1. kafli
Haraldur konungur gullskeggur
réð fyrir Sogni. Hann átti Sölvöru, dóttur Hundólfs jarls, systur Atla jarls
mjóva. Þeirra dætur voru þær Þóra er átti Hálfdan konungur svarti
Upplendingakonungur og Þuríður er átti Ketill helluflagi. Haraldur konungur
ungi var son þeirra Hálfdanar og Þóru. Honum gaf Haraldur konungur gullskeggur
nafn sitt. Haraldur konungur gullskeggur andaðist fyrst þeirra en þá Þóra, þá
Haraldur ungi síðast og bar svo ríkið undir Hálfdan svarta en hann setti þar
yfir Atla jarl hinn mjóva. Síðan fékk Hálfdan konungur Ragnhildar, dóttur
Sigurðar konungs hjartar. Áslaug var móðir Sigurðar hjartar, dóttir Sigurðar
orms í auga, Ragnarssonar loðbrókar. Móðir Sigurðar orms í auga var Áslaug,
dóttir Sigurðar Fáfnisbana, Sigmundarsonar, Völsungssonar, Rerissonar,
Sigarssonar, Óðinssonar er réð fyrir Ásgarði. Móðir Áslaugar var Brynhildur
Buðladóttir. Son Hálfdanar svarta og Ragnhildar var Haraldur er fyrst var
kallaður Dofrafóstri, þá Haraldur lúfa en síðast Haraldur hinn hárfagri.
Þá er Haraldur hinn hárfagri
gekk til ríkis í Noregi mægðist hann við Hákon jarl Grjótgarðsson og fékk hann
þá Sygnafylki Hákoni mági sínum en Haraldur konungur fór í Vík austur. En Atli
jarl vildi eigi laust láta ríkið fyrr en hann fyndi Harald konung. Jarlarnir
þreyttu þetta með kappi svo að hvortveggi dró lið saman. Þeir fundust á Fjölum
í Stafanesvogi og fékk Hákon jarl sigur en Atli jarl varð sár og var fluttur í
Atlaey og dó þar úr sárum.
Atli jarl átti eftir þrjá
sonu. Hét einn Hallsteinn, hann var elstur og vitrastur þeirra bræðra, þá
Hersteinn og Hólmsteinn. Hallsteinn átti Þóru Ölvisdóttur. Þeir bræður lágu í
hernaði.
2. kafli
Björnólfur hét maður en annar
Hróaldur. Þeir voru ágætir menn. Þeir voru synir Hrómundar Gripssonar. Þeir
fóru af Þelamörk fyrir víga sakir og staðfestust í Dalsfirði á Fjölum. Son
Björnólfs hét Örn er réð fyrir Firðafylki. Hans son var Ingólfur en dóttir
Helga. Bæði voru þau fríð að sjá. En son Hróalds var Hrómundur, faðir Leifs.
Þeir Ingólfur og Leifur voru frændur og fóstbræður. Móðir Leifs var Hróðný,
dóttir Ketils bifru Hörða-Kárasonar. Þá var Ingólfur tuttugu vetra er þetta var
en Leifur átján vetra.
Ingólfur gekk fyrir föður
sinn og segir honum að hann vill halda í hernað og bað hann afla nokkurs. Leifur
gekk og fyrir sinn föður, biðjandi hann slíks hins sama og voru þeim gefin mörg
langskip. Biðja nú síðan samlags við sonu Atla jarls. Þeir voru fúsir þessa við
Ingólf. Það voru lög í þann tíma að eigi skyldi yngri maður vera í herförum en
tuttugu vetra en ellegar vildu þeir gjarna Leif í lög taka.
Leifur svarar: "Ef vér
komum í nokkura raun sjáum þá ef eg stend að baki öðrum. Gefist eg eigi verr en
aðrir þá á eg ekki að gjalda æsku minnar."
Ingólfur sagði þá báða fara
skyldu ella hvorugan. Verður það af kjörum að þeir fara allir saman og leggjast
í hernað og er svo sagt að Leifur var hvatur og röskur í öllum mannraunum.
Ingólfur var vitur maður og ágætur í öllum atlögum og allri karlmennsku. Þeim
varð gott til fjár um sumarið og komu heim um haustið. Hrómundur var þá
andaður, faðir Leifs.
Nú mæla þeir mót með sér
annað sumar og héldu þá enn í hernað allir saman og fengu þá miklu meira
herfang en hið fyrra sumarið. Og sem þeir komu heim um haustið var Örn faðir
Ingólfs andaður.
Hallsteinn býður þeim
fóstbræðrum Ingólfi og Leifi heim til veislu og það þágu þeir. Og að skilnaði
gaf hann þeim góðar gjafir.
Síðan buðu þeir fóstbræður
þeim jarlssonum til veislu. Þeir bjóða og að sér miklu fjölmenni og vilja eiga
undir sjálfum sér meira en öðrum ef nokkuð kann í að skerast. Nú koma þeir
bræður til veislunnar og er mönnum skipað í sæti. Helga bar öl að veislunni.
Hún var allra kvenna vænst og kurteisust.
Svo er sagt að Hersteinn
lítur oft til hennar blíðlega og að þessari veislu strengdi hann þess heit að annaðhvort
skyldi hann Helgu eiga eða enga konu ella. Kvaðst hann nú fyrstur hafið hafa
þenna leik "og áttu nú Ingólfur," segir hann.
Ingólfur svarar:
"Hallsteinn skal nú fyrst um mæla því að hann er vor vitrastur og vor
formaður að öllu."
Hallsteinn mælti: "Þess
strengi eg heit þó að mér sé vandi á við menn að eg skal eigi halla réttum dómi
ef mér er trúað til dyggðar um."
Hersteinn mælti: "Eigi
er þessi heitstrenging þín þeim mun skýrlegri sem þú ert reiknaður vitrari en
vér eða hversu muntu gera ef þú átt við vini þína um eða óvini?"
Hallsteinn svarar: "Þar
ætla eg mér sjálfum fyrir að sjá."
"Þess strengi eg
heit," segir Ingólfur, "að skipta við engan mann erfð nema
Leif."
"Eigi skiljum vér
þetta," segir Hersteinn.
Hallsteinn kvaðst gerla kunna
þetta að sjá, "Leifi vill hann gifta Helgu systur sína."
Leifur strengdi þess heit að
vera eigi verrfeðrungur.
Hallsteinn svarar: "Eigi
mun mikið fyrir því, því að faðir þinn fór fyrir illvirkja sakir af Þelamörk og
hingað."
Nú þrýtur veisluna og er ekki
til samfara mælt af Hersteins hendi. Fóru jarlssynir heim frá veislunni og sátu
í búum sínum um veturinn og svo þeir fóstbræður og er nú allt kyrrt.
3. kafli
Um vorið vill Leifur í hernað
en Ingólfur latti þess og sagði þeim vera mál að setjast um kyrrt að búum sínum
"og muntu muna heitstrengingar þær er fram fóru."
Leifur svarar: "Þú ræður
fóstbróðir þínum ferðum en fara mun eg. Held eg skjótt undan ef ófriðlegt
er."
Ingólfur kvað hann slíku
mundu ráða. Skilja þeir nú við þetta. Fer Leifur í hernað og fundust þeir
jarlssynir, Hersteinn og Hólmsteinn, við Hísargafl. Þeir leggja að Leifi þegar
og slær þar þegar í bardaga. Hafði Leifur þrjú skip en þeir bræður sex skip.
Vinna þeir nú skjótt skip af Leifi.
Af stundu sjá þeir að sigla
að þeim fimm skip. Stendur maður á mesta skipinu við siglu, mikill og fríður, í
grænum kyrtli og hafði gylltan hjálm á höfði, og mælti: "Við mikinn
liðsmun áttu nú að etja frændi," sagði hann "og mun það drengilegra
að veita þér lið Leifur frændi."
Þar var kominn Ölmóður hinn gamli
Hörða-Kárason. Hann berst þá með Leifi og voru þau orustulok að Hersteinn
fellur en Hólmsteinn verður sár og flýr.
Ölmóður mælti þá: "Far
þú heim með mér eftir stórvirki þessi."
Leifur mælti: "Skammt er
heim í Fjörðu og hefir þú mikið lið og gott mér veitt frændi. Vildi eg gjarna
að þú færir heim með mér."
Eftir þetta skildu þeir og
heldur Leifur til móts við Ingólf og sagði honum allt hversu farið hafði.
Ingólfur segir mikið vera að orðið og biður þá báða saman vera og svo gerðu
þeir og héldu fjölmennt um veturinn. Þann sama vetur fór Hólmsteinn að þeim
Ingólfi og Leifi og vildi drepa þá. En þeir fengu njósn af ferð hans og fóru í
móti honum. Varð þá enn orusta mikil og féll þar Hólmsteinn. Eftir það dreif
lið að þeim fóstbræðrum, vinir þeirra og frændur úr Firðafylki. Voru þá sendir
menn til Hallsteins og bjóða sættir með því móti að þeir vilja leggja undir dóm
Hallsteins. Sagðist Ingólfur honum vel trúa til réttdæmis og bað hann muna
heitstrenging sína.
Hallsteinn kvað nú mikið að
orðið "og er nú mikill vandi í að dæma þetta mál," og hefur svo sína
ræðu: "Hersteinn bróðir minn líst mér sem unnið hafi til óhelgi sér og vil
eg eigi fé fyrir hann dæma né mannsektir en Hólmsteinn fór til hefnda eftir
bróður sinn og því dæmi eg fyrir dráp hans fallnar eignir ykkrar og báða ykkur
burtu héðan úr Firðafylki áður þrír vetur eru liðnir ella fallið þið
óhelgir."
"Slíks var að von,"
sagði Ingólfur.
Síðan bjuggust þeir bræður út
til Íslands sem segir í Landnámabók. Við Ingólf er kenndur Ingólfshöfði
sunnanlands. Og lýkur þar nú þeirra viðskiptum.
4. kafli
Eftir fall Atla jarls mjóva
safnaði liði Sigurður jarl, son Hákonar gamla, með ráði Haralds konungs hins
hárfagra og vildi drepa Hallstein. Við þetta stökk Hallsteinn undan og út til
Íslands fyrir þessum ófriði sem þá gerðu margir gildir menn, að þeir flýðu óðul
sín fyrir ofríki Haralds konungs og unnu áður stórvirki nokkur. Hallsteinn
skaut setstokkum fyrir borð í hafi til heilla sér eftir fornum sið. Þeim sveif
á land þar sem síðan heitir Stokkseyri en skipið kom í Hallsteinssund fyrir
austan Stokkseyri og braut þar. Setstokkarnir komu fyrir dyr á Stálfjöru fram
frá Stokkseyri. Víða höfðu menn þá land numið.
Hallsteinn nam land milli Rauðár
og Ölfusár upp allt til Fúlalækjar, Breiðamýri alla upp að Holtum og bjó að
Stjörnusteinum. Hallsteinn átti Þóru Ölvisdóttur. Atli og Ölvir voru synir
þeirra. Hallsteinssund er fyrir austan Stokkseyri þar sem braut skip
Hallsteins. Öllum mönnum þótti mikils vert um Hallstein. Sagðist hann skyldu
hér ílendast. Var mönnum mikil aufúsa á því þeim er í nánd honum voru og þótti
mikill höfuðburður að honum sakir ættar hans. Varð Hallsteinn mikilmenni og
andaðist hann í elli sinni.
Og eftir andlát hans skiptu
þeir bræður með sér erfðum. Bjó Ölvir að Stjörnusteinum. Það heita nú
Ölvistóftir. Hafði Atli í móti allt landnám milli Rauðár og Ölfusár, Traðarholt
og Baugsstaði.
Ölvir andaðist ungur. Tók
Atli þá allan arf eftir hann og gerðist mikilhæfur maður. Þræll hans hét
Brattur. Hann var honum hollur í sýslu sinni. Honum gaf Atli frelsi. Hann bjó í
Brattsholti. Slíkt sama gerði hann við annan er Leiðólfur hét. Hann bjó á
Leiðólfsstöðum. Þeir voru mikilhæfir menn og vel vingaðir og hollir mjög Atla.
5. kafli
Hallsteinn hét maður. Hann
fór úr Sogni til Íslands. Hann var mágur Hallsteins Atlasonar. Honum gaf hann
hinn ytra hlut Eyrarbakka. Hann bjó á Framnesi. Hans son var Þorsteinn er
veginn var að fauskagreftri. Hans son var Þorbjörn er bjó á Framnesi.
Í þenna tíma kom út Loftur
son Orms Fróðasonar.
Nú er að segja frá Atla að
hann var ríkur maður og hlutdeilinn og líkur í mörgu lagi frændum sínum.
Loftur fór af Gaulum til
Íslands ungur að aldri og nam land á milli Þjórsár og Rauðár upp til
Skúfslækjar, Breiðamýri upp til Súluholts, og bjó í Gaulverjabæ og Oddný móðir
hans, dóttir Þorbjarnar hins gaulverska. Loftur fór utan hið þriðja hvert sumar
fyrir hönd þeirra Flosa beggja móðurbróður síns að blóta að hofi því er
Þorbjörn móðurfaðir hans hafði varðveitt að Gaulum. Frá Lofti er mart stórmenni
komið. Þá kom út Þorviður bróðir hans af Vörs. Loftur gaf honum land á
Breiðamýri og bjó hann í Ossabæ. Hans börn voru þau Hrafn og Hallveig. Þessir
menn voru nú allir samtíða.
6. kafli
Flosi Þorbjarnarson
móðurbróðir Eyrar-Lofts drap þrjá sýslumenn fyrir Haraldi konungi hárfagra og
fór eftir það til Íslands. Hann nam land fyrir austan Þjórsá, Rangárvöllu alla
hina eystri austur frá Rangá. Hans dóttir var Ásný móðir Þuríðar er átti
Valla-Brandur. Son þeirra var Kolbeinn, faðir Þórunnar, móður Lofts prests,
föður Jóns, föður Sæmundar, föður Margrétar, móður Brands, föður Kálfs.
Össur hét maður hinn hvíti,
son Þorleifs úr Sogni. Össur vó víg í véum á Upplöndum þá er hann var í
brúðferð með Sigurði hrísa. Fyrir það varð hann landflótti til Íslands og nam
fyrst öll Holtalönd á milli Þjórsár og Hraunslækjar. Þá var hann fimmtán vetra
er hann vó vígið. Hann fékk Hallveigar dóttur Þorviðar. Þeirra son var
Þorgrímur kampi. Hann var faðir Össurar, föður Þorbjarnar, föður Þórarins,
föður Gríms Jórusonar. Össur bjó í Kampholti. Hann andaðist þá er Þorgrímur var
ungur. Þá tók við fjárvarðveislu Hrafn móðurbróðir hans.
Böðvar hét maður. Hann var
leysingi Össurar. Hann bjó á Böðvarsstöðum við Víðiskóg. Honum gaf Össur hlut
nokkurn í skóginum, mælti svo fyrir að hann skildi sér skóginn ef misdauði
þeirra yrði og ætti Böðvar engan erfingja eftir.
Örn hét maður. Hann bjó í
Vælugerði. Hann átti Þorgerði Baugsdóttur, systur Steins snjalla í
Snjallshöfða.
Erni varð vant um haustið sex
tiga geldinga og hefir eigi góðan róm á Böðvari og ber á brýn honum að hann
muni tekið hafa. Böðvar duldi þess og unni honum engra bóta fyrir, þóttist
sitja í trausti ríkra manna er Hrafn var Þorviðarson, frændi Eyrar-Lofts. Um
vorið stefnir Örn Böðvari um stuld. Þykist Böðvar sér nú eigi einhlítur um vörn
málsins og sækir að Atla Hallsteinsson því að hann var honum nær en Hrafn og
tjáir honum málið. Atli segir að eigi sé örvænt að menn finni gagnsakir í máli
Arnar. Eftir það tók Atli við öllu fé Böðvars með handsölum. Stendur nú svo til
þings. Á þingi er mál búið til sóknar á hendur Böðvari og kom málið í dóm.
Þá gekk að dómum Atli með
fjölmenni og bað Örn fella niður málið "ellegar mun eg ónýta það fyrir
þér."
Örn kvaðst ætla að eigi mundi
ónýtt verða nema með ofríki. "Má vera," segir Örn, "að torsótt
verði að eiga við jarlborna menn sem þú ert Atli. Hygg eg að meir eyðir þú
málið fyrir fégirni þína en réttindi sem frændur þínir hafa gert."
Við þessi orð varð Atli
reiður mjög og eyðir málið fyrir Erni og hrekur hann sem mest af málinu.
7. kafli
Litlu síðar andast Böðvar.
Eftir andlát hans kallaði Hrafn til Víðiskógsins fyrir hönd Þorgríms kampa og
bannar Atla afneyslu skógarins og sagði honum máldaga þeirra Össurar og Böðvars
og leiddi vitni um. Atli kvaðst ætla að láta eigi sitt fyrir Hrafni, kvað hann
lítt minnast á það er faðir hans gaf honum sitt land. Hrafn kvað það fyrir
löngu aftur bætt og kvaðst vilja hafa sitt. Atli varnaði honum skógarins og
skildu að því.
Einhvern dag býr Atli ferð
sína til Víðiskógar. Leiðólfur leysingi hans var í ferð með honum og húskarlar
tveir. Þeir hjuggu skóginn.
Það er sagt að sauðamaður
Hrafns hafði gengið að fé um daginn. Hann getur að líta hvar þeir eru í
skóginum. Hann hleypur heim sem skjótast og segir Hrafni að Atli mun nú hafa
nytjar af skóginum "slíkar sem honum sýnist. Höggva þeir þar sem bestur er
skógurinn og er það að vonum að ekki hafir þú þrek við jarlbornum mönnum."
Hrafn varð mjög reiður við
þessa sögu og býr ferð sína þegar og fer við hinn átta mann þar til er þeir
komu í dal þann er síðan er kallaður Orustudalur og þar finnast þeir Atli.
Þá mælti Atli: "Við
liðsmun viltu nú etja Hrafn."
"Það skal fyrirfurða um
burðamuni," segir Hrafn.
Þegar slær í bardaga með þeim
og sækjast þeir Atli og Hrafn og verða þeirra viðskipti harðfeng. Leiðólfur
verst og vel og vill nú launa frelsisgjöfina og um síðir vill hann flýja og
féll hann þá og hafði þó mann fyrir sig. Atli drap einn húskarl Hrafns og sótti
Hrafn hann þó. Tveir féllu menn Hrafns en Atli var þá særður til ólífis.
8. kafli
Önundur bíldur hét maður og
var landnámsmaður. Hann nam land fyrir austan Hróarslæk og bjó í Önundarholti.
Hann átti Þorgerði dóttur Sigmundar Sighvatssonar rauða. Sigmundur var faðir
Marðar gígju.
Önundur kom nú að skilja þá
Atla og Hrafn og fylgdi Atla heim og bað hann til sín fara "og skal eg
veita þér öll hægindi."
Atli kvað það vel boðið en
heim kvaðst hann vilja í Traðarholt og lét eigi örvænt að það fylgdi nafni að
hann dæi af sárum sem Atli jarl föðurfaðir hans.
Þórður hét son Atla. Hann var
níu vetra er þetta var tíðinda.
Atli heimti hann til sín og
kvaðst ætla að hann mundi af sárum deyja. "Áttu," segir hann,
"allt fé eftir mig. Og ef þú ert þínum frændum líkur þá muntu hefna föður
þíns og svo segir mér hugur um að þú munir verða mikill fyrir þér og þínir
ættmenn."
Eftir það andaðist Atli heima
í Traðarholti og var hann heygður sem þá var siðvenja til. Þórður tók við fé
öllu og ráðum eftir föður sinn. Hann var fríður sýnum og bráðþroskaður og
mikill fyrir sér.
