki mun á verða ef eigi er svo gert
sem þú vilt."
Slitu
þau talið. Líður af nóttin. En þegar um morguninn lætur
Þorkell snemma að vera. Er flotað skipinu en fluttur til
mikill varningur og góður. Hafa þau stórkostnað fyrir. En þá
er albúið er skipið þá leiða þau Gunnar til, gefa honum skip
með rá og reiða og miklum fjárhlut. Gunnar þakkar þeim vel
þessa gjöf og marga aðra virðing er þau höfðu honum veitt.
Skiljast þau nú allgóðir vinir.
Siglir
Gunnar í haf þegar honum gaf byri. Varð hann allvel reiðfara,
tók þar land sem hann kaus á og faðir hans átti byggðir fyrir.
Gunnar var hersis son en hann réð fyrir Hálogalandi. Þar var
honum vel fagnað því að nálega þóttust menn hann úr helju
heimtan hafa. Og er það flestra manna sögn og orðtak bæði hér
og annars staðar að eigi muni einn maður meir úr öngum ekið
hafa en Gunnar, slíkir garpar sem eftir leituðu.
Annað
sumar eftir býr Gunnar þetta skip með miklum fjárhlut og
sendir út til Íslands með gripum til Þorkels og Guðrúnar
Ósvífursdóttir og annarra þeirra er hann þóttist góða hluti
eiga að launa. Skipið kemur í Laxárós. Tekur Gellir við
skipinu og hefur lengi í ferðum síðan. En Gunnar situr í búi
sínu á Hálogalandi og kemur hann lítt við þessa sögu héðan í
frá.
23. kafli
Hallsteinn
hét maður er bjó á Víðivöllum hinum nyrðrum í
Fljótsdalshéraði. Hans er getið fyrr í sögunni. Hann var maður
mikill og hinn skilríkasti bóndi. Hann átti tvo sonu, Sighvat
og Snorra. Þeir voru allvel menntir. Þeir voru ýmist heima með
föður sínum eða með Hrafnkatli Þórissyni. Þeir voru hávaðamenn
miklir og héldu mjög til kapps við flesta. Þeir höfðu mikið
traust undir Hrafnkatli. Var þá höfðingsskapur hans sem mestur
í það mund. Hallsteinn bjó svo nokkur misseri að hann setti
ýmsar konur fyrir búið. Varð honum það stórmjög óhaglegt.
Þess
er getið eitt vor að hann reið ofan til Bessastaða. Bessi
tekur við honum ágæta vel og spyr hann að erindum.
Hallsteinn
svarar: "Eg vildi að þú riðir með mér ofan á Arneiðarstaði.
Hefi eg lengi við mikil óhægindi búið. Nú vildi eg kvongast og
hafa þar við yðvart fullting."
Bessi
svarar: "Hver er kona sú?"
Hallsteinn
svarar: "Hún heitir Droplaug og er dóttir Björgólfs."
Bessi
svarar: "Ei vildi eg að þú gerðir þetta því að eg get að hún
verði þér ofstýri. Sýnist mér sem hún sé eigi hvers manns færi
en allvel er konan mennt. Sýnist mér sem þið munuð allóskaplík
því að hún er hinn mesti svarri og af góðum ættum en þú ert af
smábúanda ætt og smálátur í skaplyndi. En þó þú sért fémaður
mikill þá tekur þú mjög stein um megn þér. Vil eg það ráð þér
gefa sem hverjum öðrum að hann leiti sér þess ráðuneytis að
eftir hans skaplyndi sé en eigi með svo lítilli forsjá að
engin eru álit. Eru synir þínir uppivöðslumenn miklir en þeir
Helgi eru enn kallaðir nokkuð ágjarnir og ef þér verðið eigi
samþykkir þá mun þeirra fundur skakkur verða. Nú þykir mér þín
ferð eigi til ágengileg verða. Ertu áhugamikill og miklu
framar en eg ætlaði því að eg hefi lengi verið húsfreyjulaus
og verið oft á eggjaður að biðja hennar og hyggst mér svo að
sem mér muni eigi hæfa að fá hennar. Mun eg heldur búa einn
saman um hríð. Nú let eg þig en þú gerir sem þér líkar."
Hallsteinn
svarar: "Satt er það sem mælt er að öngum skyldi maður
treystast því að sá kann mann mest að blekkja er hann hefur
mestan trúnað á. Nú varði mig aldrei þessa Bessi að þú mundir
svo fara fótum saman, en mín sæmd liggur við öll. Hefi eg
lengi vinskap við þig átt og trúað nær á þig sem á goð og ertu
því minni í vafi sem eg þarf meir."
Bessi
svarar: "Það er forn orðskviður að veldurat sá er varar. Nú
hefi eg sagt sem mér sýnist en fara skal eg með þér ef þú
vilt. Ábyrgist þú mest hversu sem sækist en sannspár verð eg
þér að þessu að þessa muntu mest iðrast sjálfur af bragði."
Hallsteinn
svarar: "Verði sem má. Allt skal nú fara að einu."
Þeir
ríða nú út eftir héraði uns þeir koma á Arneiðarstaði. Er
gengið móti Bessa og Hallsteini að vanda með allri blíðu. Eru
þeir þar um nóttina en um morguninn gengur Bessi að Droplaugu
og sonum hennar og kvaðst eiga skylt erindi við þau. Nú ganga
þau á tal. Bessi segir upp sitt erindi.
Þau
Droplaug svara seinlega þessu máli en Bessi bað að þau skyldu
eigi draga lengi þetta mál "vil eg að þér verðið af skörungar
og segið hvað yður býr í skapi."
Helgi
svarar: "Svo þykir mér sem þau Hallsteinn muni eigi skaplík
mjög. Nú vil eg að hún segi fyrir sig. Vil eg því samþykkja
sem hún vill til sín snúa."
Droplaug
svarar: "Auðséð er það að Hallsteinn hefur séð það að þú ert
fjárfastur. Höfum vér þó þess fjár lengi vel notið að
Þorvaldur faðir ykkar hefur átt og saman dregið. Hefur nú
síðan mjög í kostnað gengið því að hvert haust verðum vér
niður að leggja mart fé í bú vort en á vorum verður gripum til
að verja að kaupa málnytu. En mér þykir illt að láta risnu
mína. En nú ætla eg fátt ganga fé á fótum en eigi skorta
jarðir eftir. Er hér skjótur kostur við Hallstein að eg skal
fara upp á Víðivöllu með þér og eignast allan fjárhlut að
helmingi við hann en eg mun ekki fé héðan hafa nema gripi
nokkra því að eg ann sonum mínum best að njóta þeirrar eignar
er hér stendur saman. Vil eg og að synir mínir standi þar til
erfðar sem þau börn er eg á við þér. Mun eg aldrei svo lengi
lifa að eg geti goldið þeim bónda er eg átti fyrir þann
góðvilja er hann veitti mér. Ann eg því best sonum mínum að
njóta allra þeirra hluta er gagn er að."
Synir
Droplaugar báðu hana sjá fyrir kosti sínum en kváðust ætla að
þeim mundi endast fé um sína daga. Droplaug segir að
Hallsteinn mundi um þennan kost kjósa eiga. Hallsteinn gengur
óhokinn að þessu og er nú þetta að ráðum gert. Droplaug er nú
fest Hallsteini. Riðu þeir nú heim eftir það.
24. kafli
Þessi
tíðindi spyrjast nú víða um héraðið og þeir Hallsteinssynir
spurðu þetta sem aðrir. Þá fóru þeir heim á Víðivöllu og
skipta fénu öllu í helminga og taka við móðurarfi sínum.
Ráðast þeir nú burt með fé sínu. Eftir þetta er til veislu
snúið og mönnum til boðið og er þar mestur hluti fyrirmanna
saman kominn. En svo mikla virðing sýndu þeir Hallsteini,
synir Droplaugar, að þeir vildu eigi vera að boði hennar. Eigi
var Hrafnkell þar og eigi Helgi Ásbjarnarson. Veislan fór vel
fram og sköruglega en eftir boðið tekur Droplaug við búinu og
allri umsjá bæði fyrir utan stokk og innan og þvílíka risnu
sem hún var vön. Þeir bræður, Droplaugarsynir, skipa bú sitt
og setja konu fyrir, halda öllu hinu sama um búrisnu sína sem
vandi var til áður.
Um
samfarar þeirra Hallsteins og Droplaugar var ekki mart enda
ekki illa en synir Hallsteins lögðu mikinn óþokka til
Droplaugar svo að þeir komu aldrei að finna föður sinn. En á
fyrstum misserum er þau voru ásamt hjón þá fer Droplaug eigi
kona ein saman og líða stundir fram í líkindi þar til er
Droplaug fæddi barn. Það var sveinn. Er hann vatni ausinn og
nafn gefið og kallaður Björgólfur eftir móðurföður sínum. Óx
sá sveinn upp og var hinn efnilegasti. Unnu þau honum mikið
því að hann var hinn bráðgervasti í öllu.
25. kafli
Synir
Droplaugar komu jafnan að finna móður sína. En ávallt er þeir
fóru á millum þá dvöldust þeir á Bessastöðum löngum.
Einn
hlutur var sá í fari Bessa að Helga var mjög óþokki að því að
Bessi elskaði mjög goðin. Hann var blótmaður mikill og hafði
mikinn átrúnað við goðin. Bessa þótti Helgi of lítinn átrúnað
vilja hafa á goðunum því að hann gerði sér óþokkað mjög um
það.