Ölvir hét son Atla annar og
kallaður Ölvir mjóvi. Þeir bræður voru óskaplíkir. Þórður varðveitti bú í
Traðarholti en Ölvir réðst í kaupferðir þegar á unga aldri og var áburðarmaður
mikill. Síðan réðst hann í hernað og var hinn mesti víkingur. Að lyktum settist
hann að búum í Sogni og kom aldrei til Íslands. Þá réð fyrir Noregi Eiríkur
blóðöx.
9. kafli
Þá var Þórður fimmtán vetra
gamall er hann hugsar um föðurhefndir. Hrafn var garpur mikill en Þórður
þóttist ungur.
Svo er sagt eitthvert sinn að
Þórður frétti að Hrafn var riðinn út í Einarshöfn til skips og var einn í reið
og ætlaði heim um kveldið. Hrafn var í blárri kápu og gyrður sverði og hafði
spjót mikið í hendi og gullrekinn á falurinn. Þeir feðgar höfðu átt spjót það.
Hann hafði eigi við bardaga búist. Þórður situr fyrir Hrafni hjá Haugavaði ofan
frá Traðarholti einn samt. Hann hafði spjót í hendi og vill nú annaðhvort hefna
föður síns eða fá bana. Og um kveldið er Hrafn ríður heim hljóp Þórður að honum
óvörum og lagði á honum spjótinu. Hrafn féll af baki og skildi Þórður við hann
dauðan og er þar haugur hans fyrir austan götuna en fyrir vestan er Atlahaugur
og Ölvishaugur og Hallsteinshaugur.
Þórður fer nú heim og þykir
hann vaxið hafa af þessu verki. Síðan er leitað um sættir við Þórð af mágum
Hrafns og frændum. Þórður kvaðst það mundu sýna að hann var engi ójafnaðarmaður
en kvað sig nauðsyn til reka að hefna föður síns, kvað það skyldu sína sætt að
í faðma féllist allt það er í hafði gerst. Þessi sætt játtuðu frændur Hrafns
því að þeim þótti þetta engi ójafnaður og sættust heilum sáttum.
Þórður gerðist ágætur maður.
Hann fékk Þórunnar, dóttur Ásgeirs austmannaskelfis. Var hann af því svo
kallaður að hann drap skipshöfn í Grímsárósi fyrir það er hann var áður ræntur
af þeim. Ásgeir var hið mesta mikilmenni. Þórunn var og skörungur mikill.
Þórður eignaðist skóg þann er
þeir höfðu deilt um.
Þá er Þórður hafði tvo vetur
og tuttugu þá keypti hann skip í Knarrarsundi og vildi utan fara og heimta
erfðir sínar þær er frændur hans höfðu átt í Sogni og konungur hélt og kvað
Þórunni fara skyldu en hún kvaðst vilja eftir vera og kvað það ráðlegra. Þórður
reiddist við þessi orð og tók mikið fé er hann átti og fal í jörðu.
Þórunn mælti þá: "Það
máttu gera að fela féið en svo segir mér hugur um að litlar nytjar munir þú
hafa fjár þess er þú átt í Noregi og svo hér."
Síðan tók hún við öllum
eignum þeirra.
10. kafli
Þorgils hét son þeirra. Hann
var tvævetur er Þórður fór utan. Það skip hvarf og spurðist ekki til síðan. Og
vetri síðar kom út Þorgrímur örrabeinn í Knarrarsundi. Hann var Þormóðarson.
Hans móðir var Þuríður Ketilbjarnardóttir að Mosfelli. Þorgrímur var
hraustmenni mikið. Hann var í Traðarholti um veturinn með Þórunni og var henni
hið mesta traust að honum og líkaði henni vel við hann og bað hann með sér
dveljast og ráða sjálfan kaupi. Hann kvaðst það vilja og mælti til samfara við
hana, kvaðst ellegar eigi þar vera mundu hjá henni nema hún giftist honum. Hún
hugsar þetta með ráði vina sinna og frænda. Það var þrem vetrum síðar ... því
að hún vildi reynast hugum við hann og skap sitt. Þá er þrír vetur voru liðnir
fékk hann Þórunnar og voru samfarar góðar þeirra í milli.
Þorgrímur þótti hinn mesti
garpur og heldur ódæll. Hafði hann verið víkingur og víða af því öróttur og af
því var hann kallaður örrabeinn en Þorgils stjúpson hans var kallaður
örrabeinsstjúpur. Þorgrímur var góður forstjóri héraðsins. Hann var vel til
Þórunnar og sonar hennar Þorgils. Þar stóð mikið fé saman er þau áttu öll.
Það er sagt eitt sumar er
menn komu til mannamóts í fjörbaugsgarð til Lóns. Þá var Þorgils fimm vetra er
hann fór þangað og vildi vera að sveinaleik, markar sér völl og kvaðst vilja að
vera. Sveinar sögðust hafa sannmælst á að sá einn skyldi að leiknum vera er
nokkuru kvikindi hefði að bana orðið. Réðst Þorgils þá frá leikinum og þótti þó
illa er hann var fráskila ger. Um kveldið fara menn heim.
Þorgrímur var að öllu fé
auðugur. Hann átti mart kvikfé bæði sauði og naut. Einn hestur hét Illingur er
hann átti. Það var klár ókostigur. Og er menn voru sofnaðir um nóttina þá vakir
Þorgils og íhugar sitt mál og vildi eigi oftar úr leikinum ger vera. Hann stóð
upp og tekur sér beisl og gekk út síðan og sá hross hjá garði. Hann snýst
þangað til og tekur hestinn Illing og leiðir til húss nokkurs. Síðan tekur hann
spjót í hönd sér og gengur að hestinum og rekur spjótið í kviðinn og fellur
hann dauður niður. Þorgils leggst niður síðan.
Um morguninn er mönnum var
til verks skipað biður Þorgrímur heim reka Illing en hann fannst eigi. Var
Þorgrími sagt þetta. Hann kvað hestinn þar verið hafa um kveldið og bað enn
leita. Fara þeir og finna dauðan hestinn, segja Þorgrími. Hann kvaðst eigi sjá
mann til þess að girnast að eiga illt við hann.
Þorgils svarar: "Eg veld
því að hesturinn er dauður."
Þorgrímur spurði hví hann
gerði það. Þorgils sagði hver sök til var.
"Ekki munum við eiga
skap saman," sagði Þorgrímur, "far þú nú til Lofts vinar þíns því
eigi verðum við samlyndir."
11. kafli
Eftir það fór Þorgils í burt
hinn sama dag og til Lofts. Tók hann við honum ágæta vel.
Svo er sagt að Þorgils var
fríður maður sýnum og drengilegur í viðbragði og skýrlegur, hár á vöxt og
réttvaxinn, sterkur að afli, harðger og skjótráður, gegn og öruggur, örðigur og
manna best vígur og hinn hraustasti í öllum mannraunum þegar honum dróst aldur
sem frá mun verða sagt. Hann var stórlyndur og þó stöðugur, hjartaprúður og
hugstór, stóðst vel margar mannraunir er hann hlaut að bera.
Það er sagt þá er Þorgils var
níu vetra gamall beiddist hann að róa á sjó með húskörlum Lofts og var það
eftir honum látið sem mart annað. Þorgils kastaði færi sínu fyrir borð og dró
einn mikinn flatan fisk en engi annar veiddi um daginn. Og er hreggið tók að
vaxa reyndist það að Þorgils hafði numið að róa þótt hann væri ungur. Síðan lögðu
þeir að landi. Loftur kvað í slíku marka mega hver hann mundi verða. Ganga nú
heim og dró Þorgils eftir sér fiskinn. Er hann gekk eftir götunni þá losnaði
moldin þar er hann dró fiskinn og kenndi er varð fyrir nokkuð hart. Lítur hann
þá til og sér að þar liggur silfurbaugur. Nú fara þeir heim og selur Þorgils
Lofti bauginn, fóstra sínum, til varðveislu.
12. kafli
Vetri síðar varð sá atburður
að þrælar nokkurir brutu haug til fjár sér en Þorgils kom að þeim og kvað það
ekki vera þeirra fé og tók af þeim þrjár merkur en hrakti þá sjálfa. Hann fékk
Lofti fé þetta og svo allt annað það er hann aflaði. Varð hann nú frægur mjög
þótt hann væri ungur.
Þá er Þorgils var fimmtán
vetra þá fýstist hann utan að fara. Var hann vel þroskaður bæði að viti og
afli. Hann beiddist fjárskiptis af Þorgrími stjúpföður sínum. Loftur bað hann
dveljast hjá sér enn um veturinn og kvað hann mundu síðar að öllu meira fram
koma. Hann gerði svo og er hann var sextán vetra beiddist hann enn fjárskiptis.
Þorgrímur kvað þess enn eigi kost
"því ósvinnri líst mér þín fjárvarðveisla en mín."
Þorgils kvaðst nú hafa vilja
féið "en ef eg fæ nú eigi þá mun eg fá í þriðja sinn er eg heimti" og
fer síðan og segir Lofti. Loftur kvað það hug sinn að Þorgrímur mundi eigi
fyrir standa þá er Þorgils heimti næst. Fékk Loftur honum þá fé til utanferðar.
Þorgils kvaðst lítið fé hafa vilja að sinni.
Og er hann er búinn til
ferðar kallaði hann til sín leiksveina og kvaðst vilja launa þeim gleði og góða
fylgd "skuluð þér hér taka þrjár merkur silfurs er eg tók af þrælunum en
Loftur fóstri minn skal hafa bauginn og vingan mína."
Eftir það fór Þorgils utan í
Knarrarsundi með lítið fé og kom til Noregs um haustið og var með þeim manni um
veturinn er Ólafur hét. Hann bjó á Hörðalandi. Hann var ríkur maður og vel
vitur.
Í þenna tíma réð Haraldur
gráfeldur Noregi með öðrum bræðrum sínum og Gunnhildur konungamóðir. Þau fóru
að veislum um veturinn sem þá var siður til. Ólafur bjó veislu í móti konungi
og móður hans með mikilli vegsemd. Og er þau höfðu að veislunni verið um hríð
þá spurðu þau hver sá væri hinn mikli maður og hinn veglegi er þar var.
Ólafur svarar: "Hann er
íslenskur."
Konungur sagði að hann mundi
vera mikillar ættar "því að hann hefir þess háttar yfirbragð."
Þorgils var í leikum með
konungi og þótti honum mikið gaman að honum og gengu Þorgilsi allir leikar vel.
Þá mælti konungur: "Þig
mun eg kalla Þorgils kappa minn."
Þorgils sagði þá konungi sig
eiga stórar erfðir í Sogni eftir göfga frændur sína.
Konungur svarar: "Móðir
mín hefir nú bú á jörðum þeim og hún hefir á þeim allt forræði, því hyllstu
hana að og mun þér þá vel duga."
Þorgils kemur nú á þetta mál
við Gunnhildi. Hún svarar þessu vel og bauð honum hirðvist með konungi. Þorgils
kvaðst lítt við látinn að vera með konungshirð og kvað nei við því. Drottning
varð reið og spyrnti fæti sínum til hans og hratt honum frá hásætinu og varnaði
honum þá fjárins og sagði hann eigi kunna að þiggja sóma sinn.
Konungi var vel til hans og
gaf honum silfur á laun svo að það var góður kaupeyrir.
"Má hér af
græðast," segir konungur, "ef gæfa vill til og vitja mín kunnlega og
allra helst ef móðir mín er eigi nær."
Síðan fór konungur frá
veislunni.
13. kafli
Um vorið segir Þorgils Ólafi
að hann vill fara kaupferð um sumarið og leita svo undan ójafnaði Gunnhildar.
Ólafur lét vel yfir því. Var Þorgils í kaupferð um sumarið og tókst það vel. En
um haustið kom hann í Vestur-Víkina og fer til konu einnar er Gyða hét. Hún var
ekkja. Son átti hún er Auðunn hét. Þau veittu honum bæði af hinni mestu dyggð.
Gyða var margkunnandi á fyrnsku og fróðleik. Auðunn var vel til Þorgils og
mælti til vináttu er hann fór í brott.
Eftir það fór Þorgils til
eins ríks manns er Björn hét og var þar vel haldinn. Þar voru góð híbýli og
heldur snemma háttað. Þorgils spurði hverju það gegndi. Honum var sagt að faðir
Bjarnar hafði fyrir litlu andast og það með að hann gengi aftur. Voru menn og
hræddir við hann. Þorgils gerðist rammur að afli.
Það var oft um veturinn að
Þorgils heyrði lamið úti um þekjuna. Og eina nótt var það að hann stóð upp, tók
öxi í hönd sér og gekk út. Hann sá draug fyrir dyrum standa, mikinn og
illilegan. Þorgils færir upp öxina en þessi snýr undan og til haugsins. Og sem
þeir koma þar snýr draugurinn á móti. Takast þeir fangbrögðum því að Þorgils
hafði sleppt öxinni. Var þeirra atgangur bæði harður og grimmlegur svo að upp
gekk jörðin undir fótum þeim. En að lyktum varð svo, með því að Þorgilsi var
lengra líf ætlað, að draugurinn fellur á bak aftur en Þorgils ofan á hann.
Tekur hann þar þá hvíld og nær síðan öxi sinni. Höggur Þorgils þá af honum
höfuð og mælir síðan yfir honum að hann skuli engum manni að meini verða. Varð
og aldrei vart við hann síðan. Björn virti Þorgils mikils er hann hafði gert
þar svo mikla híbýlabót.
Eina nótt bar það til að
lostið var högg á dyr. Gengur Þorgils út. Er þar kominn Auðunn Gyðuson vinur
hans. Þorgils heilsar honum vel og spyr hvað hann vill.
Auðunn kvaðst þurfa hans
liðsinnis, sagði móður sína Gyðu andaða og nokkuð orðið hafa kynlega um hennar
dauða "stukku og allir menn á brottu því að engir þorðu við að vera. Nú
vildi eg fara með hana til greftrar og fylgdir þú mér."
"Það skal vera,"
kvað Þorgils.
Síðan fer Þorgils með Auðuni
að óvitanda Birni, koma til bæjar Auðunar, finna þar húsfreyju dauða, búa nú um
líkið.
"Skaltu Þorgils,"
segir Auðunn, "gera kistu að móður minni og undir hnakka, reka síðan á
kistuna sterkar henkur því að þurfa mun þess alls við ef hlýða skal."
Er nú þetta allt saman gert.
Auðunn sagðist nú mundu gera
ráð fyrir kistunni "skulum við nú draga hana í burtu, færa niður í jörð og
bera á ofan sem mestan þunga."
Fara nú síðan. Og sem þeir
hafa farið um hríð tekur að braka mjög í kistunni og því næst bresta af
hankarnir og kemst Gyða úr kistunni. Þá fara þeir til báðir og tóku hana og
þurfti alls við og voru þeir báðir sterkir menn. Það taka þeir bragðs að þeir
flytja hana til báls er Auðunn hafði búið. Síðan kasta þeir henni á bálið og
voru hjá meðan hún brann.
Þá mælti Auðunn: "Mikla
vingan hefir þú mér nú sýnt Þorgils og góða karlmennsku sem þú munt í öllum
stöðum. Sverð og kyrtil vil eg gefa þér. En ef svo verður að eg kalli síðar til
sverðsins þá vildi eg að þú létir laust en eg mun fá þér annað vopn það er gott
er."
Nú skilja þeir við svo búið
og fer Þorgils aftur til Bjarnar.
Nú er þar til að taka að
Björn saknar Þorgils. Fær hann af þessu mikla ógleði og kvaðst þar misst hafa
góðs manns "og er það illa að tröll eða óvættir hafa tekið hann. Skulum
vér það þó gera í heiður við hann að drekka erfi hans og uggir mig að eigi megi
fagnaðaröl heita því að vér höfum nú leitað hans marga daga."
En um veislu þessa kom
Þorgils heim og verður Björn honum harðla feginn og eykur þá að nýju veisluna
og eftir hana fóru menn heim.
14. kafli
í þenna tíma tók Hákon
Hlaðajarl ríki í Noregi. Þá sagði Þorgils Birni að hann vildi leita eftir
eignum sínum í Sogni.
Björn svarar: "Réttlegt
er það. En uggir mig að Hákon jarl kalli sér bæði það og annað því hann er mjög
fégjarn og er óvænlegt um að hann vilji til láta við þig en flytja vil eg þitt
mál þá er hann kemur hér til mín."
Nú kemur jarl að ákveðnu til
veislunnar og flytur Björn fyrir honum mál Þorgils og sagði mikið frá vaskleik
hans og atgervi. Hákon jarl kvað það nú vera sína eign en kvaðst þó vilja sjá
manninn.
Og er Þorgils kom fyrir jarl
mælti Hákon til hans: "Mikill maður ertu og sterklegur, fríður sýnum og
líklegur til giftu, og vil eg bjóða þér til mín. Lítum síðan á þitt mál."
Þorgils kvaðst það þiggja
vilja.
15. kafli
Þorsteinn hét maður og var
kallaður hinn hvíti. Hann var lendur maður Hákonar jarls. Hann var vinsæll og
átti eignir nær jörðum Þorgils. Þeir lögðu mikla vingan saman og voru með jarli
báðir. Þorgils gaf Þorsteini kyrtilinn Auðunarnaut. Hann var af nýju skarlati.
Þá var og með Hákoni jarli Eiríkur rauði, íslenskur maður, er síðan fann og
byggði Grænland. Hann var ungur maður og kurteis og hinn mesti vin Þorgils.
Það var enn einn dag að
Þorgils vekur við jarl sitt mál um jarðirnar.
Hákon jarl svarar: "Vel
gest mér að framferð þinni en eigi er eg vís í að vita hver framkvæmdarmaður þú
munt verða. Mun eg og eigi þessar eignir upp gefa utan þú sýnir mér nokkurn
frama í gerðum þínum. Og skaltu heimta skatta mína af Suðureyjum er eg hefi
misst um þrjá vetur."
Þorgils biður hann fá
höfðingja til ferðarinnar "en eg mun fylgja honum sem manndómur minn er
til."
"Þú skalt formaður
vera," segir jarl, "fyrir ferð þessi því að þú reynir þeim mun meir
þína dáð og karlmennsku."
Þorgils mælti: "Lát fara
með mér Þorstein hvíta."
"Hann skal því
ráða," sagði jarl.
Þorsteinn kvaðst fara mundu
ef Þorgils vildi.
Nú búast þeir og höfðu tvö
skip og ekki mjög skipuð. En er þeir koma til Eyjanna beiða þeir skatta og
fengu lítið af. Um haustið héldu þeir til Kataness og brutu skip sín en týndu
fjárhlut. Menn héldust allir. Ólafur hét jarl er réð fyrir ríki því. Hann
frétti til manna Hákonar jarls og bað þá til sín fara. Það þiggja þeir og voru
þar um veturinn.
Surtur járnhaus hét maður,
víkingur mikill og hinn mesti illgerðamaður. Hann lá úti löngum um Vesturlönd.
Það var einn háttur hans ef konur voru fríðar og vel að sér að hann tók þær að
sér um hríðar sakir en menn þorðu eigi í móti honum að standa. Systir Ólafs
jarls hét Guðrún. Hún var fríð kona sýnum og vel að kvenlegum listum búin.
Surtur járnhaus finnur Ólaf þenna vetur og vill fá systur hans til frillu ella
til eiginorðs.
Ólafur svarar: "Það væri
mér lítill styrkur þó að þú gerðir sem best mættir þú en þá allra síst ef þú
ert ráðinn til illa að gera og mun eg neita þessu gjaforði."
Víkingurinn mælti þá:
"Gakk á hólm við mig ella berst við lið mitt og safna liði í móti."
Jarl mælti: "Betra er að
deyja virðulega en lifa skammsamlega."
"Þann kost kýst þú nú er
þér gegnir verr og þér mun minnisamur verða og ver níðingur ef þú kemur
eigi."
"Að vísu skal eg
koma," segir jarl, "í móti þér eða annar maður ella" og skildu
við svo búið.
Eftir það kvaddi jarl þings
og sagði þar fyrir hverju áfelli hann var orðinn "vil eg þeim manni gifta
Guðrúnu systur mína er Surti verður að bana því að eg veit að sá einn mun til
þess ráðast að mér mun engi ósæmd í því verða."
Engir urðu til að svara jarli
þótt ráðið þætti fýsilegt því mönnum þótti ills von af Surti járnhaus. Þeir
Þorgils og Þorsteinn ræddust við og þótti Þorsteini fýsilegt en Þorgilsi fannst
fátt um.
Þorsteinn mælti: "Viltu
þenna kost vinur?"
Þorgils svarar fá um. Síðan
sagði Þorsteinn jarli að hann mundi til ráða. Jarl tekur því vel.
Um nóttina eftir dreymdi
Þorgils að Auðunn vin hans kæmi að honum og mælti: "Þú sefur en jafnt mun
vera sem þú vakir. Þú skalt á hólm ganga við berserk þenna því að þér unnum vér
sæmdar. En Surtur þessi er bróðir minn og er hann mér þó ekki þarfur. Er hann
og hið mesta illmenni. Þess spyr hann jafnan þá er hann hefur háð hólmgöngur,
þann er hann skal berjast við, hvort hann hafi sverðið Blaðin en eg gaf þér það.
En þú skalt fela það í sandi og seg honum að þú vitir eigi hjölt þess fyrir
ofan jörð."
Eftir það hvarf Auðunn í
burt. Þorgils vaknar og sagði Þorsteini vin sínum drauminn.
16. kafli
Um morguninn fóru þeir
Þorgils og Þorsteinn með jarli til hólmstefnu og er Þorgils búinn til
hólmgöngu. Víkingurinn spurði um sverðið Blaðin. Þorgils kvaðst eigi vita hans
hjölt fyrir ofan mold. Þorgils dró nú sverðið upp úr sandinum og börðust síðan.
Og er þeir hafa barist um stund höggur Þorgils sporðinn af skildi Surts og
undan honum fótinn. En það voru þá lög að menn vógu til arfs þess er féll á
hólmi. Eftir það hjó Þorgils höfuð af Surti, tók síðan öll skip hans og fé og
fékk síðan Guðrúnar systur Ólafs jarls. Skorti Þorgils nú eigi menn né peninga.
Um vorið segja þeir jarli að
þeir vilji herja um sumarið. Nú halda þeir að Suðureyjum og gera þeim kost
hvort þeir vilja þola hernað og manndráp eða gjalda skatt Hákoni jarli. En þeir
kjöru að gjalda slíkt sem á var lagið. Síðan var allt lukt.
Eftir það fóru þeir austur til
Noregs og hitta Hákon jarl. Fagnar hann þeim vel. Þeir greiða honum féið og
gefa honum þó að auki sæmilegar gjafir. Jarl játtir Þorgilsi nú öllum eignum
sínum. Voru þeir með jarli um veturinn í góðu yfirlæti. Að sumri vilja þeir í
hernað en ætla til jarls að vetri.
Eina nótt kom Auðunn að
Þorgilsi og heimti að honum sverðið Blaðin "en eg mun fá þér fyrst öxi en
innan lítils tíma gott sverð."
Þorgils kvað hann víst hafa
skyldu sverðið. Auðunn bað hann hafa þökk fyrir og gaf honum fingurgull. En er
Þorgils vaknaði var sverðið burtu og þótti honum svipur að. Síðan herja þeir um
sumarið.
Gyrður hét víkingur er þeir
finna um sumarið undir ey einni. Um morguninn fór skúta frá skipum Gyrðs til
þeirra Þorgils og kvaðst Gyrður vilja gera félag við þá. Þetta fór fram og skal
Gyrður hafa jafnmörg skip og að helmingi allt hlutskipti. Herja nú um sumarið
og varð þeim gott til fjár, eyddu mjög illþýði og hernaðarmönnum en létu bændur
og kaupmenn fara í friði.
Þeir komu til Írlands um
sumarið. Var þar skógur fyrir er þeir komu að, gengu síðan upp í skóginn og í
einum stað sáu þeir fallið lauf af tré. Þeir kippa upp eikinni og finna þar
jarðhús undir. Þeir sjá menn með vopnum niðri í húsinu. Þorgils gerir sínum
mönnum kost að sá skal eignast þrjá kostgripi er fyrstur gengur í húsið en
allir játta því nema Gyrður. Eftir það hljóp Þorgils í húsið og varð þar engin
mótstaða. Þar lá klæði blátt og á tveir gullhringar og sverð gott. Þar voru og
tvær konur. Var önnur ung og fríð en önnur gömul og þó fríð. Þorgils gekk um
húsið og var víða berg undir. Hann hafði í hendi eina rótakylfu og barði henni
á báðar hendur og stökk flest undan. Þorsteinn fór með honum. Og er þeir gengu
úr jarðhúsinu tóku þeir konu þá hina yngri og fluttu með sér til skipa og svo
hina eldri. Nú sækir liðið fast eftir þeim en þeir Þorgils komast til skipa og
láta þegar frá landi. Nú gekk maður úr liðinu því er eftir sótti og mælti langt
erindi. Þeir skildu eigi hans mál.
Þá mælti kvinnan á norrænu og
sagði þeim að hann vildi upp gefa það er þeir höfðu fengið af fénu "ef þér
látið okkur lausar. Þessi maður er jarl og son minn en eg er víkversk að
móðurkyni. Munuð þér þá og best njóta gripanna er svo er gert því að þungi
fylgir sverðinu. Son minn heitir Hugi. Hann býður þér Þorgils fé heldur en þér
takið mig í burtu. Er yður og ekki happ í okkur burt að taka."
Þorgils hlýðir þeirra ráðum
og flytur þær til lands. Hugi jarl gekk með fagnaði á móti Þorgilsi og gaf
honum hring einn, annan móðir hans, mærin hinn þriðja og mæltu síðan vel fyrir
honum.
17. kafli
Eftir þetta vilja þeir
Þorgils og Þorsteinn hætta hernaðinum og skipta fjárhlut. Gyrður kallaði til
gripanna. Þorgils kvað þar marga vitnismenn til vera hvað skilið var. Gyrður
kvaðst aldrei játtað hafa og vill heldur berjast en missa gripanna.
Þorgils kvað ráðlegra að
leggja eigi allt lið í hættu "og reynum heldur tveir."
Því játtar Gyrður. Síðan
berjast þeir. Hafði Þorgils sverðið Jarðhússnaut og höggur til Gyrðs og undan
honum fótinn fyrir neðan ökkla, skildu við svo búið. Lifði Gyrður síðan og var
kallaður Gyrður hinn halti.
Eftir það fóru þeir til
Noregs og voru með Hákoni jarli um veturinn. Guðrún kona Þorgils fæddi þá
sveinbarn. Hann var Þorleifur nefndur. En er vorar vill Þorgils út til Íslands
til eigna sinna. Gaf Hákon jarl Þorgilsi aftur allar eignir sínar þær er hann
átti í Sogni og skildu þeir jarl með vináttu. Sat hann nú að búum sínum um
sumarið og svo um veturinn.
Þorgils sagði Þorsteini að
hann vill vitja eigna sinna á Íslandi "því þeir varðveita er mér er ekki
um. Hefi eg nú látið skip búa og flutt þangað til mikið fé en jarðir þessar er
eg á hér skaltu varðveita til handa Þorleifi syni mínum. Hefi eg þig reynt
góðan dreng. Mun eg nú og launa þér með einni gjöf. Skal eg gefa þér Guðrúnu konu
mína því það hefi eg fundið að þú hefir lagt ástarþokka til hennar þótt þú
hafir vel með því farið."
Þorsteinn þakkaði Þorgilsi
gjöfina og þótti mönnum mikils um þetta vert.
Þorgils fór kaupferð eina á
Upplönd og Svíþjóð og var um veturinn hjá bónda þeim er Þrándur hét. Hann var
auðigur maður og átti dóttur er Sigríður hét. Hana vildi eiga sá maður er
Randviður hét. Hann var illmenni og kappi mikill. Þrándur synjaði honum
ráðsins. Þá bauð Randviður Þrándi hólmgöngu þá er kölluð er kerganga. Skal þar berjast
í keri og byrgja yfir ofan og hafa kefli í hendi. Þrándur vildi heldur berjast
en gifta dóttur sína svo illum manni.
Þorgils mælti þá til Þrándar:
"Vel hefir þú mér vist veitt og skal eg það góðu launa og mun eg berjast
við Randvið fyrir þig."
Þrándur kvaðst það þiggja
mundu. Þorgils hafði sverðið Jarðhússnaut. Randviður hafði álnarkefli og digurt
mjög. Var byrgt yfir kerið. Randviður bað Þorgils leggja fyrst því að á hann
var skorað. Hann gerði svo og kemur í keflið og sprakk það í sundur og hljóp
sverðið í kviðinn á Randvið.
Hann mælti þá: "Fá þú
mér nú sverðið en haf þú keflið og mun eg leggja til þín með sverðinu."
"Mér þykir nú,"
segir Þorgils, "þetta vera spænir en eigi kefli."
Litlu síðar dó Randviður.
Hafði hann treyst fjölkynngi sinni því að hann hafði margan mann fellt með
þessi hólmgöngu. Þorgils drap tvo aðra víkinga, Snækoll og Snæbjörn. Þrándur
launaði Þorgilsi vel. Fékk hann virðing mikla af þessu verki. Hann bjóst síðan
út til Íslands um sumarið eftir.
18. kafli
Ólafur tvennumbrúni hét
maður. Hann kom til Íslands og nam öll Skeið á milli Þjórsár og Sandlækjar.
Hann var hamrammur mjög. Ólafur bjó á Ólafsvöllum. Hann liggur í Brúnahaugi
undir Vörðufelli. Ólafur átti Áshildi og voru synir þeirra Helgi og Þórður,
faðir Þorkels föður Gullkárs, föður Orms, föður Helgu, móður Odds
Hallvarðssonar.
Þorgrímur örrabeinn lagði hug
á Áshildi þá er Ólafur var dauður en Helgi trausti son hennar vandaði um og fór
frá búi sínu til hennar og kvaðst eigi vilja fíflingar hennar og kvað óvirðing
í vera bæði henni og frændum hennar. Hún bað hann sig eigi reiðan gera, kvað
ekki hans færi að keppa við Þorgrím.
Hann svarar: "Auðsætt er
það að maðurinn hugnar þér vel en eg mun eigi að heldur sitja honum slíka
svívirðing."
Skilja þau nú tal sitt.
Þorgrímur gistir á Ólafsvöllum. Áshildur gerði honum góðan beina og fóru mjög
saman hugir þeirra. Hún sagði Þorgrími hvert tal þeirra Helga hafði verið.
Helgi ræðir og um komur Þorgríms, kvaðst illa við una, bað hann af láta.
Þorgrímur kvaðst eigi hirða um hans þokka eða hót ef hennar vilji væri til. Nú
leiðir hún Þorgrím á götu og gaf honum mikið fingurgull áður þau skildu.
Áshildi kvaðst grunur á að þau mundu eigi oftar sjást. Þorgrímur kvaðst ætla að
finna hana brátt. Hún kvað vel ef svo væri, skilja við svo búið.
Þorgrímur reið nú leið sína
fyrir neðan Áshildarmýri. Helgi sat fyrir honum hjá gatnamóti. Og er þeir
fundust bað Helgi hann af láta komum og gera sér eigi skapraun í þessu.
Þorgrímur kvaðst eigi hafa barna skap, kvaðst búinn að reyna alla hluti við hann.
Helgi kvaðst ætla að að
málefnum mundi ganga "og er vel að við reynum okkur."
Síðan börðust þeir snarplega
og lengi. Þorgrímur var þá á hinum efra aldri og mæddist skjótt og varð sár
mjög. Helgi sækir að fast er hann sér að Þorgrími latar og lýkur svo með þeim
að Þorgrímur fellur fyrir Helga. Um kveldið kom Helgi heim. Spurði Áshildur
hann tíðinda. Hann sagði slík sem voru.
Hún svarar: "Mikið hefir
þú að gert og vaxið muntu þykjast hafa af þessu verki en eg kann segja þér að
þetta er þinn höfuðbani."
Helgi tók sér fari í
Einarshöfn og ætlar utan.
Þessi tíðindi spyrjast nú.
Hæringur son Þorgríms var þá seytján vetra. Hann reið í Höfða til Teits
Ketilbjarnarsonar frænda síns við þriðja mann. Þeir Teitur ríða þá fimmtán
saman út á Eyrar í Einarshöfn og banna Helga farið. Eftir það ríða þeir í
burtu. Litlu síðar fundust þeir á fórnum vegi upp frá Mörk við Helgahvol. Þeir
Helgi voru þrír saman komnir af Eyrum sunnan. Og er þeir Helgi sjá reið þeirra
hlaupa þeir á hólinn og vörðust drengilega. Áttu þeir harða hríð. En fyrir
fjölmennis sakir féll Helgi og maður með honum og einn maður af hinna liði. Var
síðan sæst á málið og féllust vígin í faðma.
Þorgils kom út á Eyrum.
Loftur fóstri hans sat í búi sínu. Margt hafði tíðinda orðið meðan Þorgils var
utan. Þórunn móðir hans var og önduð. Þorgils fór heim í Traðarholt. Tók bróðir
hans vel við honum og búa þeir bræður nú báðir saman þessi misseri.
Þórey hét kona og var
Þorvarðsdóttir. Þorfinna hét móðir hennar. Hún bjó í Odda. Þorvarður var
andaður. Þórey var á fóstri á þeim bæ er heitir í Kálfaholti með þeim manni er
Jósteinn hét, gildur bóndi. Jósteinn átti systur Þorvarðar í Odda er Þorgerður
hét. Þau voru börn Þórðar Freysgoða. Kolur og Starkaður voru fóstbræður
Þóreyjar. Guðrún hét systir þeirra og var hún líka fóstursystir Þóreyjar. Þórey
var skörungur mikill og fríð sýnum. Þeirrar konu biður Þorgils örrabeinsstjúpur
og þann kost fær hann og gerði brullaup til hennar. Samfarir þeirra voru góðar.
Hæringur bjó nú á Stokkseyri. Þorgils bjó í Traðarholti og gerðist hann ríkur
maður svo að Ásgrímur Elliðagrímsson bar ekki af honum á þingum.
19. kafli
Sörli hét maður. Hann bjó
skammt frá Kálfaholti. Hann venur komur sínar í Kálfaholt á fund Guðrúnar
systur þeirra Starkaðar og Kols. Einn tíma fer Kolur á leið til Sörla og biður
hann láta af komum til Guðrúnar systur þeirra. Sörli kvaðst mundu það gera
eftir hugþokka sínum en hirða ekki um orð hans.
"Þú munt ráða,"
segir Kolur.
Annan dag eftir fer Sörli
samt á tal til Guðrúnar og um kveldið fer hann seint heim. Og er hann kemur
skammt frá bænum sprettur Kolur upp fyrir honum. Verður ekki af kveðjum. Höggur
Kolur hann banahögg, fer síðan heim og segir Guðrúnu að stöðvast muni um komur
Sörla upp héðan. Hún kvaðst eigi það lasta en kvað eigi svo búið hlýða mundu því
að hann var gjafvinur og þingmaður Ásgríms Elliðagrímssonar "far nú og
hitt Þorgils. Hann þykir mér líklegastur að veita þér nokkuð lið."
Kolur kemur í Traðarholt. Það
var síð um kveld. Menn sátu yfir borðum en Þórey húsfreyja bar mat í stofu. Þá
var barið á dyr og gekk hún til hurðar og heilsar vel Kol fóstbróður sínum og
býður honum þar að vera. Hann vill eigi þar svo vera að eigi viti hún tíðindi
er í hans ferðum voru og segir henni síðan vígið. Hún lastar lítt og kveðst við
skulu leita að veita honum ásjá "en þó er nokkuð vanstillt til við Þorgils
en ærið er traust ef hann vill veita þér og mun eg fylgja þér í skot er hér er
um skálann og heyrðu þaðan á viðræður okkar Þorgils."
Hann gerir svo og eftir það
fer hún í stofuna. Þorgils mælti: "Hví skulum vér svo lengi bíða matar í
kveld? Og gott hefir þér orðið til fjár í framgöngunni. Klæði rautt hefir þú
fengið."
"Eigi veit eg það,"
segir hún, "en satt er hið fornkveðna að spakir menn henda á mörgu mið.
Mús hljóp áðan á kinn mér en hún er mér harla óþekk."
"Svo má vera,"
segir Þorgils.
En er þau komu í rekkju þá
kvaðst Þorgils vita vilja hvað í framgöngunni hafði gerst. Hún segir honum
allan atburðinn og kvaðst hún ásjá vilja veita Kol "og muntu svo gera
fyrir mína skuld."
Þorgils kvaðst svo gera mundu
"hefi eg góða vináttu haft af Kol," segir hann.
Um morguninn eftir fór
Þorgils austur til bús Kols - hann átti bú austur hjá Kálfaholti - og tók upp
féið allt og lét fara Guðrúnu með sér en lét eftir ómegð aðra. En er þeir voru
burt farnir kom Ásgrímur og ætlar upp að taka fé Kols og hafði hann ekki. Kolur
situr hjá Þorgilsi um veturinn.
En um vorið eftir býr
Ásgrímur málið á hendur Kol. Lætur Þorgils sem hann viti eigi. Verður Kolur
sekur um vígsmálið. Þorgils ríður allt að einu um héraðið og Kolur með honum,
sækja mannamót. Og gerist af því óþokki millum héraðshöfðingja. Héraðsmönnum
þykir mein að og leita um sættir en Þorgils býður engar bætur fyrir Kol.
Héraðsmenn leggja nú fund til og leggja allir fé til við Ásgrím og bæta víg
Sörla, gefa og fé til sýknu honum og var þetta gert án ráðs Þorgils. Sýkna Kols
var færð annað sumar á þingi og er þó fátt um með þeim höfðingjum.
Eitt sinn ríður Þorgils til
hestaþings austur í hérað og Svartur verkstjóri hans með honum. Var þá góð
gleði um daginn. Ásgrímur var þar og talar mart við Svart.
Að kveldi ríður Þorgils heim
en Svartur reið nær honum og fann Þorgils að hann vill ætíð ríða seinna. Grunar
hann þá og gefur honum færi á sér. Og er Þorgils varir minnst höggur Svartur
til hans en Þorgils kastar sér úr söðlinum. Þorgils þrífur Svart og spyr hverju
gegnir. Hann segir að Ásgrímur bauð honum þetta. En þá er hann svipti Svarti
féll fésjóður undan yfirhöfn hans. Segir hann þá að Ásgrímur hafi gefið honum
fé til höfuðs Þorgilsi. Hann drepur Svart þegar í stað. Eftir það ríður Þorgils
fram að sínum mönnum og segir þeim hversu farið hefði.
En hvert sumar er hann kemur
á mannamót sýnir hann fésjóðinn og voru þar í þrjár merkur silfurs þess er best
var og gekk engi við að ætti. Þorgils kvaðst það fé hafa mundu og hafa sitt
satt við hvar Svartur hafði fengið.
20. kafli
Nú kom kristni á land og tók
Þorgils í fyrra lagi sið kristinn og hélt vel trú sína. Og er hann hafði við
kristni tekið þá dreymdi hann einhverja nótt að Þór kæmi að honum með illilegu
yfirbragði og kvað hann sér brugðist hafa "og hefir þú illa úr ráðið,
valið mér það úr þínu fé er þú áttir verst til. Þú kastaðir silfri því í fúla
tjörn er eg átti og skal eg þar í móti koma."
"Guð mun mér
hjálpa," segir Þorgils, "og er eg þess sæll er okkað félag
sleit."
Og er Þorgils vaknaði og kom
út sá hann að töðugöltur hans var dauður og lét hann grafa hann hjá tóft
nokkurri og vildi eigi láta af neyta.
Enn barst Þór í draum
Þorgilsi og sagði að sér yrði eigi meira fyrir að taka fyrir nasir honum en
töðugelti hans.