"Sé
eg öngvan þann hlut í þínu fari," segir Helgi, "að þér verði
jafnmikil heimska í sem þetta er þú veitir svo mikinn átrúnað
undærum þeim er menn gera með höndum sér og bæði eru blind og
dauf og mállaus og það skil eg að þau mega hvorki gera sér
gagn né öðrum. Og því er eg miklu skemur með þér en eg mundi
ella að eg veit einn hversu andstygg mér eru goðin. En alla
hluti aðra veitir þú mér með mikilli ástsemd."
Bessi
svarar: "Þú værir allra manna spakastur á öllu Íslandi þeirra
er nú vaxa upp ef þú legðir þinn trúnað undir þeirra miskunn."
Helgi
svarar: "Verði mér aldrei svo illt að eg vænti mér góðs af
þeim fjöndum er öngu loða saman nema illu einu."
Skildu
nú við svo búið.
Þau
Droplaug og Hallsteinn bjuggu saman sjö vetur svo að álitlega
var. En svo sem þau bjuggu saman lengur þá harðnaði þeirra
samfarir. Gerðust nú óhægindi mikil í búinu en þó stóð mikið
fé saman því að Hallsteinn var fémaður mikill. Droplaug sendi
oft sonum sínum orð að þeir skyldu koma til að skipta fénu við
Hallstein en þeir fresta um hríð.
26. kafli
Það
er á einum vetri á skammdegi að sendimaður kemur ofan af
Víðivöllum á Arneiðarstaði og segir að Droplaug vill að þeir
kæmu upp þangað sem fyrst. Þeir bregða ekki skjótt við þessa
orðsending. Líður fram í vikuna. Þá kemur annar sendimaður með
hinum sömum erindum sem hinn fyrri.
Helgi
bað sendimanninn fara heim "en eg mun fara þá er mér þykir
tími til vera."
Sendimaðurinn
fer heim við svo búið.
Þennan
vetur var þung veðrátta. Voru færðir illar eftir héraðinu. Það
var einn morgun snemma í ár að Helgi er á fótum og biður Grím
bróður sinn upp standa. Hann gerir svo, fer í klæði sín. Síðan
ganga þeir út. Þá var á hafrænt veður og heiðríkt hið efra en
stóð garminn með fjöllum, frost mikið ákaflega. Helgi stefnir
suður yfir gilið og ofan ás. En er þeir komu ofan á ísinn þá
var ákaflega illt að fara. Nú dregur saman myrkvinn og tekur
að drífa og gerir mjög fjúkanda.
Helgi
tekur nú til orða: "Hér er nú miklu verra að fara en eg
ætlaði. Munum við nú snúa yfir í heiði og upp með bæjum við
það" því Helgi ætlaði að þar mundi miklu betra að fara.
Nú
gerir á þá illviðri mikið og ákaflega hríð. Gengur nú á norður
og stendur af heiðinni veðrið. Þeir bræður ganga lengi um
daginn allt til þess er mjög var annars litar. Þá koma þeir að
gili einu miklu og fara yfir gilið.
Þá
tekur Grímur til orða: "Hvað gili er þetta?"
Helgi
svarar: "Það mundi eg ætla að væri Öræfagil milli Bessastaða
og Skriðu, suður frá Bessastöðum, því að mér þykir drjúgt
verið hafa neðan eftir heiðinni."
Grímur
kvað það eigi mega vera "því að er enn ódrjúgt. En þó get eg
að ráðlegra sé að fara ofan í byggðina. Mun okkur vís gisting
hvar sem við komum til bæjar."
Snúa
ofan úr fjallinu. Þeir áttu nú allfærðþungt og er þeir koma á
jöfnu urðu þeir við öngva bæi varir og vita nú aldrei hvar
þeir fara. Þeir ganga þá enn upp eftir héraðinu. Þeir komu á
grjóthól einn. Þar var borið af. Þeir ganga eftir hólnum en er
minnstar vonir eru missa þeir fóta og hlaupa ofan fyrir
hengiskafl einn. Þeir hlæja mikið og var þar blautt undir er
þeir koma niður. Þeir voru svo klæddir að þeir voru gyrðir í
brækur og voru yfir utan í vararfeldum og hnepptir að þeim
undir höndum, gyrðir sverðum og höfðu digrar stengur í höndum.
Svo bjuggust þeir til göngu í hvert sinn. Þeir stinga niður
broddstöfunum og finna að ís er undir. Grímur spyr hvort hann
kenni nokkuð til hvar þeir voru komnir.
Helgi
svarar: "Það er fjarri. Hér veit eg hvergi ísa vera nema á
Lagarfljóti en hér ganga ekki melar svo eg viti."