Þorgils segir: "Guð mun
því ráða."
Þór hét þá að gera honum
fjárskaða. Þorgils kvaðst eigi um það hirða. Aðra nótt eftir dó uxi gamall
fyrir Þorgilsi. Þá sat hann sjálfur hjá um nóttina eftir yfir nautum sínum og
er hann kom heim um morguninn var hann víða blár. Hafa menn það fyrir satt að
þeir Þór muni fundist hafa. Eftir það tók af fallið. Þorgils var hið mesta
mikilmenni, harður maður og frækinn.
Nú líða fram stundir. Og er
skip ganga landa á milli þá koma orðsendingar af Grænlandi að Eiríkur rauði
býður Þorgilsi út til Grænlands til þeirra kosta er bestra hefir hann föng á.
Þorgils áhlýddist lítt.
Og er hann hafði búið hér
þrettán vetur kom skip af hafi. Þar var á Þorleifur sonur hans og hafði góða
gripi að færa honum. Þorgils tók vel við honum.
Þorgils talar við konu sína
ef hún vill fara með til Grænlands. Hún kvað vanbreytt um. Hann kvað Eirík hafa
sent sér orð "og máttu vera eftir ef þú vilt og gæta bús okkars en eg
fari."
Hún kvað því mundu misráðið
að farið væri "en fara vil eg ef þú ferð."
Þorgils fékk nú í hendur
Hæringi bróður sínum fé sitt til varðveislu og svo tók hann við goðorði því er
Þorgils haft hafði. Hann vill að landið í Traðarholti sé eign erfingja hans ef
hann kemur eigi til. Þórný hét dóttir þeirra Þorgils og Þóreyjar. Var hún þá
átta vetra gömul. Þessi ráðabreytni Þorgils spurðist nú víða um sveitir.
Þorleifur skal fara með honum, Kolur og Starkaður bróðir hans og Guðrún systir
þeirra, Snækollur og Össur þrælar hans og Þórarinn ráðsmaður. Þrælarnir voru
alls tíu. Þorgils hafði nefnda menn mest fyrir því ef hann vildi bæ láta reisa
á Grænlandi. Þeir voru allir öflgir menn. Þorgils hafði alls konar fé ef hann
vildi þar staðfestast. Jósteinn bóndi úr Kálfaholti réðst og til ferðar með
honum og brá búi sínu. Hann var með tólfta mann. Þorgerður fór og, kona hans,
og Þórarinn son þeirra. Hann var hinn knáasti maður. Þorgils kaupir nú skip.
Þórólfur hét maður er Þorgils fékk í hendur ómagabú en Hæringi bróður sínum
seldi hann í hendur sex tigu hundraða þriggja álna aura annað en staðfestu.
Þorgils gisti og þau á Hjalla
í Ölfusi. Þar var og í ferð með honum Þórný dóttir hans og ætlaði hann að hún
skyldi fara. Þar tók hún sótt og beið Þorgils þrjár nætur og kvað það eigi
mundu standa fyrir ferð sinni og gaf henni fjögur hundruð þriggja álna aura ef
hún þyrfti til að taka og kvað vera mega að það væru forlög hennar. Þóroddur
kvaðst ætla að hún mundi giftudrjúg vera. Þorgils segir Þóroddi að hann kveðst
mundu mjög treystast ummælum Eiríks rauða:
Þóroddur segir: "Oft
verður vant til manna að ætla og eigi að síður að maður leggi mikinn kost
til."
Þorgilsi kveðst nú fyrir
þykja mikið að fara en kveðst nú eigi nenna aftur að hverfa.
21. kafli
Skilja þeir nú þeir Þóroddur,
og Þorgils bíður nú byrjar og dreymir hann að maður kemur að honum mikill og
rauðskeggjaður og mælti: "Ferð hefir þú ætlað fyrir þér og mun erfið
verða."
Draumamaðurinn sýndist honum
grepplegur og mælti til hans: "Alla stund hefir þú mér verið gagnstæðlegur
þóttú værir heiðinn maður en oss er mikill missir orðinn að siðaskipti þínu.
Áður var allt fólk leitandi til vors trausts og fulltings og ertu sem þeir er
oss vilja þyngst og mun illa farast ef þú vilt eigi aftur til mín hverfa um
átrúnað. Mun eg þá enn um sjá yðar ráð."
Þorgils kvaðst aldrei hans
umsjá vilja hafa, bað hann burt dragast og skiljast við sig sem skjótast
"tekst ferð mín sem Guð vill," hugðist hann svara í svefninum.
Síðan þótti honum Þór færa
sig á hamra nokkura þar sem sjóvarstormur brast í björgum og nú segir Þór:
"Í slíkum stormi skaltu vera og þó lengi í volki vera og kveljast í vesöld
og háska nema þú gerist minn maður."
"Nei, nei," segir
Þorgils. "Far þú burt hinn leiði fjandi. Sá mun mér hjálpa sem alla leysti
með sínum dreyra og á líta ferð vora."
Síðan vaknar hann og segir
drauminn Þóreyju konu sinni "og dvína mundi eg láta ferðina ef mig hefði
fyrri þvílíkan draum dreymt og eigi vil eg segja láta Jósteini né öðrum mönnum
þenna draum."
Hún kvað þetta eigi góða
furðu og kvað vel ráðið þótt hann ætti fátt við Þór "og aftur mundi eg
setjast ef mig hefði þvílíkan draum dreymt."
Nú kemur byr og sigla þeir út
eftir firði á haf góðan byr. Hafði Jósteinn skip fyrir framan siglu. Og er þeir
koma úr landsýn þá tekur af byri alla og velkjast þeir úti lengi þar til er
bæði verður átfátt og drykkfátt á skipi þeirra.
Eina nótt dreymir Þorgils að
sá sami maður kæmi að honum og mælti: "Fór eigi sem eg gat? Því að þú
hefir neitað mínu fulltingi og ásjá. Má enn vera að betrist um hag þinn ef þú
vilt mig þýðast."
Hann kveðst það aldrei vilja
þótt líf hans lægi við, bað óvin á brott dragast og koma aldrei oftar og vaknar
hann eftir það. Útivistin harðnar mjög.
Tekur nú að hausta. Mæltu
sumir menn að þeir mundu blóta Þór til byrjar, kváðu betur þá farið hafa ráð
manna er þeir blótuðu hann og kváðu ráð að fella þangað hugi sína.
Þorgils segir: "Ef eg
verð var við það að nokkur maður blótar og gerist guðníðingur þá skal eg það
harðlega hefna."
En við þessi orð hans
treystist engi að kalla á Þór.
Þá dreymdi Þorgils enn eina
nótt að hinn sami maður kæmi að honum og mælti svo: "Enn sýndir þú hver þú
varst mér þar eð menn vildu mig þýðast. Hefi eg nú beint fyrir yður því að
margir eru skipverjar þínir að bana komnir og enn muntu höfn taka á sjö nótta
fresti ef þú vilt mig aðhyllast."
Þorgils segir: "Þótt eg
taki aldrei höfn skal eg þér aldrei gott gera og ef þú kemur oftar skal eg gera
þér nokkura skömm."
Hann segir: "Þótt þú
gerir mér ekki gott þá gjaltu mér það er eg á og þú hefir mér heitið."
Þorgils hrakti hann með mörgum
orðum og við það fór hann á brott. Þorgils vaknar og hugsar hvað hann muni þar
eiga og nú man hann að hann gaf fyrir löngu Þór kálf einn. Þorgils segir þetta
Þóreyju og var þetta þá gamall uxi og kvað aldrei það skyldu innanborðs er hans
kanna væri á og segir hann því þar hverfa mundu um skipið. Hún kvað það vel
fundið. En er Þorgerður vissi þetta að Þorgils ætlar að kasta út uxanum þá
falar hún uxann er þeim var vistafátt. Þorgils afsvaraði og vill ónýta uxann.
Hún reiddist við orð hans "og er eigi undarlegt þótt illa takist er Þór
vor er svo svívirður og mikið munu nú menn verr kunna fyrir sér en þá er menn
sæmdu hann í mörgum hlutum."
Þorgils hirðir ekki um orð
hennar og lét skjóta útbyrðis uxanum og kvað eigi kynlegt þótt illa færist er
fé Þórs var innanborðs.
22. kafli
Og eru þeir nú enn úti um
hríð. Þrjá mánuði voru þeir í hafi og höfðu harða réttu og litla byri. Þórarinn
son Jósteins var knáastur maður annar en Þorgils. Hann var þá tvítugur að
aldri.
Það er sagt að þeir brutu
skip sitt síð dags undir Grænlandsjöklum í vík nokkurri við sandmöl. Skipið tók
í sundur í efra rúmi. Menn héldust allir og fé. Bátur komst og heill á land.
Stafninn rak upp við hið syðra landið. Þá var vika til vetrar. Jöklar miklir
gengu fram tveim megin víkurinnar en til vesturáttar væntu þeir byggðar. Gera
sér nú skála allir saman og í þverþili. Búa nú sínumegin hvorir þilsins, hafa
mjöl nokkuð sér til atvinnu, henda af rekum slíkt er þeir fengu og eiga allir
saman. Fé þeirra var dautt flestallt. Hirslur þeirra voru í skála þeirra.
Þorgils manna hlutur var jafnan betri af veiðifangi. Varð hann um flest
hlutsælli. Þorgils beiddi að menn vildu vera hljóðlátir síð á kveldum og
siðsamir og héldu vel trú sína. Þóreyju húsfreyju var mikið framað og var lítt
heil. Það er sagt að Jósteinn og hans menn voru löngum úti síð á kveldum og
gerðu mikið um sig og höfðu náttleika.
Jósteinn mælti eitthvert sinn
við Þorgils, kvað sér þykja mikinn mun veiðifangsins. Þorgils kvað þá eigi einn
veg rækja "því að þér haldið lengur við á kveldin en vér erum að
fyrri."
Jósteinn vildi þá skipta láta
öllu veiðifangi og svo var gert og varð Þorgils jafnan hlutsælli og skortir þá
hvoriga. Svo er sagt að fátt var með þeim. Voru þeir Þorgils spakir og hljóðir
en hinir höfðu náttleika með miklu erfiði og háreysti.
Nær veturnóttum varð Þórey
léttari að sveini þeim er Þorfinnur hét. Hún hjúkaðist lítt við þessa fæðu er
til var. Þórarinn Jósteinsson hafði útiróðra með þrælum Jósteins.
Líður nú á veturinn og dregur
að jólum og ræðir Þorgils um að hann vill að menn séu hljóðlátir og siðsamir og
fari snemma í rekkju. Jólamorgun var á veður gott og voru þeir þá lengi úti um
daginn og heyrðu óp mikið í útnorður og nú kemur annar aftann í jólum. Þá
náttar Þorgils snemma og fer í rekkju og er þau höfðu sofið svefn þá koma þar
Jósteins menn og er mikið um lið þeirra og búast til matar. Þorgerður var í
öllu háreysti með þeim og var hún sterk sem karlar. Og er þau eru að mat þá er
drepið á dyr mikið högg og snjallt.
Þá mælti einn þeirra:
"Góð tíðindi munu nú í nánd vera."
Sá hleypur út og þykir þeim
er inni voru fresta innkomu hans. Nú ganga þeir Jósteinn út. Er sá þá ær er úti
var. Og um morguninn deyr hann. Mótlíkt fer annan aftan að maður ærist og deyr
skjótt og þóttist sjá þann hlaupa að sér er fyrr dó.
Nú kom sótt í lið Jósteins og
deyja sex menn og þá tekur Jósteinn sótt hinn tólfta dag jóla en Þorgerður
situr yfir honum og lýr hann sótt og deyr hann og eru þeir nú kasaðir þar í
mölinni. Þorgils hélt þá sínum mönnum öllum og ræðir jafnan um við þá að þeir séu
hljóðlátir og siðsamir, bað þá láta sér annars víti að varnaði verða, minnast á
guðlega hluti og fremja nú skynsemd um kristnihald sitt og söngva.
Á bak jólum ganga þau öll
aftur og einna mest Þorgerður. Þórarinn lést síðast af liði Jósteins. Var hann grafinn
undir skipshræinu en öll voru þau dauð í miðja gói. Voru þá miklar afturgöngur
og sóttu öll að Þorgilsi. Þorgils segir þá að Þorgerður hefði lið sitt allt og
hún þyrfti þá ekki fleira að kalla og eftir það léttir af sóttinni. Ekki máttu
þeir Þorgils í brott hefjast meðan afturgöngur voru mestar. Í þeim hluta
skálans gengu þau mest aftur er þau höfðu áður átt en þó gengu þeir í hinn hlut
skálans og sótti Þorgerður konur mest. Og er svo hafði fram farið um hríð þá
lét Þorgils brenna þau öll á báli og var þá ekki mein að afturgöngu þeirra
síðan. Þeir Þorgils höfðu skip á stokka sett og mjög gert að öðru og höfðu
hvorirtveggju að skipbúnaði verið.
Nú líður af veturinn og máttu
þeir þó eigi á brott komast fyrir ísum. Þeir fá sér vistir um sumarið.
Og annan vetur eftir þá
andaðist Guðrún systir Kols. Kolur grefur hana undir rúmi sínu. Og er vorar þá
mega þeir eigi á brott komast.
23. kafli
Það er enn eitthvert sinn sem
oftar bar að að Þórey segir draum sinn Þorgilsi að hún þóttist sjá fögur héruð
og menn fagra og bjarta "og vænti eg," segir hún, "að vér
leysumst héðan í burt úr ánauð þessari."
Þorgils segir: "Góður er
draumur þinn og þó eigi ólíkari að viti meir til annars heims hluta og muntu
eiga fyrir höndum fagra staði og munu dýrðlegir menn hjálpa þér fyrir gott líf
þitt og mannraunir."
Hún bað þá í burt leita ef
þeir mættu. Þorgils kveðst eigi yfir það sjá.
Hún lá í rekkju jafnan og
einhvern góðan veðurdag ræðir Þorgils um að þeir muni ganga á jökla upp og vita
ef þeir sæu ísinn nokkurs staðar leysa. Þórey kveðst þess ófús að hann gengi
nokkurs staðar frá henni. Hann kvaðst skammt fara mundu. Hún kvað hann ráða
mundu enn sem fyrr. Þrælarnir skyldu róa að veiðifangi um daginn og Þórarinn
bryti skyldi ýta þeim og vera hjá Þóreyju en Þorgils ætlaði að ganga á
jökulinn. Þeir Þorleifur og Kolur og Starkaður beiddust að fara með honum en
Þorgils kvað forystulaust heima ef eigi væru nokkrir þeirra hjá Þóreyju
"og trúum vér ærið vel þrælunum í þessu."
Þeir fóru þó allir á jöklana.
Þorgils hafði bolöxi í hendi og gyrður sverðinu Jarðhússnaut. Þeir gengu til
eyktar og höfðu farið árla morguns. Og er nón var dags þá sneru þeir aftur og
gerði á veður hart. Þorgils gekk fyrir þeim og hitti vel leiðina, komu að
skálanum og sá eigi skipið, komu inn og voru á brott kisturnar allar og svipt
fénu og mennirnir á burt.
Þorgils mælti: "Nú munu
ill efni í."
Koma innar í skálann og var
þar myrkt. Þeir heyra til rekkju Þóreyjar snörl og það sér Þorgils að hún er
önduð en sveinninn só hana dauða. Þorgils leitar um hana og finnur einsstaðar
að harðnað var holdið og ben lítið undir hendinni sem mjóvum knífsoddi hefði
stungið verið. Mjög var þar allt blóðugt í rúminu. Þetta hafði svo orðið að
Þorgilsi var mestur harmur. Grafa þeir hana hjá Guðrúnu. Þorleifur leggur á
alla stund að gleðja föður sinn. Á burt var og sópað öllum vistum. Hurðirnar
höfðu þeir og frá tekið húsunum og hvílutjaldið var í burtu.
Um nóttina vildi Þorgils vaka
yfir sveininum og minntist þá drengilega á karlmennsku og kvaðst eigi sjá mega
að barn það mætti lifa nema mikið væri til unnið og vill hann eigi að það deyi.
Lætur hann nú saxa á geirvörtuna á sér og kemur þar blóð út. Síðan lætur hann
teygja það og kom þar út blanda og eigi lét hann af fyrr en það var mjólk og þar
fæddist sveinninn við. Og um nóttina trúði hann sér eigi til vöku fyrr en hann
lét glóð undir fætur sér.
Það er sagt að þeir Snækollur
og aðrir þrælar höfðu skipið í brott tekið. Ketil hinn meira höfðu þeir en
lítill ketill var eftir er Þórey hafði átt og flykkisstúfur einn og svo nafrar
í burt voru sem í tólakistunni höfðu verið. Þórarinn bryti var og á brott
horfinn. Þeir Þorgils eru þar enn nokkura hríð og sækja fast að veiðiföngum og
verður þeim mjög ekki mein að öðrum óvættum. Leita þeir enn við að gera sér
farkost og eru nú smíðartól heldur fá. Gerðu þeir sér einn húðkeip og bjuggu
innan með viðum. Líður nú á sumarið og sjá menn ekki um vistaföng brýnlegt.
Þeir bjuggu um húðkeipinn og ... og byrgðu og lifðu nú við reka og smádýri
íkorna.
24. kafli
Um morguninn er Þorgils kom
út sá hann rekald mikið í vök einni og þar hjá konur tvær í skinnkyrtlum og
bundu sér byrðar ákaflega miklar. Þorgils hleypur þangað til og höggur þegar
til annarrar með sverðinu Jarðhússnaut í því er hún færðist undir byrðina og
rekur af henni höndina uppi við öxlina. Byrðurin féll niður en hún hljóp á
burt. Þeir taka rekaldið undir sig og er þá eigi vistaskortur um veturinn.
Og er vorar er mjög uppi
vistin. Þorgils kvaðst leiðast þarvistin "og losnar nú ísinn," sagði
hann, "og munum vér á burt leita."
Þeir fara nú á braut og hafa
með sér ketilinn. Dragast nú með jöklunum fram og á ísinn að öðru hverju. Og um
sumarið komust þeir suður til Seleyja á keipinum en lítið máttu þeir hafa af
föngum sínum. Þar fengu þeir sela nóga og voru þar um veturinn.
Að sumarmálum fóru þeir þaðan
og komu þá við ey nokkura litla. Hálfum mánuði síðar þá fundu þeir
svartbaksegg. Þeir sjóða eggin og etur sveinninn Þorfinnur eitt eggið og eigi
allt. Þeir spyrja hann því hann æti eigi allt.
Hann segir: "Þér sparið
yðvarn mat og vil eg og spara minn mat."
Þeir voru á skipi sínu á
nóttum en fóru á land um daga og fá þó lítið fang. Og einn dag fundu þeir
árarstúf einn og voru á rúnar þessar:
Varkat eg dási
er eg þessa dró
oft, ósjaldan
ár á borði.
Sjá gerði mér
sára lófa
meðan heimdragi
hnauðat rauða.
Þeir dragast nú enn fram
fyrir jöklana og koma þá að björgum nokkurum bröttum og brýna þar upp skipinu
og hafa þar dvöl og reisa þar tjald og höfðu nær engar vistir.
Og um morguninn gengur Kolur
út úr tjaldi og sér hvergi skipið og við það leggst hann niður og vill eigi
segja Þorgilsi og þykir áður ærinn harmur hans. Litlu síðar gengur út Þorleifur
og sér eigi skipið. Getur hann og eigi um. Síðan rís Þorgils upp og litaðist um
og sér eigi skipið og sagði þeim að skipið var í burt "og má eg eigi sjá
það að við sveininn megi leita og tapi honum."
Þorleifur segir: "Það
liggur ekki til."
Þorgils biður það þó gera.
Eftir það taka þeir við sveininum. Kolur bað Þorleif tapa honum.
"Það samir mér
eigi," sagði hann, "og skal eg það eigi gera."
"Þá er betur og
Kolur," sagði hann, "fyrir því að eigi skal eg honum týna. Hefi eg
lengi verið með Þorgilsi og á eg honum margt gott að launa og ef týnt er
sveininum þá mun honum svo mikið þykja að eigi er sýnt að hann lifi
eftir."
Nú láta þeir sveininn úti
eftir en þeir ganga inn í tjaldið. Þorgils spurði hvort drepinn væri sveinninn.
Þeir kváðu eigi það vera. Hann þakkar þeim og sagði ósýnt hversu hann bæri
"og er gott til góðra drengja að taka og hafið þið firrt mig miklum glæp
og mun eg aldrei þykja síðan dugandi maður. Og svífur nú ýmsu á mig."
Um nóttina eftir er sveinninn
hjá Þorgilsi og um morguninn segir Þorgils draum sinn.
"Eg þóttist vera,"
sagði hann, "á Íslandi á alþingi og þótti mér sem við Ásgrímur toguðum
eina hönk og allur lýður horfði á og hann missti hankarinnar."
Þorleifur segir: "Þar
muntu enn koma til Íslands faðir minn," sagði hann, "og skipta málum
við Ásgrím og mun það vel ganga."
"Slíkt má vera,"
sagði Þorgils, "þótt nú þyki eigi líklegt og er vel ráðið."
Aðra nótt dreymdi hann enn og
sagði enn Þorleifi.
"Eg þóttist vera,"
segir hann, "heima í Traðarholti og var þar fjölmennt mjög og sá eg álft
eina ganga eftir gólfinu og var hún blíð við aðra en mig. Þá hristi eg hana og
var þá betur."
"Þar muntu," sagði
Þorleifur, "kvongast og mun kona þín vera ung og muntu í fyrstunni missa
ástar hennar og mun þó vel dragast."
Hina þriðju nótt dreymdi
Þorgils enn að hann þóttist vera heima í Traðarholti "og kerti fimm voru á
kné mér," sagði hann, "og fölski á hinu mesta. Og enn dreymdi mig að
kona kæmi að mér og kvað mig kominn í tún sitt, "og þykir mér illa er þér
hafið etið egg Þorfinns," og hún segir mér að sveinar hennar hefðu tekið
skip vort."
Þorleifur segir: "Þar
munum vér í burtu komast."
"Enn dreymdi mig,"
sagði Þorgils, "að eg væri heima í Traðarholti. Eg sá á kné mér hinu hægra
að þar voru vaxnir hálmlaukar fimm saman og þar af kvísluðust margir laukar og
ofarlega yfir höfuð mér bar einn laukinn. Svo var hann hár og svo var hann
fagur að hann hafði gullslit á sér."
Þorleifur segir: "Sé eg
draum þinn. Þar muntu eiga fimm börn og frá þér munu kvíslast margar ættir og
ótal manna mun frá þér koma. En eg mun eigi á Íslandi aldur ala og mun eg æxla
ætt mína annars staðar. En hinn fagri laukur, þar mun nokkur maður sá frá þér
koma er ágætari maður mun vera en allir aðrir þínir ættmenn."
En það gekk svo eftir að frá
honum er kominn hinn helgi Þorlákur biskup.
Þorleif dreymdi enn draum og
sagði föður sínum: "Góðan draum hefir mig enn dreymt og héðan af mun batna
ráð vort. Mér þótti sem Þórný systir mín gæfi mér osthleif og væru af
bárurnar."
"Vera má," sagði
Þorgils, "að hún gæfi ef hún mætti."
Og nú heyra þeir kall mikið
og biðja Íslendinga taka skip sitt "og hafið þér illa við orðið."
Þeir ganga nú út og sjá konur
tvær er tekið höfðu skipið. Þær hurfu skjótt og þá heyrðu þeir að björn einn
braust um í vök einni og var brotinn á hrammurinn. Þorgils hleypur til
bjarnarins og leggur til hans með sverði. Björninn deyr við það lag. Þorgils
þrífur í hlustirnar og lætur eigi sökkva. Síðan drógu þeir hann á ísinn og
hlóðu skipið. Dýrið var kalið á fyrra fæti og og má af slíku marka hve mikinn
háska þeir Þorgils höfðu af fjúki og frosti í þessari ferð er dýrið var
örkumlað af kulda.
Það er sagt að Þorgils deildi
stykki hverjum þeirra. Þeim þótti of lítið og ræddu um með sér því hann væri
svo harðbýll.
Þorleifur mælti:
"Matspar þykir þú nú faðir minn," sagði hann.
Þorgils segir: "Svo vill
vera son minn því að eigi hæfir oss annað svo mjög sem áður erum vér
þrekaðir."
Róa nú fyrir fjörðinn fram og
verður sein förin. Snúa nú til hafs meir og róa af margar víkur, fóru
gagnleiði. Þá rýmdist ísinn og breiddust sundin. Fóru utarlega fyrir fjörðu
fram, drógu skipið stundum milli vakanna. Nú koma þeir á einn mikinn fjörð,
stefna fyrir utan mynnið til lægis.
Og um daginn gerðist mæði
mikil á þeim. Þorgils var þó miklu hraustastur um allt. Tekur þá nú að þyrsta
mjög. Þeir voru þá fimm með sveininum Þorfinni, Þorgils og Þorleifur, Kolur og
Starkaður bræður. Vatnið var hvergi í nánd og verður þeim nær farið af
drykkleysi.
Þá mælti Starkaður:
"Þess hefi eg vitað dæmi að menn hafa blandað allt saman, sjó og
hland."
Taka nú ausskotuna og míga í
og kváðu það gert vera ef líf manna lægi við og báðu Þorgils leyfis að. En hann
kvað vorkunn á, kveðst hvorki banna né leyfa "en eigi mun eg drekka,"
segir hann.
Þeir gerðu drykkinn. Þorgils
kveðst nú vilja taka við ausskotunni og kveðst skyldu mæla fyrir minni.
Hann mælti svo: "Þú hið
arga og hið illa kvikindi er vora ferð dvelur skalt eigi því ráða að eg skal
hvorki drekka minn þarfagang né aðrir."
Og í því bili fló fugl því
líkastur sem álkuungi og skrækti við illilega.
Þorgils segir: "Þetta er
enn lítil laun hjá því sem vert var en þér firrtuð mig glæpnum en hugstætt má
oss verða þessi skömm og hneisa og héðan af mun batna um vort ráð. Róum nú að
ísnum og verum kátir og glaðir og lagði oss nú nær og vildi guð að vér
forðuðumst þessa skömm."
Taka þeir nú vatn á ísinum og
var það síð um daginn. Þá segir Þorgils að sjá mundi af hvers völdum var og er
þeir voru á sjónum þá fló fuglinn í norðurátt frá skipinu og var stórum
illilegur.
Þorgils mælti: "Seint
hefir þessi fugl við oss skilið og taki nú allar gramir við honum. En við það
unum vér að eigi kom hann því á leið sem hann vildi og veldur guð sjálfur því
sá er vér trúum á."
Koma nú síðan við ey eina og
voru þar þrjár nætur áður en þeir sáu tjald af lérefti og kenndu þar líntjald
Þóreyjar og fundu þar Þórarin brytja sjúkan. Þeir spyrja hverju faraldi hann
hafði þangað komið. Hann sagði kostaboð þeirra Snækolls við sig ef hann vildi
eigi fara, að þeir mundu drepa hann, og þeir hefðu verið skammt frá Seleyjum um
veturinn. Þeir spurðu hann margs. Kveðst hann nauðigur allt gert hafa "og
hafa þeir fé allt en Snækollur lagði járni á Þóreyju."
Þorgils segir: "Eigi
veit eg hvers þú ert af verður en eigi skaltu hér vera."
Og áður þeir fari á burt þá
deyr hann og jarða þeir hann þar. Fara með landi fram.
Tekur nú að hausta og koma á
fjörð einn og inn í fjörðinn og komu að nausti. Brýna þar upp skipi sínu og
ganga upp frá sjó og sjá bæ lítinn og þar var maður úti fyrir. Hann heilsar
þeim og spyr hverjir þeir væru eða hvaðan þeir væru að komnir. Þeir sögðu sem
farið var og spyrja hann að nafni. Hann kveðst Hrólfur heita og býður þeim þar
að vera og það þiggja þeir. Konur geyma Þorfinns og var honum mjólk gefin. Hann
kvað ekki þannig lita mjólk föður síns.
Hrólfur kveðst hafa stokkið
fyrir víga sakir úr byggð. Var hann hinn greiðasti við Þorgils, kvað skip farið
hafa þar um sumarið og komið ekki við land en sagði leið ekki svo langa sem
torsótta. Og þar eru þeir um veturinn.
Og er vorar býður hann þeim
þar að vera og slíka kosti sem hann hefir til skips ef þeir vilja. Þorgils
segir honum vel fara og kveðst skipið vilja þiggja "og væri skylt að launa
þér með góðu."
Hrólfur kveðst ætla að hann
myndi af honum giftu hljóta "því að eg vænti að þú munt í góða virðing
koma og ef svo verður mættir þú mig í frið þiggja aftur í byggðina."
Þorgils heitir honum því og
mæla þar hvorir vel fyrir öðrum.
Fara nú suður fyrir landið og
gefur þeim vel fararleiði og haustar fyrir þeim. Koma við vetur á Eiríks fjörð,
beita fyrir landið, héldu síðan inn í fjörðinn og lögðu í lægi og tjölduðu. Og
í því bili sáu þeir kaupskip er utan sigldi í fjörðinn og lögðu í lægi og höfðu
eitt veður hvorirtveggju. Komu að einni höfn og lendingu.
Þorgils mælti: "Þetta
eru góð tíðindi. Farið Þorleifur og Kolur," sagði Þorgils, "og hittið
mennina og munu þeir kunna að segja nokkur tíðindi."
Fóru nú og koma að
kaupskipinu og gengu út á skipið. Aftur við lyftingina sat maður í rauðum
kyrtli og sprettur upp þegar og fagnar Þorleifi vel. Þar var Þorsteinn hvíti
fóstri hans og stjúpfaðir. Hann spyr að Þorgilsi. Þeir segja honum að hann var
þar. Þorsteinn fer þegar til fundar við hann og verður þar fagnafundur. Kveðst
Þorsteinn kominn af Íslandi og kvað ráð hans standa heilt og höfðu ekki til
hans spurt á fjórum vetrum. Sagði Þórnýju dóttur hans gifta Bjarna í Gröf Þorsteinssyni
goða landnámamanns "og er Þorleifur kom eigi til bjó eg skip af Noregi og
fór eg út til Íslands og var eg þar tvo vetur. Og er ekki fréttist til yðvar þá
fýsti mig að leita yðvar hingað. Nú er eg feginn orðinn yðrum fundi og allt
mitt skal yður jafnheimult sem mér."
Þorgils kvað ekki mætti
stórum betur í hald koma sem að honum væri von. Halda nú um morguninn þangað,
tjalda nú búðir á landi.
Menn komu brátt til þeirra og
bóndi sá er þar bjó næst hét Þórir. Hann bauð Þorfinni til sín og þangað fór
hann. Bóndi vísar þeim til hafnar. Ryðja skip og bera af föng sín. Eiríkur
rauði býður Þorgilsi til sín og það þekkist hann og öllum þeim er hann vildi að
þangað færu og þangað fóru tólf menn í Brattahlíð. Þorgilsi er skipað gagnvart
Eiríki á annan bekk, þá Þorsteini hið næsta honum utar frá, þá Þorleifi, Kol og
Starkaði. Þorfinni var fengin fóstra og vildi hann eigi mjólk drekka fyrr en
myrkt var að og þá var hann af brjósti vandur. Ekki var Eiríkur margur til
þeirra og verður vistin ekki með þvílíku bragði sem Þorgils ætlaði. Þorgils
frétti að þrælarnir voru þar í landi með mikla kosti og sögðu fátt satt frá
ferðum sínum. Þorgils lét sem hann vissi eigi.
25. kafli
Það varð þar um veturinn að
bjarndýr lagðist á fé manna og gerði mikinn skaða mörgum manni. Eru þá stefnur
að áttar ef það mætti af ráðast og þar kom að fé var lagt til höfuðs dýrinu og
gerðu menn úr hvorritveggju byggðinni. Fátt lét Eiríkur sér til finnast.
Og um veturinn er á líður
komu menn til kaupa við þá Þorgils og Þorstein og eru menn margir í útibúri því
er varningurinn var í og þar var sveinninn Þorfinnur.
Hann mælti við föður sinn:
"Hér er kominn úti rakki fagur faðir minn og sá eg aldrei slíkan fyrr, svo
er hann mikill."
Þorgils segir: "Hirð
eigi um það og gakk eigi út."
Sveinninn hljóp þó út.
Bjarndýrið var þar komið og hafði gengið af jöklum og svipti undir sig
sveininum. Hann kvað við. Þorgils hljóp út þegar og hafði brugðið sverðið
Jarðhússnaut. Dýrið hafði leikið við sveininn. Þorgils höggur milli hlustanna
af miklu afli og reiði og klýfur allan hausinn á dýrinu og fellur það dautt
niður. Þorgils tekur upp sveininn. Var hann lítt sakaður.
Þorgils verður nú ágætur af
þessu verki og þótti stór heill til hans falla. Lögðu margir góða þykkju til
hans og færa margir honum bjarngjöldin. Ekki fannst Eiríki margt um þetta verk,
lét þó gera til dýrið. Sögðu sumir menn Eiríki að Þorgils hefði haft til þessa
verks illan átrúnað.
Frá því er sagt eitthvert
sinn um veturinn að menn sátu í heimilishúsi þar í Brattahlíð og þó eigi allir
senn því að sumir stóðu fram í húsin er mannmargt var. Þar var Kolur og
sveitungar hans. Það er sagt frá tali þeirra að þeir fóru í mannjöfnuð og ræddu
um Þorgils og Eirík. Sagði Kolur Þorgils mörg afreksverk gert hafa.
Þá svarar sá maður er Hallur
hét, hann var heimamaður Eiríks: "Það er ójafnt," segir hann,
"því að Eiríkur er höfðingi mikill og frægur en Þorgils þessi hefir verið
í vesöld og ánauð og óvíst er mér hvort hann er heldur karlmaður en kona."
Kolur svarar: "Mæl þú
manna armastur" og leggur í gegnum hann með spjóti. Fékk hann þegar bana.
Eiríkur bað menn sína upp standa og taka Kol. Kaupmenn allir hlaupa til og
veita Kol.
Þorgils mælti þá: "Það
er næst Eiríkur að þú hefnir sjálfur heimamanns þíns."
Nú eiga hlut í beggja vinir.
Þykir eigi auðsóttlegt að fara að þeim. Nú sættast þeir með því að þeir Þorgils
og Eiríkur skulu gera um. Þeir verða vel ásáttir um gerðina en þó fækkaðist
síðan með þeim og ætlar Þorgils þar ekki langvistum að vera.
Um veturinn bar það til að
mein mikið varð að útilegumönnum. Þorsteinn hét sá er fyrir þeim var. Þeir voru
þrír tigir og sekir allir. Urðu menn af þeim fyrir ránum miklum og sögðu til
Eiríki. Þeir lágu í eyjum nokkurum í Eiríksfirði. Eiríkur ber upp mál þetta fyrir
Þorgilsi og kvaðst vilja hans liðsinni til hafa.
Þorgils kvaðst eigi til þess
farið hafa til Grænlands að leggja sig í hættu við illmenni, kvaðst illt hlotið
hafa af Eiríki en kvaðst þó eigi nenna að synja ferðarinnar fyrir nauðsyn
landsmanna og kvaðst búinn þá er Eiríkur vildi fara en kvaðst vilja gera til
lykta áður sín erindi "og vertu þá búinn er eg geri þér orð."
Eftir það fóru þeir til skips
og ætluðu að fara um hina vestri byggð því að menn höfðu eigi goldið Þorgilsi
bjarngjöldin. Þorgils færir fram sýknu Hrólfs svo að hann skyldi vera
friðheilagur.
En er Þorgils kom í
Vestri-byggð tók við honum sá maður er Bjálfi hét. Hann kvaðst mikla þökk kunna
hans þarkomu "skal eg taka saman fé þitt því að þú ert frægur maður og
muntu mér að liði verða því að eg er í nauðum staddur. Hér liggja fyrir eyjar
þær er ránsmenninir eru í og ætlar höfðingi þeirra hingað og taka á burt dóttur
mína. Vil eg að þú sért hér til trausts og varnar."
Þorgils kvaðst það gera
mundu. Bóndi fer nú og tekur saman féið og koma eigi víkingarnir. Bóndi kemur
heim.
Þorgils mælti þá: "Þú
hefir kostað oss bóndi en vér höfum gert þér ekki til gagns svo búið. Nú mun eg
fara til móts við víkingana því að ósýnt er um þinn frið þegar vér erum
brottu."
Bóndi þakkar honum en kvað þó
mikið í hættu þar er Þorgils var og hans menn.
26. kafli
Nú býr Þorgils skip sitt og
fer með þrjá tigu manna. Hann sendi orð Eiríki að hann kæmi með jafnmarga menn.
Og er Eiríki komu orðin kvaðst hann mundu koma og verða ekki seinni til eyjanna
en þeir. Þeir Þorgils koma nú við eyna og var Eiríkur ekki þar kominn. Þorgils
gerir þá ráð við menn sína.
"Leitt er mér,"
segir hann, "frá að hverfa en sjá þykist eg Eirík í gegnum. Hann ætlar að
vísa oss á illmenni þessi og hyggur að vér munum eigi nenna frá að hverfa þótt
hann komi eigi."
Ekki höfðu víkingar til lands
komið síðan Þorgils kom í Vestri-byggð. Sá maður var á Grænlandi er Án hinn
heimski hét. Hann hljóp um allt land, kunnur öllum mönnum.
Þorgils lá í einum leynivogi
og hafnleysu. Eitthvert sinn stígur Þorgils á bát og rær frá skipinu. Hann sér
matsveina á landi og höfðu graut í kötlum. Þorgils hafði vond klæði er hann kom
til þeirra. Þeir spurðu hver hann var.
Þorgils svarar: "Eg
heiti Án."
Þeir hlógu að honum enda lét
hann heimsklega. Hann spyr hvar höfðingi þeirra er. Þeir sögðu hann vera á
eyjunni skammt í burt og þangað von til þeirra um kveldið. Þeir færðu hann í
reikuð. Fer Þorgils nú til báts síns og hvelfir honum undir sér.
Þeir hlógu að honum og mæltu:
"Undarlega bregður nú við," sagði annar.
"Hvað er það?"
sagði félagi hans.
"Maður er kominn í
byggðina sá er Þorgils heitir, mikill og frægur, og því kemur höfðingi vor eigi
til lands og heillabrigði er nú orðið. Eg heyrði í morgun er eg kom út þetta
mæla skipin. Það skip er Stakanhöfði hét mælti þetta: "Veistu það
Vinagautur að Þorgils skal eiga okkur." "Veit eg það," sagði
annað skipið, "og þykir mér það vel, og ætla eg," segir hann,
"slíkt fyrir tíðindum."
Nú fer Þorgils aftur til
skips síns. Í það mund róa víkingarnir að lægi. Þorgils leggur þá að þeim. Voru
víkingarnir komnir til skála. Koma þeir Þorgils þá á óvart og lætur hann þegar
leggja eld í skálann. Varð lítil vörn af víkingunum. Gefa þeir sig upp og beiða
griða. Þorgils kvað þess enga von fyrir mörg illvirki er þeir höfðu unnið. Var lið
þeirra allt drepið utan þeir buðu formanni þeirra grið.
Hann kvaðst eigi það þiggja
vilja "því að eg verð yður aldrei trúr."
Hann var þá höggvinn. Þeir
tóku þar fé mikið og höfðu það með sér og svo skipin Stakanhöfða og Vinagaut,
fóru nú til lands. Tók Bjálfi vel við þeim. Þorgils gaf mörgum mönnum fé þeim
er misst höfðu fyrir víkingunum og hefir þó mikið sjálfur. Verður hann nú
vinsæll af þessum verkum. Hrólfur var þá norðan kominn og í frið tekinn.