Helgi
kvaðst eigi vita hvar þeir voru komnir. Þeir herða nú enn á
gönguna og ganga burt af ísinum og koma á hrjóstur eitt. Þar
sjá þeir sorta einn í hríðinni fyrir sér. Þeir sjá að það var
virki eitt mikið og svo hátt að Helgi getur eigi betur en
tekið upp jafnhátt. Þeir gengu umhverfis virkið. Það var
kringlótt. Þeir finna að hlið var þar fyrir grindlæst og búið
um vel.
Helgi
mælti: "Vita muntu hvar við erum komnir."
"Nei,"
sagði Grímur, "heldur fer það fjarri því að hér hef eg aldrei
komið fyrr svo að eg muni."
"Ekki
er mér það," segir Helgi. "Kenni eg víst hvar við erum komnir.
Þetta er hofgarður Bessa fóstra míns en hér eru brunnar fyrir
ofan og höfum við þar komið að áðan á ísinn en nú hefur okkur
hér að borið." Þar heitir að Bessabrunnum.
Grímur
mælti: "Förum við í burtu héðan sem skjótast."
"Nei,"
sagði Helgi, "koma skal eg hér inn því að eg vil sjá híbýli
þau er hér eru fyrir."
Hann
gengur þá að hliðinu og rekur hjölt brandsins upp á lásinn og
braut frá, ganga síðan að hofinu og brjóta upp. Þeir ganga inn
í hofið.
Þá
tekur Grímur til orða: "Illa gerir þú nú frændi er þú ferð hér
með svo miklu harki og þú spillir hér hvervetna. Veit eg að
Bessa fóstra þínum muni stórilla líka ef hann verður var við."
Helgi
svarar: "Vita vil eg hversu dólgar þessir séu viðtakna því að
ei er víst að eg þurfi meir í annað sinn en nú. Munu þau þá
eigi annað sinn góð ef þau gefast nú illa."
Þá
gengur Helgi inn í hofið og sér að þar er ljóst svo að hvergi
ber skugga á. Þar var allt altjaldað. Setið var þar á báða
bekki. Þar glóaði allt í gulli og silfri. Þeir blígðu augum og
buðu ekki þeim er komnir voru. Í öndvegi á hinn óæðra bekk
sátu þeir í samsæti Freyr og Þór.
Helgi
snarar fyrir þá og mælti svo: "Þar sitjið þið, herjans
synirnir. Munu þeim þykja þið vera sæmilegir höfðingjar sem
ykkur dýrkar. Nú ef þið viljið að við bræður trúum ykkur sem
aðrir þá standið þið upp og sýnið risnu af ykkur og bjóðið
okkur bræðrum því að nú er vont veður úti. Nú ef þið viljið
því játa þá munum við bræður trúa yður sem aðrir menn. En ef
þið skjótið drambi á og viljið ekki liðsinni veita okkur þá
munum við ekki tal af ykkur halda."
Þeir
skjóta drjúglæti á og þegja við. Þá snýr Helgi um þvert gólf.
Þar sátu þær Frigg og Freyja. Hann mælti þessi hin sömu orð
við þær sem áður. Kvaðst hann mundu veita þeim blíðu ef þær
vildu veita betur honum.
Grímur
mælti nú: "Gerðu svo vel að þú skipt ei lengur orðum við
andskota þessa og förum nú í burt."
Helgi
mælti: "Ei skal mér það verða sem flestum að eg renni þar á
garðinn sem lægstur er."
Hann
þrífur þá til þeirra Þórs og hnykkir þeim af stólinum og
flettir af þeim klæðunum, lætur svo ganga koll af kolli að
hann flettir öll goð af klæðum og gripum og steypir þeim af
stöllum og á gólf fram. Hann ber þá allt fram í eina hyrning
og byrgir svo að eigi mátti spillast.
Grímur
mælti: "Þetta er ill bellivísni ef þeim er ekki eftirlæti í en
þú munt sitja fyrir fjandskap Bessa fóstra okkars. Er þetta
illverk orðið."
Helgi
svarar: "En eg ætla að eg hafi aldrei unnið betra verk en
þetta á minni ævi því að þau hafa villtan stig fyrir mér í dag
því að eg hefi aldrei fyrr villur farið á ævi minni."
Helgi
gengur út og lætur opið hofið. Stendur nú fok um
allt húsið. Helgi snýr nú ofan að ánni og upp eftir nesinu
uns þeir komu á Víðivöllu. Þá var af dagsetri. Þar
var tekið við þeim með blíðu. Þeir eru þar nokkrar nætur. Þá
léttir af veðrinu. Droplaug var löngum á tali við sonu sína.
Vissu ekki aðrir menn til hvað erindum var. Síðan fara þeir heim
er þeim þykir ... (Hér þrýtur söguna.)