Þorgilsi líkar illa við Eirík.
Þorgils spyr til Snækolls og
kvaðst vilja finna hann. Þorsteinn hvíti kvað betur fallið að hann seldi
Snækoll við verði en dræpi hann. Það gerði Þorgils. Þrælarnir höfðu fengið góð
kvonföng. Þorgils tekur fé allt af þrælunum en seldi þá í þrældóm.
Eftir þetta fór Þorgils burt
með góðri sæmd og virðing, láta í haf. Ber þá að Írlandi, koma vestan að
landinu, tala nú um hvort þeir skulu þar vera um veturinn eða burt halda.
Þorsteinn kvað óráðlegt burt að halda er sumar var mjög áliðið. Tóku menn sér
þá vistir nær skipi. Þorgils var á vist með þeim manni er Anakol hét. Var honum
þar blíðlega veitt.
Nú líður veturinn. Anakol var
vanur að drekka í burtu um hálf jól. Hann bauð Þorgilsi að fara með sér. Hann
þá það. Þeir Kolur og Starkaður voru heima meðan til umsjár við Þorfinn.
Gípar hét þræll Anakols. Hann
bað Kol drekka karlmannlega.
"Er það auðsætt,"
sagði hann, "að þér þykist mikils verðir."
Kolur kvaðst ætla að ráða
drykkju sinni en hann eggjan sinni. Gípar ámælti honum mjög og þar kom að hann
laust Kol með horni og bað hann það hafa fyrst og bíða svo hins verra.
Starkaður gekk á milli og vildi eigi hefna láta fyrr en Þorgils kæmi heim.
Nú koma þeir Þorgils og bóndi
heim og er þeim sagður þessi atburður. Þorgils kvað það vel vera þótt eigi
hefði hefnt verið "höfum vér þegið góða vist í vetur hjá bónda. Nú vil eg
til bóta mæla" og svo gerði hann.
Bóndi kvaðst ekki þræla mundu
mun gera þótt þeir hnippist. Þorgils kvað eigi vel svarað. Og er boðsmenn voru
brottu farnir þeir er drukkið höfðu þar efra hlut jólanna tóku þeir Þorgils
Gípar og drepa hann eftir jólin. Síðan fóru þeir Þorsteinn til skips og
bjuggust til varnar. Þeir sáu lið mikið fara með skjöldum, eigi færra en
hundrað manns.
Þá mælti Þorgils: "Má
vera að oss sé skjótt fullliða."
Þá ber brátt að og tók
höfðingi þeirra til orða: "Það var mér þá í hug er Þorgils þessi gaf í
mitt vald systur mína að eigi mundi eg efla flokk í móti honum."
Þar var kominn Hugi jarl og
bauð þeim með sér að vera og það þágu þeir. Hugi lét bæta skip þeirra og voru
þeir með honum það eftir var vetrar. Systir Huga lifði og fagnaði þeim vel.
Móðir hennar var önduð. Jarl lét heimta saman fé Þorgils og til skips færa og
setti málum þeirra svo að þeim hugnaði vel og gaf þeim gjafir áður þeir fóru
brott.
27. kafli
Síðan létu þeir í haf og
velktust úti lengi og komu við Hálogaland um haustið og brotnaði kjölurinn
undan skipinu.
Björn hét góður bóndi. Hann
tók við Þorgilsi, Þorfinni og Kol en Þorsteinn, Þorleifur og Starkaður
vistuðust þar í nánd. Snemmendis bættu þeir skip sitt.
Sá maður hvarflaði þar um
land er Randviður hét. Hann var illmenni mikið. Hann kom til Bjarnar bónda og
kvaðst vilja taka við dóttur hans er Ynghildur hét eða berðist við hann ef hann
vildi það heldur. Þorsteinn vildi berjast við þenna mann.
"Eigi vildum vér,"
segir Þorgils, "að þú hefðir þig í hættu fyrir illmenni þetta og vil eg
heldur berjast við hann."
Þorgils finnur Randvið og bað
hann láta bónda vera í friði, gamlan mann. Hann kvaðst einskis mundu hans orð
um það virða.
Þorgils mælti: "Eg vil
leysa bónda."
Þorgils gengur á hólm við
Randvið og höggur þegar skjöld hans ónýtan. Því næst höggur hann kappann sundur
í miðju en við höggið skaut Randviður sverðinu utan á kné Þorgilsi og særði
hann. Það sár greri svo að fótur hans sá var skemmri síðan og varð hann aldrei
óhaltur. Björn þakkar honum vel og bauð Þorgilsi fé en hann kvaðst það ekki til
fjár gert hafa. Skildu þeir vinir.
28. kafli
Eftir það létu þeir í haf og
höfðu harða útivist þar til er þeir sáu land. Þá tók af byrina og kom á
norðanveður hvasst og rak þá undan tólf daga. Síðan kom sunnanveður hvasst og
sigldu tvö dægur að landinu. Þá vildi Þorgils eigi lengur sigla láta. Hann var
þá tvö dægur í austri. Þá höfðu gengið átta áföll. Starkaður bauð honum að fara
frá austri. Þá kom áfall hið níunda og var það mest. Það rak Þorgils af
austurbitanum og sló sveininn Þorfinn úr knjám honum og utanborðs.
Þá mælti Þorgils: "Sú
bylgja gekk nú yfir að eigi þarf að ausa."
Báran kastaði inn aftur
sveininum lifanda.
Hann mælti þá: "Stórum
stöplar nú yfir faðir minn."
Þorgils mælti þá: "Ausi
hver sem má."
Þeir gerðu svo og gátu upp
ausið. Samdægris kom blóðspýja að sveininum og andaðist hann. Tveim nóttum
síðar þá sáu þeir Hjörleifshöfða. Þeir komu í Arnarbælisós. Nú vildu þeir fara
með lík Þorfinns til kirkju. Þorgils kvað þá lengi fylgst hafa, sagði þá og
ekki að svo búnu skilja mundu. Þorsteinn spurði Starkað hvort hann vildi heldur
teygja Þorgils á land eða fara með líkið til graftrar.
29. kafli
Sigmundur hét maður. Hann
heimti skiptoll að Þorsteini því að hann átti land að annast þar er þeir voru
komnir. Nú gerðu þeir Þorsteinn og Sigmundur það ráð að þeir hnipptust við. Þá
sagði Kolur Þorgilsi að Þorsteinn þyrfti manna við. Þorgils hleypur þegar á
land og beit þetta ráð. Urðu þeir Sigmundur og Þorsteinn vel sáttir. Kolur tók
lík Þorfinns og gróf í kirkjugarði. Og er Þorgils verður var við hvað Kolur
hafði gert varð hann reiður mjög og hét honum bana. Kolur kvað það tilvinnanda
ef Þorgils raknar við þá heldur en áður og við umtölur Þorsteins sættust þeir.
Fjögur dægur hafði Þorgils hvorki mat né svefn. Þorgils kvaðst mundu vorkynna
konunum þótt þær ynnu brjóstbörnunum meira en öðrum mönnum.
Litlu eftir þing komu þeir
Þorgils út og fór hann heim í Traðarholt og Þorsteinn með honum og aðrir
félagar. Hæringur bróðir hans tók við honum vel og vildi að Þorgils tæki við
fjám sínum. Þorgils kvaðst eigi vilja við taka fyrr en að vori. Þorsteinn og
Þorleifur fóru utan samsumars. Skildu þeir Þorgils vel sitt félag. Þorgils var
í Traðarholti um veturinn og þeir bræður með honum, Kolur og Starkaður. Með
honum voru fleiri menn þótt eigi séu nefndir. Hæringur veitti þeim vel.
Þorgils mælti eitt sinn við
bróður sinn: "Einn hlutur þykir mér að við þig frændi er þú lést svo mikið
fé fylgja dóttur minni Þórnýju þá er þú giftir hana Bjarna í Gröf."
Hæringur svarar: "Vel
þótti þá séð fyrir kosti hennar er hún hafði hundrað hundraða en ef þér þykir
nokkuð oftekið þá haf af mínu fé slíkt er þér vel líkar."
Þorgils vildi það með engu
móti.
30. kafli
Að liðnum vetri tekur Þorgils
við búi sínu og öðrum fjárhlutum. Felldu menn þegar mikla virðing til Þorgils.
Hann var heldur fár við Bjarna mág sinn. Um vorið kom fjölmennt til
Árnessþings. Kom þar Þorgils og Bjarni mágur hans og Þórný dóttir hans.
Þorgils gekk einn morgun til
búðar Bjarna og tók sverðið Jarðhússnaut í hönd sér. Og er hann kemur í
búðardyrnar sér Þórný dóttir hans að hann er kominn og bað Bjarna upp standa,
kvað honum eigi hlýða svo búið, sagði föður sinn reiðan.
Bjarni spratt upp þegar því
að hann var vitur maður. Hann gekk í móti Þorgilsi og fagnar honum vel og bauð
honum þar að vera "og allt mitt góss er þér heimilt til þess að þér megi
þá betur líka við mig heldur en áður."
"Þetta er allvel
mælt," segir Þorgils, "og skal þetta þiggja ella óvíst hversu farið
hefði."
Bjarni bauð honum þá til
heimboðs. Þorgils kvaðst fara mundu af þinginu með honum og hafa burt fé slíkt
er honum líkaði. Bjarni bað hann því ráða og koma þeir í Gröf og leit Þorgils á
féið og kvaðst burt mundu hafa tuttugu kýr og hundrað ásauðar. Þórný bað hann
taka slíkt er hann vildi og sagði það mundi best gegna að hann réði fyrir.
Maður hét Þórólfur. Hann
hafði verið með Þórði, föður Þorgils, og náinn frændi. Hann átti fé að Þorgilsi
og beiddi Þorgils að hann mundi gjalda Þórólfi fjóra tigu hundraða. Bjarni hét
að hann skyldi ráða, skildu við svo búið.
Og er Þorgils kom heim kom
þar Þórný dóttir hans. Þorgils spyr hvað hún vill. Hún sagðist vilja fylgja fé
sínu ef honum þætti það meiri sómi að skilja með þeim Bjarna "og ráða þess
manns traust undan mér er þér er mestur bati í og þér er sjálfrátt að láta þinn
hlut fyrir neinum manni ef þið eruð að einu ráði báðir."
Þorgils svarar: "Vel fer
þér dóttir og vel fer ykkur báðum. Nú skaltu heim fara og vil eg eigi skilja
ráðahag með ykkur Bjarna" og leggur þeim nú svo peninga að þeim vel líkar.
Og um sumarið býður Þorgils
Bjarna og báðum þeim heim í Traðarholt og þágu þar góðar viðtökur og miklar
gjafir og er nú góð vinátta með þeim Bjarna.
Einnhvern tíma segir Þorgils
Bjarna að hann vill leita sér kvonfangs.
Bjarni kvaðst það gjarna
vilja: "Þú skalt biðja Helgu, dóttur Þórodds goða í Ölfusi Eyvindarsonar
frænda míns."
En þar var svo farið
frændsemi að móðir Þórodds var Þórvör dóttir Þormóðar en Þórvé var móðir
Þorsteins goða föður Bjarna spaka.
Þorgils vekur nú bónorðið.
Skafti tók því seint og svo Helga sjálf, þótti maður heldur stórlyndur og þó
heldur gamall. Annar maður bað og Helgu. Var það Ásgrímur Elliða-Grímsson.
Svarar Skafti þar vel til en Þóroddur vill heldur gifta Þorgilsi. Nú var þetta
talað á þingi og var ekki að gert. Líða nú þau misseri.
Og annað sumar eftir ríður
Þorgils til skips í Einarshöfn. Hann fréttir til ferða Skafta og vildi fyrir
víst finna hann. Þorgils reið til Flóagafls við sétta mann. Þeir voru með honum
bræður, Kolur og Starkaður, og Þórólfur frændi hans og tveir húskarlar. Þeir
voru í hrísum nokkurum og bíða svo Skafta. Þetta var nær Kallaðarnesi. Skafti
sá frá ferjunni að hestar með söðlum gengu með ánni. Skafti sagði að þeir mundu
aftur snúa, kvaðst frétt hafa að síðar mundu betri kaupin og fóru þeir heim.
Þóroddur spurði hví hann færi
svo skjótt aftur "eða hræddist þú hann hraunskeggjann Þorgils og þætti mér
það betra að ríða óhræddum um héraðið og gifta honum Helgu en vera hvergi
óhræddur um þig."
Á þingi um sumarið var talað
um gjaforð Helgu. Dregur Þóroddur fram með Þorgilsi en Skafti með Ásgrími.
Þóroddur mælti þá: "Eg
kann sjá hversu fara mun ef Þorgilsi er synjað konunnar þá mun það margra manna
vandræði en eg vænti með vingjöfum góðum að Ásgrímur láti óhappalaust."
Nú við þessi atkvæði Þórodds
var það af ráðið að Þorgilsi var föstnuð Helga og var brúðhlaup að Hjalla. Þá
var Þorgils hálfsextugur. Fer hann nú heim í Traðarholt með Helgu og var hún
mjög fálát.
Og eitt sinn er Þorgils var á
burtu að byggja jarðir sínar kveðst Helga vilja fara til Hjalla og heim um
kveldið og bað húskarl einn fara með sér. Og er þau koma til Hjalla kvað Helga
húskarlinn ekki þurfa sín að bíða. Skafti tók vel við Helgu en Þóroddur illa.
Er hún þar margar nætur. Þorgils kemur heim og lætur sem hann viti eigi. Og
einn dag býr hann ferð sína og ríður til Hjalla og voru menn að mat. Þorgils
gengur með borðum alvopnaður og að Helgu, tekur í hönd henni og leiðir hana út
og þótti þeim sem inni sátu maðurinn ekki dællegur. Skafti biður menn eftir
sækja.
Þóroddur svarar:
"Þorgils sækir eftir sínu og skal mönnum eigi hlýða að fara eftir
honum."
Þorgils ríður nú heim og
sendir hann orð Skafta að þeir hittist. Er nú svo gert. Sættast nú við
tilstilli Þórodds og gerðist vinátta með þeim og varð Þorgils höfðingi og
virðingamaður mikill.
31. kafli
Frá því er sagt eitthvert
sinn að þau Þorgils og Helga sátu úti og hrein hænan við hananum en haninn
leggur að henni og ber hana þar til er hún mæðist.
Þorgils mælti: "Sérð þú
Helga sameign þeirra hana og hænu."
Helga svarar: "Hvers er
það vert?" segir hún.
"Svo má vera,"
segir Þorgils, "annarra viðeign."
Gerast nú góðar samfarar
þeirra. Son áttu þau Þorgils og Helga er Grímur glömmuður hét. Þorgils var nú
gamall og þó hraustur.
Sá maður bjó skammt frá
Þorgilsi er Sámur hét. Kona hans hét Þorfinna. Sá maður var þar í sveit er
Bjálfi hét, óeirðarmaður. Hann glapti konu Sáms og settist í bú hans löngum en
heitaðist við bónda. Honum líkar þetta illa.
Bjálfi bauð bónda hólmgöngu
"ella gef upp konu þína."
Sámur fer nú að finna Þorgils
og segir honum að Bjálfi bauð honum einvígi.
"Eg skal hjálpa við þínu
máli," segir Þorgils.
Fer Sámur nú glaður heim.
Annan dag fer Þorgils og hittir Sám. Hann fagnar honum vel. Og litlu síðar kom
Bjálfi og spurði hví hann væri þar og kvaðst enga þökk kunna hans komu.
"Ekki fer eg að
því," segir Þorgils, "því að vel má eg þar koma sem þú kemur. Og þar
sem þú hefir boðið Sámi einvígi skaltu mér mæta en ekki honum."
Bjálfi svarar: "Það
kemur til þess að Sámur greyið þorir eigi að berjast við mig."
Nú ganga þeir á hólm og er
ekki sagt frá viðskiptum annað en Þorgils drepur Bjálfa og frelsti svo bónda
"og naustu þess að," segir Þorgils, "að þú varst svo nær
mér."
Ásgrímur Elliða-Grímsson var
höfðingi mikill og farmaður og átti skip í förum. Hann átti tvo sonu og hét
hvortveggi Þórhallur. Hinn eldri Þórhallur var þroskaður mjög þá er þetta var.
Gunnvör hét dóttir Bjarna í Gröf. Hún var eigi dóttir Þórnýjar. Gissur hvíti
bjó þá í Höfða og átti Þórdísi dóttur Þórodds. Móðir Ásgríms var Jórunn
Teitsdóttir. Þorgils átti land nær skipalægi og lá þar á hafnartollur og heimti
að maður skiptollinn er á landinu bjó og galt Ásgrímur aldrei toll þeim er á
landi Þorgils bjó.
32. kafli
Eitthvert sinn hittir Þorgils
Ásgrím og biður að hann minnist í nokkuru um tollinn. Ásgrímur segir að skip
koma þar sem auðið verður en kvaðst eigi vanur að gjalda skiptolla sem
smábændur og bað hann eigi heimta slíkt. Þorgils kvaðst það fyrir annars hönd
gera en eigi fyrir sína og skilja þeir nú við svo búið.
Um vorið voru menn kvaddir af
Ásgrími til skipsdráttar og kom fjöldi manns. Pyttar voru um sandana víða og
voru fullir með vatni þó að fjara væri. Ásgrímur tók á festum í fremra lagi og
voru þar mest konur hjá honum. Hann var í litklæðum. Tóku nú fast á. Maður reið
á landinu fyrir ofan, mikill vexti og hafði bolöxi í hendi. Hann horfir á
skipdráttinn. Ásgrímur eggjar nú fast að menn herði sig vel. Og er Þorgils var
kominn að flæðarpyttinum sá hann að Ásgrímur hélt á strenginum. Hleypur hann þá
til og höggur strenginn og verður afturhlaupið hart og hrapar Ásgrímur í
pyttinn og konurnar á hann ofan. Urðu öll klæðin Ásgríms vot og þrekkótt og svo
hann sjálfur. Þetta þykir honum mikil svívirðing ger til sín. Verður nú vís
hver gert hefir og kvað þá Þorgils varla mega við svo búið skilja.
Þórhallur bað hann utan fara
"og megi þá sjatna þessi óþokki er í millum ykkar er."
Ásgrímur kvaðst mundu ráða
sjálfur ferðum sínum.
Það var einhvern tíma að
Þórhallur bað Ásgrím föður sinn fara með sér til kvonbæna til móts við Bjarna
bónda í Gröf.
Ásgrímur segir að það var í
mörgu lagi góður kostur "en illt þykir mér að Þorgils er þar nokkuð við
riðinn."
"Að Þorgilsi er ekki
mein," segir Þórhallur.
Síðan fara þeir. Bjarni
svarar vel og er þessum ráðum ráðið. Ásgrímur biður að Þorgilsi skuli ekki
bjóða til boðsins.
Bjarni svarar og kvaðst honum
mundu allvel fagna ef hann kæmi "en gera eigi mann til hans fyrir bæn
þína."
Bjarni býst nú við
brúðlaupinu.
Einn dag kemur Þórný inn og
segir að maður reið úr skógum neðan "og er líkur föður mínum."
Bjarni gekk út og var Þorgils
kominn og þræll hans með honum. Bjarni fagnaði honum vel.
Þorgils mælti: "Hví
bauðst þú mér ekki til boðsins mágur?"
"Þér er jafnan
sjálfboðið," segir Bjarni, "og þá vel kominn er þú vilt verið
hafa."
Ásgrímur kom um kveldið og
gekk Bjarni í móti honum og fagnaði honum vel. Þá spurði Ásgrímur hvort Þorgils
væri þar.
Hann kvað hann þar vera
"og mun hann hér dveljast. Gerði eg nú sem þú mæltir að eg bauð honum eigi
en ávallt skal hann vera hjá mér er hann vill."
Ásgrímur verður óður við og
vill ríða heim. Þórhallur biður hann eigi það gera og það verður að hann er þar
og er heldur óglatt um boðið. Og er menn búast frá boðinu sjá menn að þeir fara
húsa á milli, Ásgrímur og Kolur þræll, og töluðu.
Nú ríða menn um kveldið heim.
Þorgils bóndi og þræll hans Kolur riðu síð um kveldið ofan hjá Húsatóftum.
Ásgrímur hafði fengið þrælnum þrjár merkur silfurs til höfuðs Þorgilsi. Kolur
hafði hest latan og hvikaði hesturinn undir honum. Þorgils laust þrælinn og
féll fésjóðurinn undan yfirhöfn hans. Þorgils spyr hvaðan féið kom að. Þrællinn
sagði sem var. Síðan drap hann þrælinn þar sem nú heitir Kolslækur.
Nú þykir Þorgilsi Ásgrímur
sannur að fjörráðum við sig, lætur nú safna mönnum og verða vel fjórir tigir,
ætlar nú að fara stefnuför til móts við Ásgrím. Nú hittir Gissur hvíti Þorgils
og spyr hversu hann ætlar til um ferðir sínar. Hann kvaðst ætla að sækja heim
Ásgrím Elliða-Grímsson.
Gissur svarar: "Það er
óráðlegt því að hann er miklu fjölmennari en þú."
Þorgils kvaðst eigi hirða um
fjölmenni hans. Nú letur Gissur ferðarinnar og að bæn hans reið hann í Eyna og
kvaddi níu búa. Eftir það fara þeir í burt og þykir sem lögfullt sé.
33. kafli
Nú koma menn til þings
fjölmennt. Skafti spyr mág sinn Þorgils hvern málatilbúnað hann hefði haft.
Hann kveðst níu búa kvatt hafa.
Skafti segir: "Varat af
vöru, sleikti um þvöru. Lát niður falla, engu er nýtt."
Þorgils segir: "Því mun
það sæta?"
Skafti segir: "Kunnig
eru mér svo lög mágur að eg veit að rangt er til búið og eru þau ein málaefni
með ykkur Ásgrími að best er að niður falli. Hafa svo farið skipti ykkur
Ásgríms flest að þú ert ekki vanvirður í þótt þið skiljið við svo búið. Unnum
vér þér sæmdar og hógsetu héðan af og má af þér margt tala það er mikilmannlegt
er og skörulegt."
Ríða menn nú af þingi og
sefast Þorgils við umtölur mága sinna og vina.
Helgi hét Austmaður er út kom
í Einarshöfn og átti ferð upp í hérað og fer með varning sinn upp í
Þrándarholt. Þorgils reið að ofan úr Gröf og riðust á móti. Helgi reið Þorgils
næsta af baki og hló að honum er hann var bjúgur á baki, kveðst eigi það mega á
sjá að hann hefði verið garpur mikill.
Þorgils reiddist við og
mælti: "Ekki hafa menn það gert að færa spott að mér. En svo hæðilegur sem
þér þykir eg nú vera þá býð eg þér einvígi þegar í stað og er þá reynt hvort þú
berð skjótt af mér."
Þeir hittust fyrir neðan
grindgarð en veður var á kalt í móti Þorgilsi og sat hann því bjúgur á baki.
Helgi kvað sér engan frama í
"að bera af fretkarli þínum" en kveðst þó eigi vilja undan ganga.
Austmaðurinn hafði öxi í
hendi og leit á öxina og þótti sljó.
Þorgils mælti: "Hvassara
vopn muntu þurfa ef bíta skal mín höfuðbein og er vopn þitt
ókarlmannlegt."
Þorgils hafði sverð sitt
Jarðhússnaut og var alvopnaður sem hann var aldrei öðruvís. Þorgils hljóp þegar
geystur að honum Austmanninum og höggur til hans með sverðinu Jarðhússnaut og
kom sverðið á öxlina og var svo mikið sár að honum vannst það skjótt til bana.
Þá var Þorgils sjötugur. Þorgils kvað þetta orðið glappaverk og bráðræði og
kveðst þetta helst bæta vilja.
Og tveim vetrum síðar komu út
í Einarshöfn tveir bræður Helga og ætla til hefnda. Hét annar Einar en annar
Sigurður og varð ekki vart við skipkomu. Þeir fóru þegar í Traðarholt og komu
þar snemma dags og var Þorgils í hvílu sinni en verkmenn voru á fótum og konur.
Og er þeir bræður komu að bænum þá töluðust þeir við hversu með skyldi fara.
Einar mælti: "Illt þykir
mér að drepa gamlan mann, frægjan og vinsælan, og er skaði mikill ef hann lætur
af berast."
Þorgils verður nú var við og
sprettur upp þegar og tekur Jarðhússnaut og bað þá að ganga ef þeir vildu og
brást þó nokkuð á fótinn halta.
Einar mælti: "Eigi
viljum við bræður gera þér ófrið og skal annað verða erindi okkað ef eg
ræð."
Þorgils tók þessu vel og
hýrðist skjótt í viðbragði og sagði svo: "Eg er þess miklu fúsari og muntu
vera góður drengur. Og þar er eg drap Helga bróður ykkarn þá vil eg það bæta og
gefa vil eg þér Einar sverðið Jarðhússnaut því að þú ert verður að bera, bróður
þínum fimm merkur silfurs nema þið skiptið annan veg" og skildu þeir vel
og drengilega. Fóru þeir utan eftir það.
Eitt sinn er þau hjón fóru
til bús á Hjalla tók Þorgils þar sótt. Þá var hann hálfníræður. Hann lá viku og
andaðist þar og voru þeir í eina gröf lagðir, Þóroddur og Þorgils og Bjarni
hinn spaki, að þeirri kirkju er Skafti lét gera fyrir utan lækinn. En síðan
voru færð beinin í þann stað sem nú er kirkjan því að Skafti hét að gera kirkju
þá er Þóra kona hans braut fót sinn þá er hún var að léreftum sínum.
Þorgils þótti hinn mesti
merkismaður, vinfastur og vinveittur, þrautgóður og þróttigur, eljunarmaður og
óáleitinn og hélt sig við alla til jafns þótt miklir menn og sterkir ættu í
hlut. Þótti hann og hinn mesti sveitarhöfðingi. Hann var sáttgjarn og svinnur
en móðugur og mjög þungrækur við þá er eigi vildu sig vel siða. Hann var
tryggur og trúrækinn, guðhræddur og góður vinum sínum. Er og margt stórmenni
frá honum komið og víða dreifst hér um land vort. Munum vér nú hætta fyrst að
segja frá Þorgilsi örrabeinsstjúpa og lýkur þar sögu þessi.
(Hér koma kaflar úr styttri gerð sögunnar,
fyrst lok 18. kafla til miðs 25. kafla.)
Þórey hét kona. Hún var
Þorvarðsdóttir. Þorfinna hét móðir hennar. Hún bjó í Odda. Þorvarður var
andaður. Þórey var að fóstri á þeim bæ er heitir í Kálfholti með þeim manni er
Jósteinn hét, gildur bóndi. Jósteinn átti systur Þorvarðar í Odda er Þorgerður
hét. Þau voru börn Þórðar Freysgoða. Kolur og Starkaður voru fóstbræður
Þóreyjar. Guðrún hét systir þeirra og var hún fóstsystir Þóreyjar. Þorgils bað
Þóreyjar og var hún honum gift. Voru þeirra samfarar góðar.
19. kafli
Sörli hét maður. Hann bjó
skammt í brott frá Kálfholti. Hann venur komur sínar til Guðrúnar systur þeirra
Starkaðar og Kols. Einn tíma fer Kolur á leið Sörla og bað hann af láta komum
til systur sinnar. Sörli kvaðst það mundu gera eftir hugþokka sínum en hirða
ekki um orð hans.
"Þú munt ráða,"
segir Kolur.
Annan dag kom Sörli og sat á
tali við Guðrúnu. Og um kveldið fer hann seint heim. Og er hann kemur skammt
frá bænum sprettur Kolur upp fyrir honum. Verður ekki af kveðjum. Höggur Kolur
Sörla banahögg og fór heim og sagði Guðrúnu að stöðvaðar voru komur Sörla.
Hún kvaðst eigi það lasta
mundu en kvað eigi svo búið hlýða mundu því að hann var þingmaður Ásgríms
Elliða-Grímssonar "far nú og hitt Þorgils því að hann þykir mér
líklegastur til að veita þér nokkuð skjól."
Kolur kemur í Traðarholt. Það
var síð um kveld. Menn voru að mat. Þórey gekk fram til dyra og bauð fóstra
sínum þar að vera. Hann sagði henni tíðindi.
"Þú skalt það,"
segir Þórey, "vita við Þorgils hvort hann vill nokkuð traust veita þér eða
ekki og láttu hljótt um þig."
Hún leiddi hann í skot eitt.
Síðan gekk hún til stofu.
Þorgils mælti: "Hví
skulu menn svo lengi bíða matar í kveld enda hefir þú fengið rauðan lit."
Þórey svarar: "Satt er
hið fornkveðna að spakir menn henda á mörgu mið. Mús hljóp áðan á kinn mér en
mér er hún harla óþekk."
"Svo má vera,"
segir Þorgils.
En er þau komu í rekkju um
kveldið kvaðst Þorgils vilja vita hvað í framgöngunni hafði verið um kveldið.
Hún sagði honum allan
atburðinn og kvaðst ásjá vilja veita Kol "og muntu og svo gera fyrir mína
skyld."
Þorgils kvaðst svo gera
mundu. Um morguninn fór Þorgils til bús Kols og lét fara á burt fé allt með sér
og Guðrúnu en lét eftir ómegð aðra. En er þeir voru burt farnir kom Ásgrímur.
Ætlar hann að taka upp fyrir Kol fé allt og hafði hann ekki. Kolur situr hjá
Þorgilsi um veturinn. Og um vorið býr Ásgrímur mál til á hendur Kol. Lætur
Þorgils eigi sem hann viti. Verður Kolur sekur skógarmaður.
Þorgils ríður sem áður um
héraðið og Kolur með honum, sækja mannamót og verður nú óþokki mikill manna á
milli. Höfðingjum þykir mein á þessu og leita um sættir. Þorgils býður ekki
sættir.
Eitt sinn ríður hann til
hestaþings og Svartur verkstjóri hans með honum. Var þá góð gleði um daginn.
Ásgrímur talar mart við Svart um daginn og að kveldi ríður Þorgils heim.
Svartur reið nær Þorgilsi. Þorgils fann að hann vildi ríða seinna. Grunar hann
þá og gefur honum færi á sér. Og er Þorgils varir minnst höggur Svartur til
hans. Þorgils kastar sér úr söðlinum og klauf Svartur söðulinn. Þorgils þrífur
Svart og spyr hverju gegnir. Hann segir honum að Ásgrímur bauð honum þetta. En
þá er hann svipti Svarti féll fésjóður undan yfirhöfn hans. Segir hann þá að
Ásgrímur hafi gefið honum féið til höfuðs Þorgilsi. Hann drepur Svart þegar í stað.
Eftir það ríður Þorgils fram og segir sínum mönnum hversu farið hafði. En hvert
sinn er hann kemur á mannamót sýnir hann sjóðinn. Voru þar í þrjár merkur
silfurs og gekk enginn við að ætti.
20. kafli
Nú kom kristni á Ísland og
tók Þorgils í fyrra lagi við trú.
Hann dreymdi eina nótt að Þór
kæmi að honum með illu yfirbragði og kvað hann sér brugðist hafa "hefir þú
illa úr haft við mig," segir hann, "valið mér það er þú áttir verst
til en kastað silfri því í fúla tjörn er eg átti og skal eg þér í móti
koma."
"Guð mun mér
hjálpa," segir Þorgils, "og er eg þess sæll er okkað félag
sleit."
Og er Þorgils vaknar sá hann
að töðugöltur hans var dauður. Hann lét grafa hann hjá tóftum nokkurum og lét
ekki af nýta.
Enn barst Þór í drauma
Þorgilsi og sagði að honum yrði eigi meira fyrir að taka fyrir nasar honum en
galta hans. Þorgils kvað guð mundu því ráða. Þór heitaðist að gera honum
fjárskaða. Þorgils kvaðst eigi hirða um það. Aðra nótt eftir dó uxi gamall
fyrir Þorgilsi. Þá sat hann sjálfur hjá nautum um nóttina eftir. En um
morguninn er hann kom heim var hann víða blár. Hafa menn það fyrir satt að þeir
Þór muni þá fundist hafa. Eftir það tók af fallið.
Þorgils var hið mesta
mikilmenni. Honum komu orðsendingar af Grænlandi að Eiríkur rauði býður honum
til sín og að hafa þá kosti er besta hefir hann til. Þorgils áhlýddist lítt við
það. Hann hafði þá búið hér þrettán vetur. Skip kom af hafi. Var þar á
Þorleifur son hans og hafði góða gripi að færa honum. Þorleifur var þá
tvítugur. Þorgils talar við konu sína ef hún vildi fara til Grænlands. Hún kvað
vanbreytt um.
Hann sagði að Eiríkur hafði
sent sér orð um "má og að þú sért eftir ef þú vilt það."
"Misráðið mun,"
segir hún, "að þangað sé farið en þó skal eg fara ef þú ferð."
Hæringur tók við góssum
Þorgils. Þórný hét dóttir þeirra Þorgils og Þóreyjar. Hún var átta vetra.
Þorleifur skal fara með þeim, Kolur og bróðir hans Starkaður og Guðrún systir
þeirra, Snækollur og Össur þrælar hans og tíu aðrir þrælar og ráðsmaður hans
Þórarinn því að Þorgils ætlaði bæ að reisa þá er hann kæmi til Grænlands.
Jósteinn úr Kálfholti réðst til ferðar með Þorgilsi við tólf menn, Þorgerður
kona hans og sonur. Þorgils kaupir nú skip í Leiruvogi. Þórólfur hét maður er
Þorgils fékk bú í hendur. En Hæringi fékk hann sex tigu hundraða mórent sex
álna aura annað en staðfestur.
Þorgils gisti að Þórodds að
Hjalla. Með honum var í ferð Þórný dóttir hans. Þar tók hún sótt og beið
Þorgils þar þrjár nætur. Sagði hann að það stæði ekki fyrir ferð hans þótt hún
væri sjúk "má vera að hér séu hennar forlög."
Þóroddur kvaðst ætla að hún
mundi giftudrjúg verða og langlíf. Lét hann hana eftir og gaf henni fjóra tigu
hundraða ef hún þyrfti. Þorgilsi kvaðst nú fyrir þykja að fara en lést eigi
nenna aftur að setjast.
21. kafli
Þorgils bíður nú byrjar og
dreymir að maður kæmi að honum, mikill og rauðskeggjaður, og mælti: "Ferð
hefir þú ætlað fyrir Þér og mun hún erfið verða."
Draummaðurinn sýndist honum
heldur grepplegur.
"Illa mun yður
farast," segir hann, "nema þú hverfir aftur til míns átrúnaðar. Mun
eg þá enn til sjá með þér."
Þorgils kvaðst aldrei hans
umsjá hafa vilja og bað hann burt dragast sem skjótast frá sér "en mín
ferð tekst sem almáttigur guð vill."
Síðan þótti honum Þór leiða
sig á hamra nokkura þar sem sjóvarstraumur brast í björgum "í slíkum
bylgjum skaltu vera og aldrei úr komast utan þú hverfir til mín."
"Nei," sagði
Þorgils, "far á burt hinn leiði fjandi. Sá mun mér hjálpa sem alla leysti
með sínum dreyra."
Síðan vaknar hann og segir
drauminn konu sinni.
"Aftur mundi eg
setjast," segir hún, "ef mig hefði svo dreymt og eigi vil eg segja
Jósteini draum þenna og eigi öðrum mönnum."
Nú kemur byr og sigla þau út
úr firði. Hafði Jósteinn skip fyrir framan siglu. Og sem þau koma úr landsýn
tekst af byr allur og velkjast þau úti lengi svo að bæði varð matfátt og
drykkjarfátt.
Þorgils dreymdi að hinn sami
maður kæmi að honum og mælti: "Fór eigi sem eg sagði þér?"
Þór talaði þá enn mart við
Þorgils en Þorgils rak hann frá sér með hörðum orðum.
Tekur nú að hausta og mæltu
sumir menn að þeir skyldu heita á Þór. Þorgils bannaði það og sagði að menn
skyldu missmíði á finna ef nokkur maður blótaði þar í skipi. Við þessi orð
treystist engi á Þór að kalla.
Eftir þetta dreymdi Þorgils
að sami maður kom að honum og mælti: "Enn sýndist það hversu trúr þú varst
mér er menn vildu á mig kalla. En eg hefi beint nú fyrir þínum mönnum og eru nú
komnir að þrotum allir ef eg dugi þeim eigi. En nú muntu taka höfn á sjö nátta
fresti ef þú hverfur til mín af nokkurri alvöru."
"Þó eg taki aldrei höfn,"
segir Þorgils, "þá skal eg þér ekki gott gera."
Þór svarar: "Þótt þú
gerir mér aldrei gott þá gjalt þú mér þó góss mitt."
Þorgils hugsar hvað um þetta
er og veit nú að þetta er einn uxi og var þetta þá kálfur er hann gaf honum. Nú
vaknar Þorgils og ætlar nú að kasta utan borðs uxanum. En er Þorgerður verður
þess vís falar hún uxann því að henni var vistafátt. Þorgils sagðist vilja
ónýta uxann og engum selja. Þorgerði þótti nú illa. Hann lét kasta uxanum
útbyrðis og kvað eigi kynlegt þótt illa færist er fé Þórs var innbyrðis.
22. kafli
Þau eru nú úti um hríð og
höfðu harða réttu. Þórarinn var knáastur maður annar en Þorgils. Hann var
tvítugur að aldri. Það er sagt að þeir brutu skipið undir Grænlandsjöklum í vík
nokkurri við sandmöl. Tók skipið í sundur í efra rúmi. Menn héldust allir og
svo fé. Bátur var og heill. Stafn rak upp við syðra land. Þá var vika til
vetrar. Jöklar miklir gengu tveim megin víkurinnar. Þeir gera sér nú skála og í
þverþili. Búa nú sínum megin hvorir. Mjöl nokkuð höfðu þeir til atvinnu sér,
henda og af selum og eiga það allir saman. Dautt var fé þeirra flest. Þorgils
manna varð betri hluti af veiðifangi. Varð hann lengrum hlutsælli. Hann bað
sína menn vera hljóðláta og siðsama á kveldum og halda vel trú sína. Þórey var
mjög þunguð. Það er sagt að Jósteinn og hans menn gerðu mikið um sig og höfðu
náttleika með háreysti. Nær veturnóttum varð Þórey léttari að sveinbarni og hét
Þorfinnur. Hún bjargaðist lítt við þá fæðu er til var. Þorgils hafði
útróðrarmenn með þrælum Jósteins. Líður nú á veturinn og dregur að jólum.
Þorgils biður menn hljóða vera og fara snemma í rekkju.
Jólamorgun var veður gott og
voru menn úti um daginn og heyrðu óp mikið í útnorður og kemur annar dagur í
jólum. Þorgils háttar snemma og er þau höfðu sofið svefn kom Jósteinn inn og
hans menn og er heldur mikið um þá. Og er þeir voru niður lagstir er drepið
högg mikið á dyr.
Þá mælti einn þeirra:
"Góð tíðindi munu nú vera" og hljóp út og varð hann þegar ær en um
morguninn deyr hann. Svo fer annan aftan að maður ærist og kallast sjá hinn
hlaupa að sér er áður dó.
Eftir það kom sótt í lið
Jósteins og deyja sex menn. Þá tekur Jósteinn sótt og deyr hann. Síðan eru þeir
kasaðir í mjöllinni. Þorgils ræðir um við sína menn og bað þá við sjá slíkum
fádæmum. Á bak jólum gengu þessir menn allir aftur. Þá tók Þorgerður sótt og
andast og þar næst hver að öðrum þeirra manna er með Jósteini höfðu verið.
Þórarinn lést síðast. Voru nú allmiklar afturgöngur og sóttu mest Þorgils. Öll
voru þau dauð í miðja gói. Ekki mátti Þorgils og hans menn í burt færast meðan
afturgöngur voru sem mestar. Í þenna hluta skálans gengu þau mest aftur er þau
höfðu átt. Þorgils lét brenna þau öll á báli og varð þaðan af ekki mein að
afturgöngum.
Nú líður á veturinn og máttu
þeir eigi burt leita fyrir ísum og fengu sér vistir um sumarið. Annan vetur
andaðist Guðrún systir Kols og gróf Þorgils hana undir rúmi sínu. Og er vorar
mega þau ekki í burt komast.
23. kafli
Það er eitthvert sinn að
Þórey sagði draum sinn Þorgilsi, að hún kvaðst sjá fögur héruð og menn bjarta
"og get eg að vér leysumst burt úr þessum vandræðum."
Þorgils svarar: "Góður
er draumur þinn og þó eigi ólíkast að viti til annars heims og munir þú eiga
gott fyrir höndum og munu helgir menn hjálpa þér fyrir hreint líf og
mannraunir."
Hún bað hann burt leita úr
óbyggðum ef þeir mættu. Þorgils kvaðst eigi sjá ráðrúm til þess. Hún lá í
rekkju löngum. Og einn góðan veðurdag segir Þorgils að þeir muni ganga á jökla
og vita ef þeir sæju nokkuð leysast ísinn. Þórey kvaðst þess ófús að hann færi
frá henni. Hann kvaðst skammt fara mundu. Þrælarnir skulu róa að veiðifangi en
Þórarinn bryti skal ýta og vera síðan hjá Þóreyju. Þeir Þorleifur, Kolur og
Starkaður beiddust að fara með honum. Þorgils kvað þá forystulaust heima en
kvaðst eigi vel trúa þrælunum. Þeir fóru allir á jökla. Þorgils hafði bolöxi í
hendi og gyrður sverðinu Jarðhússnaut. Að nóni dags sneru þeir aftur. Gerði þá
á veður hart. Þorgils fór fyrir og hitti vel leiðina, koma til skálans og sáu
eigi skipið, gengu í skálann. Voru í burtu allar kistur og svo menn.
Þorgils mælti: "Nú munu
ill efni í."
En er þeir komu innar í
skálann heyrðu þeir snörgl nokkuð til rekkju Þóreyjar. Og er þeir komu þar sjá
þeir að hún var önduð en sveinninn saug hana dauða. Leituðu þeir um hana og
fundu ben litla undir hendinni sem mjóvum hnífsoddi hefði stungið verið. Mjög
var þar allt blóðugt. Þessa sýn hafði Þorgils svo séð að honum þótti mestur
harmur í vera. Burt var sópað öllum vistum.
Um nóttina vill Þorgils vaka
yfir sveininum og kvaðst eigi sjá að hann mætti álengdar lifa "og þykir
mér mikið ef eg má eigi honum hjálpa. Skal það nú fyrst taka bragða að skera á
geirvörtuna mér" og svo var gert. Fór fyrst út blóð, síðan blanda og lét
eigi fyrr af en úr fór mjólk og þar fæddist sveinninn upp við það.
Þeir Þorgils sóttu fast að
veiðifangi og gerðu sér einn húðkeip og bjuggu innan með viðum.
24. kafli
Einn morgun er Þorgils einn
úti og sér í vök rekald mikið og þar hjá tröllkonur tvær og bundu byrðar
miklar. Þorgils hleypur til þangað og hafði sverðið Jarðhússnaut og höggur til
annarrar með sverðinu í því er hún færist undir byrðina og rekur af henni
höndina. Byrðurin fellur niður en hún hljóp í burt. Síðan taka þeir rekaldið og
eru þá vistir nógar. Síðan losnar ísinn og leitar Þorgils og hans menn þá í burt
og komast til Seleyra um sumarið og voru þar um veturinn. Að sumarmálum fóru
þeir þaðan og fundu ey litla. Hálfum mánuði síðar fundu þeir svartbaksegg og
gáfu sveininum. Hann át hálft eggið. Þeir spurðu hví hann át eigi.
Hann svarar: "Því spara
eg minn mat að þér sparið yðvarn mat."
Þeir dragast nú fram með
jöklinum og koma að björgum bröttum, brýna upp skipinu, reisa þar tjald. Og um
morguninn gengur Kolur út og sér eigi skipið, leggst síðan niður og vill eigi
segja Þorgilsi. Litlu síðar kom Þorleifur út og getur eigi um.
Þorgils kom út og sér að
skipið er á burtu og sagði þeim hvarf skipsins "sé eg nú ekki annað
til," kvað Þorgils, "en að tapa verði sveininum."
Þorleifur svarar: "Ekki
er það til."
Hann bað þó að það skyldi
gera. Taka þeir nú sveininn og biður Þorleifur Kol tapa piltinum.
"Eigi mun eg það
gera," segir Kolur, "því að eg veit að þegar af líður Þorgilsi þetta
þá er honum það hinn mesti harmur en eg ætti Þorgilsi gott að launa."
Síðan fara þeir inn og láta
úti eftir sveininn. Þorgils spurði þá hvort þeir hefðu drepið sveininn. Þeir
kváðu það eigi vera. Hann þakkaði þeim fagurlega er þeir höfðu svo gert. Var þá
sóttur sveinninn og var hann hjá Þorgilsi um nóttina.
Þá sagði Þorgils draum sinn:
"Eg þóttist á þingi vera á Íslandi. Þótti mér sem við Ásgrímur
Elliða-Grímsson toguðum eina hönk og missti hann."
Þorleifur svarar: "Þar
muntu enn koma til Íslands og skipta málum við hann og mun þér það betur
ganga."
"Svo má vera,"
segir Þorgils.
Aðra nótt dreymdi hann og
sagði: "Eg þóttist heima vera í Traðarholti og var þar fjölmennt. Eg sá
álft eina ganga eftir gólfinu og var blíðari við aðra en mig. Þá hristi eg hana
og var hún þaðan af miklu betur til mín."
Þorleifur svarar: "Þar
muntu kvongast faðir og muntu lítt í fyrstu njóta ástar hennar og mun það þó
vel dragast."
"Enn dreymdi mig,"
segir Þorgils, "að eg væri heima í Traðarholti. Eg sá á kné mínu hinu
hægra, þar voru vaxnir fimm hjálmlaukar saman og kvísluðust þar af margir
laukar og ofarlega yfir höfuð mér bar einn laukinn en svo var hann fagur sem
hann hefði gullslit."
Þorleifur svarar: "Sé eg
draum þinn. Þar muntu eiga fimm börn. Frá þeim munu kvíslast margar ættir á
Íslandi. En eg mun ekki þar aldur ala og mun eg auka ætt mína annars staðar. En
hinn fagri laukurinn mun merkja það að einhver maður mun frá þér koma sá er
ágætur mun verða."
Og það gekk eftir síðan því
að frá Þorgilsi er kominn Þorlákur biskup hinn helgi.
Þorleifur mælti þá: "Það
dreymdi mig faðir að mér þótti Þórný systir mín gefa mér osthleif og voru af
bárurnar."
Þorgils mælti: "Þar mun
af hið harðasta af kostum okkrum er af voru bárurnar."
Þá heyrðu þeir óp mikið. Var
þá kallað að Íslendingar skyldu taka skip sitt. Þeir ganga út skjótt og sjá
tvær konur. Þær hurfu skjótt. Björn einn braust um í vök og var brotinn í
hrammurinn. Þorgils hleypur til og leggur björninn með sverði. Dó dýrið af því
lagi. Þorgils hrífur þá til hlustanna og vill ei að sökkvi dýrið, draga upp
síðan og gera til. Þorgils deildi þá stykki sér hverjum þeirra og má af slíku
marka hversu þungan matarafla þeir áttu.
Þorleifur mælti:
"Matspar ertu nú faðir."
"Já son minn það hæfir
að svo sé."
Síðan snúa þeir til hafs og
róa fyrir framan margar vikur og er þeir komu fyrir eitt fjarðarmynni gekk þeim
þá með mikilli mæði. Tekur þá nú að þyrsta fast. Þeir voru fimm saman með
sveininum. Þeir gerðust þá mjög máttfarnir af þorsta en var hvergi nær vatn.
Þá mælti Starkaður: "Það
hefi eg vitað menn hafa gert ef líf þeirra hefir við legið að menn hafa blandað
saman sjó og hlandi."
Þeir taka nú auskerið og míga
í og blönduðu við sjó og báðu Þorgils leyfis að drekka. Hann kvað vorkunn á en
kvaðst þó hvorki banna né lofa. En er þeir ætluðu að drekka bað Þorgils þá fá
sér og kvaðst skyldu mæla fyrir minni.
Hann tók við og mælti svo:
"Þú hið argasta dýr er ferð vora dvelur skalt eigi því ráða að eg né aðrir
drekki sinn þarfagang."
Í því fló fugl, því líkastur
sem álkuungi, burt frá skipinu og skrækti við. Þorgils hellti síðan útbyrðis úr
auskerinu. Síðan róa þeir og sjá vatn renna og taka af sér til gagns og var það
síð dags. Þessi fugl flaug í norðurátt frá skipinu.
Þorgils mælti: "Seint
hefir fugl þessi við oss skilið og taki nú allar gramir við honum. En við það
megum vér una að hann kom eigi því á leið sem hann vildi."
Að þrem nóttum liðnum sáu
þeir tjald af lérefti. Þeir kenndu að það var tjald Þóreyjar. Fundu þar brytja
Þorgils og spyrja með hverju faraldi hann þar hafði komið.
Hann sagði þá kostaboð þeirra
Snækolls við sig ef hann vildi eigi fara að þeir mundu drepa hann
"Snækollur stakk mjóvu járni á Þóreyju."
Þorgils svarar: "Eigi
veit eg hvers þú ert af verður. En ósannleg þykir mér þín sögn og skaltu ekki
lifa lengi."
Þar var hann drepinn og grófu
hann þar, fara síðan í burt.
Nú tekur að hausta og koma þá
í fjörð einn, láta að landi og sjá að þar var naust, brýna þar upp skipinu og
ganga frá sjó og koma að bæ. Þar var maður úti og heilsar á þá og spyr að nafni
og þeir hann. Þessi kvaðst Hrólfur heita og bauð þeim þar að vera. Það þiggja
þeir og er Þorfinnur fenginn konum til geymslu og er honum mjólk gefin. Sagði
hann mjólk föður síns ekki svo lita. Eru þeir þar um veturinn. Um vorið býður
Hrólfur Þorgilsi þar að vera með sínum mönnum en þá bauð hann honum skip sitt
ef hann vildi burtu fara.
Þorgils þakkar honum en
kvaðst skipið hafa vilja "væri og skylt að launa þér góðu."
Hrólfur kvaðst ætla að hann
mundi gott af honum hljóta "því að þú munt í mikla virðing koma. Og ef svo
væri þá mættir þú mig í frið kaupa við byggðarmenn því að eg er í ófriði við
þá."
Þorgils játtar því og mæla
þar hvorir vel fyrir öðrum, fara suður fyrir land og koma í fjörð og lögðu í
lægi. Síðan tjölduðu þeir. Og í því bili sáu þeir skip og var það kaupskip.
Sigldu þeir á fjörðinn og höfðu eitt veður hvorirtveggju og komu að einni
lendingu.
Þorgils mælti: "Þetta
eru góð tíðindi. Farið þið Þorleifur og Kolur og vitið hverjir þessir
eru."
Síðan fóru þeir og komu að
skipinu og ganga út á það. Aftur við lyftingina sat maður í rauðum kyrtli og
sprettur upp þegar og fagnar Þorleifi. Var þar kominn Þorsteinn hvíti fóstri
hans og stjúpfaðir. Hann spyr að Þorgilsi. Þeir sögðu hann var þar.
Þorsteinn fór til fundar við
Þorgils. Varð þar fagnafundur. Kvaðst Þorsteinn kominn af Íslandi og kvað ráð
hans standa heilt, kvaðst ekki þar til hans frétt hafa á fjórum vetrum, sagði
Þórnýju dóttur hans vera gifta Bjarna í Gröf Þorsteinssyni goða landnámamanns
"og er Þorleifur kom eigi aftur til Noregs bjó eg skip mitt og fór eg til
Íslands og var eg þar tvo vetur og frétti eg ekki þar til þín. Fór eg þá hingað
að leita þín."
"Góðs þótti mér að þér
von," segir Þorgils.
Menn komu brátt til þeirra.
Bóndi sá er þar bjó næst hét Þórir. Hann bauð Þorsteini til sín og þangað fór
hann. Eiríkur rauði bauð Þorgilsi til sín og það þekktist hann. Þangað fóru
tólf menn með honum. Þorgilsi er skipað gagnvart Eiríki og þar utar frá sat
Þorleifur, þá Kolur, þá Starkaður. Þorfinni var fengin fóstra og vill hann ekki
mjólk drekka fyrr en myrkt var. Þá var hann af brjósti vaninn. Ekki var Eiríki
margt til Þorgils og var vistin með minna þokka veitt en Þorgils hugði. Það
frétti Þorgils að þrælarnir voru þar í landi og lét eigi sem hann vissi.
25. kafli
Það bar til um veturinn að
bjarndýr lagðist á fé manna og gerði mikinn skaða. Það var einn tíma að menn
komu til kaupa við Þorgils og voru menn margir í útibúri því er varningurinn
var í. Þar var Þorfinnur.
Hann mælti við föður sinn:
"Hér er úti faðir rakki fagur og mikill."
Þorgils svarar: "Hirð
eigi um það og hlaup eigi út."
Sveinninn hljóp út sem áður
og var þar bjarndýrið fyrir. Það svipti honum undir sig. Sveinninn kvað við
hátt. Þorgils hljóp út með sverðið Jarðhússnaut. Dýrið hafði leikið við
sveininn. Þorgils höggur á milli hlustanna á dýrinu og klýfur hausinn og fellur
það niður dautt en hann tekur sveininn og var hann lítt sakaður. Verður Þorgils
nú ágætur af þessu verki og þótti stór heill til hans horfið hafa. Ekki fannst
Eiríki til þessa verks en lét þó til gera dýrið. Sögðu það sumir menn að
Eiríkur hefði haft á því fornan átrúnað.
Það er sagt um veturinn að
menn sátu í náðahúsi í Brattahlíð og þó eigi allir senn því að sumir stóðu fram
í húsinu. Þar var Kolur og Starkaður. Það var tal þeirra að þeir fóru í
mannjöfnuð og töluðu um Þorgils og Eirík. Sagði Kolur Þorgils mörg afrek ...
(Lok sögunnar samkvæmt styttri gerð, frá 33. kafla:)
Hann segist hafa níu búa
kvadda.
Skafti svarar: "Varat af
vöru, sleikti um þvöru, sæll mágurinn, láttu niður detta, engu er nýtt."
"Hverju mun það
sæta?" segir Þorgils.
Skafti svarar: "Kunnig
eru mér lög mágur," sagði hann, "svo að eg sé gjörla að engu er nýtt
til búið og er betur að niður falli því að svo hafa farið skipti ykkur að þú
hefir vanvirðu enga af fengið."
Sefast Þorgils nú við umtölur
mága sinna. Ríða menn nú af þingi og falla niður þessi mál öll.
34. kafli
Helgi hét Austmaður er út kom
í Einarshöfn og átti ferð upp í hérað og fór með varning sinn upp í
Þrándarholt. Þorgils reið að úr Gröf. Þeir riðust á móti Helgi og Þorgils og
riðu hart. Og er þeir riðust á víxl stakaði Þorgils mjög svo af baki og hló að
honum við Austmaðurinn en Þorgils var allbjúgur á baki því að veður var kalt.
Helgi mælti þá: "Lítt
sér það nú á þér Þorgils að þú hefir verið kallaður garpur mikill enda ertu nú
gamall."
Þorgils svarar: "Ekki
hafa menn það mjög plagað hér til að gabba mig. En svo hæðilegur og gamall sem
þér þykir eg vera þá býð eg þér þegar í stað einvígi og er þá fullreynt hvor af
öðrum ber."
Helgi kvað öngva von í að
hann hrykki eigi við "og mun lítill frami í að bera af fretkarli
þínum."
Austmaðurinn hafði bolöxi í
hendi.
Þorgils mælti: "Hvassara
vopn muntu hafa þurfa ef bíta skal höfuðbein mín."
Þorgils hafði sverðið
Jarðhússnaut og var alvopnaður og hljóp geyst að honum og höggur til hans með
sverðinu og kom á öxlina og vannst honum það skjótt til bana. Þorgils var þá
sjötugur og kvað þetta verið hafa hið mesta glappaverk og kvaðst þetta mundu
bæta.
Tveim vetrum síðar komu tveir
bræður Helga út og varð eigi vart við skipkomuna. Hét annar Einar en annar
Sigurður. Þeir fóru þegar í Traðarholt og var það um kveld og voru eigi í
almenningshúsum. Og um morguninn er verkmenn voru farnir til starfs fóru þeir
bræður heim í bæinn og námu staðar við skáladyr og töluðust með um hríð hversu
þeir skyldu með fara.
"Ekki þykir mér gott að
drepa gamlan mann," segir Einar.
Þorgils heyrir nú þeirra
umræðu og sprettur upp þegar og tekur sverðið Jarðhússnaut og bað þá að ganga
ef þeir vildu.
Einar mælti: "Ekki þarf
að eggja okkur til bróðurhefnda því fullvel megum við þig yfirvinna ef við
viljum. En ekki skal þér nú bóndi nokkurn ófrið gera og skal nú vera annað
erindi okkar bræðra."
Þorgils tók þessu vel og
svarar: "Eg er og þess miklu fúsari því að eg þykist sjá gjörla að þú munt
vera góður. Og þar sem eg drap bróður ykkarn þá vil eg það fullu bæta og vil eg
Einar gefa þér nú sverðið Jarðhússnaut því að mér líst svo á þig að þú megir
það vel bera. Bróður þínum vil eg fá fimm merkur silfurs."
Síðan skildu þeir með góðum
vinskap og fóru þeir bræður utan eftir það.
35. kafli
Það var einn tíma að þau Þorgils
og Helga fóru til Hjalla til heimboðs. Og eftir það tók Þorgils bóndi sótt.
Hann var þá hálfníræður. Hann lá viku og andaðist síðan. Þessu nærri andaðist
Þóroddur bóndi og Bjarni bóndi hinn spaki. Voru þeir allir jarðaðir að þeirri
kirkju er Skafti lét gera fyrir utan lækinn en síðan voru færð bein þeirra í
þann stað er nú stendur kirkjan því að Skafti hét að gera kirkju þá er Þóra
braut fót sinn þá er hún var að léreftum sínum.
Þorgils örrabeinsstjúpur
þótti hinn mesti merkismaður, vinfastur og vel stilltur, þrautgóður, djarfur og
þó stórráður ef honum var í móti gert, þoldi vel og karlmannlega stórar
mannraunir. Frá honum er kominn mikill ættbogi. Börn þeirra Þorgils og Helgu
voru þau Grímur glömmuður, Illugi og Þórður.
Þorlákur byskup var Þórhallsson.
Móðir hans var Eyvör. Móðir Eyvarar var Jórunn dóttir Þorgils örrabeinsstjúps
og Helgu. Oddur hét son þeirra. Hann var faðir Jóns, föður Gissurar, föður
Gríms, föður Guðlaugar, móður Jörundar byskups. Sonur Gríms glammaðar
Þorgilssonar var Ingjaldur, faðir Gríms, föður Einars, föður Hallkötlu, móður
Steinunnar, móður Herdísar, móður Bjarnar, föður Gissurar galla, föður Hákonar,
föður Jóns.